Morgunblaðið - 09.11.1983, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983
23
Hluti öflugs lögregluliðs, sem sent var á vettvang eftir sprenginguna i bandaríska þinghúsinu á Capitol-hæð í
fyrrinótt. Þinghúsið í baksýn. Simamynd AP.
Vilja dauða-
refsingu
við fíkni-
efnasmygli
Bern, 8. nóvember. AP.
TÍU manna hópur í Sviss hefur hafið
baráttu fyrir því, að tekin verði í lög
þar f landi dauðarefsing við fíkni-
efnasmygli. Er það markmið þeirra
að láta fara fram þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið.
Enda þótt ekki sé talið líklegt,
að þeim takist að safna undir-
skriftum þeirra 150.000 manna,
sem þarf til þess að slík atkvæða-
greiðsla geti farið fram, þá þykir
þetta frumkvæði þeirra endur-
spegla vaxandi áhyggjur fólks i
Sviss yfir áframhaldandi aukn-
ingu á fíkniefnaneyzlu í landinu.
Opinberar tölur f Sviss gefa til
kynna, að fjöldi þeirra dauðsfalla,
sem rekja má tií fíkniefna, kunni
að verða hærri þar í landi á þessu
ári en nokkru sinni áður. Árlegur
fjöldi slíkra dauðsfalla í Sviss hef-
ur samt verið meiri að undanförnu
en í flestum öðrum iðnvæddum
löndum á Vesturlöndum. Sam-
kvæmt skýrslu svissneska dóms-
málaráðuneytisins var fjöldi lát-
inna af völdum fíkniefna 109 á síð-
asta ári en var 88 árið þar á und-
an. Síðustu tölur frá Ziirich og
Basel sýna, að slíkum dauðsföllum
fer enn fjölgandi.
íbúafjöldinn í Sviss er um 6,3
millj. og fjöldi dauðsfalla af völd-
um fíkniefna í fyrra var 109
samkv. fram-nsögðu. í Frakklandi
var fjöldi slíkra dauðsfalla 162 í
fyrra, en þar eru íbúar 53,9 millj.
Svisslend-
ingar spar-
samastir
Sprengja sprakk í Bandarikjaþingi í fyrrinótt:
SPARSEMI Svisslendinga er slík,
að þeir standa þar langfremstir
allra þjóða heims og hefur svo ver-
ið undanfarin fjögur ár. Nam spari-
fé þar í landi 14.620 dollurum á
hvern íbúa í upphafi þessa árs, en
næstir komu Japanir en voru þó
langt á eftir með 9.072 dollara
sparifé á mann. í þriðja sæti var
Vestur-Þýzkaland með 7.435 doll-
ara, en síðan komu Belgía með
7.251 dollara og Austurríki með
6.265 dollara í sparifé á mann.
Bandaríkin voru í sjötta sæti og
nam sparifé þar 5.996 dollurum á
íbúa. Er frá þessu skýrt í nýútkom-
inni skýrslu frá The International
Savings Bank Institute.
Inni í þessum tölum er sparifé,
sem útlendingar eiga i viðkom-
andi landi. En jafnvel þótt það sé
dregið frá, þá eru Svisslendingar
eftir sem áður langmesta sparn-
aðarþjóð heimsins með 13.701
dollara sparifé á mann. Þannig
er velgengni Svisslendinga fyrst
og fremst að þakka „rótgróinni
sparsemi" þeirra, segir í skýrsl-
unni.
Tíðindamaður Morgunblaðsins
sneri sér til Seðlabanka íslands í
gær og spurðist fyrir um, hvort
sams konar tölur væru til varð-
andi sparnað íslendinga, en fékk
það svar frá talsmanni bankans,
að þar sem ekki væri vitað við
hvaða forsendur framangreindar
tölur væru miðaðar, þá væri ekki
unnt að láta í té neinar sambæri-
legar tölur um sparnað íslend-
Hefði getað banað
mörgum þingmönnum
Washington, 8. nóvember. AP.
BANDARÍSKA alríkislögreglan,
FBI, skýrði frá þvf f dag, að sprengj-
an sem sprakk skammt frá fundar-
sal öldungadeildar Bandaríkjaþings
á Capitol Hill í gær, hefði verið gerð
úr „mjög öflugu sprengiefni með
tímasetningarútbúnaði".
