Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 64
OPIÐALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTl, SlMI 11633
MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
36,5% kaupkrafa á
s amningstí m abilinu
Pólitísk barátta til að koma ríkisstjórninni frá, segir fjármálaráðherra
BANDALAG starfsmanna ríkis og bæja gerir kröfur um að föst
mánaðarlaun miöað við 1. september næstkomandi hækki um 30%,
og um 5% 1. janúar 1985, en það jafngildir 36,5% hækkun á samn-
ingstímabilinu. Þá er gerð krafa um að vaktaálag verði reiknað af
efsta þrepi í 16. launaflokki og loks að lögum um kjarasamninga
BSRB verði breytt þannig að Bandalagsfélögin fái fullan samnings-
og verkfallsrétt um öll atriði samninga. Kröfugerðin var samþykkt
einróma af öllum sem mættir voru.
Steindórsmálið:
Leyfi fyrir
lengstan akstur?
„ÞAÐ ER auðvitað hugsanlegt að gefin
verði út ný leyfi fyrir þá sem hafa
lengstan aksturstíma að baki,“ sagöi
Matthías Bjarnason, samgönguráð-
herra, er blaðamaður Mbl. innti hann
eftir stöðunni í Steindórsmálinu í gær.
Hálfur mánuður er nú liðinn frá því
dómur Hæstaréttar féll í málinu og
sagði samgönguráðherra að honum
yrði ekki breytt, þótt málið væri enn í
athugun í samgönguráðuneytinu.
„Það er dómsyfirvalda að full-
nægja dóminum og það er ekki á
okkar valdisagði Matthías Bjarna-
son. „Við höfum ekki lögreglu til að
loka ef til kemur, en mér finnst ekki
óeðlilegt að gefinn verði einhver um-
þóttunartími áður en af slíku verður.
Manni sem dæmdur er í tugthúsið er
ekki stungið inn um leið og dómur
fellur. Hann fær ákveðinn umþótt-
unartíma."
Grímsey:
Grænlenskt
sauðnaut
„ÞAÐ kann vel að vera að þetta hafi
verið kýr, en þetta var sauðnaut og
hefur örugglega rekið frá Grænlandi
með ísnum. Það hefur sjálfsagt verið
búið að flækjast nokkuð lengi í sjó.
Það var nú bara hausinn sem var
hirtur og ullín er farin af á snopp-
unni og upp undir augu,“ sagði Al-
freð Jónsson, fréttaritari Morgun-
blaðsins í Grímsey, þegar blaðamað-
ur sló á þráðinn til hans til að for-
vitnast nánar um frétt útvarpsins í
hádeginu í gær, þess efnis að kýr
hefði fundist á floti við Grímsey og
engrar kýr væri saknað.
„Sauðnautið marraði i hálfu
kafi og sá sem fann það hélt fyrst
að hann væri að sjá andskotann
þarna í hafinu eða eitthvað svo-
leiðis. Það eru myndarleg horn á
þessu og þegar hann sá nú klauf
líka fór hann svona að verða hálf-
uggandi. Hann er nú sagður hafa
horn og að minnsta kosti eina
klauf og svo hóf hinumegin," sagði
Alfreð.
Alfreð sagði að Sæmundur
Ólafsson hefði fundið gripinn á
floti seinnipartinn í gær.
„Eg var rétt í þessu að heyra um
þessa kröfugerð. Það er ekkert
hægt um hana að segja, en þeir
bera væntanlega hag þjóðarinnar
og láglaunafólksins fyrir brjósti,
eins og alltaf," sagði Albert Guð-
mundsson, fjármálaráðherra, í
samtali við blm. Mbl. í gærkveldi.
„Ég lít á þessa kjarabaráttu hjá
þeim, eins og öðrum verkalýðsfé-
lögum, sem pólitiska baráttu til að
koma ríkisstjórninni frá og svo
hefur verið allt frá því núverandi
ríkisstjórn tók við. Það er ekkert
vit í þessu. Það er útilokað að rík-
issjóður geti staðið undir þessu og
fólkið í landinu þekkir vandamál
ríkissjóðs. Það veit einnig að ég vil
ekki hækka skatta né leggja á
nýja. Hvar á þá að taka pen-
ingana? Hvar heldur starfsfólk
ríkisins, sem er á launum hjá hinu
fólkinu í landinu, að hægt sé að
taka meiri peninga til að borga því
hærra kaup? Hvar á ríkið falda
sjóði til að standa undir síauknum
kröfum?" sagði Albert ennfremur.
