Morgunblaðið - 09.11.1983, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 09.11.1983, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 250 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 20 kr. eintakiö. Til 2010 eða 2015? Eftir að Þorsteinn Páls- son, 36 ára, hefur tekið við formennsku í Sjálfstæðis- flokknum er Steingrímur Hermannsson, forsætisráð- herra og formaður Fram- sóknarflokksins, elsti flokks- formaðurinn og þó ekki nema 55 ára gamall. Geir Hall- grímsson ákvað að segja af sér formennsku á besta aldri, 57 ára, og eiga kraftar hans því eftir að nýtast lengi enn. Kjartan Jóhannsson, formað- ur Alþýðuflokksins, er 43 ára, Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, 39 ára, Guðmundur Einarsson, for- maður þingflokks Bandalags jafnaðarmanna, 35 ára, og Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir, oddviti Samtaka um kvennalista, er 31 árs. Þessar staðreyndir eru ekki rifjaðar hér upp vegna van- trúar á að ungir forystumenn geti skilað jafn góðu verki í stjórnmálum og hinir sem eldri eru. í Sjálfstæðisflokkn- um hefur það til dæmis við- gengist um langan aldur að ungum mönnum er treyst fyrir forystuhlutverki á veg- um flokksins í borgarstjórn Reykjavíkur. Hafa þeir ekki brugðist því trausti eins og sjá má á því hvernig staðið hefur verið að stjórn höfuð- borgarinnar fyrr og síðar og gert er nú undir forystu Dav- íðs Oddssonar, borgarstjóra, sem er 35 ára. Og sé enn litið til forystusveitar Sjálfstæðis- flokksins má geta þess að Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri flokksins, er 32 ára. íslendingar verða allra þjóða elstir og hafa að meðal- tali náð miðjum aldri um fer- tugt. Það hefur verið sagt að starfsaldur stjórnmála- manna hafi styst ekki síst vegna þess hve þeir endast margir illa í fjölmiðlaljósinu. Væri gengið til forystu í stjórnmálaflokkum með sama starfsöryggi og á hin- um almenna vinnumarkaði gætum við vænst þess að hafa svipaða forystusveit í stjórnmálaflokkunum og nú í kringum 2010 og jafnvel til 2015. Það er verðugt umhugsun- arefni að velta því fyrir sér að meirihluti þeirra sem nú fara með forystu í íslenskum stjórnmálaflokkum eru fædd- ir um og eftir að ísland varð lýðveldi. Þeir eru horfnir úr virku stjórnmálastarfi sem tóku þátt í að stofna lýðveldið og næsta kynslóð þar á eftir, lýðveldiskynslóðin, er að víkja úr forystusveit stjórn- málanna. Ekki er að fullu reynt hvað þessi breyting á þungamiðju valdsins í stjórn- málaflokkunum hefur í för með sér. Mestu skiptir að hún leiði ekki til vandræða í sam- skiptum flokkssystkina. Frá því að lýðveldi var stofnað 1944 hefur sjaldan verið meiri þörf á samhentri for- ystusveit og einmitt nú. Tvístring- ur á þingi egar ríkisstjórn Fram- sóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks var mynduð í maí síðastliðnum var um það samið, að samningsréttur um kaup og kjör skyldi afnuminn í 8 mánuði. Framsóknarmenn vildu að þessi tími yrði 2 ár en féllust síðan á 8 mánuði. Strax í stjórnarmyndunar- viðræðunum var ljóst að hér er um viðkvæmt atriði að ræða en um það var samið á milli stjórnarflokkanna. Fréttir berast nú af alþingi þess efnis að meðal þing- manna Sjálfstæðisflokksins séu að gerjast hugmyndir um að stytta hið umsamda 8 mánaða tímabil sem rennur út 1. febrúar næstkomandi. Þingflokkur sjálfstæðis- manna stóð að gerð stjórn- arsáttmálans og samkomu- laginu um hið viðkvæma at- riði hans, tímabundið afnám samningsréttarins. Á að líta á