Morgunblaðið - 25.07.1984, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 25.07.1984, Qupperneq 41
40 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984 Ólympíu- leikarnir í annað sinn í Los Angeles NÆSTKOMANDI laugardag veröa 23. Ólympíuleikarnir settir í stærstu borg Kaliforníuríkis, Los Angeles í Bandaríkjunum. Leik- arnir munu standa yfir frá 28. júlí til 12. ágúst. Á þeim tíma munu augu alheimsins beinast aö leik- unum og því mikla umstangi sem þeim fylgir. Ljóst er að leikarnir sem framundan eru veröa þeir umfangsmestu frá upphafi. Þátt- tökuþjóöir eru fleiri en áöur og mjög líklega mun fleira íþrótta- fólk en nokkru sinni áöur taka þátt í leikunum. Áriö 1932 voru Ólympíuleikarnir haldnir í Los Angeles og borgin veröur nú hin þriöja í rööinni þar sem leikarnir fara fram í annaö sinn. Ólympíuleikar voru haldnir í París árin 1900 og 1924 og í Lond- on 1908 og 1948. Ólympíuleikarnir sem fram fóru í Los Angeles áriö 1932 þóttu vera einstaklega vel skipulagöir og brutu þeir blaö í sögu leikanna hvaö þaö varöar. Jafnframt var þá í fyrsta sinn um Ólympíuþorp aö ræöa fyrir kepp- endur en þaö hefur ávallt veriö til staöar síöan. Nútímatækni gerir þaö aö verk- um aö milljónir manna um allan heim fá tækifæri til þess aö fylgjast meö Ólympíuleikunum i sjónvarpi í beinni útsendingu. Þaó má því segja meö sanni aö leikarnir séu í raun um allan heim. Aldrei áöur hefur verió lagt jafn mikiö uppúr tæknilegri fullkomnun hvaö varöar útsendingar frá slíkum leikum. Keppt veröur í tuttugu og einni grein íþrótta á leikunum, en tvær greinar íþrótta, tennis og kýluboltaleikur (Baseball), veröa líka á dagskrá sem sýningargrein- ar. Islendingar senda stærsta keppnishóp sinn til þessa á leik- anna í Los Angeles. Þeir munu keppa í frjálsum íþróttum, sundi, siglingum, handknattleik, lyfting- um og judó. Morgunblaöiö óskar æskufólkinu góörar feröar og góös gengis í keppnisgreinum þeim sem þaö tekur þátt í á leikunum. Mengunar- met í LA MENGUN andrúmsloftsins í Los Angeles hefur ekki verið verri í sex ár og Ólympíuleikarnir að hefjast. Ráöamenn í hinum ýmsu sýslum Los Angeles-háraös hafa lýst áhyggjum sínum vegna ástandsins, og hefur verið ákveð- inn fundur um málið. Á fundinn mæta Skipulagsnefndin, Versl- unarráðið og Loftgæöaeftirlitið. Tilgangur fundarins er aö fyrir- byggja aö megnun geti oröiö mannskemmandi og láta verk- smiöjur vera f viöbragösstööu, ef draga þarf úr vinnslu vegna eitrun- ar loftsins. Átta daga af júlí hefur mengunin náö þvf sem kallaö er fyrsta stig, „hættuleg öllum“, og er þaö met síöustu sex árin. Annað stig er þegar iónaöarfyrirtæki og verksmiöjur þurfa aö draga úr framleiöslu og er ekki reiknaö meó aö þaö komi tll. En allur er varlnn góöur. Búist er viö aö um ein milljón manna bætlst vió á svæöiö og kemur um helmingur mengunar frá bifreiöum. Reynt hefur veriö aö fá fólk til aö feröast saman til og frá vinnu en LA-búar feröast yfirleitt einir. Aætlað er aö tíminn til aö komast til og frá vinnu, á meöan á leikunum stendur, muni tvöfaldast, svo þaö er eins gott aö hafa gott sjónvarp og loftræstingu ef maður skyldi veröa á staönum. O lym píu lei kar tákn vináttu og bræðralags í ENN eitt sinn fara fram Ólympíuleikar, og vonandi veröur svo enn um langa framtíö. Oröið Ólympíuleikar hafa visst seiðmagn. Þúsundir æskufólks um víöa veröld hugsa til þeirrar stóru stundar er þau fi tækifæri til þess aö ganga inn á ólympíuleikvang undir þjóöfána sínum og fá aö vera þátttakendur í stærstu íþróttahátíö sem fram fer í heimin- um fjóröa hvert ár. Frá því á árinu 1896 hafa leikarnir verið haldnir þrátt fyrir aö oft hafi gustað um þá og deilur komið upp. Leikarnir í Los Angeles eru engin undantekning. Þar munu þjóðir frá Austur- Evrópu vera fjarverandi vegna þess aö pólitík var sett ofar því aö taka þátt. Þaö ætti að vega þyngra á vogarskálunum hjá stórþjóðum aö reyna að glæöa ólympíuhugsjónina og freista þess aö tendra nýja loga þess elds sem brennur á þessari stóru íþróttahátíð sem er tákn vináttu, drengskapar, og bræöralags í stað þess að hleypa illdeilum af stað. Á fáum vettvöngum sameinast íþróttafólk þjóöa betur en á sjálfum Ólympíuleikunum. Það var táknrænt aö þegar íþróttafólk Rúmeníu fór frá heimalandi sínu á leikana í Los Angeles sendi það leiðtoga sínum Ceaucescu forseta Rúmeníu heitar kveöj- ur fyrir að skilja ásetning íþróttafólks og láta ekki pólitík villa sér sýn. Og víst er að það er margt íþróttafólkiö frá Austur- Evrópuþjóðum sem situr heima með sárt enniö en verður meö hugann í Los Angeles þegar leikarnir fara þar fram. Það er án nokkurs efa von allra að Ólympíuleikar megi sem lengst sameina þjóðir heims í friði og einlægri vináttu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.