Morgunblaðið - 19.05.1984, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 19.05.1984, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MAÍ 1984 Ein af fyrri stjórnum Sjilfstæðiskvennafélagsins Eddu f Kópavogi. Frá v. Sigríður Gísladóttir, formaður félagsins um langt árabil. Ásdís Magnús- dóttir, Ásthildur Pétursdóttir, sem einnig var formaður félagsins í all- mörg ár, og Jónína Júlíusdóttir. Unnið að undirbúningi jólafundar: Steinunn Sigurðardóttir, núver- andi formaður Eddu, Sigríður Pét- ursdóttir, varaformaður, Valgerður Sigurðardóttir, formaður Kvenfé- lagasambands Kópavogs, Guðlaug Þórhallsdóttir og Margrét Sigurð- ardóttir. Sjálfstæðiskvennafélagið Edda í Kópavogi 30 ára í dag SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉLAGIÐ Edda í Kópavogi á 30 ára afmæli um þessar mundir, en félagið var stofnað þann 19. maí 1954. Félagar í Eddu eru nú um 145 talsins, og er starfíð að sögn stjórnarkvennanna Friðbjargar Arnþórs- dóttur og Guðrúnar Hönnu Kristjánsdóttur afar biómiegt, en þær Friðbjörg og Guðrún litu inn á ritstjórn Morgun- blaðsins nú í vikunni, í tilefni afmælisins. Þær upplýstu að starfið hefði verið öllu pólitískara framan af, en það væri nú í dag. Þó sögðu þær félagana taka virkan þátt í starfi sjálfstæðisfélaganna í Kópa- vogi, og að Edda ætti fulltrúa í nefndum á vegum bæjarins svo og fulltrúa í bæjarstjórn Kópavogs, Ásthildi Péturs- dóttur. Haldnir eru fundir mánaðarlega í félaginu og hafa konurnar í Eddu reynt að vera með starfsemi hverju sinni, sem höfðaði til sem flestra félagskvenna. Til að mynda hafa þær verið með námskeið reglulega í hinum ýmsu greinum, svo sem leik- rænni tjáningu, framsögn, sýnikennslu í matreiðslu, sýni- kennslu í snyrtingu og nám- skeið í blómaskreytingum. Þá hefur Edda í samvinnu við önnur sjálfstæðisfélög í Kópavogi verið með blómlegt starf fyrir aldraða íbúa Kópa- vogsbæjar. Til að mynda hafa konurnar séð um skemmtun fyrir gamla fólkið einu sinni á ári, þar sem dansað hefur ver- ið eftir harmonikuleik, sungið og hlýtt á ýmis skemmtiatriði. Hafa konurnar í Eddu jafnan boðið eldri borgurunum upp á kaffiveitingar á þessum skemmtunum, sem þær segja vera afskaplega vinsælar með- al gamla fólksins.' Aðspurðar um starfið á næstunni, sögðu þær Friðbjörg og Guðrún að það yrði að öll- um líkindum með svipuðu sniði og að undanförnu. Formaður í Sjálfstæðis- kvennafélaginu Eddu er Stein- unn Sigurðardóttir. Fyrsti formaður félagsins var Mar- grét Guðmundsdóttir. Að gefnu tilefni — eftir Hjálmar Vilhjálmsson Þann 17. þ.m. birtir Morgun- blaðið langhund heilmikinn eftir Ásgeir Jakobsson rithöfund um vonda fiskifræði íslenska. Þar sem undirritaður þekkir lít- illega til loðnurannsókna þeirra sem gerðar hafa verið á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar svo og stjórnunar loðnuveiða þykir rétt að leiðrétta svo sem eins og tvær „missagnir" hjá Ásgeiri varðandi þau efni. í grein sinni segir Ásgeir m.a. svo: „Það liggur sem sagt við, að Haf- rannsókn hafi nú í þorskstjórn- inni slegið það met sem stofnun- in hafði sett í loðnustjórninni, sem var þó glæsilegt: loðnuafl- inn 582 þús. tonn 1981 en Haf- rannsókn stjórnaði honum niður í 13 þús. tonn 1982.“ Þetta er rangt. Hafrannsókna- stofnunin hafði nefnilega lagt til veiðibann á umræddu tímabili! Af sérstökum ástæðum heimiluðu stjórnvöld hins vegar 8 skipum að veiða 16.000 tonn af loðnu á vetr- arvertíð 1982. Sú stjórnunarað- gerð mistókst svo að því leyti að leyfður afli náðist ekki og aðeins fengust 13.000 tonn. Fyrir ókunn- uga, þ.m.t. Ásgeir Jakobsson, er rétt að geta þess að algengur með- alafli á skip á vetrarvertíð var 8—10.000 tonn hér áður, meðan nóg loðna var á miðunum. Undir lok greinar sinnar iætur Ásgeir ennfremur að því liggja að með ráðslagi sínu hafi Hafrann- sóknastofnunin beinlínis valdið því, að svo lítið veiddist af loðnu í fyrrahaust og framan af vetri, að leyfður afli á haust/vetrarvertíð 1983—84 náðist ekki. Nú veit und- irritaður ekki hvar Ásgeir Jak- obsson var í nóvember, desember og janúar sl., en á þessu tímabili lá fyrir leyfi stjórnvalda til þess að veiða 375.000 tonn af loðnu. Að frátöldu um Vfe mánaðar jólaleyfi Hjálmar Vilhjálmsson voru flest loðnuskipin að veiðum mestallan þennan tíma og veður- far þokkalegt. Um það að aflinn varð aðeins 135.000 tonn til ára- móta og enginn í janúar sl. er varla að sakast við Hafrannsókna- stofnunina og stjórnvöld — eða hvað? Því miður munu ofangreindar „missagnir" aðeins tvö dæmi af fjöldamörgum í grein Ásgeirs. Það er skoðun undirritaðs að það sé beinlínis skylda hvers fullorðins, heilvita manns, að kynna sér málavöxtu áður en lagt er upp til að fylla nokkrár síður f víðlesn- asta blaði landsins „aðfinnslum" eins og þeim sem hér hafa verið nefnd tvö dæmi um. Vinnubrögð Ásgeirs Jakobssonar hljóta hins vegar í besta falli að flokkast und- ir þess konar áróður, sem engum er sæmandi, og á íslensku heitir atvinnurógur. Reykjavík, 17. maí 1984. Hjálmar Vilhjálmsson er lískiíræð- ingur hjá Hafrannsóknastofnun- inni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.