Morgunblaðið - 20.12.1983, Page 40

Morgunblaðið - 20.12.1983, Page 40
óoð <@ull & &ilfur (J/f LM’íiAVEC.I :y> KIA'KIWÍK S 20620 HOLLyWQOD Opið öll Rvöld ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 1983 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. Um 135 manns sagt upp hjá BÚH Bæjarútgerð Hafnarfjarðar hefur sagt upp fólki í frystihúsi sínu frá og með 27. desember, en fólki var sagt upp kauptrygg- ingu fostudaginn 16. desember. Alls er um að ræða 135 manns, sem að stærstum hluta til eru konur. Björn ólafsson, forstjóri Bæjarútgerðar Hafnarfjarð- ar sagði ástæður uppsagn- anna vera mjög léleg afla- brögð og aflasamsetningu. Þá væri einn togari útgerðarinn- ar af þremur í viðgerð og dæmið gengi ekki upp nú með hinum tveimur skipunum. Aðspurður um hvænær hægt yrði að endurráða fólkið, sagðist Björn ekkert geta fullyrt um það, tíminn yrði að leiða það í ljós, en þeir vonuð- ust til að það gæti orðið sem allra fyrst á næsta ári. Atvinnuleysisbætur: 91 milljón fyrstu 10 mánuði ársins FYR8TU tíu mánuði ársins var greidd samtals 91 milljón króna í at- vinnuleysisbætur hérlendis. Það er nær helmingi hærri upphæð en allt árið í fyrra og á þessi tala þó eftir að hækka talsvert tvo síðustu mánuði ársins, því atvinnuleysi nær tvöfald- aðist frá október til nóvember, skv. upplýsingum sem blm. Morgunblaðs- ins fékk hjá Eyjólfi Jónssyni, fram- kvæmdastjóra atvinnuleysistrygg- ingasjóðs. 1 nóvember voru skráðir samtals 27.194 atvinnuleysisdagar en í október voru atvinnuleysisdagar 14.667. Hver atvinnulaus einstakl- ingur fær 500,08 krónur á dag í atvinnuleysisbætur fimm daga vikunnar og auk þess 20 krónur á dag fyrir hvert barn undir 17 ára aldri. Fullar bætur eru 10.835 krónur á mánuði og er þá miðað við að sá atvinnulausi hafi unnið a.m.k. 1700 stundir síðustu tólf Landsvirkjun tek- ur um 650 milljóna króna lán í Sviss LÁNSSAMNINGUR milli Lands- virkjunar og Bank of America og fleiri erlendra banka vegna láns til Landsvirkjunar að fjárhæð 50 millj- ónir svissneskra franka, eða um 650 milljónir íslenzkra króna var undir- ritaður í Ziirich í gærdag. Af hálfu Landsvirkjunar undir- Tilskipun iðnaðarráðherra: Rita skal z — og stóran staf í iðnaðarráðuneyti Iðnaðarráðherra hefur gefiö út þá tilskipun í ráðuneyti sínu, að öll hans bréf og skjöl skuli rituð með z þar sem það á við, sam- kvæmt stafsetningarreglum sem áður giltu. Þá hefur ráðherrann og tilkynnt, að skjöl ráðuneytisins skuli hér eftir rituð með stórum staf í iðnaðarráðuneyti. Sverrir Hermannsson iðnað- arráðherra segir m.a. í viðtali við Mbl. í dag, að þannig skuli þetta verða í hans bréfum og hans ráðuneyti, hvað sem aðrar reglur segi þar um. Þá segist hann hafa tilbúna málamiðlun um z-una, sem hann ætli að leggja fyrir menntamálaráð- herra bráðlega. Sjá: „Þurfum að ryðja subbu- skap út úr íslenzkri rétt- ritun" á miðopnu. rituðu samninginn þeir Davíð Oddsson, borgarstjóri og stjórnar- maður í Landsvirkjun, og Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkj- unar. Lánstími er 10 ár. Fyrstu 7 ár lánstímans verða vextir 1,25% yf- ir 7 ára millibankavöxtum í Sviss eins og þeir verða við útborgun lánsins eftir áramótin, en þeir eru nú 6%. Síðan verða vextir endur- skoðaðir fyrir síðustu 3 ár láns- tímans. Verður lánsfénu varið til að greiða upp eldri óhagstæðari lán vegna virkjanaframkvæmda. mánuði. Lágmarksgreiðsla úr atvinnu- leysistryggingasjóði er fjórðungur fullra bóta, eða um 125 krónur, og er þá miðað við 425 stunda vinnu síðustu tólf mánuði á undan. Síðan hækkar hlutfallið, allt eftir fjölda vinnustunda, eða um 1% fyrir hverjar sautján vinnustundir, að sögn Eyjólfs Jónssonar. Tölur um bótagreiðslur í nóv- ember liggja ekki