Morgunblaðið - 09.11.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983
Þakkarávarp
ÖUum þeim er sendu okkur dýrmætar gjafir, blóm og
skeyti, þökkum við af alhug. Sérstaklega þökkum við
fjölskyldu okkar, sem hélt okkur stórveislu í Kirkjubœ
og safnaðarstjóm, presthjónum og kvenfélagi Óháða
safnaðarins.
Kærar kveðjur.
Guð blessi ykkur öll.
Klara Tómasdóttir,
Sigurdur G. Hafliðason,
Háaleitisbraut 41.
Kærar þakkir til allra þeirra, sem á einn eða annan
hátt sýndu mér vinsemd og virðingu á sjötíu og fimm
ára afmæli mínu 1. nóvember 1983.
Hafliði Halldórsson.
X
SKYRTUR
MELKA
GOLWIN
— er auðveld í þvotti og þarf J
aö strauja.
Bómullin er nefnileg^íönduðB
meö 30% polyster.|^^m|^^
Efni í skyrtunni er serlega fallegtj
smáköfiótt, og skyrtan er með^
„Taþ“-kraga.
Fæst í öllum helstu I
herrafataverslunumB
landsins.mi
/
Iýmsar prentvörur!
I TIL JÖLANNA I
FRA OFFSETPRENTSMIÐJUNNI LITBRÁ
JÓLAKORT
4 LISTAVERKAKORT EFTIR KJARVAL
3 VATNSLITAMYNDIR EFTIR JÖRUND PÁLSSON
3 LJÓSMYNDIR EFTIR RAFN HAFNFJÖRÐ
40 TEGUNDIR
af öðrum mjög fallegum jólakortum,
laus og i pökkum 5 og 10 stk.
JÓLAPAPPÍR
5 FALLEGAR TEGUNDIR
i Plast umbúöum (70x100 sm)
takmarkaðar birgðir
SMÁMYNDIR
UPPHLEYPTAR BARNAMYDNIR
í römmum (10,5x14,5 sm)
eftir Mary May.
VEGGSPJÖLD
UPPHLEYPTAR LJÓSMYNDIR OG TEIKNINGAR
í ýmsum stærðum (fyrir unga fólkið)
PÚSLUSPIL 4F LÍMMIÐAR
MEÐ MYNDUM EFTIR MARY MAY
BÆKUR
PHOTOS AND FACTS ABOUT ICELAND
eftir Rafn Hafnfjörð
HÓFADYNUR
eftir Halldór Pétursson, dr. Kristján Eldjárn
oq Andrés Björnsson
EN HVAÐ ÞAÐ ER SKRÝTIÐ
eftir Pál J. Árdal og Halldór Pétursson
FÁANLEGTí FLESTUM BÓKA-
GJAFA- OG RITFANGAVERSLUNUM
PRENTUM SÉR TEXTA INN Á KORT
FYRIR FYRIRTÆKI OG EINSTAKLINGA
D LITBRÁ hf. Æ
HÖFÐATÚNI 12 * REYKJAVlK ★ SfMAR 22930 og 22865
I
7
Einurð, festa, sanngirni
og drengskapur
Forystugreinar Alþýðublaðs, Tímans og
Þjóöviljans í gær og Dagblaösins Vísis í
fyrradag fjalla allar um landsfund Sjálf-
stæðisflokksins og kjör nýs flokksfor-
manns, Þorsteins Pálssonar. Forystu-
grein Tímans segir Þorstein hafa sýnt
„einurð og festu“ í fyrri störfum sínum,
„en jafnframt sanngirni og drengskap,
sem varð til þess að hann ávann sér
traust jafnt samherja sem andstæöinga".
— „Flestir eru á einu máli um, aö tími
einingar hafi tekið við af tíma sundrung-
ar,“ segir í leiöara DV. — Alþýöublaöið
og Þjóðviljinn setja upp sama hunds-
hausinn, en milli lína má þó lesa bæði
undrun yfir og viðurkenningu á vel
heppnuðum landsfundi.
Úr leiðara
Dagblaðsins
Vfeis
„Flestir munu á einu
máli um að tími einingar
hafi tekið við af tíma
sundrungar, áður en lands-
fundurinn var haldinn ...
