Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984
53
fclk í
fréttum
James Bond ruglar
karlmennina í ríminu
Það er ekki h«gt að segja að James Bond Ijómi hér af lífsþrótti þótt hann sé með eina
Bond-stúlkuna í fanginu og ekki nema eðlilegt ef marka má breskan lækni.
COSPER
— Það var hann sem fékk 16 ár fyrir að vera
giftur sex ungum konum samtímis.
+ Ofurmennið
James Bond eyði-
leggur kynferðis-
lífið hjá mörgum
þúsundum hjóna
segir breskur lækn-
ir, David Delvin,
sem er forstöðu-
maður fyrir fjöl-
skylduráðgjafar-
stofnun í London.
„Ævi ntýraheimur
James Bonds og
allar þokkadisirn-
ar, sem falla fyrir
honum eins og
flugur, hafa gefið
mörgum karlmann-
inum alrangar
hugmyndir um
ástina," segir Delv-
in. „James Bond
hefur komið sum-
um mönnum til að
halda, að konunum
beri skylda til að
fara í rúmið með
þeim. Þegar Bond
er annars vegar
hikar kvenfólkið
aldrei eitt augna-
blik og þegar þess-
ir menn eignast
unnustu skilja þeir
ekkert í að hún
skuli ekki haga sér
eins.“ Delvin bætir
því við, að ef James
Bond væri raun-
verulegur þá væri
hann búinn að
næla sér í alla þá
kynsjúkdóma, sem
á kreiki eru í ver-
öldinni. Þess vegna
hefur hann sent
framleiðendum
James Bond-
myndanna bréf þar
sem hann biður þá
að sjá um, að fram-
vegis verði Bond
látinn nota getnað-
arverjur og kon-
urnar hans líka og
þannig, að ekki
fari framhjá nein-
um áhorfanda.
„Karlmannsmynd
in, sem James
Bond dregur upp,
er út í bláinn. Enginn karlmaður
— eða a.m.k. mjög fáir — hefur
þrek til að vera með mörgum
konum á stuttum tíma. Rann-
sóknir sýna raunar, að „venju-
legt“ hjónafólk er saman einu
sinni í viku. James Bond duga
ekki færri en tvær — þrjár á
dag,“ segir Delvin. Michael Wil-
son, meðframleiðandi og hand-
ritshöfundur siðustu Bond-
myndarinnar, segist ekki taka
þessa gagnrýni alvarlega. „Þessi
sprenglærði doktor virðist ekki
hafa áttað sig á þvi, að James
Bond er ævintýrapersóna eins
og t.d. Hrói höttur. Ég þekki
engan, sem hefur nokkru sinni
kynnst manni á borð við James
Bond. Kannski það komi næst,
að stjarnfræðingar fari að finna
að stjörnustriðsmyndunum,“
segir Michael og bætir þvi við,
að James Bond sé mjög vandur
að virðingu sinni. „Hann hefur
aldrei komið nærri giftum kon-
um eða stúlkum undir lögaldri."
Notaðu
ökuljósin
- alltaf