Morgunblaðið - 30.03.1983, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1983
Bretland:
Pólskir flóttamenn
fá landvistarleyfi
liondon, 29. marz. AP.
RÚMLEGA 30 Pólverjar, sem voru í orlofi og fóru með leynd í land af pólsku
skemmtiferðaskipi er kom til London fyrir tveimur vikum, munu fá landvist-
arleyfi í Bretlandi í eitt ár. Skýrðu brezk stjórnvöld frá þessu í dag.
Það er talið ráða miklu um
þessa ákvörðun brezkra stjórn-
valda nú, að þau hafa sætt mikilli
gagnrýni fyrir að láta flytja úr
landi flóttamann frá Rúmeníu
fyrir skömmu, en hann var settur
með valdi um borð í rúmenska
flugvél, sem flutti hann aftur til
heimalands síns. Maður þessi,
Papusoiu, var 19 ára gamall. Hon-
um hafði verið smyglað inn í
Bretland í apríl á síðasta ári, en
þá hafði hann að baki sér 9 ára
fangelsisvist í Rúmeníu fyrir
ítrekaðar tilraunir til þess að flýja
land.
William Whitelaw, innanríkis-
ráðherra Bretlands, hefur sagt, að
Pausoiu hafi ekki fullnægt ákvæð-
um laga um pólitíska flóttamenn
og tilgangur hans með landvist i
Bretlandi hafi fyrst og fremst ver-
ið að komast þangað, þar sem
lífskjör væru betri en í heimalandi
hans.
Pólsku flóttamennirnir, sem
fengið hafa landvistarleyfi í Bret-
landi, eru úr hópi 390 farþega á
pólska skipinu Stefan Batory, sem
kom til hafnar í Tilbury við Tham-
esfljótið fyrir austan London fyrir
Frelsissveit-
irnar herða
enn róðurinn
Islamahad, Pakistan. 29. mars. AP.
AÐ SÖGN vestrænna diplómata hafa
að minnsta kosti 32 látið iiTið í nokkr-
um bardögum á milli stjórnarhersins
og frelsissveita Afgana undanfarna
daga.
Samkvæmt fregnum frá Afgan-
istan urðu meðlimir frelsissveit-
anna 15 stjórnarhermönnum að
bana í Haiderabad, skammt vestur
af borginni Ghazni, þegar ráðist var
á birgðaflutningalest.
í kjölfar árásarinnar réðust frels-
isveitirnar inn í borgina Ghanzi og
handtóku þar 40 manns, sem gættu
vopnabúrs stjórnarhersins.
Þá var frá því skýrt, að tíu með-
limir afganska kommúnistaflokks-
ins hefðu fallið fyrir kúlum frels-
issveitamanna dagana 4. og 5. mars
sl. í Kandahar-héraði.
Þá hafa frelsissveitirnar hert
mjög baráttu sína gegn liðhlaupum
og svikurum úr eigin röðum að und-
anförnu og tekið nokkra menn að
lífi fyrir uppljóstranir.
tveimur vikum. Sumir flótta-
mennirnir fóru með járnbrautar-
lest til London, en aðrir létu sig
hverfa í brezku höfuðborginni í
kynnisferðum, sem farnar voru
þangað af skipinu, og höfðu síðan
samband við samtök pólskra
flóttamanna í Bretlandi.
Þrátt fyrir það að þessum
pólsku flóttamönnum væri veitt
landvistarleyfi í Bretlandi nú, þá
hefur Whitelaw lýst því yfir, að
þetta þýddi ekki, að verið væri að
opna dyrnar fyrir ótakmarkaðri
landvist flóttamanna frá Austur-
Evrópu í Bretlandi.
