Morgunblaðið - 20.12.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
13
Fiskeldistöðin við Apavatn:
Leggja til að frá-
rennslið skiptist
milli tveggja vatna
HREPPSNEFND Laugardals
hrepps hefur lagt til að frárennsli
frá fyrirhugaðri fiskeldistöð við
Apavatn renni til skiptis í Laugar-
vatn og Apavatn en landeigendur,
ábúendur og veiðiréttareigendur
hafa lýst áhyggjum sínum vegna
stöðvarinnar og óttast að hún muni
valda slíkri mengun, að vatninu
búi veruleg hætta af. Á fundi
hreppsnefndar í síðustu viku með
bændunum og stjórn Laugarlax
hf., sem er að byggja stöðina í
landi Úteyjar II, var þessi hug-
mynd sett fram. Einn bændanna
sagði í samtali við blm. Morgun-
blaðsins að þeir vildu ekki ræða
hugmyndina fyrr en séð væri hvort
landeigendur við Laugarvatn
tækju hana í mál. Annar sagðist
telja þetta undarlega hugmynd,
hún væri til þess fallin að menga
tvö vötn í stað eins.
Búnaðarfélag íslands hefur
varað við byggingu stöðvarinnar
við Apavatn og telur það „grófa
ævintýramennsku", sé frárennsli
stöðvarinnar veitt í vatnið sé
ekki fullkomlega tryggt, að sýk-
ing geti ekki átt sér stað í henni.
„Landssamband veiðifélaga hef-
ur tvívegis á aðalfundum varað
eindregið við eldistöðvum eða
klakstöðvum með afrennsli í
veiðivötn," sagði Árni G. Pét-
ursson, hlunnindaráðunautur
hjá Búnaðarfélaginu, i samtali
við blaðamann Mbl. „Búnaðarfé-
lagið telur að menn eigi að fara
að reglum og lögum í þessu sam-
bandi en eigendur stöðvarinnar
voru hvorki búnir að sækja um
leyfi til Fisksjúkdómanefndar né
heilbrigðisnefndar þegar þeir
hófu framkvæmdir. Fisksjúk-
dómanefnd hefur varað eindreg-
ið við þessu og ég tek undir það,“
sagði Árni. Hann sagði einnig að
upphaflega hafi verið ætlunin að
frárennsli stöðvarinnar færi í
Laugarvatn en því hefðu heima-
menn hafnað.
Jón Gauti Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Náttúruverndar-
ráðs, sagði í samtali við blm. að
ráðið teldi málið sér skylt og því
hafi verið óskað eftir fundi með
stjórnarformanni Laugarlax hf.,
Eyjólfi Friðgeirssyni, fiskifræð-
ingi, í næstu viku. „Náttúru-
verndarlög gera ráð fyrir að
valdi mannvirki mengun, þá sé
skylt að leita álits ráðsins áður
en ráðist sé í framkvæmdir,"
sagði Jón Gauti. „Mér sýnist að
þessi framkvæmd flokkist undir
það. Það er talið að það gæti ver-
ið hætta á „ofauðgun" í vatninu,
spurningin er hve hratt það ger-
ist og hve mikil hættan er. Þetta
viljum við vita og því verður
þetta kannað af ráðinu." Hann
bætti því við, að hreppsfélaginu
væri skylt að leita umsagnar
Skipulagsstjórnar ríkisins áður
en byggingar af þessu tagi væru
leyfðar.
Þórir Þorgrímsson, oddviti
Laugardalshrepps, sem á 10% í
Laugarlaxi hf., sagði í samtali
við blaðið, að af hálfu fyrirtæk-
isins væri fullur vilji til að koma
í veg fyrir hugsanlega mengun
af stöðinni og að þess yrði vand-
lega gætt. Hann sagðist reikna
með að áfram yrði „spjaliað um
málið hér heima og þetta skoðað
allt saman". Um skipulagsþátt-
inn sagði hann að allur hreppur-
inn væri skipulagsskyldur og allt
svæðið því skipulagt, en ekki
frekar jörðin Útey II frekar en
aðrar jarðir. Hann var spurður
hvort leita þyrfti leyfis fleiri að-
ila en hreppsnefndar og bygg-
ingarnefndar hreppsins fyrir
framkvæmdum af þessu tagi og
kvaðst hann ekki vita það með
vissu.
Forráðamenn Laugarlax hf.
hafa óskað eftir áliti Hollustu-
verndar ríkisins um stöðina og
sagði ólafur Pétursson, efna-
verkfræðingur þar, að stofnunin
hefði óskað eftir upplýsingum
erlendis frá um hollustukröfur
til fiskeldistöðva. Þegar þær
upplýsingar lægju fyrir myndi
stofnunin taka málið fyrir.
í fjármálaönnum pabba og mömmu er gott að setjast og huga að
kubbum, ef til vill að byggja framtíðardrauma.
PORBERGIÞORÐARSYNI
skrifuð 1922-1931
Þessi bréf eru ástarbréf og eiga engan sinn líka í
íslenskum bókmenntum. Enda eru þau varðveitt fyrir
undarlega tilviljun, eins og glöggt kemur fram í inngangi
lndriða G. Þorsteinssonar fyrir bókinni.
Og þessi bréf segja ástarsögu sem er bæði falleg
og fagurlega skráð. Og sú saga á vafalaust eftir að valda
lesendum ýmsum heilabrotum.
Sóla og Þórbergur unnust hugástum, það sjáum við glöggt
af bréfunum. En hvers vegna auðnaðist þeim ekki að njótast?
„Bagga mín. Þetta er svo löng saga,“ sagði Sóla við Guðbjörgu
dóttur sína, þegar hún gekk á hana um sambandsslitin.
Að Öðru leyti er málið hulið þögn af hennar hálfu.
Guðbjörg er dóttir Sólrúnar og Þórbergs
og hafa báðir foreldrar hennar
skilið eftir yfirlýsingar því til staðfestingar.
En hún hefur ekki fengið það viðurkennt af dómstólum.
Eru þau undarlegu mál skýrð hér og rakin í inngangi
fyrir bréfunum og málsskjöl og dómsniðurstöður
birtar i bókarlok.
Dreifing: AB Skemmuvegi 36, Kópavogi.
Sími 73055.