Morgunblaðið - 20.12.1983, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
Síldarvertíðinni lokið:
Hákon ÞH með beztu sfldina
HOFRUNGUR AK var með mest aOa
verðmsti á nýlokinni sfldarvertíð,
2.301.000 krónur fyrir 561 lest. Hákon
ÞH var hins vegar með mest aflaverð-
mæti miðað við lestafjölda. Hann fékk
alls 461 lest að verðmæti 2.182.000
krónur. Faxi GK var með þriðja mesta
aflaverðmætið, 2.138.000 krónur fyrir
478 lestir. Allir þessir bátar voru með
hringnót.
Alls bárust á land, samkvæmt
bráðabirgðatölum veiðieftirlits
sjávarútvegsráðuneytisins, 55.200
lestir. í hringnót veiddust 37.184
lestir, reknet 17.149 og lagnet 875
lestir. Eins og áður sagði var afli
Hákons ÞH bæði beztur og verð-
mestur allra bátanna. 94% afla
hans voru 33 sentímetrar eða
stærri, svokallaður demantur, en
6% voru 30 til 33 sentimetrar að
stærð.
Fyrirkomulag veiða í hringnót
var með þeim hætti, að bátarnir
máttu veiða 460 lestir eða að verð-
mæti 1.920.000 krónur og ekki yfir
575 lestir. Afli umfram þessi mörk
er gerður upptækur.
Davíð Oddsson borgarstjóri afhendir Rúnari Bjarnasyni slökkviliðsstjóra lyklana að nýja slökkvibflnum.
Nýr slökkvibíll í notkun
kl£ér er
S[©tur hý
5f6"*fr
SllbLrW, "Ht/
hita. 0 ln halda á þér
Undanfarin ár hefur Passíukór-
inn haldið sína jólatónleika um
miðjan desember, en í ár verða
þeir nær sjálfri jólahelginni.
(FréCUtilkynning)
Loðnuveiðarnar:
Jólafrí
„JÓLAFRÍ“ er nú hafið á loðnu-
veiðunum og nær öll skip komin til
heimahafnar. Að sögn Andrésar
Finnbogasonar hjá Loðnunefnd
voru aðeins þrjú skip á miðunum í
gær og öll á heimleið.
Sagði Andrés, að nú væru
komnar á land 132.000 til 133.000
lestir af loðnu og meira yrði ekki
veitt á þessu ári. Skipin mega
hefja veiðar að nýju 4. janúar
næstkomandi.
Á laugardaginn var nýr
slökkviliðsbíll formlega tekinn í
notkun af Slökkviliðinu f
Reykjavík og voru þá Davíð
Oddssyni borgarstjóra afhentir
lyklar að honum. Við þetta tæki-
færi var bfllinn einnig sýndur og
þau tæki sem fylgja honum.
Tveir Danir og einn Hollending-
ur hafa verið hér á landi undan-
farna daga og kennt á bflinn og
meðferð þess útbúnaðar sem
fylgir honum.
Að sögn Hrólfs Jónssonar að-
stoðarslökkviliðsstjóra er
útbúnaður á bílnum til þess að
búa til froðu og getur hann
framleitt allt að því 20 þúsund
lítra af froðu á mínútu. Bíllinn
er útbúinn með 800 metrum af
slöngum og hann getur tekið
2000 lítra af vatni. Þá fylgir
bilnum sérstök sög til að opna
hús og mjög fullkomin björgun-
artæki, bæði til þess að komast
inn i hús og eins til þess að ná
fólki út úr bílum. Reykblásari
fylgir bílnum einnig og 12
metra stigi.
MorgunblaAiA/Júlíufi.
Slökkviliðsmenn sýna notkun búnaðar til að ná fólki út úr bflflökum.
Hrólfur sagði að bíllinn væri
þannig útbúinn að hann gæti
unnið mjög sjálfstætt. Mjög
gott rými fyrir menn væri í
honum og gætu sjö menn verið
á honum í einu. Bíllinn væri út-
búinn með drifi á öllum hjólum
og ætti því gott með að komast
ferðar sinnar í slæmri færð.
Passíukórinn á Akureyri flyt-
ur jólaþáttinn úr Messíasi
JÓLAÞÁTTURINN úr Messíasi
verður fluttur á jólatónleikum
Passíukórsins í Akureyrarkirkju
28. desember kl. 20.30.
Messías eftir G.F. Hándel ætti
að vera óþarfi að kynna. Fá
Þ&Qileg. Sterk^H^ý °9
-..****»
S""'288?'n
kirkjuleg tónverk hafa notið jafn
almennra vinsælda allt frá því
verkið var frumflutt árið 1742.
Á Akureyri hefur Passían
heyrst tvívegis áður, í bæði skiptin
í flutningi Passíukórsins. Fyrst á
Tónlistardögum vorið 1977, þá
óstytt og síðan í mars 1982. í það
skipti nokkuð stytt, m.a. var jóla-
þættinum sleppt þá.
Kórinn hefur fengið til liðs við
sig Kammersveit Tónlistarskólans
á Akureyri, Elínu Guðmundsdótt-
ur semballeikara og einsöngvar-
ana Sigrúnu Gestsdóttur sópran,
Þuríði Baldursdóttur alt og
Michael J. Clarke barítón. Stjórn-
andi er Roar Kvam.