Morgunblaðið - 09.11.1983, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 09.11.1983, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983 25 nargt var aö skoöa. í Múlabæ hannyrðir, svo eitthvað sé nefnt. Daglega koma um 45 manns í Múlabæ og er gert ráð fyrir að ein- staklingar komi þangað í 4—6 mán- uði í senn. Sá tími er þó teygjanleg- ur að sögn forstöðumannsins, Guð- jóns S. Brjánssonar, félagsráðgjafa. Sagði hann Múlabæ vera mitt á milli þess að vera þáttur í félags- starfi eldri borgara og dagspítali og hefði það fyrirkomulag gefið góða raun. í Múlabæ starfa, auk forstöðu- manns, hjúkrunarfræðingur, mynd- menntarkennari, snyrtisérfræðing- ur og starfsstúlkur. Grétar Grímsson og Magnús Garöars- son viö nýju tækin, sem endurvinna hita úr úrgangsloftinu og skila því aftur að 75—80 hundraöshlutum inn í bygg- inguna aftur sem hreinu lofti. Ljósm. Mbl. — GBerg. skólanum. Kerfi þetta nýtir um 75—80% af þeim lofthita aftur sem um það er látið fara, og annars staðar er látið fara óhindr- að út i andrúmsloftið. Tekið skal fram, að þetta kerfi dælir ekki loftinu tvívegis um salarkynni, heldur nýtir það aðeins varm- ann sem skilinn er frá notuðu loftinu, til þess að hita upp ferskt loft, sem berst inn beint að utan, þannig að öll mengun, sem loftið tekur inn í sig inni í húsinu, rennur beint út í andrúmsloftið. GBerg. ístir 60 daga r 17 ára pilti lið verðmætum íð þúsunda króna Notuöu stórvirk logskurðartæki á peningaskápa í Isbirninum Þeir brutust inn í ísbjörninn og stálu liðlega 70 þúsund krónum, auk minjapeninga. Þeir notuðu stórvirk logskurðartæki og logskáru tvo pen- ingaskápa og komust þannig að verð- mætunum. Lengi mætti halda áfram, en það verður ekki gert hér. Afbrot sem tí- unduð voru í ákærunni frá í apríl voru framin á tímabilinu frá nóv- ember 1982 til febrúar 1983. Dómur féll í máli hans 20. september síðast- liðinn. Honum var gert að sæta fang- elsi í 6 mánuði, en fullnustu refsingar frestað og látin niður falla að 2 árum liðnum; það er hann hlaut skilorðs- bundinn dóm. Það var í annað sinn, sem piltur hlaut skilorðsbundinn dóm. Þá var honum gert að greiða um 70 þúsund krónur í skaðabætur. En þrátt fyrir að dómsvaldið hafi tekið vægilega á málum hans — væntanlega í von um, að hann snéri til betri vegar, þá hefur piltur haldið áfram á afbrotabrautinni. Eftir dóm- inn, sem féll 20. september, hefur hann orðið uppvís að því að stela skiptimiðavél frá SVR, raunar frá öðrum þjófi. Hann braust inn í frí- merkjaverslun og stal verðmætum fyrir á milli 70 og 80 þúsund krónur og olli miklum skemmdum. Hann stal Volvo-bifreiðinni sem áður var getið og póstpokunum á Hellu. Hann braust inn á skrifstofu á Hverfisgötu og stal peningum og bíllyklum, en var stöðvaður af lögreglunni þegar hann hugðist aka á brott. Hann braust inn í bát við Grandagarð og stal 2 tal- stöðum, haglabyssu og skotum og slökkvitæki, allt þetta náðist. Skömmu síðar var hann ásamt bróð- ur sínum handtekinn. Þeir viður- kenndu, bróðirinn var sendur í af- plánun á eldri dómi — pilti var sleppt. Hann fagnaði frelsinu með því að brjótast inn í Hraðfrystistöð Reykjavíkur. Vann þar miklar skemmdir og stal peningum að upp- hæð um 40 þúsund krónur. Þá var hann handtekinn og úrskurðaður í 60 daga gæzluvarðhald, þó ungur sé. Þá þótti ástæða til þess að stöðva pilt — hann var