Morgunblaðið - 30.03.1983, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1983
11
Fjörugur stjórnmálafundur
Stokkhólmi, frá Guðfinnu Rngnarsdóttur.
FJÖRUGUR stjórnmálafundur var
haldinn hjá íslendingafélaginu í
Stokkhólmi nýlega. Þá komu Birgir
ísleifur Gunnarsson og Geir Haarde
í heimsókn til Stokkhólms á leið
sinni um Svíþjóð, þar sem þeir
kynntu íslendingum búsettum í Sví-
þjóð stefnu Sjálfstæðisflokksins og
helstu baráttumál á komandi kosn-
ingum.
Fundurinn í Stokkhólmi var
mjög vel sóttur og umræður urðu
fjörugar þótt Olafur Ragnar
Grímsson; sem einnig átti að vera
á fundinum og kynna stefnu Al-
þýðubandalagsins yrði veður-
tepptur á fslandi.
En fundargestir virtust vera úr
öllum flokkum og fyrirspurnir og
umræður komu inn á flesta mál-
aflokka þjóðlífsins. Mikið var
spurt um atvinnumál og orkumál,
tryggingakerfið, menningarmál,
m.a. frjálst útvarp, álmálið,
námslán og húsnæðismál.
Geir Haarde gerði grein fyrir
stefnu Sjálfstæðisflokksins í hús-
næðismálum, lánakerfinu og fjár-
mögnun húsnæðis fyrir ungt fólk.
Birgir ísleifur Gunnarsson og
Geir Haarde héldu einnig kynn-
ingarfundi m.a. í Þrándheimi í
Noregi og í Kaupmannahöfn.
Sömuleiðis í Uppsölum, Jönköp-
ing og Gautaborg i Svíþjóð.
Volvo C-202 fjórhjóladrifinn
Glænýr 82 hestafla meö tveggja lítra bensínvél lengd 4 metrar, 8 sæta, „hardtop". Útflutnlngsverö 29.900 þýsk mörk. 4 bílar fyrirliggjandi.
H. Runde, car import-export, Glossholz 19, 8998 Lindenbarg, Wast Germany. Telex 51145 sími 08381/2611,
Einbýlishús — 4ra herb. hæð
Þurfum að útvega einbýlishús í Selia- eða Skógahverfi einnig þurf-
um viö að útvega 4ra herb. hæð helst á Skólavörðuholti eða Vestur-
bæ, aðrir bæjarhlutar koma til greina.
Fasteignasalan Hátún,
Nóatúni 17. Sími 21870 og 20998.
fma^mmm—mmmmmmmmmmmmmmm^^
20424
14120
Keflavík
— Einbýli
Einbýli viö Smáratún. Húsiö er á tveimur hæöum
meö möguleika á aö skipta í tvær 4ra herb. íbúöir,
auk þess er eitt herb. og eldhús í kjallara. Bílskúr
fylgir. Verö 1800 þús.
Jörðin Gljúfur
i Ölfushreppi Árnessýslu er til sölu ef viðunandi tilboð fæst. Jörðin
er á fallegum friðsælum stað, ca. 470 hektarar. Tún ca. 30 hektarar.
Á jöröinni er tvibýlishús, fjós fyrir 30 gripi, fjárhús fyrir 220 fjár,
tvær hlöður, hesthús, hænsnahús, verkfærageymsla og bílskúr.
Vélar og bústofn geta fylgt. Jöröin er til sýnis næstu daga eftir
hádegi.
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Helgi Ólafsson,
lögg. fasteignasali.
Kvöldsími 21155.
29555 — 29558
Flyðrugrandi
Vorum aö fá í einkasölu 4ra—5 herb. íbúð 138 fm á 2. hæð viö
Flyörugranda. Sér inng. Vandaðar innréttingar. Ákv. sala.
Seltjarnarnes — Einbýli
Vorum aö fá til sölumeöferðar einbýlishús sem er kjallari, hæö og
ris, samtals um 200 fm. Skiptist í 5 svefnherb., tvær samliggjandi
stofur, eldhús og w.c. Húsiö þarfnast standsetningar en er endur-
nýjað að hluta. Hugsanlegt aö taka 3ja herb. á Seltjarnarnesi eða
Vesturbæ upp í hluta kaupverös.
