Morgunblaðið - 20.12.1983, Síða 1
80 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
292. tbl. 70. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Staða Nakasones for-
sætisráðherra ótrygg
eftir kosningaósigurinn
Tanaka endurkjörinn með fleiri atkvæöum en nokkru sinni áður
Tókjó, 1». des. AP.
YASUHIRO Nakasone, forsætis-
ráðherra Japans, viðurkenndi í dag,
að kosningaósigur Frjálslynda
flokksins væri mikið áfall. Hann tók
það hins vegar skýrt fram, að hann
yrði áfram forsætisráðherra og hét
því að halda fast við fyrirheit stjórn-
ar sinnar um endurbætur í stjóm
landsins og hvika ekki frá „ábyrgð
og hlutverki Japans á alþjóðavett-
vangi“.
Nakasone lét þessi ummæli
falla á fundi meö fréttamönnum,
sem haldinn var eftir að úrslit í
þingkosningunum lágu fyrir, en í
þeim tapaði Frjálslyndi flokkur-
inn, sem um langt skeið hefur far-
ið með völd í Japan, meirihluta
sínum á þjóðþinginu. Margir
stjórnmálaskýrendur skýra niður-
stöður kosninganna á þann veg, að
kjósendur hafi verið að sýna í
verki andúð sína á hneykslismál-
um þeim, sem svo mjög hafa sett
mark á Frjálslynda flokkinn að
undanförnu og náðu hámarki, er
Kakuei Tanaka, fyrrverandi for-
sætisráðherra, var fundinn sekur
fyrir dómi um að hafa þegið mút-
ur frá Locheed-verksmiðjunum.
Sjálfur kom Tanaka á óvart nú
með því að ná endurkosningu í
kjördæmi sínu með fleiri atkvæð-
um en nokkru sinni áður. Frjáls-
lyndi flokkurinn tapaði hins vegar
í heild 35 þingsætum og fær nú
250, en hafði 285 þingsæti áður.
Með þessu hefur flokkurinn tapað
meirihluta sínum á japanska þjóð-
þinginu, því að þar sitja 511 þing-
menn og þarf því 256 þingsæti til
þess að hafa þar meirihluta.
Þrátt fyrir yfirlýsingar Naka-
sone um, að hann og stjórn hans
muni sitja áfram, þá hafa kosn-
ingaúrslitin veikt stöðu hans mjög
og vakið miklar efasemdir um,
hvort hann njóti nægilegs stuðn-
ings til þess að geta stjórnað í
framtíðinni. Árangur Frjálslynda
flokksins í kosningunum var enn
lakari en svartsýnustu stuðn-
ingsmenn höfðu vænzt og loka-
tölur sýndu, að það voru aðal and-
stæðingar þeirra, jafnaðarmenn,
sem mest höfðu bætt við sig eða 11
þingsætum og fengu nú 112 þing-
sæti. Kommúnistar töpuðu hins
vegar þremur þingsætum og hafa
nú 26 í stað 29 áður.
Sjá: „Mikið fylgistap" á bls. 18.
Yashuiro Nakasone, forsætisráðherra Japans horfir niðurlútur fram fyrir sig,
er hann yfirgefur aðalstöðvar Frjálslynda flokksins f Tókýó í gærmorgun,
eftir að Ijóst var orðið að flokkurinn hafði beðið mikinn ósigur og tapað 35
þingsætum.
Brottför frestað
Einmana horfir þessi skæruliði úr Frelsisfylkingu Palestínumanna (PLO) á slökkviliðsmenn berjast við elda þá,
sem kviknuðu í grísku flutningaskipi, þar sem það lá við bryggju í Tripolihöfn í gærmorgun. Skipið varð fyrir
sprengjukúlum fsraelsmanna, sem oilu miklum skemmdum á þessu skipi og sökktu öðru og komu í veg fyrir
fyrirhugaðan brottflutning skæruliða PLO frá Tripoli, sem fram átti að fara með fimm grískum skipum. Mynd
af Yasser Arafat, leiðtoga PLO, hangir á veggnum til hægri. í gærkvöldi voru uppi áform um að fimm frönskum
herskipum yrði falið að veita grísku skipunum þá vernd, sem þyrfti til þess að þau gætu siglt hindrunarlaust frá
Tripoli með Arafat og liðsmenn hans.
„Guð dæmir þá
«
þá sem ábyrgð bera á sprengingunni í Harrods
Olíuhagn-
aður Norð-
manna slær
öll met
Osló, 19. des. AP.
GREIÐSLUJÖFNUÐUR Noregs við
útlönd á tímabilinu janúar til septem-
ber á þessu ári nam 8,9 milljörðum n.
kr. (nær 33 milljörðum ísl kr.) Þetta
er miklu hagstæðari greiðslujöfnuður
en fyrir sama tímabil f fyrra, en þá
nam hann 3,3 milljörðum n.kr.
Áður hafði því verið spáð, að tals-
verður halli kynni að verða á
norska ríkisbúskapnum á næsta
ári, en samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem nú liggja fyrir, er gert ráð
fyrir miklum greiðsluafgangi. Þessi
hagstæða þróun er öll að þakka
olíutekjum Norðmanna, en horfur
eru nú á, að á næsta ári fari þær
langt fram úr öllum áætlunum, sem
miðað hefur verið við til þessa.