úrskurðaður í langt gæzluvarðhald á meðan mál hans eru gerð upp, ef svo má að orði komast. Hann á eftir að sitja af sér gæzlu- varðhaldsvistina og sfðan væntanleg- an dóm. Hvað veldur þessari afbrota- hneigð? Sjálfur segist piltur fara með alla peninga í spilakassa. Auðvitað er það engin skýring á afbrotum pilts. Hann er dæmigerður síbrotamaður — hver er framtíð hans? * * Kristján Ragnarsson, formaður LIU: Ber að taka fullt mark á áliti fiskifræðinga „ÉG TEL að taka beri fullt mark á áliti fískifræðinga og mögulegum afrakstri fískistofnanna. Þetta álit mitt styð ég í Ijósi þeirrar reynslu, sem viö höfum haft af þorskveiöunum á þessu ári,“ sagöi Kristján Ragnarsson, formaður og framkvæmdastjóri LÍÚ, er Morgunblaðið innti hann álits á tillögum fískifræðinga um 200 þúsund tonna þorskafla á næsta ári. „Það er eitthvað verulegt að þegar við getum á þessu ári ekki fiskað nema tvo þriðju af því, sem veitt var árið 1981, en þá voru þorskveiðar togaranna takmark- aðar með 150 skrapdögum á hvern þeirra. Ég tel að skrapdagakerfið á þessari vertíð hafi ekki hindrað þorskveiðar okkar að neinu leyti og sama á við um bátaflotann. Á vetrarvertíðinni nú var veiðitím- inn ekki styttur eins og gert hefur verið mörg undanfarin ár en samt varð stórkostlegur samdráttur í þorskafla bátanna. Á landsfundi LÍÚ samþykktum við að taka upp viðræður við stjórnvöld um það með hvaða hætti megi takmarka sóknina á næsta ári til þess að stofninn verði ekki ofveiddur. Út úr þessum við- ræðum verður síðan að koma í ljós hvað stjórnvöld treysta sér til aflatakmarkana miðað við að- stæður þjóðarbúsins í heild. Ég vara við óskhyggju um að við get- um tekið meiri afla en fiskifræð- ingar leggja til,“ sagði Kristján Ragnarsson. Dr. Sigfús A. Schopka fiskifræðingur um gagnrýni á 200 þúsund tonna tillögurnar: Nákvæmari spár kalla á eflingu rannsóknanna „VIÐBRÖGÐ af þessu tagi hafa verið gegnumgangandi síðan við byrjuð- um að gera tillögur um hámarksafla, eða allt síðan „svarta skýrslan“ svokallaða kom út. Ég skal verða fyrstur til að viðurkenna að niðurstöð- ur rannsókna okkar mættu vera nákvæmari en þær eru, en til þess þarf að efla rannsóknir mjög. Þróunin hefur hins vegar verið sú, að það er frekar skorið niður til Hafrannsóknastofnunarinnar en hitt,“ sagði dr. Sigfús A. Schopka, fískifræðingur, í samtali við blm. Morgunblaðsins um þá gagnrýni, sem fram hefur komið á tillögur fískifræðinga um 200 þúsund tonna hámark þorskafla á næsta ári. Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra hefur m.a. sagt, að mikið vanti í grundvöll vísinda- manna og að vonandi séu þessar tillögur eins vitlausar og aðrar, sem frá fiskifræðingum hafi kom- ið. Matthías Bjarnason, fyrrver- andi sjávarútvegsráðherra, hefur á sama hátt sagt að útilokað sé að fara eftir nýjustu tillögum fiski- fræðinga. „Ef menn vilja fá nákvæmari upplýsingar um ástand fiskstofn- ana verður að veita meira fé til rannsóknanna," sagði Sigfús Schopka. „Fyrir þremur árum vor- um við t.d. með fjögur rannsókn- arskip en nú eru þau aðeins þrjú og þó hafa verkefnin aukist. Það er svo mikið í húfi fyrir þjóðar- búið að hafa upplýsingar um þorskstofninn sem gleggstar." Dr. Sigfús sagði að af hálfu Hafrann- sóknastofnunarinnar hefði marg- sinnis komið fram, að starfsmenn hennar teldu brýnt að endurskoða spár um stofnstærðir