Upplýsingar i síma.
Eignanaust S!<,phollls.
Þorvaldur Lúövíksson hrl., Sími 29555 og 29558.
Rauöalækur
Skemmtileg og björt 6 herb.
140 fm sérhæð á 1. hæð. Bíl-
skúrsréttur. Sér inngangur.
Álmholt — Mosfellssv.
Nýlegt ca. 150 fm einbýli á einni
hæð. Tvöfaldur bílskúr. Verð
1900 þús.
Leirutangi
Skemmtilegt 150 fm fokhelt
I einbýli á einni hæð. 52 fm bíl-
skúr. Teikn. á skrifstofu.
Grenigrund
Rúmgóð 5—6 herb. sérhæö í
þríbýli. Sér inng. Nýr 32 fm
bílskúr. Verö 1850 þús.
Arnarhraun
Mjög rúmgóö 120 fm 4ra herb.
íbúö á 2. hæð í blokk. Góöar
innréttingar, bílskúrsréttur.
Verð 1300 þús.
Engihjalli
Mjög vönduö og rúmgóð 4ra
herb. íbúð á 2. hæð. Tvennar
svalir. Verð 1400 þús.
Sólvallagata
4ra herb. ibúö á 2. hæð í þríbýli.
Nýtt þak, nýlegt gler. Verö 1300
þús.
Kjarrmóar
Nýtt 3ja herb. raöhús. Góöar
innréttingar, bílskúrsréttur.
Verð 1450 þús.
Krummahólar
2ja herb. góð íbúð á 5. hæð,
bílskýli. Laus strax. Verö 850
þús.
Njálsgata
Góð 3ja herb. íbúð á 2. hæð.
Þríbýli, falleg lóð, góöur bílskúr.
Verð 950 þús.
r
SIÐUMULA 17
Lúðvík Hjálmtýsson um reglugerð
um eftirlit á hálendinu:
„Er til bóta ef hægt
verður að fram-
kvæma þetta eftirlit“
„Ef hægt verður að framkvæma þetta eftirlit þá er reglu-
gerðin til bóta. Ég fagna henni ef hún nær þeim tilgangi að
vernda það sem í raun og veru þarf að vernda,“ sagði Lúðvík
Hjálmtýsson ferðamálastjóri er hann var inntur álits á reglu-
gerð, sem samgönguráðuneytið gaf út fyrir helgi um eftirlit
með skipulögðum hópferðum útlendra aðila til íslands, og
sagt var frá í Mbl. á sunnudag.
Samkvæmt regiugerðinni er ferðamálaráði falið að fylgjast
með áætlunum útlendra aðila um sölu hópferða til íslands í
atvinnuskyni.
„Það hefur verið mikið rætt
og skrafað um ferðir í óbyggð-
um, og alltaf hefur verið fyrir
hendi einhver ótti vegna þess-
ara ferðalaga, allt frá því menn
fóru að venja komur sínar inn á
hálendið, inn á þessi helgu vé.
íslendingar fara þarna um ekki
síður en erlendir menn, og
þarna smala bændurnir á jepp-
um inn á hálendinu.
í raun og veru eru til lög sem
ná yfir alla verndun á hálend-
inu og í óbyggðum. Þar á ég
fyrst og fremst við lög um nátt-
úruvernd, lög um útlendinga^
eftirlitið, tollgæzluna o. fl. í
raun og veru er í þessari reglu-
gerð verið að setja saman á
einn stað útdrátt úr lögum sem
eru til en hafa ekki verið fram-
kvæmd. Þessi lög hafa ekki ver-
ið framkvæmd vegna gífurlegs
kostnaðar og fyrirhafnar sem
því hefði verið fylgjandi," sagði
Lúðvík.
jNNLEivrr
Páskalömbin í Eyjum
Páskalömbin eru fædd í Bráðlæti í Vestmannaeyjum, eins og sjá má á
myndum Sigurgeirs. Bjarni Sighvatsson, útvegsbóndi, og Hinrik, sonur
hans, eru stoltir með lömbin sín eins og sjá má.
Magnús Axelsson