Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984
Húsavík:
Sjúkrahúsið
fær öndunar-
tæki og sónar-
tæki að gjöf
SJÚKRAHÚSINU á Húsavík hafa
nýlega borist tvær góðar gjafir. Önn-
ur gjöfin er „öndunartæki", sem
gefið er til minningar um Ástu
heitna Ottesen og er frá ættingjum
hennar og vinum.
Hin KJöfin er svokallað sónar-
tæki og eru gefendur þess Krabba-
meinsfélag S-Þingeyinga, Kvenfé-
lag Húsavíkur, Soroptimista-
klúbbur Húsavíkur, Kiwanis-
klúbburinn Skjálfandi, starfs-
menn MSKÞ og verkalýðsfélag
Húsavíkur.
Framkvæmdastjórar sjúkra-
hússins, ólafur Erlendsson og Jón
Aðalsteinsson yfirlæknir, þokkuðu
gjafirnar og sagði Jón læknir að
undanfarin 20 ár hefði sjúkrahús-
inu verið færðar ótrúlega miklar
gjáfir og starfsemin á sjúkrahús-
inu væri ekki svipur hjá sjón ef
þessar gjafir hefðu ekki borist.
Fréttaritari
Mjólkurframleiðsl-
an enn að aukast:
7,10% aukn-
ing í júní
Mjólkurframleiðslan hélt
áfram að aukast í júnfmánuði.
Innvegin mjólk hjá mjólkursam-
lögunum í júní var 11.772 þúsund
lítrar sem er 7,10%meira en í júní
í fyrra. Fyrstu sex mánuði ársins
var mjólkurframleiðslan 54.301
þúsund lítrar sem er 6,37% meiri
framleiðsla en á sama tíma í
fyrra.
í júní jókst framleiðslan mest
í Búðardal, um 18,8%. Innvegin
mjólk hjá mjólkurbúinu á Sel-
fossi jókst um 5,99%, um 7,30%
hjá mjólkursamlaginu á Akur-
eyri, 12,3% hjá mjólkursamlag-
inu á Hvammstanga, 9,6% hjá
samlaginu á Sauðárkróki og
13% hjá mjólkursamlaginu í
Borgarnesi svo nokkur dæmi
séu tekin. Áhrifa hækkunar
kjarnfóðurgjalds er ekki farið
að gæta í þessum tölum en þau
koma væntanlega fram í júlí.
Ólafsvik:
Már með
370 tonn
Ólahrík. 23. júlí.
VINNA hefur verið í gangi í sumar f
fiskvinnslustöðvunum hér þó ekki
hafi verið mikill kraftur á. Togaran-
um Má hefur gengið vel að undan-
fbrnu og hefur hann landað um 370
tonnum í tveimur sfðustu sjóferðum.
Tregt hefur verið i öðrum veiðiskap.
Nokkrir bátar eru með dragnót,
en afli þeirra hefur verið lítill, allt
niður í nokkra kola í róðri á meðan
mjog vel aflast af kola í Faxaflóa.
Breiðfirðingar mega samt ekki fara
fyrir nesið til kolaveiða þó sunnan-
bátar megi hella sér yfir allan fisk,
er kemur á Breiðafjarðarmið. Eru
sjómenn hér farnir að taka um
„helgireiti" nágranna sinna, kola-
slóðina í Faxaflóa og skelfiskmiðin
hér innra.
Næstu daga verður gangsett
rækjuvinnsla hjá Stakkholti hf. og
munu þá þrír eða fjórir bátar veiða
rækju til hennar. Reitingsafli hef-
ur á köflum verið á rækju hér úti
fyrir. Afli var góður á handfæri
framan af sumri, en er að tregðast
enda gæftir erfiðar í vestanáttinni.
- Helgi.
Frá afhendingu sónartækisins.
Frá afhendingu iindunartækisins.
SINCLAIR SPECTKUM:
ámögiílega töxvan!
Galdramaðurinn Sinclair
er þekktur í heími örtölvu-
tækninnar fyrir að gera hið
ómögulega. Fyrir 15 arum
kom hann t.d. fram með
jöldaframleiddar vasatölvur
(reiknivélar), sem voru svo
ódýrax að allir gátu eign-
ast þær, en samt voru þær
frábærlega fullkomnar.
Sinclair seldi á örskömmum
tíma gífurlegan fjölda reikni-
véla og aðrir framleiðendur
vasareiknivéla tóku Sinclair
sér auðvitað til fyrirmyndar.
ZXSpoctrum
sincz
HJOHTSIMUlAnOfl zxspectrum
Nú hefur Sinclair aftur
gert hið ómögulega: Hann
hefur fjöldaframleitt tölvu
sem stenst samanburð við
margfalt dýrari tölvur keppi-
nautanna.
Sinclair Spectrum hefur:
16K eða 48K mtruii,
allar nauðsynlegar
skipanir fyrir
Basic og Data,
fjölda leikja-, kennslu- og
viðsklptaforrita,
grafiska útfærslu talna,
tengimöguleika við
prentara og aðrar tölvur
og litaskerm.
Diskettudrif er þar að auki
væntanlegt innan tíðar.
VERD:
Sinclair Spectrum 16K
kostar aðeins ^J^qO ^-
Sinclair Spectrum 48K
kostar aðeins G$50 kr.
Meðalverð forrita er
aðeins um 5@U löf.
Nú eru keppinautar Sinclair
í vanda.
sinc
ZXSpectrum
Heimilistæki hf
HAFNARSTRÆTI 3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655