Morgunblaðið - 20.12.1983, Side 35

Morgunblaðið - 20.12.1983, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983 43 sinni á laugardegi. Þetta fanst mér grunsamlega fljót afgreiðsla. Mín reynsla var sú að tæprar viku bið er eftir birtingu greina í því blaði, ef hinn almenni borgari á hlut að máli. Og lögreglumaðurinn hafði líka fram að færa þann „lögreglusannleik" að málefnið sem Þorgeir „mun þó hafa ætlað sér að fjalla um“ sé niðurkomið í frétt á þlaðsíðu 13 í Morgunblað- inu föstudaginn 9. desember. Nú fór þessi kaldi lækur aftur að seytla niðreftir bakinu á mér. Hvað var hér á seyði? Aðfaranótt mánudagsins svaf ég fremur órólega og var því ekki rétt vel fyrir kallaður undir kvöld- mat þegar Hallur Hallsson blaða- maður á Morgunblaðinu hringdi til mín þeirra erinda að fá það staðfest hjá mér að „lögreglusann- leikurinn" væri réttur. Hann vildi ekki gegna því (harður blaðamað- ur) þegar ég neitaði að draga um- ræðuna niðrá þetta plan: að þjarka um aukaatriði en gleyma meginefninu. í stappi okkar um þetta fanst mér hann vera ógn haldinn lög- regluhugsunarhætti og þegar hon- um varð það á að nota orðrétt sömu setningarnar og Guðmundur yfirlögregla hafði viðhaft þá brast nú heldur á með skömmum af minni hálfu. Ég ásakaði hann beinlínis um það að vera í snatti á vegum lög- reglunnar. Blaðamaðurinn sýndi æsing mínum þolinmæði, sem betur fór, sagðist löngu hafa verið búinn að skrifa fréttina á blaðsíðu 13, gat þess einnig að blaðamenn hérlend- is létu aldrei lögregluna segja sér fyrir verkum, síst þó af öllum þeir Morgunblaðsmenn. Hvað sem hann á nú við með því. Vona ég sannarlega að hann fari með rétt mál um þetta. Enda dró ég ásökun mína til baka en hann sættist fyrir sitt leyti á það sjónarmið mitt að það væri ónauðsynlegt að láta draga umræðuna niðrá vafa- samara plan. Og slitum við því tali mjög í góðu. Spurði hann mig fyrst hvort ég vildi gefa yfirlýs- ingu í málinu. Ég taldi það ónauð- synlegt nema haldið yrði áfram að dröslast með rangsnúnar lögreglu- fullyrðingar mér til hnjóðs. Kvaddi svo. Og nú hefur það gerst sem gerir það að verkum að ég verð að herma loforðið uppá Hall og biðja hann að birta þessa yfirlýsingu mína. Þó ég telji klámhögg Einars lögregluforingja í sjónvarpssal á þriðjudagskvöldið með bærilegri JUDki StANCONNBnrlSegdu •vwœsBONDQ0? I aklrei aftur J aldrei íá.,'*"' ' — '.*i^**^• >'■« höggum sem lögreglan hefur ekki komið á mig, ef svo má segja, og telji mig jafnréttan að minsta- kosti eftir, þá er hinu ekki að leyna að þetta upphlaup mannsins er fjarskalega lærdómsríkt. Því um hvað fjallar Lögreglu- vandamálið? Jú — margir vilja nú telja að lögreglan hafi komið of mörgum höggum á hinn almenna borgara, sekan eða saklausan. Vandamálið er því fólgið í því að höggin eru fleiri en góðu hófi gegnir. Af viðbrögðum lögreglumanna í þessum málum má vel ráða að þeim sé kent að lesa skáldsögur Jóns Thoroddsen. Gróa á leiti kemur víða fyrir í skrifum þeirra. En hafa þeir líka verið að lesa Grettlu? Úrræði þeirra sýnast einkum vera í samræmi við það sem þar stendur: Svo skal böl bæta að bíða annað meira. Þetta er full dramatíst prinsíp fyrir lögreglu heils bæjarfélags að vinna eftir ef hún vill að