Morgunblaðið - 09.11.1983, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983
Þorskaflinn fyrstu 10 mánuði ársins:
74.000 lestum
minni en í fyrra
ÞOR8KAFLI landsmanna var um
síðustu mánaðamót rúmum 74.000
lestum minni en á sama tíma í fyrra.
Þá höfðu veiðst rúmar 335.000 lestir
en nú aðeins tæpar 261.000. Miðað
við aflabrögð í haust eru litlar sem
0
INNLENT
Flugvél nauðlenti:
Tveir menn
sluppu
ómeiddir
Egilætöðvin, 8. nóvember.
LAUST fyrir klukkan 14.00 í dag
nauðlenti lítil fjögurra sæta eins
hreyfils flugvél af Cessna-gerð á
svokölluðu Finnsstaðanesi,
skammt frá norðurenda Egils-
staðaflugvallar.
Flugvélin, sem ber einkenn-
isstafina TF-MUS og er í eigu
flugklúbbs Egilsstaða, var að
hefja sig til flugs, þegar vélin
missti skyndilega afl og ákvað
flugmaðurinn, Þórhallur Þor-
steinsson, þá að nauðlenda.
Með Þórhalli í vélinni var
Halldór Bergsson og sluppu
báðir ómeiddir, en flugvélin er
mjög skemmd.
— Ólafur.
engar líkur á því að þorskaflinn í ár
nái 300.000 lestum. Þorskaflinn í
október nú varð 9.293 lestir á móti
14.640 eða rúmum 5.000 lestum
minni samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands um aflabrögð
landsmanna.
Þorskafli báta í október nú var
3.252 lestir en 6.307 í fyrra eða
nær helmingi minni nú. Þá var
annar botnfiskafli báta nú rúmum
1.000 lestum minni en í sama mán-
uði í fyrra og heildaraflinn tæpum
5.000 lestum minni. Þorskafli tog-
ara í októbermánuði nú var 2.292
lestum minni en í fyrra, annar
botnfiskafli 866 lestum minni og
heildaraflinn 3.158 lestum minni.
Fyrstu 10 mánuði ársins nú var
þorskafli bátaflotans 52.222 lest-
um minni en í fyrra, togaraflotans
21.792 lestum minni og aflinn því
alls 74.014 lestum minni en í fyrra.
Annar botnfiskafli er hins vegar
um 10.000 lestum meiri nú. Heild-
araflinn þessa mánuði var 584.219
lestir eða 71.806 lestum minni en í
fyrra.
Laxamýri:
Ljósm. Mbl. Spb.
Klaklaxinn kreistur
NÚ STENDUR yfir sá tími í
laxeldisstövunum þegar klaklax-
inn er kreistur og klakið hefst.
Mikils hreinlætis er gætt í
sambandi við þetta verk og er
meðfylgjandi mynd tekin hjá
Norðurlaxi hf. að Laxamýri.
Kristján á Hólmavaði er sá sem
kreistir, en það verk hefur hann
unnið frá því að starfsemin
hófst. Aðstoðarmaður hans er
Björn á Laxamýri og Bárður
dýralæknir Guðmundsson horfir
á og fylgist með því, að allt fari
fram eftir hinum nákvæmu regl-
um sem eftir er farið í sambandi
við klakið. Stöðvarstjórinn,
Halldór Davíð Benediktsson, má
ekki koma þarna nærri og ekki
inn í húsið þar sem kreist er.
Dýraiæknirinn færir honum síð-
an hrognin eftir að hann hefur
sótthreinsað þau, til að fyrir-
byggja alla sjúkdóma.'
Tíu fyrirtæki hafa sagt
upp 195 starfemönnum
Borgarfjörður:
Flugvél flaug
á raflínu
Klpppjárnsreykjum, 8. nóvember.
LÍTIL flugvél af geröinni Cessna 150
flaug á raflínuna við bæinn Hellubæ í
Hálsasveit í dag.
Um klukkan 14.30 flaug flugvélin,
sem er tveggja manna og eins
hreyfils, á raflínu við Hellubæ í
Hálsasveit í Borgarfirði. Slitnaði
línan og brotnuðu tveir staurar.
