Morgunblaðið - 09.11.1983, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1983
Jóhanna Sigurðardóttir alþingismað-
ur.
Kvenréttindafélag
íslands:
Hádegisfund-
ur um launa-
mál kvenna
Kvenréttindafélag íslands held-
ur hádegisfund í Lækjarbrekku
fimmtudaginn 10. nóvember nk.
Jóhanna Sigurðardóttir alþingis-
maður kemur á fundinn og segir
frá störfum framkvæmdanefndar
um launamál kvenna.
(Úr fréUatilkjnningu)
Hallgrímskirkja:
Náttsöngur
í fornum tíð-
arsöngsstfl
NÁTTSÖNGUR í fornum tíóa-
söngstíl vedur í kvöld miðvikudag
klukkan 22.00 í Hallgrímskirkju,
eins og gert hefur verið um nokkurt
skeið. Sá háttur er hafður á að
stundin hefst með listflutningi og
síðan er hin aldagamla tíðagjörð
sungin af öllum viðstöddum undir
leiðsögn organista og prests.
Tónlistarflutning að þessu sinni
annast Sólveig Björling söngkona
og Gústaf Jóhannesson organisti.
Flytja þau aríur eftir Hándel.
Líffræðifélag íslands:
Fyrirlestur
um vistfræði
vatnasnigla
„VISTFRÆÐI vatnasniglanna
Lymnaea peregra og Gyraulus laevis
í tveim næringarríkum laugum“,
nefnist fyrirlestur sem Tryggvi Þórð-
arson mun halda á vegum Líffræði-
félags íslands í kvöld kl. 20.30 í
stofu 101 í Lögbergi, húsi lagadeild-
ar Háskóla Islands.
Fjallar fyrirlesturinn um rann-
sóknir sem Tryggvi gerði í svoköll-
uðum „Opnum" i ölfusi.
Leiðrétting
í FRÉTT Mbl. í gær um tilboð í
gerð Reykjanesbrautar milli
Hafnarfjarðar og Garðabæjar féll
niður næstlægsta tilboðið. Það
átti fyrirtækið Loftorka hf., 18
milljónir 823 þúsund krónur. Mbl.
biðst velvirðingar á þessum mis-
tökum.
Leiðrétting
í FRÉTT í Mbl. sl. sunnudag um
íslenzka matarkynningu í Svíþjóð
á vegum Nausts, féll niður í niður-
lagi þakklæti til Flugleiða og
Stéttarsambands bænda fyrir
veitta mikilvæga aðstoð í sam-
bandi við kynninguna.
Ákveðið að Sörli 653 fari
á heimaslóðir næsta vor
Mynd I Sörli var sýndur á „Degi hestsins" á Melavellinum og er þessi
mynd tekin við það tækifæri. Knapi er Aðalsteinn Aðalsteinsson.
NÚ MUN afráðið að stóðhesturinn
Sörli 653 frá Sauðárkróki fari á
sínar fyrri heimaslóðir næsta vor
og þá til eiganda síns, Sveins Guð-
mundssonar á Sauðárkróki. Allt
frá Landsmótinu 1978 hafa þeir
Sigurbjörn Eiríksson, Stóra-Hofí,
og Magnús Leópoldsson haft hest-
inn til afnota, en það var einmitt á
þessu móti sem Sörli hlaut fyrstur
íslenskra hesta heiðursverðlaun
fyrir afkvæmi sín. Sörli hefur á
undanförnum árum verið einn
vinsælasti stóðhestur landsins og
hefur hann verið notaður víða.
Sörli, sem nú er nitján
vetra, er við bestu heilsu og
gafst mönnum kostur á að sjá
hann á hrossamarkaðnum, sem
haldinn var austur á Stóra-Hofi
nú fyrir skemmstu. Höfðu menn
orð á því hversu vel hesturinn
liti út, en það vill því miður
brenna við að stóðhestar á þess-
um aldri og jafnvel yngri séu
ekki vel útlítandi á þessum árs-
tíma og jafnvel heysjúkir vegna
vanhirðu.
