Morgunblaðið - 29.11.1983, Page 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. NÓVEMBER 1983
Jón Páll er annar
„sterkasti maður heims"
• Jón Páll Sigmarsson, ann-
ar „sterkasti maður heims“.
Árangur hans í þessari sér-
stæðu keppni í Ástralíu er
óneitanlega mjög skemmti-
legur, en heimsfrægir krafta-
jötnar voru þarna saman-
komnir, og Bretinn Geoff
Capes, sem sigraði, er at-
vinnumaður í kraftaíþróttum.
— hann var kjörinn vinsælasti keppandinn
JÓN PÁLL Sigmarsson varð í
öðru sæti í keppninni „Sterkasti
maður heims“ sem haldin var í
Christchurch í Ástralíu um helg-
ina, og hann var kjörinn vinsæl-
asti maður keppninnar. Glæsi-
legur og skemmtilegur árangur
hjá Jóni Páli.
Það var Bretinn Geoff Capes
sem sigraöi í keppninni, hlaut 49,5
stig, Jón Páll hlaut 38 stig, og Sim-
on Wulfse frá Hollandi va.ð þriðji
meö 37 stig. Wulfse þessi sigraöi í
keppninni „Sterkasti maður Evr-
ópu“ sem Jón Páll tók þátt í í Hol-
landi fyrr í haust.
Bandaríkjamaðurinn John
Gamble varð fjórði, en hann er
heimsmeistari í kraftlyftingum í
sínum flokki, og hefur lyft mest
1030 kg í samanlögöu! Tom
Magge frá Kanada, sem varð
heimsmeistari í kraftlyftingum í
sínum flokki í fyrra, varö fimmti.
Meöal þeirra sem á eftir komu var
Bandaríkjamaöurinn Doyle
Kenadi. Hann á heimsmetiö í
réttstööulyftu í sínum flokki: 420
kg-
Jón Páll sigraöi i þremur grein-
um, varö annar í tveimur greinum,
þriöji í einni, fimmti í einni og síö-
astur i einni grein.
Keppnin tók tvo daga og var
keppt i átta greinum. Meöal þrauta
var aö beygja járnstöng án þess
aö hún snerti líkamann, hlaup þar
sem haldið er á 68 kg lóöum í
hvorri hönd, aö toga 7.710 kg
dráttarvel 30 metra, aö iyfta grjóti
og að fullferma bíl í axlarhæð meö
100 kg sekkjum.
Eins og áöur hefur komiö fram
varö Jón Páll þriöji í keppninni
„Sterkasti maöur Evrópu" í Hol-
landi í haust og fyrir þann góöa
árangur var honum boðið til
Christchurch til keppninnar um
helgina. Góö verölaun voru í boöi
fyrir efstu sætin.
llpróttirl
• Þeir stóðu sig vel á mótinu, dönsku drengirnir Henrik Olsen, Morten
Sandal og Frímann Ferdinandsson frá íslandi.
Afmælismót Víkings:
120 keppendur á
unglingamóti í
badminton í Höllinni
DAGANA 19. og 20. nóvember sl.
var haldið veglegt afmælismót
Badmintondeildar Víkings. Mótið
fór fram í Laugardalshöll, og
hófst kl. 13.00 á laugardeginum.
Þátttakendur, sem voru 120 tals-
ins, koma víða að af landínu.
Mikiö líf og fjör ásamt keppnis-
gleði ríkti báða dagana, enda
saman komnir bestu badminton-
keppendur í öllum unglinga-
flokkunum. Þá vöktu mikla at-
hygli tveir unglingar frá Dan-
mörku, sem voru gesti mótsins.
Það voru þeir Morten Sandal og
Henrik Olsen. Morten er 16 ára,
en Henrik 17 ára. Báöir eru þeir
þekktir badmintonkeppendur í
sínu heimalandi.
Úrslit í öllum flokkum voru sem
hér segir:
HNOKKAR, einlidaleikur:
Arnar Gunnlaugsaon ÍA, vann Bjarka Gunn-
laugsson ÍA 10/0—11/5.
HNOKKAR. tvíliöaleikur:
Arnar Gunnlaugsson og Bjarki Gunnlaugs-
son ÍA unnu Einar Pálsson ÍA og Jón Þórdar-
son ÍA í úrslitum 15/4 — 15/11.
TÁTUR, einlióaleikur:
Kristín Ólafsdóttir UFHÖ vann Jóhönnu
Snorradóttur UFHÖ í úrslitum 11/6 — 11/9.
TÁTUR, tvíliöaleikur:
Jóhanna Snorradóttir UFHÖ og Sigurbjörg
Skarphéóinsd. UFHÖ unnu Ingibjörgu Arn-
Ijótsd. TBR og Kristínu Ólafsd. UFHÖ í úrslit-
um 12/15 — 15/8 — 17/15.
HNOKKAR — TÁTUR, tvenndarleikur:
Ólafur Ásgeirsson UFHÖ og Kristín ólafsd.
UFHÖ unnu Einar Pálsson ÍA og Maríu Gúst-
afsd. ÍA í úrsl. 10/15 — 15/7 — 17/16.
SVEINAR, einlióaleikur.
Njáll Eysteinsson TBR vann Rósant Birgis-
son ÍA í úrslitum 11/1 — 11/1.
SVEINAR, tvílióaleikur:
Karl Vióarsson ÍA og Siguróur Steindórsson
ÍA unnu Jón Pétur Ziemsen TBR og Hauk
Hauksson TBR í úrslitum 15/4 — 15/12.