óþolinmæðina meðal þing- manna Sjálfstæðisflokksins nú sem vantrú á stjórnar- samstarfinu við Framsóknar- flokkinn? NiðurStaðan á landsfundi Sjálfstæðisflokks- ins var sú að lýst er eindregn- um stuðningi við ríkisstjórn- ina. Það kæmi því mjög á óvart ef annað væri upp á teningnum innan þingflokks- ins. Morgunblaðið hefur oftar en einu sinni bent á það frá því að þessi ríkisstjórn var mynduð að hún gæti ekki unnið sigur á verðbólgunni nema stjórnmálamennirnir sýndu þor og þrek. Auðvelt er að smíða hagfræðileg líkön um hjöðnun verðbólgu, síðan bíður stjórnmálamannanna það þrekvirki að leiða sam- einaða þjóð í gegnum brim- rótið. Tvístringur í stuðn- ingsliði ríkisstjórnarinnar gerir henni ókleift að ná settu marki. „ÞAÐ ER misjafnt hversu oft menn koma hingað, sumir á degi hverjum aðrir sjaldnar, en ég held að þessi starfsemi sé það sem koma skal. Þetta er ómetanlegt fyrir okkur sem erum einstæðingar, viljum búa á eigin heim- ili en geta komið saman og rabbað eða fondrað," sagði Gunnsteinn Jóhanns- Akureyri, 31. október. „ÞAÐ FER ekki á milli mála, að sparnaður við þetta kerfi er mikill. Við teljum, að auka- kostnaður við kaup á því og uppsetningu eigi að sparast á innan við einu ári, þannig að í framtíðinni sparast að okkar mati ca. 150 þúsund kr. á ári í hitunarkostnaði hússins," sögðu Magnús Garðarsson, fulltrúi bygg- ingarnefndar nýja verkmenntaskólans á Ak- ureyri, og Grétar Grímsson, verkfræðingur hjá Verkfræðistofu Norðurlands, þegar tíð- indamaður Mbl. ræddi við þá félaga um nýtt kerfi, sem endurvinnur hita frá loftræstikerfi í nýbyggingu skólans fyrir málmsmíðadeild. son, þegar blm. spjallaði við hann ásamt þeim Björgvini Friðrikssyni og Þorsteini Löve á opnu húsi í Múlabæ nýlega. í Múlabæ er starfrækt þjónustu- miðstöð fyrir aldraða og öryrkja, sem tók til starfa í janúar sl. Þar er boðið upp á ýmiskonar þjónustu Kerfi þetta, sem er sænskt, endurvinnur varma frá útblæstri loftræstikerfis, sem annars er látinn fara beint út í andrúms- loftið. Til þess er notaður svokallaður varmanýtir, sem nýtir hita úr útblæstri loftræstikerfisins, skilar honum aftur inn á kerfið og blæs honum síðan stöðugt á hringrás. Með þessu telja forstöðumenn verkmenntaskólans, að sparist um 15 mín- útulitrar af heitu vatni f byggingunni og þannig munu tækin, sem kostuðu uppsett ca. 130 þús. kr., sparast upp á einu ári. Nýja húsið er 4440 rúmmetrar að stærð. fimm daga vikunnar, m.a. sjúkra- þjálfun og leikfimi, snyrtiaðstöðu, matarþjónustu, hvíldarherbergi og iðjuþjálfun. Á opnu húsi var haldin sýning á margskonar munum sem eldri borgarar hafa gert í iðjuþjálf- uninni, en í henni felst leirvinna, bókband, glermálun, tágavinna og Athygli vekur, að engin ákvæði um slíka varmanýtingu eru í bygingarreglugerðum hér á landi, en á Norðurlöndunum eru skil- yrði sett um slíka nýtingu, fari stærð kerf- anna yfir ákveðna stærð. Reyndin mun vera sú, að slík varmanýtingartæki eru sett í allar stærðir slíkra kerfa, þannig að Norðurlandabúar virðast þarna vera skrefi á undan okkur íslendingum. Hliðstætt kerfi mun vera í Oddeyrar- skólanum á Akureyri og einnig í nýbygg- ingu sjúkrahússins, nema þar er nýtt vatnselement, sem ekki er í verkmennta- Hæstiréttur staðfe gæzluvarðhald yfii A að baki sex ára afbrotaferil. Sto og unnið skemmdarverk fyrir hundri SÍÐASTLIÐINN lostudag var gæzlu- varðhaldsúrskurður yfir 17 ára pilti, sem kveðinn var upp í Sakadómi Reykjavíkur, staðfestur í Hæstarétti, en pilturinn