Morgunblaðið - 20.12.1983, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.12.1983, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983 47 Flugleiðir: Margar aukaferðir fyrir jól FLUGLEIÐIR verða að venju með margar aukaferðir í innanlands- og millilandaflugi fvrir jól. Búast má við að 12—14 þúsund farþegar verði fluttir innanlands í desember. Á að- fangadag verður flogiö til Akureyrar, Egilsstaða, Vestmannaeyja og ísa- fjarðar. Flugi lýkur um kl. 15.30 þann dag. Ekki er flogið innanlands á jóla- dag, en síðdegis er flogið til New York. Þaðan er síðan flogið að kvöldi jóladags um Keflavík til Luxemborgar og á annan dag jóla er aukaferð frá Luxemborg um Keflavík til Chicago. Þriðjudaginn 27. desember er flogið samkvæmt áætlun til Evrópu og Bandaríkj- anna. Tvær flugáhafnir Flugleiða verða í New York um jólin og ein áhöfn í Baltimore, samtals 24 flugliðar. Þá verða 12 flugliðar og flugvirkjar Flugleiða í Kano í Níg- eriu jóladagana. Á vegum Flugleiða, Orvals, Út- sýnar og Samvinnuferða-Landsýn- ar eru 150 manns í hópferð á Kan- aríeyjum. Flogið var beint til Kan- aríeyja 14. desember og hópurinn kemur heim 4. janúar. Athygli er vakin á því, að vöru- afgreiðsla innanlandsflugs á Reykjavíkurflugvelli er opin til kl. 12.00 á aðfangadag. (Frétt frá FlugleiAum) Stykkishólmur: Messur um jól og áramót St;kkishólmur. 19. desember. UM HÁTÍÐIRNAR verður messað í Stykkishólmskirkju og katólsku kirkjunni á sjúkrahúsinu. í Stykkishólmskirkju verður messa á aðfangadag kl. 18 og á gamlársdag kl. 18.00. Einnig verður barnamessa á jóladag kl. 11.00. I kaþólsku kirkjunni hefst guðsþjón- ustuhald með helgistund kl. 14.30 á Þorláksmessu. Klukkan 12 á jóla- nótt verður hámessa. Einnig verða hámessur á jóladag ki. 15.00. Ann- an dag jóla kl. 10.00, gamlársdag kl. 18.00 og nýársdag kl. 10.00. Árni Leiðrétting í fréttafrásögn af skýrslu iðnað- arráðherra um starfsemi ríkisfyr- irtækja og hlutafélaga með ríkis- aðild, sem birt var í Mbl. sl. föstu- dag, 16. desember, varð misritun varðandi Orkubú Vestfjarða. í fréttinni segir, að hlutur ríkis- sjóðs í Orkubúinu sé 60%, en við- komandi sveitarfélaga 40%. Þetta er rangt, því ríkissjóður á 40% í Orkubúinu, en sveitarfélögin 60%. Eru viðkomandi beðnir velvirð- ingar á þessari misritun. Gjafavöruverzlunin Hnoss hefur verið opnuð að Dalshrauni 13, Hafnarfirði. Eigendur eru Jóhannes Norðfjörð og Guðjón Guð- mundsson, sem á myndinni eru ásamt Þórunni Óskarsdóttur, af- greiðslukonu. Myndin var tekin í hinni nýju verzlun, en þar fást íslenzkar og sænskar gjafavörur handunnar úr tré, keramik og gleri. r Kynnist töfratónum kristalsins... Heimsþekktur tékkneskur Wrwtnll _Glös Seröir, skálar og vasar. ^ GrPÍAslnckilmálar •VU Z,.. ***PV&* éáXi Matta rósin er komin! Þetta gullfallega mynstur sem svo margir hafa safnað er nú komið í verslunina. Nýkomin glæsileg matar- og kaffistell í NORITAKE- postulínu frá Japan 5-Cjörtur^ U/\ KRISTALL OG POSTULINSVÖRUR TEMPLARASUNDI 3 SIMM9935 Sérverslun með áratuga þekkingu. — í hjarta borgarinnar. Frú Pigalopp og jól • Poppbókin - í fyrsta sæti - Fróðlega skemmtibókin með umtöluðu viðtölunum við Bubba, Ragnhildi, Egil Ólafsson, o.fl. skráð at Jens Kr. Guðmundssyni. • Við klettótta strönd - Mannlífsþættir undan Jökli - Stórbrotin viðtalsbók eftir Eðvarð Ingólfsson. • Olympíuleikaraðfornu og nýju - eftir Dr Ingimar Jónsson • Sara - Falleg litmyndabók. • Kári litli og Lappi - Hin sígilda barnabók Stefáns Júlíussonar. • Til fundar við Jesú frá Nasaret - Fyrsta bókin í bókaflokki um fólk sem haft hefur mikil áhrit á aðra. • Kapphlaupið - Spennubók um afreksferðir Amundsens og Scotts til Suðurskautsins. Æskan Laugavegi 56 Sími 17336 Einstaklega skemmtileg fjölskyldubók eftir Bjorn Ronningen. Guðni Kol- beinsson þýddi. ( bókinni eru á annað hundrað litmyndir af hinni hjálpsömu Frú Pigalopp og hennar skoplegu félögum. Lassi í baráttu Hressileg unglingabók um Lassa, strákinn sem flytur til borgarinnar úr litlu sjá- varþorpi eftir skilnað for- eldranna. Hannfæróblíðar viðtökur pörupilta. Lassi í baráttu er afar vel skrifuð spennubók. Höfundurinn Thoger Birkeland, hefur hlotið mörg verðlaun fyrir bækur sínar. Skopleg spennubók eftur Rune Belsvik. Guðni Kol- beinsson þýddi og segir í viðtali við Æskuna: „Ég varð atveg heiliaður af þessari sögu og get sagt með sanni að það er langt síðan ég hefi lesið jafn góða bók.“ Við erum Samar Samabörn segja frá Falleg og fróðleg bók sem hefur hlotið frábærar við- tökur almennings, jafnt sem gagnrýnenda. „... Bókin lýsir á áhrifaríkan hátt í máli og Ijósmyndum hinu frjálsa lífi Samanna, aldagamalli menningu og harðri lífsbaráttu". Hildur Hermóðsdóttir, DV 7.12. '83. Aðrar útgáfubækur Æskunnar í ár eru: Margs konar dag ^Jóksfoeytingar Geríð jótín hátíðíeg með faííecjum jó(askrey\mcjwn frá Borgarbfámum. Sérfræðinqar í fiátíðaskrex^ingum *«aEOlT>0»r E Opið ki 10-21 BORGARBLOMÍÐ SKÍPHOLTÍ 35 SÍMh 32213

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.