Morgunblaðið - 20.12.1983, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983
17
Smyslov mætir
Kasparov í úrslitunum
Skák
Margeir Pétursson
ELLEFTU skákinni í einvígi þeirra
Vassily Smyslovs og Zoltan Riblis
lauk með jafntefli á laugardaginn og
þurfti þá ekki að tefla frekar því
Smyslov hafði hlotið sex og hálfan
vinning gegn fjónim og hálfum vinn-
ingi Riblis og tryggt sér sigur. Það
verða því þeir Garry Kasparov, 20
ára, og Vassily Smyslov, 62ja ára,
sem munu mætast í febrúarmánuði
og tefla einvígi um það hvor fái rétt-
inn til að skora á Anatoly Karpov,
heimsmeistara í skák. Einvígi þeirra
Kasparovs og Smyslovs mun fara
fram í Sovétríkjunum, væntanlega í
Moskvu.
Eins og áður veittist Smyslov
auðvelt að halda andstæðingi sín-
um niðri i elleftu skákinni. Itíma-
hraki lék Ribli síðan af sér og ef
hann hefði ekki þegið jafnteflis-
tilboð Smyslovs í 38. leik má heita
öruggt að Smyslov hefði unnið
skákina og farið þannig að dæmi
Kasparovs, sem vann Korchnoi í
elleftu skák þeirra, þó honum
dygði jafntefli.
Venjulega fylgir jafnteflistilboð
með leik, en ^aðstaða Smyslovs var
svo sterk að í stað þess að leika
bauð hann jafntefli er klukkan
gekk á hann. í stað þess að biðja
um að fá að sjá næsta leik Smysl-
ovs féllst Ribli á jafnteflistilboðið,
enda ekkert að hafa í stöðunni
fyrir hann.
„Ég hef verið með í þessum sirk-
us áður,“ sagði Smyslov áður en
einvígið hófst og bætti við: „Ég lít
á skákina sem list þar sem sköp-
unargáfan fær að njóta sín, um-
fram allt annað." Fáir bjuggust
við að Smyslov myndi ganga með
sigur af hólmi í þessari keppni,
enda var hann jafnan sallaróleg-
ur, öfugt við Ribli sem þoldi ekki
taugaspennuna og tók oft rangar
ákvarðanir á mikilvægum augna-
blikum. Óbilandi rökvísi Smysl-
ovs, sérstaklega í síðari hluta ein-
vígisins, færði honum síðan verð-
skuldaðan sigur.
Skákmeistari á aldur við Smysl-
ov hefur aldrei náð sambærilegum
árangri í heimsmeistara-
keppninni. Þessi einvígissigur
hans er einnig mikilvægur að þvi
leyti að hann fær sæti í næstu
áskorendakeppni án þess að þurfa
að tefla um það. Þeir Korchnoi og
Ribli verða hins vegar að taka þátt
í millisvæðamótunum 1985, en þá
verður teflt um sex sæti í áskor-
endakeppninni 1986.
Ellefta skákin:
Hvítt: Vassily Smyslov
Svart: Zoltan Ribli
Drottningarindversk vörn
1. d4 — Rf6, 2. Rf3 — e6, 3. c4 — b6
Ribli hefur ekki beitt þessari
byrjun síðan í fyrstu skákinni sem
hann tapaði.
4. Rc3 — Bb4, 5. Bd2
Hvassara er 5. Bg5 eða 5. Dc2,
en Smyslov hefur enga ástæðu til
að æsa sig.
5. — c5, 6. a3 — Bxc3, 7. Bxc3 —
Bb7, 8. e3 — 04), 9. Bd3 — d6, 10.
04) — Rbd7, 11. De2 — Hc8, 12.
Hfdl - cxd4
Annar möguleiki var 12. — Re4,
13. Hacl — f5, og svartur reynir
að ná sóknarfærum á kóngsvæng.
Að svo búnu vill Ribli þó ekki
hætta sér út í slíkar aðgerðir.
13. exd4 — He8, 14. Hacl — Dc7,
15. b3 — a5,16. h3 — h6, 17. Bb2 —
Db8, 18. De3
Smyslov hefur fundið nokkra
rólega leiki sem bæta þó stöðuna.
18. — Bc6, 19. a4! — Hcd8, 20. Ba3
— Bb7, 21. Bbl — Rf8, 22. Rh2 —
r
enna-
vinir
Sautján ára japönsk stúlka með
áhuga á íþróttum:
Miuki Shigemura,
3172 Osumi-chyo so-gun,
Kagoshima-ken,
899-87 Japan.