Landsfundurinn nú stað-
festi eininguna. I'að er
rétt sem Geir Hallgríms-
son sagði á fundinum:
„SjálfsUeðisflokkurinn-
hefur staðizt eldraun-
ina“.“
Síðar í leiðara DV segir:
„Þótt l>orsteinn Pálsson
sé ungur að árum, er hann
löngu þjóðkunnur. Hann
er lögfræðingur að mennt
og hóf snemma stjórn-
málaafskipti í Sjálfstæðis-
flokknum og stúdentapóli-
tík. Hann starfaði sem
blaðamaður við Morgun-
blaðið, varð síðan ritstjóri
Vísis og eftir það fram-
kvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambandsins. Hann
vann sér einnig traust
launþega með skýrum
málfíutningi, þar sem hag-
ur þjóðarinnar var settur
ofar deilum hagsmunaað-
ila ... Stuðningur al-
mennings við Þorstein
kom glöggt fram í próf-
kjöri sjálfstæðismanna á
Suðurlandi í janúar sl. og
síðar í ágætri útkomu í
þingkosningum.“
„Hæfileikar og
áhrif til
góðra verka“
f forystugrein Tímans í
gær segir m.a.:
„Það sætir ávallt tíðind-
um, þegar skipt er um
formann f stórum stjórn-
málaflokki. Auk þess
vissulega margt óvenjulegt
við formannaskiptin í Sjálf-
stæðisflokknum nú. Tími
nánast sjálfkjörinna erfða-
prinsa virðist liðinn undir
lok; þess í stað bjóða menn
sig hreinlega fram til þessa
embættis i fyrsta sinn. Þá
vekur hitt ekki síður at-
hygli, að snögg kynslóða-
skipti verða í formennsk-
unni. Hinn nýi formaður er
aðeins 36 ára að aldri og
yngstur þingmanna Sjálf-
stæðisflokksins.
Þótt Imrsteinn Pálsson
hafi ekki verið í farar-
broddi í stjórnmálabarátt-
unni fram að þessu, og sé
því að ýmsu leyti óskrifað
blað, þá hefur hann með
störfum sínum á öðrum
vettvangi sýnt ýmsa þá
hæfileika, sem nú hafa lyft
honum upp í æðstu valda-
stöðu innan Sjálfstæðis-
flokksins. Bæði sem rit-
stjóri á Vísi og ekki síður
sem framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands
íslands sýndi hann einurð
og festu, en jafnframt
sanngirni og drengskap,
sem varð til þess, að hann
ávann sér traust jafnt sam-
herja sem andstæðinga.
I>etta eru allt eiginleikar,
sem mikið mun reyna á hjá
Þorsteini nú, eftir að hann
hefur tekið við forystu
Sjálfstæðisflokksins —
bæði í starfi innan flokks-
ins og út á við í samstarfi
við forystumenn annarra
flokka og ýmissa hags-
munaaðila í þjóðfélaginu.
Keynslan ein mun sýna,
hvernig hann veldur því
hhitverki, en full ástæða er
til að láta í Ijósi þá ósk, að
hann muni beita hæfileik-
um sínum og áhrifum til
góðra verka fyrir land og
þjóð.“
„Eftirskrift
landsfundar:
Miskunnar-
Ieysi“
Leiðari Þjóðviljans í gær
hófst á þessum orðum:
„Það orð sem mest var
notað á landsfundi Sjálf-
stæðLsflokksins og verð-
skuldar að verða eftirskrift
hans var orðið miskunnar-
leysi. Þegar Geir Hall-
grímsson skilaði af sér
„ofurmannlegri" tíu ára
flokksforystu vitnaði hann
til ummæla Bjarna Bene-
diktssonar um misk-
unnarleysið sem fælist í
starfi formanns Sjálfstæð-
Lsflokksins. Nýkjörinn
formaður vitnaði einnig til
miskunnarleysins í sinni
fyrstu ræðu. Landsfundur
SjálfstæðLsflokksins sner-
ist meira um menn en mál-
efni. Þó skein miskunnar-
leysið víða í gegn og kom
fram f viðbrögðum fund-
armanna, sem að meiri-
hluta til eru með einum
eða öðrum hætti tengdir
fyrírtækjarekstri í þjóðfé-
laginu. MLskunnarleysið
birtist í gífurlegum fagnað-
arlátum, þegar minnst var
á „blóðþyrsta villimenn á
tirenada", sem Banda-
ríkjastjórn værí að tukta
tu. MLskunnarleysið var
auðsætt, þegar fundar-
menn brustu í hlátur er
minnst var á launajöfnuö.
Miskunnarleysið var einn-
ig áberandi í daufum und-
irtektum við þá sem töluðu
gegn samningabanni, og
var jafnvel talið að sá
frambjóðenda, sem taldi
að til greina kæmi að af-
létta banninu, hefði goldið
frjáLslyndLs síns.“
„Ihalds-
flokkur“
Leiðari Alþýðublaðsins
segir m.a.:
„Hinn nýkjörni formað-
ur SjálfstæðLsflokksins.
Imrsteinn Pálsson, hefur
verið talinn til hægri arms
Dokksins. Menn minnast
starfa hans hjá Vinnuveit-
endasambandi fslands, en
sem framkvæmdastjóri
þeirra samtaka var hann
orðlagður fyrir hörku í
viðskiptum við samtök
launafólks.
Þorsteinn Pálsson er
mörgum góðum kostum
gæddur og Alþýðublaðið
óskar honum til hamingju
með hið nýja embætti. Það
breytir þó ekki hinu, að tiL
koma Þorsteins Pálssonar
í stól formanns Sjálfstæðis-
flokksins styrkir þau öfl í
sessi, sem berjast fyrir því
innan Sjálfstæðisflokksins,
að flokkurinn tileinki sér f
auknum mæli stefnumið
og vinnubrögð íhalds-
flokka í Evrópu, s.s. eins
og aðferðir breska íhalds-
flokksins."
Höfðabakka 9,
í góðuskapi!
Með íslenskri
ilmolíu