Morgunblaðið - 20.12.1983, Side 14

Morgunblaðið - 20.12.1983, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983 Hvað er í bikarnum, eitur eða móðurmjólk? Rætt við Gunnar B. Kvaran um listaverk Ásmundar Sveinssonar, Konu með bikar Ásmundarsafn — lislasafn Ás- mundar Sveinssonar myndhöggvara — hefur látið gera afsteypu af einu verka listamannsins, og eru hin 200 tölusettu eintök til sölu nú fyrir jól- in. Blaðamaður hitti af þessu tilefni Gunnar B. Kvaran listfraðing, for- stöðumann Ásmundarsafns, að máli og bað hann að segja lítillega frá verkinu, „Konu með bikar“, og því hvers vegna það var valið til fjölföld- unar nú. Myndin gerð árið 1933 „Til að svara þessari spurningu, hvers vegna Kona með bikar varð fyrir valinu, þurfum við að rifja upp sögu Ásmundar sem lista- manns," sagði Gunnar. „Ásmund- ur ólst upp í sveit í Dölunum, en kom hingað til Reykjavíkur árið 1915. Hann stundar um skeið nám í myndskurði hjá Ríkharði Jóns- syni, eða í fjögur ár. Á þessum tíma er Reykjavík aðeins smábær, og hér var mjög lítið um raun- verulega list. Þórarinn B. Þorláks- son er þó teiknikennari við Iðn- skólann og fólk vissi af Ásgrími Jónssyni og einhverja hugmynd hafði fólk um Thorvaldsen og síð- ar Einar Jónsson myndhöggvara, en þar með var líka allt upp talið af þessu tagi. Frá Reykjavík fer Ásmundur svo til Kaupmannahafnar og dvel- ur þar í eitt ár og þar kynnist hann þegar nokkrum lista- mönnum og leggur leið sína í lista- söfn, þar sem bókstaflega opnast fyrir honum nýr heimur. Hann er 26 ára að aldri þegar hann fer frá Reykjavík, nær ósnortinn af list- inni, en kemur svo til Kaup- mannahafnar þar sem allt listalíf stóð í blóma og tengdist öllum helstu listastraumum Evrópu á Barnapakki kr. 4. Racer 100/130 cm 1.795 Maya-skór 26—30 1.195 Stafir 259 Bindingar frá 978 Unglingapakki kr. 4.996 Racer-skíöi 140/170 cm 2.360 Junior-skór 32—36 1.399 Stafir 259 Bindingar frá 978 Fyrir fullorðna kr. 6.979 Cup Star 175/190 cm 3.750 Stefan-skór frá 1.777 Bindingar frá 1.022 Stafir 430 Póstsendum Gönguskíðapakki kr. 3.780 Touring VM Skór Bindingar Stafir 1.995 1.170 220 395 mmSI Ármúla 38 — sími 83555 Opid til kl. 20 þriðjudag og miðvíkudag og til kl. 22 fimmtudag SPORTBÚÐIN KBEDITKORT E 5S S! I tunocAPo , «BiaæB^3ia!llglg g|gj | Ásmundur Sveinsson rayndhöggvari þessum tíma. — Þetta hefur því að sjálfsögðu mikil áhrif á Ásmund, og hann bókstaflega gleypir allt í sig sem hann sér, og talsverður tími líður uns hann finnur sjálfan sig og tekur að skapa myndir í persónulegum stíl, að námi loknu. En það er einmitt á þeim tíma, sem hann er að byrja að móta hinn sterka og persónulega stíl sinn, sem hann gerir myndina Kona með bikar, myndin getur því talist eitt af tímamótaverkum listamannsins, og þess vegna var hún valin nú. — Verði framhald á útgáfu verka Ásmundar er því eðlilegt að tekin verði fyrir önnur tímabil á listferli hans, en þetta er að minnsta kosti byrjunin. Konu með bikar gerði Ásmundur árið 1933.“ var að því er virðist alltaf með einhvern boðskap í huga við verk sín. Við vitum um hugmyndir Tians að baki mörgum myndanna, meðal annars í gegnum samtöl hans í bók Matthíasar Johannes- sen, og það sem listamaðurinn segir þar gefur okkur bæði leyfi og tilefni til að geta í eyðurnar þegar um er að ræða verk, og við ekki þekkjum bakgrunninn." Hvað er í bikarnum? — Það vekur þá spurningu um Konu með bikar, hver er konan og hvað er í bikarnum? „Já, það er rétt, að ekki er hægt að njóta þessa listaverks, án þess að hugleiða hvað að baki búi, þótt vissulega standi verkið sem lista- Gunnar B. Kvaran Stfllinn alltaf sá sami — Þú segir að á þessum tíma hafi Ásmundur verið að móta sinn persónulega stíl. Margir kynnu að halda að Ásmundur hafi um ævina tileinkað sér marga „stíla“ svo fjölbreytileg sem listaverk hans eru. „Já, það kynnu margir að álíta, en þó er það svo að mjög mikið samræmi og samhengi er í list Ásmundar, og þó hann breyti oft um myndskrift þá er formið hið sama, og er gegnumgangandi í verkum hans, hvort heldur hann er að fást við mannslíkamann ein- an sér, eða verk á borð við Höfuð- lausn eða Helreiðina. Þá er einnig nauðsynlegt — vilji fólk skilja listaverk Ásmundar — að hafa í huga að listamaðurinn verk alveg án allra útskýringa. — En margar skýringar hafa komið fram um það hvað verkið tákni, og hvað í bikarnum sé. Því hefur til dæmis verið haldið fram að konan sé af hinu illa í þessu tilviki og beri bikar með eitri, og þess vegna sé eins og hún feli hann á bak við sig eða reyni að leynast með hann. — Þetta þykir mér þó ekki líkleg skýring, vegna þess að j)ess finn- ast hvergi merki í list Ásmundar, að konan sé í þvílíku hlutverki. Miklu fremur er um móðurmynd að ræða, hún gæti því borið lífs- bikarinn við brjóst sér og er þá að vernda hann fremur en að fela hann.“ — Hefur konan alltaf sömu merkingu í list Ásmundar? Um 10% minna vörumagn um Reykjavíkurhöfn TEKJUÁÆTLANIR Reykjavík- urhafnar gera ráð fyrir um 10% samdrætti í vörumagni, en 5% samdrætti í skipakomum á næsta ári. Þessar upplýsingar komu fram í ræðu Davíðs Oddssonar, borgar- stjóra, við umræður um fjárhags- áætlun Reykjavíkurborgar sl. fimmtudag. Davíð sagði að Reykjavíkur- höfn miðaði tekjur sínar við að gjaldskrá þróist í samræmi við breytingar á byggingarvísitölu á árinu, svo að 6,6% hækkun, sem ekki fékkst 1. nóvember, fáist bætt 1. febrúar nk. Heildarrekstrartekjur hafn- arsjóðs eru áætlaðar 128,7 millj- ónir króna, sem er um 30% hækkun frá áætlaðri útkomu yf- irstandandi árs. Metsölublad á hveijum degi!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.