fyrir fyrr en eft- ir helgina en Eyjólfur taldi víst, að heildargreiðslur ársins færu yfir 100 milljónir króna og vísaði í því sambandi í aukið atvinnuleysi milli mánaða. Heildargreiðslur úr atvinnuleysistryggingasjóði árið 1982 voru 49 milljónir króna. Mikil ásókn í greiðslukort MIKIL ásókn hefur verið í greiðslu- kort undanfariö samkvæmt þeim upp- lýsingum, sem Morgunblaðið hefur afl- að sér, en ura er að ræða Eurocard, sem Kreditkort sf. er með, og síðan VISA, sem VISA-ísland er með. Korthafar hjá Eurocard eru tæp- lega níu þúsund, en korthafar hjá VISA eru hins vegar um fimm þús- und. Hjá VISA-fsland fengust þær upplýsingar, að afgreiðslufrestur á kortunum væri nú allt að vika. Ljósadýrðin I Reykjavík er mikil. Ragnar Axelsson tók þessa mynd yfir höfuðborginni um sjöleytið í gærkveldi. Þetta er útsýni tii austurs eftir Miklubraut og eru gatnamótin við Kringlumýrarbraut neðst á myndinni. Aukin fjárveiting til K-byggingar Landspítala: Hækkar úr 2,3 í 12 milljónir kr. TEKJUR ríkisins munu nema á næsta ári 17.894 milljónum króna, en gjöld munu nema 18.270 milljónum, þannig að rekstrarhalli ríkissjóðs á næsta ári mun nema um 375 milljónum króna, að því er fram kom í ræðu Lárusar Jónssonar (S), formanns fjárveitinga- nefndar, við 3. umræðu um fjárlaga- frumvarp ríkisstjórnarinnar, sem fram fór í gær. Varðandi hækkun á einstökum liðum fjárlagafrumvarpsins má nefna að ákveðið hefur verið að hækka framlag til K-byggingar Landspítalans um 9,7 milljónir kr. og einnig hefur verið ákveðið að Alþingi: 5 listamenn fá heið- urslaun í fyrsta sinn veita fé til kaupa á hjartaþræð- ingartæki. Nemur fjárveitingin til K-byggingarinnar nú 12,0 milljón- um króna og sagði Lárus að með þessari fjárveitingu væri bætt að- staða til hjartarannsókna, sem skref í þá átt að taka upp hjarta- skurðlækningar. Fjárveitingin til kaupa á hjartaþræðingartæki nem- ur 16 milljónum króna. Þá má nefna að framlag til bygg- ingarsjóðs Þjóðarbókhlöðu hækkar um 5 milljónir króna, úr 2 milljón- um kr. í 7 milljónir kr., og einnig má nefna að á vegum sjávarútvegs- ráðuneytisins verður 5 milljónum króna varið til nýs liðar sem nefnist stjórnun fiskveiða. Beinar breytingartillögur við 1. og 2. umræðu um fjárlagafrum- varpið hafa í för með sér hækkun útgjalda um 330 milljónir króna. í GÆRKVÖLDI mælti Halldór Blöndal, formaður menntamála- nefndar neðri deildar Alþingis, fyrir sameiginlegu áliti menntamála- nefnda beggja deilda þingsins, sem felur í sér að 17 menn verði í heið- urslaunaflokki listamanna á næsta ári. Þrír listamenn sem voru í heið- urslaunaflokki á síðastliðnu ári létust á árinu og fimm ný nöfn eru á listan- um. Það eru Jóhann Briem, listmál- ari, Jón Nordal, tónskáld, Matthías Johannessen, skáld, Hannes Péturs- son, skáld, og Jón Helgason, skáld. Eftirtaldir listamenn eru þá í heiðurslaunaflokki Alþingis á ár- inu 1984: Finnur Jónsson, listmál- ari, Guðmundur Daníelsson, rithöf- undur, Guðmundur G. Hagalín, rit- höfundur, Halldór Laxness, rithöf- undur, Hannes Pétursson, rithöf- undur, Indriði G. Þorsteinsson, rit- höfundur, Jóhann Briem, listmál- ari, Jón Helgason, rithöfundur, Jón Nordal, tónskáld, María Markan, óperusöngvari, Matthías Johann- essen, rithöfundur, Ólafur Jóhann Sigurðsson, rithöfundur, Snorri Hjartarson, rithöfundur, Stefán ís- landi, óperusöngvari, Svavar Guðnason, listmálari, Valur Gisla- son, leikari og Þorvaldur Skúlason, listmálari. Þeir listamenn sem voru í heið- urslaunaflokki Alþingis á síðast- liðnu ári, en féliu frá á árinu, eru: Sigurjón Ólafsson, myndhöggvari, Tómas Guðmundsson, rithöfundur, og Kristmann Guðmundsson, rit- höfundur. dagar til jóla

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.