MEYJAR, einlióaleikur:
María Guómundsd. ÍA vann Bertu Finn-
bogad. ÍA í úrslitum 12/9 — 11/7.
MEYJAR, tvílióaleikur:
María Guómundsd. ÍA og Ágústa Andrés-
dóttir ÍA unnu Bertu Finnbogad. og Guórúnu
Eyjólfsd. ÍA í úrslitum 15/5 — 5/15 15/11.
SVEINAR — MEYJAR tvenndarl.:
Njall Eysteinsson TBR og Birna Petersen
TBR unnu Maríu Guómundsd. ÍA og Rósant
Birgisson ÍA í úrslitum 15/13 — 15/8.
DRENGIR, einlióaleikur:
Haraldur Hinriksson ÍA vann Bjarka Jóhann-
esson ÍA í úrslitum 15/12 — 15/3.
DRENGIR, tvílióaleikur:
Haraldur Hinriksson ÍA og Bjarki Jóhannes-
son ÍA unnu Leó Sigurósson TBR og Guó-
mund Bjarnason TBR í úrslitum 15/5 — 4/15
— 15/7.
TELPUR, einlióaleikur:
Guórún Júlíusd. TBR vann GUÓrúnu S»-
mundsd. Val í úrslitum 11/2 — 11/2.
TELPUR, tvílióaleikur:
Helga Þórisd. TBR og Guórún Júlíusd. TBR
unnu Ásu Pálsd. ÍA og Guórúnu Gíslad. ÍA í
úrslitum 15/5 — 15/3.
DRENGIR — TELPUR tvenndarl.:
Bjarki Jóhannesson ÍA og María Finnbogad.
ÍA unnu Pétur Lentz og Guörúnu Júlíusd.
TBR í úrslitum 6/15 — 15/12 —15/5.
OPINN GESTAFLOKKUR:
Einlióaleikur:
Henrik Olsen, Danmörku, vann Morten
Sandal Danmörku, í úrslitum 15/11 — 15/10.
Tvílióaleikur:
Benrik Olsen og Morten Sandal Danmörku
unnu Pétur Hjálmtýsson TBR og Snorra Þ.
Ingvarsson TBR í úrslitum 15/5 — 15/1.
Þessi sérstaki gestaflokkur var
settur vegna tilkomu Dananna,
sem sýndu mjög sterkan leik. Þeir
unnu alla sína leiki viö íslendinga,
og kepptu því til úrslita.
Firmakeppni
Knattspyrnudeild Fylkis heldur firmakeppni dagana
2.—4. desember í Árbæjarskóla. 5 liö í riöli.
Þátttökutilkynningar í síma 37922. Sveinbjörn og
81274 Valur.
Njarðvíkingurinn Eðvarð Eö-
varösson setti nýtt íslands-
met í 200 m baksundi, synti
vegalengdina á 2:13,88 mín.
Kópavogs-
hlaupið
VÍÐAVANGSHLAUP veröur hald-
iö í Kópavogi laugardaginn 3.
desember og hefst það kl. 13.30.
Keppt verður í tveim flokkum,
karlaflokki (vegalengd ca. 7 km)
og kvennaflokki (vegalengd ca.
3,5 km). Hlaupið er liður í víöa-
vangshlaupakeöju FRÍ. Skráning
á staðnum og öllum heimil þátt-
taka, trimmarar eru sérstaklega
boönir velkomnir.
Þrjú íslandsmet:
28 einstaklingar
komust á
verðlaunapall
Unglingameistaramót íslands í
sundi fór fram í Sundhöll Reykja-
víkur um síöustu helgi. Gífurleg
þátttaka ungmenna var á mótinu
sem fór í alla staöi mjög vel fram
og heppnaöist eins og best verö-
ur á kosið. Mikil gróska er nú í
sundíþróttinni og mjög mikið af
efnilegu sundfólki að koma fram.
Þrjú íslandsmet voru sett á mót-
inu. Njarövíkingurinn Eövarö Eö-
varösson setti nýtt íslandsmet í
200 m baksundi, synti vegalengd-
ina á 2:13,88 mín. Gamla metiö var
2:15,47 mín. Þetta var líka piltamet
hjá Eövarö.
Bryndís Ólafsdóttir setti nýtt is-
landsmet í 100 m skriösundi
stúlkna, synti á 1:00,90 mín. Þetta
er þriðja met Bryndísar á skömm-
um tíma. Verður þess nú varla
langt aö bíöa aö hún syndi 100 m
skriösund á innan við mínútu.
Þá setti Guörún Fema Áaústs-
dóttir nýtt islandsmet í 50 m skriö-
sundi þegar hún synti fyrsta sprett
í boðsundsveit Ægis í 4x50 m
skriðsundi. Tími Guðrúnar Femu
var 28,58 sek. Mjög góður tími.
Gamla metið átti Guðrún sjálf, var
það 28,69 sek.
Þá voru sett 2 stúlknamet á
mótinu, 4 piltamet, 3 telpnamet, 1
sveinamet og 2 meyjamet. Alls
komust 28 einstaklingar á verð-
launapall á mótinu og hefur það
aldrei skeð áður á svona móti. Af
góöum afrekum á mótinu má
nefna telpnamet Bryndísar Ólafs-
dóttur í 50 m flugsundi, 33,09 sek.
Hugrún, systir Bryndísar, synti 100
m skriösund á 1:08,10 mín., sem
er meyjamet. Vegna þrengsla
veröur aö bíöa með að birta úrslit
í einstökum greinum þar til á
morgun.
— ÞR
• Bryndís Ólafsdóttir setti Islandsmat í 100 m skriösundi, þaö þriðja á
skömmum tíma.