Veður
víða um heim
Akureyri 0 snjóól
Amsterdam 8 heióskírt
Aþena 21 heíóskírt
Barcelona 16 léttskýjaó
Bertín 7 skýjaó
BrUssel 8 skýjaó
Chicago 3 skýjaó
Dublin 9 rigning
Frankfurt 6 skýjaó
Færeyjar 6 sjónól
Helsinki 5 heióskirt
Hong Kong 18 skýjaó
Jerúsalem 19 heióskirt
Jöhannesarborg 28 heióskirt
Kaupmannahöfn 3 snjókoma
Lissabon 16 skýjaó
London 9 skýjaó
Los Angeles 17 heióskírt
Madrid 13 heióskirt
Malaga 18 heióskfrt
Mallorca 13 skýjaó
Mexikóborg 25 heióskirt
Miami 26 skýjaó
Moskva 12 skýjaó
Nýja Delhí 29 heióskfrt
New York 13 skýjaó
Osló 1 snjókoma
París 9 skýjaó
Peking 17 heióskfrt
Perth 29 skýjaó
Reykjavík 0 skýjað
Rio de Janeiro 32 heióskfrt
Rómaborg 13 skýjaó
San Francisco 17 skýjaó
Stokkhóimur 5 skýjaó
Tel Avív 21 heióskfrt
Tókýó 12 skýjað
Vancouver 12 rigning
Vínarborg 8 skýjaó
Varnarkerfi í geimnum
Mynd þessi sýnir hvernig listamaður nokkur hugsar sér varnarkerfi meó laser-geislum, sem beinir laser-geislum
frá jörðu með nokkurs konar spegli á braut umhverris jörðu að aðvífandi eldflaug.
Mikið fjaðrafok í Danmörku vegna dreifingar baráttusöngs á fundi:
Vísuðu 30 manns úr ungliða-
hreyfingu íhaldsflokksins
Kaupmannahörn, 29. mars. AP.
MIKIÐ fjaðrafok hefur orðið í Danmörku vegna dreifingar nokkurra með-
lima ungliðahreyfingar danska íhaldsflokksins á baráttusöng, þar sem hvatt
er til þess að ungir Danir klæðist svörtum stígvélum, slálhjálmum og græn-
um einkennisbúningum og hefji herferð gegn „rauðliðunum“.
Þrjátíu meðlimir ungliðahreyf-
ingarinnar voru í dag reknir úr
henni fyrir þetta uppátæki með
þeim orðum, að slíkt yrði ekki liðið
innan hreyfingarinnar. Paul
Schluter, forsætisráðherra Dana,
er formaður danska íhaldsflokks-
ins.
Talsmaður flokks forsætisráð-
herrans, sem nýtur nú mikils fylg-
is í Danmörku í kjölfar hægri-
sveiflu á meðal ungra kjósenda,
lýsti uppátæki ungliðanna sem illa
innrættri „nostalgíu" og bað unga
íhaldsmenn vinsamlegast að
leggja slíkan barnaskap á hilluna.
Anker Jörgensen, fyrrum for-
sætisráðherra Dana og leiðtogi
sósíaldemókrata, sagðist ekki geta
ímyndað sér, að einhver alvara
hefði verið á bak við uppátæki
ungliðanna. Forystumenn hreyf-
ingarinnar voru hins vegar ekki í
neinum vafa og vísuðu 30-menn-
ingunum á dyr.
„Það kann vel að vera að ein-
hverjar afsakanir kunni að vera
bornar fram vegna þessa máls, en
við líðum ekki neinar tilhneig-
ingar í þá átt, sem fram kemur í
umræddum söng,“ sagði Lars
Poulsen, formaður ungliðahreyf-
íngannnar.
Forsprakki þeirra, sem stóðu að
dreifingu söngsins, bar því við að
hann hefði ekki einu sinni verið
sunginn, heldur honum aðeins
dreift til þess að lífga upp á and-
rúmsloft sérstaks kynningarfund-
ar, sem ungliðahreyfingin gekkst
fyrir. „Þetta var allt gert í gamni,"
sagði hann.
Erik Ninn-Hansen, dómsmála-
ráðherra og einn framámanna
fhaldsflokksins, var hins vegar
ekki þeirrar skoðunar, að uppá-
tækið væri fyndið á einn eða ann-
an hátt. Lagði hann til að danska
rannsóknarlögreglan tæki málið
til meðferðar. Þeirri tillögu var
hafnað af forystu ungliðahreyf-
ingarinnar.
Handtóku tvo bandaríska
fréttamenn í E1 Salvador
San Salvador, 28. mars. AP.
Lögregluyfirvöld í San Salvador
framlengdu í dag gæsluvarðhald
bandaríska blaðamannsins TJ.
Western í tengslum við grein, sem
hann skrifaði um borgarastyrjöldina
í landinu. Yfirvöld neita að segja
„Augu og eyru KGB
á S-Atlantshafi“
Nýjar uppljóstranir um njósnarann Dieter Gerhardt í Suður-Afríku
Iiondon, 29. marz. AP.
