Morgunblaðið - 20.12.1983, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 20.12.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983 45 Þórunn Einarsdóttir var móður- amma Guðna en kona Andrésar. Þeirra börn voru sextán talsins. Þóra á Breiðavaði og Þuríður á Húnstöðum voru dætur þessara hjóna. Einar frá Bólu, afi Gunnfríð- arstaðasystkina, giftist Haildóru Bjarnadóttur úr Eyjafirði og bjó með henni að Bólu í 14 ár. Þau áttu alls átta börn. Guðrún var þeirra barna elst, þá Björn og Anna (móðir Guðna) en yngst var Valgerður á Hofi í Vatnsdal, móð- ir Ágústar. Seinni kona Einars á Bólu var Margrét Gísladóttir frá Hrauni í Skagafirði. Með henni átti hann einnig átta börn. í þeim hópi er að finna Einar, Skarphéðinn (hómó- pata), Zophanías, Guðríði og Hall- dóru. Faðir Guðna var Jón Hróbjarts- son, Jónssonar að Reykjakoti í Biskupstungum. Kona Hróbjarts, föðuramma Guðna, var Sigríður Þorsteinsdóttir. Systkini Guðna voru Karl f. 1885, bóndi í Holtastaðarkoti í Langadal; Jón Pálmi f. 1888, ljósmyndasmiður. Fluttist til Bandaríkjanna. Helga f. 1895, hús- freyja (móðir greinarhöfundar). Massilía f. 1889, húsmóðir, hálf- systir, samfeðra. Móðir mín var samrýnd Guðna sem systir hans og vinur. Þau höfðu átt sameiginlega æsku, sömu spor um mýrar og móa, yfir ár og upp um fjöll. Þau voru um margt mjög lík, matið svipað enda mótunin framan af ævi hin sama. Þau voru líka góð hvort öðru. Mér finnst eins og þá er æsku- samvistum þeirra lauk hafi þau hvort í sínu lagi myndað enda á öxli sem snýr óræðum heimi um ættarslóð. Hún var heima en hann úti í heimi. Þau mynduðu andstöðu sveitarfestu og farandans. Þetta skilur aðeins sá sem býr yfir reynslu hinna gömlu sveita á ís- landi. En svo þegar ævikvöldið nálgaðist fluttu foreldrar mínir bú og ból úr þorpinu í borgina. Þá styrktist sambandið á milli bróður og systur. Á það féll aldrei skuggi svo að ég vissi. Það var gott og gaman að skoða það heilbrigði sem ávallt speglaðist í samskipt- um fjölskyldnanna að Hofteigi 18 og Öldugötu 11. Eiginkona, börn og burar kveðja nú aldinn vin og verndara. Frænd- ur og vinir horfinn heiðursmann. Ég þakka fyrir að vera systurson- ur þessa mæta íslendings. Brynleifur H. Steingrímsson í dag kveðjum við Guðna A. Jónsson úrsmið. Hann var fæddur 25. sept. 1890 á Gunnfríðarstöðum í Langadal í Austur-Húnavatns- sýslu og vann við bú foreldra sinna til 22ja ára aldurs, en fór í bókbandsnám um tíma, en hættir því fljótt og fer til Sauðárkróks. Gerðist hann þá nemandi í úr- smíði hjá Jörgen Frank Michelsen, er rak úrsmíðavinnustofu og verslun á Sauðárkróki frá 1909—1945. Guðni og Jörgen Frank urðu miklir vinir og hélst sú vinátta meðan báðir lifðu. Ég held að það sé mjög fátítt að meistari og nemi verði slíkir vinir. Ég heyrði föður minn oft minnast á Guðna og hann mat hann mikils. Árið 1916, á fyrri stríðsárunum, siglir Guðni til Danmerkur tií framhaldsnáms við Den danske Urmagerskole í Kaupmannahöfn. Einnig vann hann sem úrsmiður í Höfn, meðal annars hjá J.C. Filt- enborg A/S, stærstu úraheildsölu í Danmörku. Er ég var á þessum sömu slóðum 18 árum síðar, hitti ég menn í „úrabransanum", er minntust Guðna vinsamlega. Eftir fjögurra ára dvöl í Dan- mörku og Þýskalandi, flutti Guðni til íslands, og settist að í Reykja- vík. Hann setti á stofn úrsmíða- vinnustofu og verslun. Fyrirtæki Guðna í Austurstræti 1 varð brátt stærst slíkra fyrirtækja á Islandi. Aðallega var verslað með úr, klukkur og silfurvörur, einnig skartgripi og trúlofunarhringa, en þá smíðaði hann sjálfur. Guðni var einn af stofnendum Úrsmiðafélags íslands 27. okt. 1927. Á árunum 1935—36 vann ég sem úrsmíðasveinn hjá Guðna og hóf- ust þá kynni okkar á ný. Guðni var góður úrsmiður og vildi láta skila góðri vinnu. Hann var mikill ákafamaður og sívinnandi. Viðskiptamenn hans, sem voru margir, kunnu að meta fag- mennsku hans, vissu að hægt var að treysta honum fyrir vönduðum gripum. Ég tel það hafa verið mik- ils virði fyrir mig að vinna hjá og kynnast svo traustum manni sem Guðni var. Ég fann að hann vildi mér vel og hann gaf mér ýmis góð ráð. Ekki vorum við ávallt sam- mála en það breytti engu í sam- skiptum okkar. Guðni tók mér ávallt vel, er ég leitaði til hans, og sennilega hefi ég líka notið for- eldra minna, sem hann mat mik- ils. Eins atviks vil ég geta. Er ég var við framhaldsnám í Kaup- mannahöfn 1938, hittumst við og bauð hann mér í matarveislu, sem hefir orðið mér