Að sögn Sveins mun Sörli eyða
ævikvöldi sínu i Skagafirði og
verður notaður eingöngu í hérað-
inu meðan honum endist aldur
til. Einnig kvað hann að hestur-
inn yrði notaður á vegum
Hrossaræktarsambands Skag-
firðinga. Með heimkomu Sörla
má segja að Skagfirðingar séu
vel settir hvað varðar úrval
stóðhesta því nú hafa þeir tryggt
sér afnot af þeim þremur stóð-
hestum sem hlotið hafa heiðurs-
verðlaun fyrir afkvæmi. Hinir
tveir eru Þáttur 722 frá Kirkju-
bæ og Hrafn 802 frá Holtsmúla.
Eins og áður segir hefur Sigur-
björn notað Sörla í fimm ár og á
hann nú orðið fjóra árganga
undan honum og mun sá fimmti
væntanlega líta dagsins ljós
næsta vor.
VK.
Kristinn Sigmundsson söngvari
kemur fram á fyrstu áskriftartón-
leikum íslensku hljómsveitarinnar.
íslenska Hljómsveitin:
„Frá nýja
heiminum“
- fyrstu áskriftartón-
leikarnir
FYRSTU áskriftartónleikar fs-
lensku hljómsveitarinnar á öðru
starfsári fara fram í Neskirkju
fimmtudaginn 10. nóvember, kl.
20.30. Auk hljómsveitarinnar
koma fram þau Anna Guðný Guð-
mundsdóttir píanóleikari, Pétur
Jónasson gitarleikari og Kristinn
Sigmundsson söngvari. Stjórnandi
á þessum tónleikum, sem bera yf-
irskriftina „Frá nýja heiminum",
verður Guðmundur Emilsson.
I raun og veru
engar breytingar
- segir Sigrún
„ÉG HELD að fólk vilji í raun og
veru enga breytingu. Þetta er eng-
in breyting frá því sem áður var,
þetta er í raun og veru sama
flokksforystan. Það hefði þurft
meiri breytingu til að ná betur til
almennings og til að færa hinn al-
menna flokksmann nær foryst-
unni,“ sagði Sigrún Þorsteinsdótt-
ir, sem bauð sig fram til varafor-
manns í Sjálfstæðisflokknum, en
laut í lægra haldi fyrir Friðrik
Sophussyni.
„Ég held að fólk hafi mjög
fyrirfram mótaðar skoðanir og
það er kannski ekkert við því að
segja. Alla vega er það ekki opið
fyrir nýjum skoðunum og tillög-
um. Kjörið olli mér ekki per-
sónulegum vonbrigðum, en mér
hefði þótt það bjartara framtíð-
arinnar vegna, ef fólk hefði verið
opnara fyrir breytingum. Ég tel
mig hafa haft mikið út úr þessu
hvað reynslu snertir. Sjálfstæð-
isflokknum og það sem ég tel
hans grunnstefnu, finnst mér
ekki sinnt sem skyldi, þ.e.a.s.
frelsi og framtak einstaklingsins
og hamingja fólksins.
— Finnst þér það vera sterk
forusta, sem valdist á landsfund-
inum?
„Ég hugsa að þetta sé sterk
forusta fyrir vissan hluta af
flokknum eins og hann er upp-
byggður í dag, en ég er ekki viss
um að þetta sé sterk forusta
fyrir þjóðina. Flokkurinn á að
vera fyrst og fremst fyrir þjóð-
ina, hann er ekki takmark í
sjálfu sér, heldur tæki til þess að
vinna fyrir þjóðina. Ég held að
það séu breyttir tímar framund-
an, að fólk vilji fá að ráða meiru
sjálft. Því er stjórnað mikið ofan
frá eins og nú er háttað málum
og ég kom einmitt inn á það at-
riði i ræðum á fundinum. Það
Þorsteinsdóttir
Sigríður Þorsteinsdóttir.
Morgunblaðið/ Ól.K.M.
getur vel verið að mér skjátlist,
en ég get ímyndað mér að þessi
verði þróunin og þá er ég ekki
viss um að Sjálfstæðisflokkurinn
sé tilbúinn að taka á móti, ef
þetta verður krafa tímans og
krafa fólksins. En ég vona sann-
arlega að þessi landsfundur eigi
eftir að skila sér virkilega vel
fyrir framtíðina," sagði Sigrún
ennfremur.