HÁTTSETTUR flotaforingi í
Suður-Afríku, sem ákærður hefur
verið fyrir njósnir í þágu Sovétríkj-
anna, var „augu og eyru KGB á
Suður-Atlantshafi“. Hefur brezka
blaðið The Daily Mail þetta í dag
eftir frönskum gagnnjósnara, sem
ekki er nafngreindur.
Samkvæmt frásögn hans á
njósnarinn, Diéter Gerhardt,
sem er 46 ára gamall, að hafa
látið Sovétríkjunum í té leynd-
armál varðandi herlið Breta í
Falklandseyjastríðinu við Arg-
entínumenn í fyrra. Gerhardt
var handtekinn, eftir að sviss-
nesk yfirvöld létu stjórnvöld í
Suður-Afríku vita um, að kona
Gerhardts, sem fædd er í Sviss,
væri sovézkur njósnari.
The Daily Mail heldur því
fram, að Gerhardt hafi skýrt frá
einstökum atriðum varðandi
herfræðilegar áætlanir Breta í
flughernaðinum í Falklands-
eyjastríðinu. Þá hefur blaðið það
eftir franska gagnnjósnaranum,
að Gerhardt hafi verið næst-
æðsti maður í flotastöðinni Sim-
onstown í Suður-Afríku, sem
reist var af Bretum, en þar er ein
stærsta tölvumiðstöð varðandi
ferðir herskipa og flugvéla á
Suður-Atlantshafi.
Gerhardt er fæddur í Þýzka-
landi en gekk í flota Suður-
Afríku 1952. Hann og kona hans,
Ruth, sem er 41 árs, voru hand-
tekin í Höfðaborg í júní sl. og
ákærð fyrir njósnir. Yfirvöld í
Suður-Afríku hafa skýrt frá litlu
einu varðandi þær njósnir, sem
þau eru ákærð fyrir.
nokkuð frekar um hvaða ákærur
kynnu að bíða blaðamannsins.
Western var handtekinn á laug-
ardagsmorgun ásamt blaðakon-
unni Joan Ambrose Newton, en
hún er einnig bandarísk, þar sem
þau voru í íbúð Western. Newton,
sem er fædd í S-Afríku en er með
bandarískan ríkisborgararétt, var
sleppt að loknum yfirheyrslum, en
er nú í stofufangelsi.
Ýmsar eigur Western voru gerð-
ar upptækar, einkum hlutir sem
hann notar við vinnu sína, s.s.
segulbönd, myndir og ýmis önnur
skrifuð gögn. Vararæðismaður
Bandaríkjanna í E1 Salvador hef-
ur heimsótt Western nokkrum
sinnum og segir ekkert ama að
honum.
Western hefur unnið sjálfstætt
í E1 Salvador, en reglulega hafa
birst pistlar frá honum í NBC-út-
varpsstöðinni og útvarpsfrétta-
þjónustu AP. Yfirvöld í E1 Salva-
dor hafa ítrekað gagnrýnt erlenda
fréttamenn harðlega og segja þá
vilhalla vinstrisinnuðum skæru-
liðum, sem berjast gegn stjórn-
völdum.
ERLENT
„Ástæða til
bjartsýni“
— sagði de Cuellar að lokn-
um viðræðum í Moskvu
Moskvu, 29. mars. AP.
JAVIER Perez de Cuellar, aðalritari
Sameinuðu þjóðanna, sagði í dag að
viðræður við sovéska ráðamenn um
Afganistan veittu honum ástæðu til
bjartsýni varðandi lausn þessa vanda-
máls.
De Cuellar sagði þetta á stuttum
blaðamannafundi áður en hann
yfirgaf Moskvu í dag og bætti því
við að sovéskir ráðamenn hefðu sýnt
tillögum sínum áhuga.
Aðalritarinn, sem var í forsvari
fyrir nefnd S.Þ. sem vann að lausn á
málefnum Afganistan áður en hann
tók við embætti sínu í janúar 1981,
var spurður að því hvort hann hefði
rætt við Andropov um kröfur um
tafarlausan brottflutning sovéskra
hermanna frá Afganistan. Hann
svaraði því játandi, en neitaði að
gefa nánar upp um viðræðurnar.