Morgunblaðið - 20.06.1984, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 20. JÚNÍ 1984
13
„Ungt fólk — aukin tækifæriu
Rætt við Ingimar Sigurðsson nýkjörinn landsforseta JC-hreyfingarinnar á íslandi
NÝLEGA var Landsþing JC-hreyf-
ingarinnar á fslandi haldið í Bifröst
í Borgarfirði. Þingið sátu rúmlega
300 manns, þingfulltrúar og gestir
þeirra, frá þcim 33 félögum sem
mynda landssamtökin. A þinginu
var Ingimar Sigurðsson, 26 ára, fé-
lagi í JC-Reykjavík, kosinn lands-
forseti 1984—85. Blaðamaður Mbl.
kom við á landsþinginu og ræddi við
Ingimar aö kosningu hans lokinni.
Fyrst var hann beðinn um að greina
frá helstu stefnumálum sínum.
„Eitt stærsta vandamálið í JC
er gegnumstreymi félaga. Við tök-
um inn svo og svo marga nýja fé-
laga á ári, ef til vill 600, en miss-
um hátt í það jafn marga úr félög-
unum, yfir 400 á ári. Þetta er fólk
sem í mörgum tilvikum hefur ekki
staldrað við hjá okkur nema eitt
til tvö ár. Dæmi er um að 60 félag-
ar hafi gengið úr einu félagi okkar
á ári. Gegn þessu hyggjumst við
berjast á þann hátt að upplýsa þá
sem eru að ganga til liðs við
hreyfinguna betur um hvað þeir
geta fengið út úr JC og hvaða
kröfur eru gerðar til þeirra.
Einnig viljum við stórauka
kynningu á hreyfingunni í fjöl-
miðlum með því að kynna verk-
efni okkar. Við teljum að stór
hluti landsmanna viti ekki út á
hvað JC-starfið gengur. Við höf-
um til dæmis orðið mikið varir við
það í vetur að í gegnum greinar
sem birst hafa í blöðum hefur fólk
hringt og spurt: Hvað er þetta JC?
Má ég vera með? Félagaöflun hef-
ur aðallega farið fram á þann hátt
að menn hafa farið í sinn vina- og
kunningjahóp og tekið þaðan nýja
félaga.
Við höfum einnig hug á að
koma á samvinnu við fyrirtæki
sem gætu nýtt sér kunnáttu,
þekkingu og reynslu JC-fólks í
námskeiðahaldi. Sem dæmi get ég
nefnt að við höfum haldið nám-
skeið fyrir Flugleiðir og fleiri
fyrirtæki sem hafa styrkt okkur á
móti. Við teljum okkur búa yfir
mikilli reynslu og þekkingu í fé-
lagsstarfi sem við getum selt. Þá
erum við með hugmyndir um að
koma á ræðukeppni framhalds-
skóla á landsvettvangi en slíkar
keppnir voru haldnar á stór-
Reykjavíkursvæðinu í vetur og
gáfust mjög vel. Höfum við fundið
löngun fólksins sem tók þátt í
þeim til að ganga til liðs
hreyfinguna. Einnig höfum við
hug á að stefna að framboði ís-
lendings til alþjóðastjórnar innan
3ja ára.“
— Hvað eru þetta stór samtök?
„Heldur hefur fækkað í JC hér
á landi en nú eru um 1100 manns í
um 33 félögum. Ætlunin er að
fjölga upp í 1300—1400 manns á
komandi starfsári. 1 hverju félagi
er 20—105 manns. Skipulagið er
þannig að hver félagi getur aðeins
gegnt hverju embætti innan fé-
lagsins í eitt ár. Þetta er gert til
að gefa sem flestum einstakling-
um tækifæri. Fyrsta JC-félagið á
íslandi var stofnað 1960 en al-
þjóðahreyfingin, sem samband.
var stofnuð 1948 í Mexícó. I
alþjóðahreyfingunni er nú um
hálf milljón manna, í um 75 lönd-
um, í öllum heimsálfum. Höfuð-
stöðvarnar eru í Flórída í Banda-
ríkjunum. Núverandi heimsfor-
Ingimar Sigurðsson, nýkjörinn
landsforseti JC hreyfingarinnar á
íslandi.
seti, Joe Murphy frá Irlandi, legg-
ur einmitt ríka áherslu á það
meginmarkmið JC í upphafi að
vinna að umbótum f byggðamál-
um og þjálfun og uppbyggingu
einstaklingsins."
