Morgunblaðið - 19.03.1983, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
47
Víkingar með tvö stig
Úrslitakeppni efstu liða 1.
deildar í handbolta hófst ( gær-
kvöldi í Hafnarfirði. Fyrst léku
Stjarnan og Víkingur og sigruðu
Víkingar 22:19 í æsispennandi, og
miklum baráttuleik. Staöan í hálf-
leik var 11:9 fyrir Víkinga.
Stjarnan náöi tvívegis aö jafna í
síöari hálfleik, 18:18 og 19:19, en
svo skoruðu Víkingar þrjú siöustu
mörkin og tryggöu sér sigur.
Mörk Víkings: Sigurður 7 (2v), Viggó 4
(1v), Þorbergur 3, Olslur 2, Guómundur 2,
Páll 2, Stsinar 1 og Hilmar 1. Mörk Stjörn-
unnar: Ólafur 5, Guóm. Óskaraa. S, Eyjólfur 4,
Magnús 2, Sigurjón 2 og Guóm. Þórðars. 1.
Seinni leikurinn í Hafnarfirði
var milli FH og KR. Leikurinn var
mjög harður og frábærlega leik-
inn. Jafntefli varð 23:23, en FH var
yfir í hálfleik 11:7.
FH komst í 7:1 í byrjun, en
KR-ingar náöu að vinna muninn
upp með mikilli baráttu. Er ein
mín. var eftir var staðan 22:22 og
skoraöi Guömundur Albertsson þá
23. mark KR. FH sneri þá vörn í
sókn og Pálmi Jónsson skoraði
jöfnunarmarkið er 5 sek. voru eftir.
Gunnar Gíslason var yfirburöa-
maður hjá KR en Kristján Ara og
Pálmi voru bestir hjá FH.
Mörkin. FH: Kristján Ara 6 (1v), Pálmi 6,
Hans 4, Þorgils Óttar 3, Guómundur 2,
Sveinn 2. KR: Gunnar Gíala S (3v), Alfreö 6,
Stefán 4, Jóhannes 2, Anders Dahl 1 (v),
Guómundur 1 og Haukur Otl. 1. — SH.
Nánar á þriðjudaginn.
Önnur úrslit
Úrslitin í neðri úrslitariöli 1.
deildarinnar í handbolta í gær-
kvöldi urðu þessi:
Valur - Þróttur 28:23
ÍR - Fram 15:26
Úrslit í 2. deild. Efri riöill: KA
vann Gróttu 19:18 og Breiðablik
vann Hauka 27:17.
Júlíus gefur
ekki kost á
sér áfram
FORMAÐUR HSÍ, Júlíus Hafstein,
hefur ákveöið að gefa ekki kost á
sér í stjórn HSÍ á næsta aðal-
fundi. Júlíus hefur setið í stjórn
HSÍ síðastliðin 9 ár og þar af sem
formaður síðustu 5 ár.
— ÞR
• Torfi Valsfyrirliði hefur þarna
betur í keppninni viö Björn Víking
í leik líðanna síðastl. þriðjudag.
Hvor hefur betur á mánudags-
kvöldið? Ljóem. KÖE
Vinnum tvöfalt
„VIÐ ERUM ákveðnir í því að
vinna á mánudaginn, já, og viö
stefnum aö því að vinna tvöfalt,
bæði deild og bikar. Við höfum
stefnt aö því í allan vetur og ger-
um þaö að sjálfsögöu enn,“ sagði
Torfi Magnússon, fyrirliöi Vals.
„Viö erum ekki búnir að vinna
neitt ennþá, nema Reykjavíkur-
mótiö. Ég tel þaö ráöa miklu á
mánudag hvort liöiö hefur meiri
vilja til að vinna. Reynsla okkar
held ég aö muni vega þungt, og ég
held aö viö séum meö sterkari
liöshelld. Liö okkar veikist ekki
neitt þó viö skiptum inn á,“ sagöi
Torfi.
Torfi vildi aö lokum hvetja alla
Valsara til aö koma og hvetja sina
menn, þannig aö Valur ynni IBK
líka á áhorfendapöllunum. „Ef viö
fáum góöan stuðning lofa ég sigri,"
sagöi Torfi. — SH
„Stefnum að sigri“
UEFA-keppnin
DREGIÐ var í Evrópukeppnunum
þremur í gær og er sagt frá drátt-
unum í keppni meistaraliöa og
keppni bikarhafa annars staöar á
íþróttasíðunni.