minnisstæð. Ekki fyrir það að hann hélt mér pen- ingalausum nemanda matarboð, heldur það að Guðni var mikill húmoristi og kunni mikið af smellnum vísum og fékk ég að heyra margar, og ferskeytlan var honum töm. Þessi samverustund var því mjög ánægjuleg. Guðni átti marga ágæta við- skiptavini, sem litu inn hjá honum á vinnustofuna og fæddist þá oft ný ferskeytla og glatt var á hjalla. Guðni var góður heimilisfaðir, enda var heimilið honum mjög kært. Kona Guðna var Ólafía Jó- hannesdóttir, frá Svínavatni í A-Húnavatnssýslu, mikil ágætis- kona. Þau eignuðust þrjár dætur, sem eru hinar gjörvilegustu. Ég sendi Ólafíu og dætrunum og öðr- um niðjum þeirra mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Með þessum fáu minningarorð- um vil ég kveðja Guðna og þakka fyrir mig. Franch Michelsen Nú þegar Guðni tengdafaðir minn er genginn á vit feðra sinna, geri ég mér fyrst grein fyrir því hvílíkur kjarnakarl hann hefur verið. Fæddur fyrir aldamót, alinn upp á smábýli, fer einn til mennta og starfa til útlanda með kjarkinn að vopni, kemur heim og stofnar sína eigin verslun. Reisir síðan hús, ekki með einni íbúð, heldur þrem, og byggir það á rúmu ári. Allt er þetta gert af dugnaði og viljakrafti, enda var það víst svo, að þegar hann hafði lært og starf- að í Kaupmannahöfn í sex ár, varð hann að fara til Þýskalands á hressingarheimili í hálft ár, svo nærri hafði hann gengið sjálfum sér. Ég kynnist Guðna ekki fyrr en hann er um sjötugt. Þá var hann í fullu fjöri og efast ég um að marg- ur maðurinn um fertugt hafi verið jafn hress og hann var þá. Atvikin höguðu því þannig, að við Anna bjuggum á efstu hæðinni á Öldugötu fyrstu sjö hjúskaparár okkar. Þannig kynntist ég honum auðvitað mjög vel og það verður að segjast eins og er, að þó að ég hafi verið brokkgengur á þessum árum, voru engar skammir eða árekstr- ar, heldur skilningur og trú á að allt mundi fara vel. Guðni var stórhuga og dugnað- arforkur, en hann var líka við- kvæmur og nærgætinn. Hann var maður, sem kom hreint fram og vildi að aðrir kæmu eins fram við sig. Hann var maður sem gott var að eiga að vini. Ég þakka honum allt. Hvíli hann í friði. Páll Stefánsson Kveðja frá barnabörnum Afi á Öldugötunni var 93 ára þegar hann dó. Hann var orðinn fullorðinn þegar hann eignaðist sitt fyrsta barn og sumir höfðu sagt við hann að líklegast myndi hann aldrei sjá barnabörnin sín. En samt eignaðist hann átta barnabörn. Afa var það mikið í mun að við kæmumst vel áfram í lífinu og sagði hann að námið væri heilladrýgst til þess að okkur vegnaði vel. Við barnabörnin áttum góðan afa og okkur langar til þess að kveðja hann með þessu litla ljóði: + Innilegar þakkir fyrlr auösýnda samúö viö andlót og jaröarför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, GUNNARS THORARENSEN, Hafnarstræti 6, Akureyri. Sérstaklega þökkum viö Gauta Arnþórssyni, yfirlækni, svo og hjúkrunarfólki sjúkrahússins á Akureyri fyrir góöa umönnun í veik- indum hans. Hólmfríöur Thorarensen, Anna Thorarensen, Þóröur Th. Gunnarsson, Hannes Thorarensen, Gunnar Th. Gunnarsson, Laufey Thorarensen, Ólafur Thorarensen, Þóra Thorarensen, Kristín Thorarensen, Jóhann Thorarensen, og barnabörn. Jófríöur Traustadóttir, Hjördís EKasdóttir, Árný Sveinsdóttir, Margrét Ó. Magnúsdóttir, Jens K. Þorsteinsson, Sigrún Á. Héöinsdóttir Frá öllum heimsins hörmum, svo hægt í friðar örmum þú hvílist hels við lín. Nú ertu af þeim borinn hin allra síðstu sporin, sem með þér unnu og minnast þín. Með tryggð til máls og manna á mátt hins góða og sanna þú trúðir traust og fast. Hér er nú starfsins endi. I æðri stjórnarhendi er það, sem heitt í hug þú barst. Guð blessi lífs þíns brautir, þitt banastríð og þrautir og starfs þíns mark og mið. Við hugsum til þín hljóðir. Að hjarta sér vor móðir þig vefur fast og veitir frið. Einar Benediktsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem auösýndu mér vinsemd og veittu mér aöstoö vegna fráfalls GÍSLA GESTSSONAR, Skólageröi 65. Guö gefi ykkur öllum gleöileg jól og góöa daga. Stefanía Bjarnadóttir. I m 2 Metsölublad á hverjw n degi! LAÐAR FRAM YHDISÞOKKA MVERRAR KOMU Allar okkar vörur eru unnar úr bestu fáanlegum skinnum. Auk hinna glæsilegu pelsa bjóðum við: Loðfóðraðar popl ínkápur - pelshatta - slár - kraga - vesti og aðrar skinnavörur. nY VERSLUn MEÐ SKIMNAVÖRUR OG FELDSKURÐARSTOFA LAUQAVEGI 25-101 REYKJAVÍK - SÍMI 17311

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.