Morgunblaðið - 06.05.1984, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MAÍ 1984
75
75 ára þjónusta með úr
og klukkur í þrjá ættliði
Á ursmíðavinnustorunni að Laugavegi 39. Feðgarnir Franch Michelsen og Frank
Úlfar Michelsen við vinnu sína. Ljósm. MW./KEE.
Ekki verður annað sagt en að nafniö „Frank Michelsen" og úrsmíðaiðnin fari
saman. Á myndinni eru f.v. Frank Úlfar Michelsen, sonur hans Frank og Franch
Michelsen. Fyrir aftan er mynd af Jörgen Frank Michelsen, sem setti á fót fyrstu
úrsmíðavinnustofuna í fjölskyldunni.
75 ÁR eru nú liðin frá því að Jörgen
Frank Michelsen setti á fót úrsmíöa-
vinnustofu sína á Sauðárkróki. Frá
þeira tíma hefur úrsmíðavinnustofan
verið starfrækt samfleytt innan fjöl-
skyldunnar í þrjá ættliði, sem eru
þeir Jörgen Frank Michelsen, Franch
Michelsen og Frank Úlfar Michelsen.
Jörgen Frank Michelsen kom
hingað til lands árið 1907, settist að
á Sauðárkróki og stofnaði þar úr-
smíðavinnustofu sína tveimur ár-
um síðar. Á Sauðárkróki verslaði
hann og gerði við úr og klukkur í 38
ár, en fluttist þá til Reykjavíkur og
vann að úrsmiðaiðninni til æviloka,
1954.
Jörgen hafði tvo nema í iðninni,
þá Guðna A. Jónsson og elsta son-
inn, Franch Michelsen. Franch var
um tíma við framhaldsnám i úr-
smiðaiðninni i Kaupmannahöfn,
þar sem hann vann einnig hjá Carl
Jonsen, hirðúrsmið. Franch kom að
utan 1940, vann fyrst við verslun
föðurs síns á Sauðárkróki, en flutti
síðan til Reykjavíkur með verslun-
ina og stofnsetti Franch Michelsen
hf., sem hefur haft á boðstólum úr
og klukkur, auk skartgripa og silf-
urgripa. Þá hefur úrsmfðavinnu-
stofan verið rekin sem einkafyrir-
tæki, en i samvinnu við verslunina
og í sama húsnæði.
Á meðal þeirra tólf nema sem
Franch hefur haft í iðninni er son-
ur hans, Frank Úlfar Michelsen,
sem ennfremur stundaði fram-
haldsnám í Sviss. Hann hefur að
mestu séð um úrsmíðavinnustof-
una og hefur sérhæft sig i quartz-
úrum og því að gera upp gömul úr.
Viðgerðir á úrum hafa einnig verið
stór þáttur í starfi Michelsen-feðg-
anna, en frá því að Franch setti
verslunina og viðgerðarþjónustuna
á fót 1940 hefur hann gert við um
250 þúsund úr og klukkur, þ.e. um
ein viðgerð á hvern íslending.
t verslun Franch Michelsen er nú
boðið upp á tíu tegundir af úrum,
þar á meðal Rolex-úrin, sem löng-
um hafa verið þekkt fyrir vandaða
smíð. Má geta þess að í tilefni af
afmæli verslunarinnar verður sett
upp í júní nk. sérstök afmælissýn-
ing frá Rolex, þar sem m.a. verða
sýnd hágaaða úr og þau dýrustu
sem fyrirtækið framleiðir, en sag-
an segir að verð einstakra úra sem
fyrirtækið mun senda hingað
vegna sýningarinnar nálgist með-
alverð á þokkalegri íbúð í Reykja-
vík!
ðlium h þ2Egi,ldum
'JSS^SS®"*
lag. k''J chrysler'
.JÖgSíM
SSjs25.í*'
7n"sSkort,cfla
rramHJólavdörKvastýri ■
S tfSS&'
*hot Lnt, sannur
ÞÖRA DAL. AUGLYSINGASTOFA
LUXUS
D