Fimbul-
frost
New York, 19. des. AP.
FIMBULFROffT ríkir nú um mik-
inn hluta llandaríkjanna frá
Klettafjöilunum í vestri til Atl-
antshafsstrandarinnar í austri og
sföan allt suður til Texas. í Norð-
urríkjunum var víöa 18 stiga frost
um helgina og á köldustu stöðun-
um, í Minnesota og Norður-Dak-
ota, komst frostið niður í 38 stig á
('elsius. Snjókoma var víöa. Þann-
ig snjóaði talsvert í sumum héruð-
um Texas.
„Við spáum bitru frosti víða
um Bandaríkin næstu daga,“
sagði George Skari, talsmaður
bandarísku veðurstofunnar.
Hann gat þess ennfremur, að
svo mikill kuldi sem nú væri
heilum mánuði of snemma á
ferðinni miðað við venjulegt ár-
ferði.
— sagði Karl prins um
London, 19. des. AP.
MÖRG hundruð lögreglummönnum
var í dag bætt við lögreglulið Lund-
únaborgar og samtímis var þar sett á
stofn sérstök sveit sprengjusérfræð-
inga, sem á að vera til taks allan
sólarhringinn í framtíðinni. Með
þessu og margvíslegum öðrum varúð-
arráðstöfunum standa vonir til þess,
að eftirleiðis verði unnt að koma í veg
fyrir sprengingar svipaðar þeirri, sem
varð í llarrods, einu þekktasta verzl-
unarhúsi Lundúna á laugardag.
Verzlunin opnaði að nýju á
mánudagsmorgun og fólk hélt
þangað til jólainnkaupa, án þess að
láta bilbug á sér finna. „Fjöldi
viðskiptavina okkar f morgun var
nær jafnmikill og venjulega," sagði
Aleck Craddock, stjórnarformaður
verzlunarinnar. „Það er svar þeirra
við hryðjuverkum IRA.“
Karl prins, erfingi brezku krún-
unnar, heimsótti i dag nokkra
þeirra, sem slasazt höfðu f spreng-
ingunni og var Díana prinsessa,
kona hans, f för með honum. Við
komuna á sjúkrahúsið sagði prins-
inn: „Guð mun dæma þá, sem
ábyrgð bera á þessu ódæði.“ Er þau
komu að sjúkrabeði Mark Audreys,
28 ára gamals Bandarfkjamanns,
sem hlotið hafði alvarleg meiðsli á
fæti og á öxl í sprengingunni, sagði
prinsinn: „Fyrir hönd Lundúna
biðst ég afsökunar á þessum at-
burði.“ Annar Bandaríkjamaður og
fjórir Bretar biðu bana í spreng-
ingunni en enn fleiri slösuðust það
illa, að þeir munu vart bíða þess
nokkru sinni bætur.
í umræðum f brezka þinginu í
dag vísaði Leon Britton, innanrík-
isráðherra Bretlands, á bug sem
„viðbjóðslegri hræsni“ þeirri yfir-
lýsingu írska lýðveldishersins
(IRA), þar sem harmað var, að
óbreyttir borgarar skyldu hafa
slasazt f sprengingunni. „IRA hef-
ur séð, hvernig þessir verknaður
hefur hlotið fordæmingu allra og
er nú að reyna að breiða yfir hann,“
sagði Britton.
Eistland:
Þungir
dómar fyr-
ir „and-
sovézkan“
áróður
Stokkbólmi, 19. des. AP.
ÞRÍR kunnir andófsmenn og bar-
áttumenn fyrir auknum mann-
réttindum í Eistlandi hlutu þunga
dóma í hæstarétti landsins í síðustu
viku. Þeir voru Lagle Parek, 42 ára
gamall arkitekt, sem dæmdur var í 6
ára nauðungarvinnu auk 3 ára út-
legöar frá heimahögum sínum,
Haeiki Ahonen, 27 ára gamall verk-
fræðingur og Arvo Pesti, 27 ára gam-
all málvísindamaður, sem hvor um
sig var dæmdur í 6 ára nauðungar-
vinnu og 2 ára útlegð. Mennirnir
voru allir fundnir sekir um „að efna
til æsinga og um andsovézkan áróð-
ur“.
Dómar þessir voru kveðnir upp
16. desember eftir þriggja daga
réttarhöld, þar sem rikissaksókn-
arinn, Siim Kirsipuu, leiddi fram 8
vitni máli sínu til stuðnings. Að-
eins 6 af ættingjum hinna ákærðu
fengu að vera viðstaddir réttar-
höldin í dómsalnum, sem ekki
rúmar fleiri en 12 áheyrendur.
Ants Kippar, talsmaður sám-
taka þeirra í Stokkhólmi, sem að-
stoða pólitíska fanga í Eistlandi,
sagði í dag, að dómarnir yfir
mönnunum þremur væru merki
um harðari aðgerðir af hálfu sov-
ézku leynilögreglunnar, KGB,
gegn mannréttindahreyfingunni í
Eystrasaltslöndunum. Parek,
Ahomen og Pesti voru handteknir
sl. vor fyrir andsovézka starfsemi.
Þeir voru félagar í svonefndri
„Helsingfors-hreyfingu”, sem
berst fyrir því, að mannréttinda-
ákvæðin í Helsingfors-sáttmálan-
um veröi haldin i Eistlandi.