— Hver eru meginmarkmið og
tilgangur JC?
„Að stuðla að umbótum í byggð-
arlaginu með byggðarlagsverk-
efnum en þau geta verið margvís-
leg, til dæmis á sviði umhverfis-
mála. Síðan höfum við verið með
svokölluð landsverkefni en öll fé-
lögin vinna að þeim, hvert í sinu
lagi. { vetur var unnið að lands-
verkefni undir kjörorðunum:
„Andóf gegn eiturefnum" en
næsta ár verður unnið að lands-
verkefni undir kjörorðunum:
„Ungt fólk — aukin tækifæri".
Geri ég ráð fyrir að fyrst og
fremst verði lögð áhersla á
menntunar- og atvinnutækifæri."
— Hvernig líst þér á að taka við
landsforsetaembættinu?
„Ég er mjög bjartsýnn og hlakka
mikið til að takast á við verkefnin.
Það valdist mjög duglegt fólk með
mér í stjórnina, fólk sem ég veit að
er mjög samhentur hópur og þekkist
vel. Saman getum við náð góðum
árangri, enda er mikill byr innan
hreyfingarinnar. Þetta embætti er
mjög tímafrekt, ég geri mér grein
fyrir því, en maður hefur alltaf nóg-
an tíma þegar áhuginn er mikill,“
sagði Ingimar Sigurðsson nýkjörinn
landsforseti JC.
Verslunarhúsnæði
Höfum fengiö til sölu 240 fm verslunarpláss í einni af
bestu verslunarsamstæöum í Austurborginni. Hús-
næöiö býöur upp á mikla möguleika. Góöir útstill-
ingargluggar. Allar uppl. veittar á skrifstofunni.
Haimaaímar
Ámi Sígurpéltaon, a. 52586
Þórir Agnaraaon, a. 77884.
Sigurður Sigfúaaon, a. 30008.
Bförn Balduraaon Iðgfr.
Vogar — Vatnasleysustönd
Fallegt einbýlishús á einni hæö 140 fm ásamt 50 fm
bílskúr, byggt 1968. Góö eign. Ákv. sala. Verö aöeins
1600 þús.
Huginn fasteignamiðlun,
Templarasundi 3, sími 25722.
Einbýli - Jakasel
Einbýlishús á 2 hæöum, 234 fm, skilast fullbúiö aö
utan í fokheldu ástandi aö innan nú í október. Teikn-
ingar og nánari uppl. á skrifstofunni. Verö 2,6 millj.
Fasteignasalan
Símar 68 77 33
FJÁRFESTING
Ármúla 1, 2. hæð.
Sumarbústaöur og lóðir
Höfum sumarbústaði til sölu á eftirtöldum stööum:
Viö Krókatjörn, nýlegur bústaöur við vatniö, 1 hektari eígnarland.
Verö 550 þús.
Við Silungatjörn, góöur bústaöur vlö vatniö. Verö 500 þús.
Viö Helluvatn, 50 fm endurnýjaöur bústaöur viö vatniö. Verö 600
þús.
Viö Elliöavatn, gullfallegur bústaöur við vatniö meö sér bryggju og
bátaleyfi. Eign í toppstandi. Verð 550 þús.
I Grímsnesi, byrjunarframkv. á 45 fm bústað á einkum hektara
eignarlands. Verö 230 þús. Teikn. fylgja.
Við Apavatn, 2 góöir bústaölr á 1,1 hektari elgnarlands víö vatniö.
Bátur og fl. fylgir. Frábær kjör. Útb. samkomulag.
I Vatnaskógi, byrjunarframkv. á nýjum sumarbústaö. Teikningar
fylgja. Verö 190 þús.