Flugmaðurinn gat lent vélinni og
var hún ótrúlega lítið skemmd.
Hreyfillinn boginn og vélarhlíf
dælduð. Viðgerð var hafin strax á
lfnunni.
Fréttamaður náði ekki tali af
flugmanninum. Flugvélin bar ein-
kennisstafina TF-RPM.
— Bernhard
SKRÁÐIR atvinnuleysisdagar í
októbermánuði voru samtals 14.667 á
landinu öllu, samkvæmt yfirliti vinnu-
máladeildar félagsmálaráðuneytisins.
Þetta svarar til þess að 676 manns
hafi verið á atvinnuleysisskrá allan
raánuðinn, sem jafngildir 0,6% af
áætluöum mannafla á vinnumarkaði
samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar.
í septembermánuði sl. voru
skráðir atvinnuleysisdagar 11.503
og hefur því fjölgað um 3.164 frá
fyrri mánuði eða um 27,5%. í frétt
félagsmálaráðuneytisins segir, að
þessa aukningu á skráðu atvinnu-
leysi megi aðallega rekja til þriggja
svæða, Norðurlands vestra, Norður-
lands eystra og Suðurlands. Þó hef-
ur ennfremur orðið nokkur aukning
á Vestfjörðum, Austurlandi og
Reykjanesi.
Aðeins á höfuðborgarsvæðinu og
Vesturlandi hefur skráðum at-
vinnuleysisdögum fækkað frá fyrri
mánuði. „Orsakir þess, að skráðum
atvinnuleysisdögum hefur fjölgað
milli mánaða, verða fyrst og fremst
raktar til lengri eða skemmri stöðv-
unar fiskvinnslu vegna hráefnis-
skorts, sem ýmist stafar af lélegum
aflabrögðum eða veiðiskip hafa
stöðvast," segir í fréttinni.
Fyrstu 10 mánuði yfirstandandi
árs hafa í heild verið skráðir 233
þúsund atvinnuleysisdagar á móti
rösklega 157 þúsund á sama tíma í
fyrra og tæplega 200 þúsund á öllu
síðasta ári.
f októbermánuði bárust tilkynn-
ingar frá 10 fyrirtækjum um upp-
sagnir og taka þær til 195 starfs-
manna. Þá eru ekki meðtaldar
tímabundnar uppsagnir í frystihús-
um enda eru slíkar uppsagnir ekki
tilkynntar formlega til vinnumála-
deildar.
Ferskfiskur fluttur í gámum utan:
Þetta er eina aðferðin
sem eitthvert vit er í
- fiskiskip eiga að veiða fisk, flutninga-
skip að flytja hann, segir útflytjandi
„SÍÐAN í júní erum við búnir að selja
200—300 tonn af ferskum fiski til út-
landa, mest til Englands. Sá fiskur
hefur allur verið fluttur í gámum og
með flutningaskipum. Þetta hefur gef-
ist mjög vel og ég er sannfærður um,
að þetta er það, sem koma skal,“
sagði Pétur Kjartansson hjá fyrirtæk-
inu P.Pétursson-Fiskafurðir hf., f
samtali við blm. Morgunblaðsins.
„Ég er viss um að þetta er eina
flutningsaðferðin, sem eitthvað vit
er í,“ sagði Pétur. „Ef menn setjast
niður og reikna út hvað það kostar í
rauninni að láta togara sigla með
afla — ja, þá efast ég ekkert um að
þeir færu að hugsa sig um tvisvar
— enda eiga fiskiskip að veiða fisk,
Ók með logandi heyfarm:
Tók eftir því að fólk sem ég mætti
horfði sérkennilega á bílinn minn
„ÉG GLEYMDI að taka hitann af pallinum, en hann er upphitaður
þannig að pústið blæs upp á pailinn til þess að halda honum heitum. Ég
vissi ekkert af eldinum fyrr en í Svínahrauni, en þá hafði ég tekið eftir
því að fólk í bílum sem ég mætti horfði sérkennilega á bflinn,“ sagöi
Viðar Pálsson vörubílstjóri í spjalli við blm. Morgunblaðsins í gærkveldi.
