Morgunblaðið - 19.03.1983, Page 48
j^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
muni() trulofunarhrinjia
litmvndalistann fffi)
<@ull & é>tlíur
Laugavegi 35
LAUGARDAGUR 19. MARZ 1983
r 'r ;
Sprengt í
Loömundarfirði
Vatnssúlan stígur hátt til himins, þegar ein af sprengjunum úr flaki El Grillos er sprengd á Loðmundarfirði. Skipverjar á varðskipinu
Þór og sprengjusérfræðingar fóru með þrjár sprengjur í Loðmundarfjörð í fyrradag og sprengdu þær. Sjá frásögn og fleiri myndir í
midopnu. Morgunbladid/Kristján Þ. Jónsson.
Lóðaframboð í Reykjavík:
Um 2.850 lóðum verður út-
hlutað á þessu kjörtímabili
- 41,7% í einbýli, 27,3% í raðhúsum og 31% í fjölbýli
Galfoway holdanauta-
stofninn í Hrísey:
Fyrsti naut-
kálfurinn
af 3. ætt-
lið fæddur
FYRSTI nautkálfurinn af 3. ætt-
lið fæddist í einangrunarstöðinni
í Hrísey þann 14. mars sl.
Hann er 87,5% Galloway, eða
með öðrum orðum er hann
87,5% út af innfluttu sæði úr
Galloway-nautum í Skotlandi.
Að öllu eðlilegu munu fæðast
kálfar undan þessum nautkálfi
eftir rösklega 2 ár. Verða þeir
þá 44% Galloway ef mæðurnar
eru hreinræktaðar íslenskar
kýr.
Refa- og
minka-
skinn
hækka
REFA- og minkaskinn hækkuðu
í verði á uppboðum á Norður-
löndunum í þessum mánuði. Á
uppboði sem nýlega lauk í Kaup-
mannahöfn hækkuðu minka-
skinnin um 5—10% miðað við
janúaruppboðin. Svartminka-
skinn seldust að meðaltali fyrir
577 íslenskar krónur en brún-
minkaskinn fyrir ura 600 krónur.
Refaskinnin sem lækkuðu
um 25—30% á fyrstu uppboð-
unum í haust eru nú heldur á
uppleið aftur. Á uppboðið í
Kaupmannahöfn komu 380.000
finnsk refaskinn, 98% þeirra
seldust og var meðalverðið 885
krónur íslenskar. Er það held-
ur betra verð en fékkst í janú-
ar.
í vetur koma á hinn vest-
ræna markað um 26 milljónir
minkaskinna og er það mesta
magn sem framleitt hefur ver-
ið. Ekki verður þó annars vart
en að markaðurinn ætli að
þola aukninguna.
Lokeren vildi fá
11 milljónir kr.
fyrir Arnór
- Salan til Ipswich
gekk til baka
Framkvæmdastjóri Ipswich,
Bobby Fergusson, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gærdag, að
Ipswich hefði ekki fengið at-
vinnuleyfi í Englandi fyrir Arnór
Guðjohnsen og því mun ekkert
verða af því að hann fari til fé-
lagsins.
Þá segir Fergusson frá því að
Lokeren hafi viljað fá 350 þús-
und sterlingspund fyrir Arnór.
En það eru um 11 milljónir ís-
lenskra króna.
Sjá frétt á íþróttasíðu.
LÓÐAFRAMBOÐ í Reykjavík á
þessu kjörtímabili verður um
2.850 lóðir og eru þessar lóðir við
Grafarvog, í Selási, í Ártúnsholti, í
Nýjum miðbæ og við Jaðarsel. Þar
á meðal eru og lóðir fyrir söluíbúð-
ir aldraðra og hafa verið tekin til
athugunar fjögur svæði í borginni
til þeirra nota. Því verður um að
ræða um 712 íbúða meðaltalsút-
hlutun á ári á þessu kjörtímabili,
en þess má geta að á síðasta
kjörtímabili, þegar vinstri meiri-
hlutinn var við völd, var úthlutað
um 400 lóðum á ári að jafnaði.
Þessar upplýsingar fékk
Morgunblaðið hjá Vilhjálmi Þ.