farsæld aukist með þegnunum og lögregl- unni þarmeð. Síðan á þriðjudag hafa margir símað til mín það álit sitt að þátt- ur lögreglunnar í sjónvarpinu hafi verið einsog herfileg þjóðháttalýs- ing handa eftirkomendum okkar að skoða. — Verst að þeir skyldu ekki mæta einkennisbúnir í þáttinn, sagði einhver við mig. Aðfarirnar lýstu svo mætavel þeirri mynd sem almenningur hlýtur óðum að vera að gera sér af lögreglu í sjálfsvörn: bolabrögð, falsanir, lögbrot, hindurvitni, flaustur og ráðleysi. Svo mörg voru þau orð. Helst vildi ég ekki þurfa að fjasa lengi um hátterni svona manna. Þó get ég ekki stilt mig um að láta þess getið að glíma þeirra við fluguna úr höfði ran- sóknarlögreglunnar rifjar upp fyrir mér gamla þjóðsögu, flestir kannast, trúég, við söguna. Ég hef tekið nafn hennar traustataki og gert það að fyrirsögn þessarar greinargerðar. Hafi dómsmálaráðherra ekki haft tíma til að sjá þessa uppá- komu vildi ég mega benda honum á það að þátturinn er til á segul- bandi uppí sjónvarpi — ef hann vill sjá næsta fullkomna lýsingu á þvr sem fólk er nú farið að kalla Lögregluvandamálið. Ekkert sýnir í rauninni betur hversu bráða nauðsyn ber til að stofna óháða ransókn í málum lögreglunnar svo þeir meiði sig ekki lengur á því að „ransaka" þau mál sem snerta sjálfsvitund þeirra og barnalegt stolt. Tilgangur þessarar umræðu ætti að vera minni barsmíð en ekki það að koma höggi á þá sem þorað hafa að tala. Hættum nú áflogunum og hug- um að einsog tillaga mín var í bréfinu til ráðherra. Kannski væri best að fara jafn- vel að tillögu gamansams náunga sem hringdi í mig og sagði: — Þorgeir, væri ekki bara reyn- andi að setja klókan barnasál- fræðing í þessi áflogamál lögregl- unnar. Gott væri ef lausnin væri svo einföld og snjöll. Með þökk fyrir birtinguna. Þorgeir Þorgeirsson Ps. Auðvitað fer ég ekki að kæra Einar Bjarnason fyrir brot á Út- varpslögum. Þvímiður er það víst svo að lögreglumenn þurfa að hafa hreina sakaskrá. Ég trúi því á hinn bóginn að menn verði betri lögregluþjónar af því að lenda sjálfir í smávægilegum lögbrotum, ef þau gerast ekki bakvið tjöldin. Afbrotum í sjónvarpssa! tilað- mynda. Og batnandi er manni best að lifa. 1‘orgeir l>orgeirsson er rithöíund- ur. Þú svalar lestrarþörf dagsins^ áiíílum Moggans! FORD ESCORT Mest seldi bíll í heimi síðastliðin tvö ár Eigum fyrirliggjandi nokkra Ford Escort 2ja dyra árgerð 1983 á mjög góðu veröi, kr. 269.000 - Eigum einnig hinn stórglæsilega sportbíl Escort XR3i árgerö 1984. Verð kr. 429.000.- (gengi 15/11 ’83). Ford Escort — Þýskur gæöabíll Sveinn Egilsson SKEIFUNNI 17 — SIMI 85100 + § Herferð gegn $ þreytu ll gigt og streitu Bolero - nuddtækið frá Hansgrohe segir þeim stríð á hendur. Þú tengir tækið við blöndunartækin í sturtunni eða við baðkarið, og tólf vatnsknúnar kúlur iða á húðinni eins og fingur nuddarans. Það slaknar á vöðvunum, þreytan líður burt, húðin endurnærist og vellíðanin hríslast um líkamann. Þetta er bylting í nuddtækjum - hvorki meira né minna. Bolero - nuddtækið er jólagjöfin í ár - jafnt til erfiðisvinnumannsins og kyrrsetumannsins. BR BYGGINGAVÖRUR HE SUÐURLANDSBRAUT 4. SÍMI 33331. (H. BEN. HUSIÐ)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.