Morgunblaðið - 20.12.1983, Síða 11

Morgunblaðið - 20.12.1983, Síða 11
Minkaskinnaupp- boð í Danmörku: 5—14% hækkun í VIKUNNI voru rúmloga 900 þúsund minkaskinn boðin upp í danska upp- boðshúsinu í Glostrup, hluti af ís- lensku minkaskinnaframleiðslunni þar á meðal. Að sögn Snorra Stefánssonar, starfsmanns Sambands íslenskra loð- dýraræktenda, var uppboðið mjög vel heppnað, mikil eftirspurn, og kaupend- ur frá öllum helstu markaðssvæðum mættir. Öll uppboðin skinn seldust og hækkaði verð helstu tegunda frá 5—14%. Verð annarra tegunda stóð í stað. Mest varð hækkunin í svartmink. Högnaskinnin seldust á 850 kr. ís- lenskar, sem er 14% hækkun frá desemberuppboði í fyrra, læðuskinn- in seldust á 720 krónur, sem er 3% hækkun. Pastelskinnin hækkuðu um 5—6%, högnaskinnin seldust á 820 krónur og læðuskinnin á 500 krónur íslenskar. Brúnminkur hækkaði einnig, högnaskinnin seldust á 834 krónur, sem er 5% hærra verð en í fyrra, og læðuskirtnin á 656 krónur. Þetta eru aðaltegundirnar í minkaskinnaframleiðslunni. Verð á öðrum tegundum var svipað og á desemberuppboðinu í fyrra, að sögn Snorra Stefánssonar. Stofnlínulögn til Kópaskers: Vitleysa sem ekki á að geta þrifist —segir Sverrir Hermanns- son iðnaðarráðherra „HVAÐA borg er að rísa þar?“ sagð- ist iðnaðarráðherra Sverrir Her- mannsson hafa spurt, þegar hann hefði verið upplýstur um að verið væri að leggja 132 kílówatta raf- streng frá Akureyri til Kópaskers. Ráðherrann sagði að fullkom- lega hefði verið nægilegt að leggja 66 kílówatta streng, en ákvörðun RARIK um að kaupa stærri strenginn fælist í því að hann væri tollfrjáls á meðan greiða þyrfti tolla af hinum minni. Sverrir Hermannsson iðnaðar- ráðherra sagði frá þessu á hádeg- isverðarfundi hjá Félagi íslenskra iðnrekenda í gær og nefndi þetta sem dæmi um óráðsíu og vitleysu í opinbera kerfinu og vitlausa tolla- löggjöf, sem ekkert samræmi væri í á tíðum. MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983 11 í litum — Panavision 09 nni dqlhystereo 1 Aöalhlutverk: Christopher Reeve — Richard Pryor — Annette O. Toole. islenskur texti. Sýnd kl. 5, 7.15 og 9.30. V\\e$' nn i þorpinu Liósmyndarmn í þorpmu | 100 Ijósmvnclir efUr^'"^dínar eru 1 Rlóndal frá « ,1®,m um bjóölif fyrr ? 1 merk söguleg 1 öldinni oft lia a " v,fta um landi . 1 myndirnar eru skrifar skyr- I \nga Lara mvndirnar. I mgatexta I io4bls..uerðkr. yw VANDIÐ VAUÐ___ PAÐ GERUM VIÐ bökautgafmi i BORGABTUNI29 S 18860 - 22Z« w

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.