Vilhjálmssyni, borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins og for-
manni skipulagsnefndar
Reykj avíkurborgar.
Vilhjálmur sagði að lóðir
þessar skiptust þannig, að við
Grafarvog eru 960 lóðir fyrir
einbýlishús, 520 fyrir raðhús og
270 íbúðir verða í fjölbýli. í Sel-
ási verður úthlutað 110 lóðum
fyrir einbýlishús, 190 lóðum
fyrir raðhús og 144 íbúðir verða
í fjölbýli. í Ártúnsholti koma til
úthlutunar 150 íbúðir í fjölbýli
og í Nýjum miðbæ verða 250
slíkar íbúðir. Þá verður úthlutað
við Jaðarsel 25 lóðum fyrir ein-
býlishús og 8 fyrir raðhús. Sam-
tals er hér um að ræða 1.095
einbýlishúsalóðir, 718 raðhúsa-
lóðir og 814 íbúðir í fjölbýlishús-
um. Alls eru lóðirnar 2.627 tals-
ins og er hlutfall einbýlishúsa-
lóða í heildarframboðinu 41,7%,
hlutfall raðhúsalóða er 27,3% og
hlutfall íbúða í fjölbýlishúsum
er 31%.
Vilhjálmur sagði að auk þessa
hefðu borgaryfirvöld í hyggju að
reistar yrðu 220 til 240 söluíbúð-
ir fyrir aldraða og þegar lægi
fyrir tillaga um staðsetningu'
íbúðanna. Um væri að ræða
fjóra byggingareiti og væru þeir
allir vestan Elliðaáa. Sagði
Vilhjálmur að þessir bygginga-
reitir væru í Nýjum miðbæ, í
Laugardal, í Hliðahverfi og á
Eiðsgranda.
Varðandi framboð lóða í ár,
sagði Vilhjálmur að 1.117 lóðir
yrðu gerðar byggingarhæfar á
þessu ári, en þar er um að ræða
390 lóðir við Grafarvog, 444 í
Selási, 100 í Nýjum miðbæ, 150 í
Ártúnsholti og 33 við Jaðarsel.
Lóðirnar við Grafarvog skiptast
þannig að 250 þeirra eru fyrir
einbýlishús, 90 fyrir raðhús og
50 fyrir íbúðir í fjölbýli. í Selási
er um að ræða 110 einbýlishúsa-
lóðir, 190 raðhúsalóðir og 144
íbúðir í fjölbýli. í Nýjum miðbæ
og í Ártúnsholti er um fjölbýl-
ishúsaíbúðir að ræða og við Jað-
arsel eru einbýlishúsalóðirnar
25, en raðhúsalóðir eru 8.
Vilhjálmur gat þess ennfrem-
ur að auk þeirra 390 lóða við
Grafarvog, sem byggingarhæfar
verða í ár, yrði einnig úthlutað
500 einbýlishúsalóðum í vor,
sem verða byggingarhæfar árin
1984 og 1985.
Vestur- og miðbær Reykjavíkur:
Von á 2—3 hundruð
nýjum símanúmerum
„ÞAÐ ER von á því að úr skorti á
símanúmerum í vestur- og miðbæ
Reykjavíkur rætist áður en langt
um líður þegar útbúnaður, sem
keyptur hefur verið frá Kanada,
kemur til landsins, en hann mun
gera okkur kleift að flytja laus
símanúmer milli borgarhluta,“
sagði Þorvarður Jónsson, yfir-
verkfræðingur Pósts og síma í
samtali við Mbl. í gær.
Eins og fram hefur komið í
fréttum er langur biðtími eftir
síma í vestur- og miðbæ vegna
þess að Landsímastöðin við
Austurvöll annar ekki eftir-
spurn. Þorvarður kvað hins veg-
ar nú laus símanúmer vera í hin-
um níu stöðvunum á Reykjavík-
ursvæðinu, en með tilkomu hins
nýja útbúnaðar yrði unnt að
flytja 200—300 laus símanúmer
úr Breiðholti í símstöðina við
Austurvöll til bráðabirgða. En
vandinn yrði ekki að fullu leyst-
ur fyrr en í byrjun næsta árs
þegar 1000 ný númer kæmu til
sögunnar.