hafði kært til Hæstarétt- ar. Pilturinn var úrskurðaður í gæzlu- varðhald til 21. desember samkvæmt 5. málsgrein 67. greinar laga um með- ferð opinberra mála, en sú grein fjall- ar um gæzluvarðhald við síbrotum. Málið er sérstakt að því leyti að aldrei hefur gæzluvarðhald verið kveðið upp í jafnlangan tíma yfir jafnungum manni — og þykir staðfesting Hæsta- réttar því athyglisverð. Þó piltur sé ungur að árum, þá á hann langan afbrotaferil. Hann hef- ur játað á sig yfir 50 innbrot og valdið gífurlegu tjóni; tjóni sem skiptir hundruðum þúsunda króna. Hann hefur komið við sögu í stór- þjófnuðum — stærstu málin á hend- ur honum eru innbrotin í Tollvöru- geymsluna fyrir tæpum tveimur ár- um, þegar miklum verðmætum var stolið, og póstþjófnaðurinn á Hvols- velli, þegar tveimur póstpokum með almennum bréfum og ábyrgðarbréf- um var stolið. Nokkur bréf fundust á víðavangi — hann hafði ásamt bróður sínum tekið bréfin upp á leiðinni frá Hvolsvelli til Selfoss og kastað þeim þegar engir peningar fundust í þeim. Einnig stálu þeir um 20 þúsund krónum og talsverðu magni af tóbaki. Til verknaðarins stálu þeir nýlegri Volvo bifreið og stórskemmdu og er tjónið á bifreið- inni metið á um 150 þúsund krónur. Ellefu ára kom hann fyrst við sögu Ellefu ára kom pilturinn fyrst við sögu Rannsóknarlögreglu rikisins — árið 1977. Fyrsta kastið fjallaði Barnaverndarnefnd um mál hans. Hann hefur verið sendur á ungl- ingaheimili, en það hefur lítt stoð- að. Afbrotaferill hans er samfelld- ur, oftast hefur hann verið í slag- togi við eldri bróður sinn en einnig hefur hann oft verið einn að verki. f fyrra frestaði ríkissaksóknari skilorðsbundið ákæru í 2 ár vegna auðgunarbrota. Þá hafði hann að baki tugi innbrota. En hann hélt áfram á afbrotabrautinni og fyrsta ákæra á hendur honum var gefin út 25. janúar í ár fyrir að stela 2 orlofsávísunum að upphæð tæplega 10 þúsund krónur og falsa umboð til þess að leysa þær út. Byssukúlan hafnaði í dyra- staf skammt frá fullorðnum manni Afram héldu afbrotin og í febrúar var hann handtekinn og úrskurðað- ur í gæzlu til 30. marz; Þann 17. marz var gefin út ákæra á hendur pilti fyrir að hafa stolið riffli og skotið úr honum í dyrum á heimili sínu þannig að kúlan fór inn um glugga á næsta húsi og hafnaði í dyrastaf, skammt frá fullorðnum manni. Aðeins rúmum mánuði síðar var gefin út önnur ákæran á hendur honum og bróður hans í 3 liðum fyrir samtals 22 afbrot. Listinn er langur og hreint ótrúlegur; nefna má innbrot í hafnarböðin; þar stálu þeir 110 pökkum af vindlingum, píputóbaki, rafhlöðum, kveikjurum og 3 kössum af verjum. Innbrot í Bæjarútgerð Reykjavíkur, 2 hurðir brotnar upp. Upp úr krafsinu höfðu þeir 13 pakka af pylsum. Innbrot í verslunina Steríó — þaðan stálu þeir rúmum 6 þúsund krónum og 3 tékkum. Innbrot í J.B. Pétursson á Vesturgötu. Þaðan stálu þeir marg- víslegum verðmiklum verkfærum og peningum að upphæð kr. 5.400. Inn- brot á Melavöllinn. Þeir reyndu að brjóta upp peningaskáp með raf- drifnum skurðhníf, en hnífurinn bræddi úr sér. Rabbað saman f rólegheitum. F.v. Gunnsteinn Jóhannsson, Eins og sjá má kenndi margra grasa á sýningunni og i Björgvin Friðriksson og Þorsteinn Löve. í glugganum má sjá verk sem Gunnsteinn málaði á gler í iðjuþjálfuninni. Litið inn á opið hús Nýbygging Verkmenntaskólans á Akureyri: Spara 15 mínútulítra af heitu vatni — með nýju kerfi, sem endurvinnur hita frá loftræstikerfi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.