Ilann varð fyrir þeirri einkennilegu lífsreynslu að aka með skíðlogandi
hcyfarm á vörubílspalli frá Svínahrauni og niður í Fjárborgir, á móts við
Rauðhóla, en þar komst hann fyrst út af veginum til þess að sturta hinum
eldfima farmi af.
„Ég tók eftir því að það var
farið að rjúka úr pallinum, svo
ég stöðvaði bílinn og fór út. Ég
sá að ekki þýddi að sturta þessu
af þarna, svo ég flýtti mér niður
í Fjárborgir. Hins vegar magn-
aðist eldurinn skjótt og þeim
mun meira sem ég ók hraðar, en
þegar niður í Fjárborgir kom
stóðu eldtungurnar út af pallin-
um,“ sagði Viðar.
„Þegar þangað kom tók ég
böndin af pallinum og sturtaði
draslinu af og brann heyið þarna
til ösku og það var illt að standa
og horfa á það. Bíllinn er bruna-
tryggður, en hann skemmdist
lítið eða ekkert, en málning
sviðnaði af skjólborðunum,"
sagði Viðar.
A bílnum voru 330 baggar af
heyi og taldi Viðar að verðmæti
þess væri nálægt 20 þúsund
krónum. Hann bjóst við því að fá
tjónið bætt hjá tryggingarfélagi
þvi sem bíllinn er tryggður hjá.
„Já, það er margt að varast!,"
sagði Viðar að lokum, en hann
sakaði ekki í bruna þessum.
Slökkviliðinu í Reykjavík var
tilkynnt um eldsvoða þennan og
kom það snarlega á staðinn á
tveimur bílum. Tók það nærri
fjórar klukkustundir að slökkva
í heyinu. „Þetta tók svona lang-
an tíma vegna þess að það þurfti
að rífa hvern einasta bagga í
sundur og bleyta í svo að segja
hverri tuggu," sagði varðstjóri í
Slökkviliði Reykjavíkur, sem
blm. Morgunblaðsins ræddi við í
gærkvöldi.
Þurfti að selflytja vatn á stað-
inn og fóru bílarnir tveir alls
fimm ferðir á milli. Megnið af
heyinu er ónýtt.
flutningaskip eiga að flytja hann.“
Hann sagði að fiskurinn væri
sendur vikulega og færi magnið eft-
ir ýmsu hverju sinni, svo sem gæft-
um, hráefnisstöðu seljenda og
fleiru.
„Við fáum frá frystihúsum
þegar hráefnið hentar þeim ekki,
kúfa frá saltfisk- og skreiðarfram-
leiðendum og toppa úr hraðfrysti-
stöðvum," sagði Pétur. „Verðið hef-
ur verið gott — gámafiskur er yfir-
leitt seldur hærra verði í Englandi
en bátafiskurinn. Það fer að sjálf-
sögðu nokkuð eftir gæðum en það er
ekki óalgengt að verðið sé 10%
hærra fyrir gámafiskinn. Og ef
framboð er mikið á fiskmörkuðum í
t.d. Hull og Grimsby, þá selst
gámafiskurinn yfirleitt fyrr. Fisk-
urinn er yfirleitt ekki nema viku-
gamall þegar hann fer á markað
ytra — við sendum frá okkur á mið-
vikudögum og varan er seld á
mánudegi eða þriðjudegi. Það er
yngri fiskur en Bretar eru vanir."
Pétur Kjartansson sagði að fisk-
urinn væri fluttur ísaður í 750 lítra
kerum, sem væri heppilegri flutn-
ingsmáti en t.d. frysti- eða kæli-
gámar. „Þetta hefur gefist mjög vel,
við fluttum til dæmis talsvert magn
af fiski í miklum hitum í sumar og
það gekk alveg prýðilega. Það er
mikill áhugi á að halda þessu áfram
í vetur enda eru birgðir frystihús-
anna orðnar miklar og með þessu
móti fæst greitt mun fyrr fyrir
fiskinn." — Auk fyrirtækisins P.
Pétursson-Fiskafurðir hf. flytja
nokkur önnur fyrirtæki ferskan
fisk á markað erlendis og nokkrir
framleiðendur að auki, að sögn Pét-
urs Kjartanssonar.