Morgunblaðið - 09.11.1983, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983
5
Þröstur Þórhalls-
son^Unglingameist-
ari íslands í skák
ÞRÖSTUR Þórhallsson, 14 ára
gamall Reykvíkingur bar sigur úr
býtum á Unglingameistaramóti ís-
lands, 20 ára og yngri, sem haldið
var um helgina. Hlaut hann 6 vinn-
inga af 7 mögulegum, en tefldar
voru sjö umferðir eftir Monrad-
kerfi.
í 2.-5. sæti urðu Magnús
Kjærnested, Reykjavík, Stefán
Sigurjónsson, Reykjavík, Hall-
dór G. Einarsson, Bolungarvík
og Lárus Jóhannsson, Reykjavík,
allir með 5 vinninga.
Eins og fyrr sagði er Þröstur
aðeins 14 ára og tiltölulega ný
stjarna á skákhimni íslendinga,
en hann varð skólameistari
Reykjavíkur 1982. Til þess að
sigra í keppninni varð Þröstur
meðal annars að leggja að velli
tvo skákmeistara í landsliðs-
flokki, þá Halldór G. Einarsson
og Arnór Björnsson.
Keppendur fengu klukku-
stundar umhugsunarfrest á
fyrstu 30 leikina og síðan 20
mínútur til að klára skákina.
Skákstjóri var Ólafur H. ólafs-
son.
Unglingameistarinn fer á al-
Þröstur Þórhallsson, unglinga-
meistari fslands 1983.
þjóðlegt unglingameistaramót
sem haldið verður í Noregi eða
Svíþjóð um áramótin.
Hjálmar Bjarnason fyrru.
bankafulltrúi látinn
Á MÁNUDAG var Hjálmar Bjarna-
son, fyrrverandi bankafulltrúi í
Reykjavík, bráðkvaddur.
Hann fæddist í Keflavík 17.
janúar 1900, en fluttist sama ár
með foreldrum sínum til Reykja-
víkur. Þar bjó hann til æviloka.
Lauk gagnfræðaprófi 1917. Hóf
störf 1. nóvember það ár í ís-
landsbanka og starfaði þar til
ársloka 1920. Síðar í skrifstofu
Bergensku skipaafgreiðslunnar í
Reykjavík uns hann réðst í þjón-
ustu Útvegsbanka íslands 1. júlí
1931 og starfaði þar til ársloka
1962, að hann hætti störfum fyrir
aldurssakir.
Hjálmar Bjarnason var tví-
kvæntur, fyrri kona hans var
Elísabet Jónsdóttir, ættuð úr
Borgarfirði, en eftirlifandi kona
hans er Ragnhildur Sóley Stein-
grímsdóttir úr Reykjavík.
Hjálmar Bjarnason
Helgi Skúlason
augnlæknir látinn
LÁTINN er Helgi Skúlason augn-
læknir á Akureyri. Helgi fæddist 22.
júní árið 1892 og var hann því 91 árs
að aldri er hann lést. Hann fæddist í
Odda á Rangárvöllum, sonur hjón-
anna Skúla Skúlasonar, síðar stjórn-
arráðsritara, og Sigríðar Helgadótt-
ur.
Helgi varð stúdent I Reykjavík
árið 1910 og lagði síðan stund á
læknisfræði og lauk prófi árið
1915.
Árið 1923 varð Helgi sérfræð-
ingur í augnsjúkdómum, en þá
hafði hann um hríð starfað að
þeirri sérgrein. Hann varð hér-
aðslæknir í Síðuhéraði frá 1. ágúst
árið 1915, en því starfi gegndi
hann til ársins 1919. Hann sinnti
læknisstörfum í Reykjavík frá ár-
inu 1921 til ársins 1927, en síðan á
Akureyri. Hann var aukakennari í
augnsjúkdómafræði við lækna-
deild Háskóla Islands á tímabilinu
1923 til 1927.
Helgi Skúlason kvæntist árið
1925 Köru Sigurðardóttur.
Helgi Skúlason
Starfslið heilsugæslustöðvarinnar. F.v. Sigríður Jak-
obsdóttir, hjúkrunarforstjóri, Sveinn Magnússon, lækn-
ir, sem gegnir starfi Margrétar Georgsdóttur, yfirlækn-
is, til áramóta, Brynja Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðing-
ur, Aðalheiður Sigurbjörnsdóttir, ritari, og Gísli Teits-
son, framkvæmdastjóri stöðvarinnar.
Heilsugæslustöð í
húsakynnum Heilsuverndar-
stöövar Reykjavíkur
FJÓRÐA heilsugæslustöðin í Reykjavík var opnuð þann 13.
ágúst sl. í húsakynnum Heilsuverndarstöðvar Reykjavfkur
við Egilssgötu. Er heilsugæslustöðin til húsa í stærsta hluta
þess húsnæðis sem áður var berklavarnadeild Heilsuvernd-
arstöðvarinnar. Þar er nú vinnuaðstaða fyrir 3—4 hjúkrunar-
fræðinga og 4—5 lækna, auk rannsóknarstofu og aðstöðu til
röntgenmyndatöku. Er starfssvæði stöðvarinnar afmarkað af
Fríkirkjuvegi og Lækjargötu að vestan og Rauðarárstíg að
austan.
Heilsugæslustöðin verður opin daglega frá kl.
08.00—17.00, en ráðgert er að sem fyrst verði tekin upp
vaktaþjónusta lækna fyrir íbúa svæðisins sem yrði þá frá
kl. 17.00—23.00 á virkum dögum og frá kl. 08.00—23.00
um helgar.
Á blaðamannafundi sem haldinn var nýlega kom fram
í máli Gísla Teitssonar, framkvæmdastjóra heilsugæslu-
stöðvarinnar, að með þessu fyrirkomulagi yrði leitast við
að sömu starfsmenn stöðvarinnar sinntu sömu íbúum,
bæði á heilsugæslustöðinni og í heimavitjunum. Sagði
hann að ekki yrði síður lagt upp úr starfseminni varðandi
almenna heilsuvernd, en þjónustu við þá fbúa sem leita
þyrftu læknis vegna sjúkleika.
Yfirlæknir heilsugæslustöðvarinnar hefur verið ráðin
Margrét Georgsdóttir, læknir, og hjúkrunarforstjóri Sig-
ríður Jakobsdóttir, en ráðgert er að um næstu áramót
verði stöðin fullmönnuð af læknum og hjúkrunarfræðing-
um.
Nu
ceta
allir
fensid
sér
föt
★ Greiösluskilmálar
★ Af 6000 króna
verzlun greiðist
helmingur út
og afgangur eftir
samkomulagi
m/vesti
Verö kr. 5.100,-.
|U|Æ| l &ia(í3il£ 5)|| lU'H
Inl'slr (KH lr <ll K I
Snorrabraut s. 13505 Glæsibæ s. 34350 Miðvangi s. 53300 Hamraborg s. 46200