„Ég er búinn að margsegja það
að það á að láta kjósa milli stefnu
ríkisstjórnarinnar og baráttuað-
ferða vinstrisinna í verkalýðs-
hreyfingunni og víðar og vita
hvort fólkið í landinu vill hafa
stöðugleika hér á landi eða hvort
það vill hafa óðaverðbólgu eins og
alltaf hefur verið þegar vinstri-
menn hafa haft stjómina með
höndum. Fólkið í landinu verður
að segja til um það hvort það vill
hafa ríkisstjórn sem berst fyrir
stöðugleika eða hvort það vill fá
óðaverðbólgu aftur. Um þetta
snýst málið og ég fyrir mína parta
er reiðubúinn að leggja það fyrir
þjóðina," sagði Albert Guð-
mundsson að lokum.
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja:
i
Ólympíufarar læra að ganga
MorRunbladid/Júlíus.
Það hefur ekki alltaf verið landans sterkasta hlið að ganga í
takt, því að enga æfinguna hefur hann af herþjónustu. Því var
það í gærkveldi að ólympíufararnir þurftu að fara í sérstaka
kennslustund í marseringu, en þeir eiga að ganga inn á
óiympíuleikvanginn í Los Angeles við setningarathöfn leikanna
næstkomandi laugardag.
Ljósm. ómar RaRnarsson.
ís á fjörðum norðanlands
ís er nú kominn inn á firði norðanlands, mest inn á Skagafjörð og er
þetta óvenjulegt á þessum árstíma. Myndin er tekin í gær í Skagafirði.
Sjá ískort á bls. 4.
Talsmaður breska utanríkisráðuneytisins um Rockall:
Leikur enginn vafi
á yfirráðum okkar
„VISSULEGA teljum við Rockall
okkar eign og held að enginn vafi leiki
i þeirri afstöðu okkar. Eg veit heldur
ekki til þess að nokkur þjóð dragi yfir-
ráðarétt okkar yfir svæðinu f efa,“
sagði Richard Clarke, talsmaöur
breska utanríkisráðuneytisins er blm.
Mbl. náði tali af honum í gærdag og
innti hann eftir því hver afstaða Breta
væri til Kockall-málsins og hvort hún
hefði á einhvern hátt breyst í kjölfar
viðræðna, sem bresk og írsk yfirvöld
hafa átt.
„Hvað varðar efnahagslögsögu á
þessu svæði er það nokkuð, sem við
höfum rætt við írsk stjórnvöld, og ég
held ég fari rétt með að báðir aðilar
hafi fallist á að skjóta þeirri deilu til
alþjóðlegra dómstóla. Við höfum
reyndar rætt þessi mál við Dani lfka,
þar sem þeir hafa óskað eftir því að
opinberum vettvangi. Skoðanaskipti
hafa einnig átt sér stað við fslensk
yfirvöld, en ég get ekki farið nánar I
út í þá sálma á þessum vettvangi."
Hvað varðaði breytingu á afstöðu
Breta með tilliti til hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna sagði |
Clarke hafréttarmálin enn ekki út-
kljáð og því væri afstaöa þeirra hin
sama. Fundað hefði verið um þessi
mál í Kingston á Jamaica og þau
yrðu rædd áfram síðar á þessu ári.
Verðlagning á olíu og
bensíni endurskoðuð
VIÐSKIPTARÁÐHERRA, Matthías Á.
Mathiesen, hefur falið þeim Sveini
Björnssyni formanni Verðlagsriðs og
Georg Ólafssyni, verðlagsstjóra að
koma með tillögur varðandi breytt
fyrirkomulag á verðlagningu á olíum
og bensíni.
Frá þessu skýrði viðskiptaráð-
herra á fundi í ríkistjóminni f gær-
morgunn.
Það sem þeim Georg og Sveini
mun einkum ætlað að gera tillögur
um, er að allur innlendur kostnaður
olíufélagana verði ákvarður af olíu-
félögunum sjálfum.
Þá mun þeim einnig ætlað að gera
tillögur um að öll opinber gjöld, þar
með talin skattlagningar af olfuvör-
um, verði í framtíðinni í formi fastr-
ar krónutölu.