Áramóta-
fagnaður
Lrfsnautnastefnuhóps
Naustsins
Lífsnautnastefnuhópur
Naustsins ætlar aö sjálfsögöu aö
leggja sitt af mörkum í efnahagserfiðleikum
þjóöarinnar með því aö boröa og drekka
„kreppuna" í hel eigi síöar en þegar í
upphafi ársins.
öfro Q9Í
Skipstjórar borðanna
hafi samband viö
Ómar í Naustinu
í síma 17759.
R8h7, 23. Dg3
f5?!
Re4, 24. De3 —
Undir vénjulegum kringum-
stæðum hefði Ribli auðvitað leikið
14. — Ref6, og endurtekið stöðuna.
25. f3 — Ref6
stöðumynd I
26. d5!
Tætir í sundur svörtu peðastöð-
una.
26. — Bc8, 27. dxe6 — Bxe6, 28.
Dd3 — d5, 29. c5 — bxc5, 30. Hxc5
— Rg5, 31. Rfl — I)d6, 32. b4 —
Rd7, 33. Hb5!
Betra en 33. Hxa5 — Re5 og
næst 34. — Rc4.
33. — Re5, 34. bxa5!
Þó Smyslov sé ánægður með
jafntefli setur hann sig þó ekki úr
færi með að vinna peð. Einhver
sagði að bezta ráðið til að ná jafn-
tefli væri að tefla til vinnings!
34. — Dd7, 35. De2 — Bf7, 26. Df2
— d4?
Svartur græðir að vísu ekkert á
36. - Rexf3+, 37. Khl - Re5, 38.
Bxf5 en nú tapar hann manni.
37. f4 — Re4, 38. Bxe4 — Rg4,
Hér var samið jafntefli, en eftir
39. hxg4 — fxe4, 40. De2 er hæpið
að svartur hafi nægilegt spil fyrir
manninn.
Úrslit einvígisins:
Smyslov Ui'h lh\'h\ Vt'h'h Vi = 6v.
Ribli 01MMOViOMMVkM>4V&v.
Nítján ára skozk stúlka, vinnur á
ferðaskrifstofu og með áhuga á
tónlist og ferðalögum:
Shona Maxwell,
6 Lammenmoor,
Caldenwood 20,
East Kilbride,
Glasgow G74 3SE,
Skotland.
Þrettán ára japönsk stúlka með
áhuga á íþróttum auk þess sem
hún safnar frímerkjum:
Azusa Yamaguchi,
255 Tsunome Nabeshima-machi,
Saga-shi Saga-ken,
840-01 Japan.
Tölvudeild BRAGA v/Hlemm — Tölvudeild BRAGA v/Hlemm
Tölvur eru framtiðin
HEIMILISTÖLVUR
Sinclair ZX Spectrum 48k .. 8.505.-
Oric — 1 48 K .............. 8.845.-
Spectr&video SV318 32k ... 11.885.-
Spectravideo SV 328 80 k ... 17.798.-
Commodore 64 64k ......... 14.700.-
VIC-20 5 k .............. 6.950.-
BBC 32 k ................. 25.698.-
Dragon 32 k .............. 10.525.-
Atari 400 16 k ............ 8.198.-
Atari 800 48 k ........... 17.798.-
Microbee 36 k með skjá ..... 19.886.-
Coleco sjónvarpsspil (frábært) ... 14.920.-
Tölvuskjár 12“ grænn ...... 7.970.-
TÖLVUNA/MSKEIÐ EFTIR JÖL
TÚLVUNAMSKEIÐ
Við höfum samið um afslátt á tölvunámskeiðum fyrir alla sem kaupa heimilistölv-
una sína hjá Braga
8 tímar hjá Tölvufræðslunni sf. kr. 1.950.- -afsl. kr. 500 = 1.450.-
16 tímar hjá Tölvufræðslunni sf. kr. 2.950.- -afsl. kr. 500 = 2.450.-
Þú mætir með heimilistölvuna þína og þér er kennt að nota tölvuna og gera þín
eigin forrit.
TÚLVUNÁMSKEIÐ ER GÓÐ J0LAGJÖF
Seld hja
okkur
m áranrot
Að sjálfsögðu fá allir þeir sem keypt hafa heimilis- r
tölvuna sína í Tölvudeild Braga frá því opnaði 1. sept.
500 kr. afslátt á tölvunámskeiðið.
ÞAÐ B0RGAR SIG AÐ VERZLA HJÁ BRAGA!
Mörg hundurð titlar af: Bókum — tímaritum — forritum og leikjum.
Allt um tölvur.
Mikið úrval af
litlum leiktölvum
frá kr. 895.-
Sendum í póstkröfu
KREOITKORT
FUHOCAnt)
Kreditkortaþjónusta
Þaö er:
VIT í ÞESSU
Bókabúð
Braga