Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 41
40
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984
Ólympíu-
leikarnir
í annað
sinn í Los
Angeles
NÆSTKOMANDI laugardag veröa
23. Ólympíuleikarnir settir í
stærstu borg Kaliforníuríkis, Los
Angeles í Bandaríkjunum. Leik-
arnir munu standa yfir frá 28. júlí
til 12. ágúst. Á þeim tíma munu
augu alheimsins beinast aö leik-
unum og því mikla umstangi sem
þeim fylgir. Ljóst er að leikarnir
sem framundan eru veröa þeir
umfangsmestu frá upphafi. Þátt-
tökuþjóöir eru fleiri en áöur og
mjög líklega mun fleira íþrótta-
fólk en nokkru sinni áöur taka
þátt í leikunum.
Áriö 1932 voru Ólympíuleikarnir
haldnir í Los Angeles og borgin
veröur nú hin þriöja í rööinni þar
sem leikarnir fara fram í annaö
sinn. Ólympíuleikar voru haldnir í
París árin 1900 og 1924 og í Lond-
on 1908 og 1948. Ólympíuleikarnir
sem fram fóru í Los Angeles áriö
1932 þóttu vera einstaklega vel
skipulagöir og brutu þeir blaö í
sögu leikanna hvaö þaö varöar.
Jafnframt var þá í fyrsta sinn um
Ólympíuþorp aö ræöa fyrir kepp-
endur en þaö hefur ávallt veriö til
staöar síöan.
Nútímatækni gerir þaö aö verk-
um aö milljónir manna um allan
heim fá tækifæri til þess aö fylgjast
meö Ólympíuleikunum i sjónvarpi í
beinni útsendingu. Þaó má því
segja meö sanni aö leikarnir séu í
raun um allan heim. Aldrei áöur
hefur verió lagt jafn mikiö uppúr
tæknilegri fullkomnun hvaö varöar
útsendingar frá slíkum leikum.
Keppt veröur í tuttugu og einni
grein íþrótta á leikunum, en tvær
greinar íþrótta, tennis og
kýluboltaleikur (Baseball), veröa
líka á dagskrá sem sýningargrein-
ar. Islendingar senda stærsta
keppnishóp sinn til þessa á leik-
anna í Los Angeles. Þeir munu
keppa í frjálsum íþróttum, sundi,
siglingum, handknattleik, lyfting-
um og judó. Morgunblaöiö óskar
æskufólkinu góörar feröar og góös
gengis í keppnisgreinum þeim sem
þaö tekur þátt í á leikunum.
Mengunar-
met í LA
MENGUN andrúmsloftsins í Los
Angeles hefur ekki verið verri í
sex ár og Ólympíuleikarnir að
hefjast. Ráöamenn í hinum ýmsu
sýslum Los Angeles-háraös hafa
lýst áhyggjum sínum vegna
ástandsins, og hefur verið ákveð-
inn fundur um málið. Á fundinn
mæta Skipulagsnefndin, Versl-
unarráðið og Loftgæöaeftirlitið.
Tilgangur fundarins er aö fyrir-
byggja aö megnun geti oröiö
mannskemmandi og láta verk-
smiöjur vera f viöbragösstööu, ef
draga þarf úr vinnslu vegna eitrun-
ar loftsins. Átta daga af júlí hefur
mengunin náö þvf sem kallaö er
fyrsta stig, „hættuleg öllum“, og er
þaö met síöustu sex árin. Annað
stig er þegar iónaöarfyrirtæki og
verksmiöjur þurfa aö draga úr
framleiöslu og er ekki reiknaö meó
aö þaö komi tll. En allur er varlnn
góöur.
Búist er viö aö um ein milljón
manna bætlst vió á svæöiö og
kemur um helmingur mengunar frá
bifreiöum. Reynt hefur veriö aö fá
fólk til aö feröast saman til og frá
vinnu en LA-búar feröast yfirleitt
einir. Aætlað er aö tíminn til aö
komast til og frá vinnu, á meöan á
leikunum stendur, muni tvöfaldast,
svo þaö er eins gott aö hafa gott
sjónvarp og loftræstingu ef maður
skyldi veröa á staönum.
O lym píu lei kar tákn
vináttu og bræðralags
í ENN eitt sinn fara fram Ólympíuleikar, og vonandi veröur
svo enn um langa framtíö. Oröið Ólympíuleikar hafa visst
seiðmagn. Þúsundir æskufólks um víöa veröld hugsa til
þeirrar stóru stundar er þau fi tækifæri til þess aö ganga
inn á ólympíuleikvang undir þjóöfána sínum og fá aö vera
þátttakendur í stærstu íþróttahátíö sem fram fer í heimin-
um fjóröa hvert ár.
Frá því á árinu 1896 hafa leikarnir verið haldnir þrátt fyrir aö
oft hafi gustað um þá og deilur komið upp. Leikarnir í Los
Angeles eru engin undantekning. Þar munu þjóðir frá Austur-
Evrópu vera fjarverandi vegna þess aö pólitík var sett ofar því
aö taka þátt. Þaö ætti að vega þyngra á vogarskálunum hjá
stórþjóðum aö reyna að glæöa ólympíuhugsjónina og freista
þess aö tendra nýja loga þess elds sem brennur á þessari
stóru íþróttahátíð sem er tákn vináttu, drengskapar, og
bræöralags í stað þess að hleypa illdeilum af stað. Á fáum
vettvöngum sameinast íþróttafólk þjóöa betur en á sjálfum
Ólympíuleikunum. Það var táknrænt aö þegar íþróttafólk
Rúmeníu fór frá heimalandi sínu á leikana í Los Angeles sendi
það leiðtoga sínum Ceaucescu forseta Rúmeníu heitar kveöj-
ur fyrir að skilja ásetning íþróttafólks og láta ekki pólitík villa
sér sýn. Og víst er að það er margt íþróttafólkiö frá Austur-
Evrópuþjóðum sem situr heima með sárt enniö en verður meö
hugann í Los Angeles þegar leikarnir fara þar fram.
Það er án nokkurs efa von allra að Ólympíuleikar megi sem
lengst sameina þjóðir heims í friði og einlægri vináttu.