„Ég er sátt og ánægð með að
hafa tekið þátt í fundinum á
þennan virka og að mínu mati
ábyrga hátt. Ef þessi nýja for-
ysta sér um að koma raunveru-
legum völdum til fólksins, þá
verður hún góð framtíðarinnar
vegna. Ef ekki, þá er yfirskrift
fundarins „framtíðarinnar
vegna" innantómt slagorð. Því ef
framtíðin á að verða góð, hér á
þessu landi, þá þarf þróunin að
verða sú að fólk taki á virkari og
ábyrgari hátt, þátt í stjórnmál-
um. Stjórnmál eru jú ekkert
annað en umfjöllun á daglegu
lífi fólks, ráðstöfun á auði jarð-
arinnar, hvort sem stjórnað er í
Sjálfstæðisflokknum, Washing-
ton, Kreml eða Tokyo," sagði
Sigrún Þorsteinsdóttir að lokum.
Ragnbeiður Tryggvadóttir og Harald G. Haraldsson í hlutverkum sínum.
Aukasýning á Guðrúnu
LEIKFÉLAG Reykjavíkur hefur auka-
sýningu á leikritinu Guðrúnu fímmtu-
dagskvöldið 10. nóvember, og verður
þetta jafnframt allra seinasta sýning
verksins.
Höfundurinn, Þórunn Sigurðar-
dóttir, byggir leikritið á Laxdæla-
sögu, ástum Guðrúnar Ósvífursdótt-
ur og sambandi hennar við þá fóst-
bræður Kjartan Ólafsson og Bolla
Þorleiksson. Leikendur í þessum
hlutverkum eru: Ragnheiður Elfa
Arnardóttir, Jóhann Sigurðarson og
Harald G. Haraldsson.
Alls koma 9 leikarar fram í sýn-
ingunni, Jón Ásgeirsson samdi tón-
listina en höfundur er jafnframt
leikstjóri.
Batamerki nóvember komið út
EINKUNNARORÐ Batamerkis
Karnabæjar fyrir nóvember hafa verið
valin. Höfundur reyndist vera Hildi-
gunnur Högnadóttir á ísafírði. Ein-
kunnarorðin eru: Augljós bati er allra
hvati.
I frétt frá Karnabæ segir svo m.a.:
„Dómnefndinni fannst þessi ein-
kunnarorð vel til fallin 1 dag. Við
þörfnumst „augljóss bata“ til hvatn-
ingar á erfiðum tímum. Til þess þarf
þjóðin að standa saman, sem ein
órofin fjölskylda og snúa vörn í sókn.
Þá verður ekki langt 1 augljósan
bata.
Við þökkum Hildigunni kærlega
fyrir einkunnarorðin og vísurnar og
einnig þökkum við hinum fjölmörgu,
sem hafa sent okkur tillögur um ein-
kunnarorð og er aldrei að vita nema
þau verði fyrir valinu á næstu mán-
uðum.
Við hvetjum alla til að senda inn
einkunnarorð í anda þess jákvæða
„tóns“ sem batamerki á að vera.“
Hildigunnur Högnadóttir er
þriggja barna móðir á Isafirði, hús-
móðir og verzlunarstjóri í verzlun-
inni Penslinum.
Tvítugsafmæli sjálf-
stæðiskvenna í Eden
Sjálfstæðiskvenfélag Árnessýslu
heldur upp á 20 ára afmæli félagsins
12. nóvember nk. í Eden f Hveragerði.
Dagskráin hefst kl. 21, en húsinu verð-
ur lokað kl. 22.
Formaður félagsins, Þuríður Har-
aldsdóttir, flytur ávarp, Halldóra
Rafnar formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna flytur ávarp,
Dagfríður Finnsdóttir og Aðalheiður
Jónasdóttir syngja tvísöng við und-
irleik Glúms Gylfasonar, en
hljómsveit Þorsteins Guðmundsson-
ar mun leika fyrir dansi. Sætaferðir
verða frá Selfossi, Stokkseyri, Eyr-
arbakka og Þorlákshöfn.