Engin slys urðu á fólki við
sprenginguna, sem varð um kl. 4
að íslenskum tíma í nótt. Funda-
höldum öldungaráðsins lauk um
miðnættið í gær og voru því allir á
brott er sprengjan sprakk.
Hópur sem nefnir sig „Vopnuðu
andspyrnuhreyfinguna“ kvaðst
ábyrgur fyrir sprengingunni og
sagði hana vera til þess að mót-
mæla innrás Bandarfkjamanna á
Grenada og veru bandarískra her-
manna i Líbanon. Þessi sami hóp-
ur lýsti sprengingu í McNair-
virkinu í Kolumbfurfki á hendur
sér fyrir nokkru.
Þrátt fyrir skemmdirnar sem
urðu í þinghúsinu við sprenging-
una mætti öldungadeildin til
venjulegs þingfundar eftir hádeg-
ið. Að sögn Howard Baker, öld-
ungadeildarþingmanns og leiðtoga
meirihlutans þar, er ekki að efa,
að sprengjan hefði getað orðið ein-
hverjum öldungadeildarþing-
mannanna að fjörtjóni hefði hún
sprungið á fundartíma.
Lífið á Grenada færist smám saman í eðlilegt horf. Mynd þessi var tekin í St Georges, höfuðborg Grenada í gær og
sýnir fólk sinna erindum sínum. Bandarískir hermenn eru á ferli innan um Grenadabúana. (AP-símamynd).
Grenada:
Fréttin um fjölda-
grafír óstaðfest
St (ieorges, Grenada, 8. nóvember AP.
BANDARÍSKIR erabættismenn á
Grenada og í Washington segjast
vera sammála um, að engar fjölda-
grafir hafi fundizt á Grenada. Guy
Farmer, aðaltalsmaður bandaríska
liðsins á Grenada, hefur hins vegar
skýrt svo frá, að „mjög almennur
orðrómur er á kreiki hér um slíkar
fjöldagrafir".
Bandaríska herstjórnin á
Grenada hefur komið á fót skrif-
stofu, sem á að taka til meðferðar
allar bótakröfur óbreyttra borg-
ara vegna tjóns á eignum þeirra af
völdum hernaðaraðgerða Banda-
ríkjamanna. í dag komu strax
fram bótakröfur frá um 100 ein-
staklingum vegn.?. skemmda á bif-
reiðum þeirra, húsum og fyrir-
tækjum.
Frú Eugenia Charles, forsætis-
ráðherra á Dominíku, skýrði blað-
amönnum svo frá í dag, að hún
teidi, að herlið Bandarikjamanna
ætti að vera um kyrrt á Grenada
um „stutt skeið" til aðstoðar frið-
arsveitunum frá löndunum við
Karíbahaf.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
HULL/GOOLE:
Jan ............ 14/11
Jan ............ 28/11
Jan ............ 12/12
Jan ............ 27/12
ROTTERDAM:
Jan ............ 15/11
Jan ............ 29/11
Jan ............ 13/12
Jan ............ 28/12
ANTWERPEN:
Jan ............ 16/11
Jan ............ 30/11
Jan ............ 14/12
Jan ............ 29/12
HAMBORG:
Jan ............ 18/11
Jan ............. 2/12
Jan ............ 16/12
Jan ............ 30/12
HELSINKI:
Helgafell ...... 14/11
Helgafell ....... 9/12
LARVIK:
Hvassafell ..... 21/11
Hvassafell ...... 5/12
Hvassafell ..... 19/12
GAUTABORG:
Hvassafell ..... 10/11
Hvassafell ..... 22/11
Hvassafell ...... 6/12
Hvassafell ..... 20/12
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafelb...... 11/11
Hvassafell ..... 23/11
Hvassafell ...... 7/12
Hvassafell ..... 21/12
SVENDBORG:
Helgafell ...... 17/11
Hvassafell ..... 24/11
Hvassafell ...... 8/12
Helgafell ...... 13/12
ÁRHUS:
Dísarfell ...... 10/11
Helgafell ...... 17/11
Hvassafell ..... 24/11
Hvassafell ...... 8/12
Helgafell ...... 13/12
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell ..... 29/11
Skaftafell ..... 29/12
HALIFAX, KANADA:
Skaftafelj^..... 30/11
Skaftafeir ..... 30/12
^SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
'’ósth. 180 121 Reykjavík
'ii 28200 Telex 2101
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!