í UEFA-keppninni leika saman
Bohemians Prag og Anderlecht
annars vegar og Benfica Lissabor.
og Universitatea Craiova frá Rúm-
eníu hins vegar. Liöin sem talin eru
á undan leika heimaleikinn fyrst.
„LEIKURINN leggst mjðg vel í
okkur. Við erum mjðg ákveðnir
og stefnum auðvitaö að sigri. Sig-
ur er markmið okkar í hverjum
leik,“ sagöi Bjðrn V. Skúlason,
fyrirliöi Keflvíkinga, í samtali við
Mbl. í gær, vegna úrslitaleiksins í
úrvalsdeildinni í Hðllinni á mánu-
dagskvöld.
Björn sagði aö Keflvíkingar
heföu lagt áherslu á aö æfa þá
veikleika sem fram heföu komiö í
leiknum á þriöjudaginn. „Þá fengu
þeir of mörg hraöaupphlaup og
þannig of margar ódýrar körfur.
Við vorum líka of bráöir í sókninni,
og ég er viss um aö viö veröum
þolinmóöari nú,“ sagði Björn.
Hann vildi aö gefnu tilefni koma
því á framfæri, aö áhangendur ÍBK
heföu hagaö sér mjög vel í vetur.
„Viö viljum mótmæla því sem fram
kom í einu blaöanna eftir leikinn á
þriöjudaginn aö þeir heföu „enn
einn ganginn" orðiö sér tll skamm-
ar. Þaö er ekki á rökum reist,“
sagöi Björn Víkingur. — SH
Þráinn með nýtt
íslandsmet í tugþraut
„LOKSINS fékk maður eitthvað
út úr öllu þessu margra ára puði,“
sagði Þráinn Hafsteinsson frjáls-
íþróttamaður úr HSK í samtali við
Morgunblaðið í gær, en í fyrradag
setti hann stórglæsilegt ís-
landsmet í tugþraut, hlaut 7.718
stig. Þráinn bætti sinn fyrri ár-
angur um 375 stig og íslandsmet
Stefáns Hallgrímssonar frá 1976
um 179 stig.
„Ég átti ekki beint von á meti,
en vissi þó að allt gat gerst ef
engin grein yröi mjög slök hjá
mér. Ég fór til mótsins með þá
von í brjósti að ná 7.550 stigum,
sem er lágmarkið á bandaríska
háskólameistaramótið í sumar.
Ég er því hæstánægður meö út-
komuna," sagöi Þráinn.
„Fyrst ég náöi þessum árangri
nú keppi ég ekki aftur í tugþraut
fyrr en 15. maí, og síöan aftur á
háskólameistaramótinu i júníbyrj-
un,“ sagöi Þráinn. Hann hefur meö
þessum góöa árangri náö lágmarki
til þátttöku í heimsmeistaramótinu
í Helsinki í sumar, og jafnframt er
þetta betra en Ólympiulágmarkiö,
en þaö tekur gildi 1. júlí nk. Meö
árangri sínum varö Þráinn fyrstur
háskólanema i Tuscaloosa til aö
ná lágmarki á bandaríska háskóla-
meistaramótiö utanhúss.
Þráinn setti íslandsmetið i há-
skólakeppni í Tallahassee á Flór-
ída. Hann varö í öðru sæti af 23
keppendum. Sigurvegarinn hlaut
7.782 stig, eða 64 fleiri en Þráinn,
en piltur sá varð silfurverðlauna-
hafi á bandaríska háskólameist-
aramótinu í fyrra. Þráinn náöi
7.343 stigum á sama móti í fyrra,
en það er hans næstbezti árangur.
Arangur Þráins í einstökum
greinum var sá, aö fyrri daginn
hljóp hann 100 metra á 11,3 sek-
úndum, stökk 6,60 í langstökki,
varpaöi kúlu 15,50 metra, stökk
1,88 metra í hástökki og hljóp 400
metra á 49,7 sekúndum. Síöari
daginn hljóp hann 110 metra
grindahlaup á 15,4 sekúndum,
kastaði kringlu 50,46 metra, stökk
4,05 metra á stöng, kastaði spjóti
57,54 metra og hljóp loks 1500
metra á 4:25,1 mínútu. Þetta er allt
jafn og góöur árangur og hann
stórbætir sig í 400 metra hlaupi.
— ágás.
McKinney
sigurvegari
ERIKU Hess tókst ekki að sigra í
stórsvigi heimsbikarsins í Japan í
gær og því er Tamara McKinney,
Bandaríkjunum, orðin sigurvegari
í heimsbikarkeppninni.