vegna ým- issa óvissuþátta, t.d. klaksins og sóknarinnar á hverju ári. „Allar okkar niðurstöður og spár eru byggðar á ákveðnum forsendum. Bregðist þær standast spárnar ekki,“ sagði hann. „Það má líka segja, að langtímaspár — 4—5 ár fram í tímann — séu út í hött. Fyrir þeim er ekki fræðilegur grundvöllur, til þess er þekkingin ekki nóg í dag, og þessvegna þurf- um við stöðugt að endurskoða niðurstöður okkar, eins og reyndar er tekið fram í okkar skýrslum." Sigfús Schopka sagði að ef farið hefði verið að tillögum fiskifræð- inga fyrir árið 1977 og síðan, á meðan fiskiskipaflotinn var minni, þá hefði væntanlega verið hamlað gegn stækkun flotans „og þá væri vandamálið ekki eins stórt í dag. Matthías Bjarnason viður- kennir það nú, að fiskiskipaflotinn er of stór,“ sagði hann. „Stein- grímur Hermannsson sagði í við- tali við Morgunblaðið á föstudag, að hann tæki meira mark á reynd- um siómönnum en fiskifræðing- um. I sama blaði var viðtal við Guðjón Kristinsson, skipstjóra á Páli Pálssyni ÍS, sem vitnar til sögulegra staðreynda um þorsk- afla og sveiflur i honum. Sagn- fræðin getur oft verið ágæt þegar verið er að spá fram í tímann en það er samt varhugavert að treysta um of á hana; það er ekki hægt að bera saman ástandið í dag og áður fyrr, meðal annars vegna þess að loðnuveiði var ekki stunduð hér áður fyrr. Áhrif hruns loðnustofnsins á þorsk- stofninn eru óþekkt og fleiri um- hverfisþættir gætu líka breytt ástandi þorskstofnsins, svo sem veðurfar, eins og dæmið um stofn- inn við Vestur-Grænland sannar en hann hrundi vegna þess að kuldi í sjónum var óvenju mikill. Það er ekki hægt að notast ein- göngu við sagnfræðina þótt það sé kannski þægilegt. Við sveiflur í náttúrunni getum við ekki ráðið — við getum ekki gert annað en að stjórna okkar veiðum," sagði dr. Sigfús A. Schopka, fiskifræðingur. Fækka þjónustustofnunum áður en skipum verður lagt - segir Halldór Ásgrímsson „ÞAÐ ER ekki nægilegt að fækka skipum. Það mætti aö skaðlausu fækka bankaútibúum og þjónustustofnunum, áður en nokkru skipi verð- ur lagt. Það er mikilvægt að allur almenningur í landinu geri sér grein fyrir þessari stöðu, því til sjávarútvegsins er því miður ekkert að sækja, en þangað eru í reynd sótt þau verðmæti, sem standa undir eyðslu okkar á þörfum og óþörfum stundum,“ sagði Halldór Ásgrímsson, sjávarút- vcgsráðherra, meðal annars á aðalfundi LÍÚ. Halldór fjallaði í erindi sínu um þann vanda sem sjávarútvegurinn á nú við að etja. Meðal annars benti hann á að síhækkandi olíu- verð íþyngdi útgerðinni stöðugt og ekki væri fjarri að áætla að árleg olíunotkun fiskiskipastólsins næmi tæplega tvö þúsund milljón- um króna. Halldór ræddi einnig um möguleika á aflamarki við þorskveiðar en taldi að erfitt gæti orðið að komast að samkomulagi um þau mál. Hann sagði að til dæmis væri nánast útilokað að unnt yrði að heimila loðnuskipum netaveiðar í vetur. Þá ræddi Halldór um hag- kvæmni veiða og gæði afla og taldi ekkert því til fyrirstöðu að rýmka heimildir til dragnótaveiða, þann- ig að stærri skip gætu stundað þær, meðal annars í þeim tilgangi að draga úr netaveiðum. Einnig mætti taka upp dragnótaveiðar á þeim svæðum þar sem möguleikar væru til þess að nýta kolastofninn betur. Þetta væri dýrmætur fiskur en vannýttur þrátt fyrir það.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.