Sumarbústaðalóðir, i Grímsnesi. Verð frá 120 þús. hektara eignar-
lands.
Huginn fasteignamiðlun,
Templarasundi 3, sími 25722.
I j hékkvWl
FLÓKAGÖTU1 *
SÍMI24647
2ja herbergja
íb. á jaröh. viö Efstaland, 65 fm,
í góöu standi. Sérlóö Ákv. sala.
2ja herbergja
íb. á 2. hæö viö Ásvallagötu, 50
fm. Verö 1.250 þús. Laus strax.
Grettisgata
2ja—3ja herb., 70 fm, samþ. íb.
í góöu standi. íbúöin er á milli
Rauöarárstígs og Snorrabraut-
ar. Sérhiti. Verö 1.250 þús.
Raðhús
viö Goöaland, 6—7 herb., 230
fm, bílskúr 25 fm. Verö 4,5 millj.
Endaraðhús
viö Otrateig sem er 2 hæöir og
kjallari, 6—7 herb., 2 eldhús
(tvíbýlisaöstaöa), tvennar svalir,
bílskúr. Verö 4,8 millj.
Einbýlishús
viö Álfhólsveg, sem er 2 x 127
fm. Á aöalhæö eru 5 herb.,
eldhús og baöherb. i kjallara.
Stórt vinnurými, geymslur,
þvottahús og innb. bílskúr. Ný-
leg eign. Verö 4,5 millj.
Einbýlishús
við Bergstaöastræti sem er 2
hæöir og kjallari, 6—7 herb.,
bílskúr. Verö 4 millj.
Helgi Ólafsson,
löggiltur fasteignasali,
kvöidsimí: 21155.
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAOASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖOINNI,
KASTRU PFLUG VELLI
OGÁRÁÐHÚSTORGI
Sigurður Bjarnason, sendiherra Indlands á íslandi, afhendir íslensku bæk-
urnar fyrir hönd Indlandsvinasamtakanna.
Indverjum færdar
íslenskar
bækur að gjöf
AÐALFUNDUR Indlandsvinasam-
takanna var haldinn 25. aprfl sl.
Samtökin sjá um menntun og upp-
eldi nokkurra barna til 16 ára aldurs
undir handleiðslu systur Agnesar
Loggie í Kodaikanal á Suður-
Indlandi.
I fréttatilkynningu samtakanna
segir meöal annars að Indlands-
vinasamtökin hafi sent Indiru
Gandhi, forsætisráðherra Ind-
lands, myndskreytta Njálu, er hún
var á ferð um Norðurlönd sl. vor,
og í vetur voru gefnar íslenskar
bækur s.s. Biblían, Nýja testa-
mentið og Passíusálmarnir, til
India International Center í Delhi.
Ennfremur segir að næsta verk-
efni Indlandsvinasamtakanna
verði að setja á stofn uppeldis-
heimili fyrir ungar stúlkur og
verður það væntanlega á Norður-
Indlandi.
Á aðalfundi samtakanna voru
eftirtaldir kosnir í stjórn: Þóra
Einarsdóttir, Ari Singh, Þórunn
Daníelsdóttir, Ken Amin, Gunnar
Dal, Ketill Larsen og Harpa
Jósefsdóttir Amin.
Landsmót harmón-
ikkuunnenda
llvannatúni í Andakíl, 13. júní.
Um Jónsmessuna sjá
harmónikkuunnendur Vest-
urlands um landsmót Sam-
bands íslenskra harmónikku-
unnenda.
Mótið verður haldið á Varma-
landi í Borgarfirði dagana
22.-24. júní. Þama gefst eflaust
tækifæri til að hlýða á flesta
þekktustu harmónikkuleikara
landsins. Gert er ráð fyrir að
mótið sæki á þriðja hundrað
harmónikkuunnendur víðsvegar
af landinu.
Laugardaginn 23. hefjast tón-
leikar kl. 13 og er fyrirhugað að
dagskráin taki á þriðju klukku-
stund og koma fram allt frá ein-
leikurum upp í 20 manna hóp.
DJ.