Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984
37
Ólympíuleikarnir:
Kostar okkur
um 10 millj. kr.
— segir Gísli Halldórsson, forseti
íslensku Ól-nefndarinnar
Gísli Halldórsson, fyrrverandi forseti ÍSÍ og núver-
andi forseti íslensku Ólympíunefndarinnar, er einn
þeirra sem fara á Ólympíuleikana meö keppendum
okkar. Gísli hefur starfaö mikiö fyrir íþróttahreyfing-
una í gegnum árin og eru þetta fjóröu Ólympíuleik-
arnir sem hann fylgist meö.
Gísli Halldórsson forseti ís-
lensku Ólympíunefndarinnar.
„Ég var ekki á síöustu
Ól-leikum í Moskvu en
næstu þrennum þar á
undan var ég á og nú er
ég aö leggja upp til
Bandaríkjanna til aö fylgj-
ast meö þar,“ sagöi Gísli í
stuttu samtali viö Mbl.
Gísli sagöist mundu
sitja fundi bæöi meö
Norðurlöndunum og eins
yröu haldnir fundir hjá
Evrópuþjóöunum en fundi
Alþjóöasambandsins
heföi veriö frestaö og yröi
hann ekki í tengslum viö
Ólympíuleikana aö þessu
sinni. Gísli sagöi aö viö ís-
lendingar heföum ekki
nein sérstök mál sem viö
legðum áherslu á á þess-
um fundum aö þessu
sinni, heldur væru menn
þarna fyrst og fremst til
aö skiptast á skoöunum.
„Mér líst mjög vel á
þessa leika og þátttöku
okkar í þeim. Þetta er
stærsti hópurinn sem far-
iö hefur og núna eigum
við mikiö af mjög góöum
íþróttamönnum sem ég er
sannfæröur um aö eiga
eftir aö halda merki Is-
lands hátt á loft. Ég tel aö
viö veröum fyrir ofan
miðju, en þar settum viö
markið.“
Gísli sagöi aö þátttaka
okkar í leikunum væri
mjög dýr og teldi hann aö
þegar allt væri tekiö meö
yröi kostnaöurinn um 10
milljónir. „Meö hjálp þjóö-
arinnar mun þetta tak-
ast,“ sagöi Gísli Hall-
dórsson aö lokum.
Þau
verða
meðal
keppenda
áOL
Moses einokar 400 m
grindahlaup
Edwin Moses tapaði síóast í 400 metra grindahlaupi
þann 26. ágúat árið 1977. Hér á eftir eru nokkur af
helstu afrekum þessa frábæra hlaupara.
Heimsmet: Moses hefur fjórum sinnum bætt heims-
metið í 400 metra grindahlaupi: 47,64 (1976); 47,45
(1977); 47,13 (1980) og 47,02 (1983).
• Ól-leikar: Sigurvegari 1976 á nýju Ól-meti, 47,64.
• Heimsmeistari: 1983.
• Heimsbikarhafi: 1977, 1979 og 1981.
• Bandarískur meistari: 1977, 1979, 1981 og 1983.
• Keppt á Ól.: 1976.
• Hæstur hjá Track and Field-blaðinu: 1976, 1981 og
1983.
• Sigrar Moses og bestu tímar frá árinu 1977:
1977: Vann 4 úrslitahlaup. Tíminn 47,45*.
1978: Vann 14 úrslitahlaup. Tíminn 47,94.
1979: Vann 22 úrslitahlaup. Tíminn 47,53.
1980: Vann 19 úrslitahlaup og tvo riöla. Tíminn 47,13*.
1981: Vann 13 úrslitahlaup og einn riöil. Timinn 47,14.
1982: Keppti ekki vegna meiösla og veikinda.
1983: Vann 15 úrslitahlaup og þrjá riöla. Tíminn 47,02*.
1984: Vann eitt úrslitahlaup og tvo riöla. Timinn 48,25.
• Heimsmet.
Carol Lewis þykir nokkuð
frambærileg íþróttakona. Hún
mun keppa á Ól-leikunum sem
hefjast (Los Angeles á sunnu-
daginn. Hún á ekki langt að
sækja það að vera góður
íþróttamaöur því hún er systir
eins besta og fjölhæfasta
íþróttamanns sem keppir á
Ólympíuleikunum, Carl Lewis.
Bandaríkjamaöurinn Tom Petronoff keppir í spjótkasti ffyir hönd
Bandaríkjanna á Ólympíuleikunum. Hann var heimsmethafi þar til
síðasta föstudag en honum hefur ekki gengið vel í sumar. Hann og
Einar Vilhjálmsson munu berjast um það á Ól-leikunum hvor þeirra
getur kastaö spjótinu lengra.
EDWIN MOSES
Daly Thompson frá Englandl
veröur meðal keppenda (
tugþraut á Ólympíuleikunun
(Los Angeles sem hefjast á
sunnudaginn. Thompson
veröur að teljast nokkuð sig
urstranglegur (tugþrautinni
og hann, ásamt JUrgen
Hingsen frá Vestur-Þýska-
landi, eru taldir tveir bestu
tugþrautarmenn heimsins
um þessar mundir.