KR-sigur
KR-ingar unnu UMFN í Njarðvík
í gærkvöldi í úrvalsdeildinni 98:84
(42:38). Johnson skoraði 47 stig
fyrir KR og kotterman 34 fyrir
UMFN.— ÓT/—SH.
Nánar A þriöjudaginn.
ísl-mót í júdó
Keppt í opnum
flokkum um
helgina
í DAG, laugardag, fer fram síöari
hluti íslandsmótsins í júdó.
Keppt verður í opnum flokkum.
Keppnin hefst kl. 15.00 í íþrótta-
húsi Kennaraskólans.
Bikarúrslit
í blakinu
ÍS og Þróttur leika ó morgun,
sunnudag, til úrslita í bikar-
keppninni í blaki og hefst leikur-
inn kl. 14.00 í Hagaskólanum.
Þetta er í níunda sinn sem keppt
er um hinn glæsilega Ljóma-
bikar og hefur IS sigrað þrívegis,
Laugdælir hafa einu sinni unnið
og Þróttur fjórum sinnum.
ekki atvinnuleyfið
söluverðið of hátt“
Lokeren vildi fá 350 þúsund pund fyrir Arnór:
„Fengum
og fannst
- segir Bobby Fergusson framkvæmdastjóri Ipswich
• Lokeren-liðið í dag. Arnór er (fremrl röð, þrlðjl frá vinstri. Loker-
en vildi fá 350 þúsund sterlingspund fyrir Amór. En þaö eru um 11
milljónir íslenskra króna.
„JÁ, ÞAÐ er alveg rétt að við höf-
um sýnt mikinn áhuga á því að fá
Lokeren-leikmanninn Arnór Guö-
johnsen til liðs við okkur. Hug-
mynd okkar var sú að hann
myndi leysa Alan Brazil af á miðj-
unni, en eins og öllum er kunnugt
höfum við nú selt Brazil til Tott-
enham.“ En það er nú oröið Ijóst
að þaö verður ekkert af kaupun-
um. Það sem var í veginum var
atvinnuleyfið, okkur tókst ekki að
útvega þaö, þó Lokeren vildi fá
350 þúsund sterlingspund fyrir
Arnór, sem er mjög há upphæð
þegar þess er gætt aö salan á sér
staö á milli tveggja landa i Efna-
hagsbandalaginu,“ sagði Bobby
Fergusson framkvæmdastjóri
Ipswich í samtali við Morgun-
blaðið í gærdag. En þá loks tókst
að ná sambandi við Fergusson til
þess að inna hann eftir því hvort
Ipswich myndi láta verða af því
að kaupa Arnór. En eins og Mbl.
hafði greint frá hafði Ipswich
mikinn áhuga á því að kaupa Arn-
ór strax frá Lokeren. Höfðu samn-
ingar tekist á milli Arnórs og
Ipswich en Lokeren og Ipswích
áttu eftir að ganga frá sínum
samningum og svo átti eftir að
útvega atvinnuleyfiö.
— Arnór er mjög efnilegur leik-
maöur, og ég hef trú á því aö hann
eigi eftir aö ná langt. Hann er
sterkbyggöur og haröur leikmaöur.
Jafnframt fylginn sér og ákveöinn.
Þaö eru einmitt þannig leikmenn
sem ég þarf. Aö mínum dómi er
enska knattspyrnan sú erfiöasta
og haröasta í veröldinni í dag. j
henni gerir þaö enginn gott nema
aö vera mjög góöur knattspyrnu-
maður. Arnór er nokkuö ungur en
viö höfum trú á honum.
— Ég skal viöurkenna aö okkur
hér hjá Ipswich fannst söluverö
hans nokkuö hátt. Og þegar okkur
gekk ekkert aö fá atvinnuleyfið
fyrir hann þá var máliö úr sögunni,
sagöi Bobby Fergusson.
Þegar Fergusson var spuröur að
því hvort hann væri ánægöur meö
frammistööu Ipswich í vetur sagöi
hann.
— Nei mér finnst meira búa í
liöinu. Við höfum átt góöa leiki og
leikiö mjög vel en svo hafa komið
slæmir kaflar inná milli. En ég er
bjartsýnn á framtiöina og hef trú á
því aö viö sigrum Nottingham For-
est um helgina.
— ÞR.
• Bobby Forguaaon fram-
kvæmdastjóri Ipswich líst val á
Arnór sem knattspyrnumann.