Morgunblaðið - 02.08.1984, Side 1
64 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
175. tbl. 71. árg.
FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Trausts-
yfirlýsing
Rómaborg. 1. ágúst AP.
RÍKISSTJÓRN Bettino Craxi for-
sætisráðherra ftalíu fékk traustsyf-
irlýsingu neðri deildar þingsins í
kvöld, er hún lagði tillögur sínar í
efnahagsmálum fram. Voru þ*r
samþykktar með 336 atkvsðum
gegn 228.
Víst er að tillögurnar verða
samþykktar í efri deildinni á
morgun, fimmtudag, stjórnin á
þar tryggan meirihluta.
Flugránið:
Enn við
það sama
í Teheran
Teheran, 1. ágúst. AP.
BOEING 737-farþegaþota franska
flugfélagsins Air France sem þrír
menn rændu í g*r og lenti í Teheran
í nótt, var þar enn síðast er fréttist
og var óljóst hver framvinda málsins
yrði. R*ningjarnir höfðu Iftið annað
aðhafst en að heimta mat og drykk
og biðja um eldsneyti á þotuna. Þeir
slepptu 4 gíslum af 64, tveimur kon-
um og tveimur börnum sem öll
veiktust
Það var margt á huldu varðandi
ránið í dag, tveir öfgahópar
Mohameðstrúarmanna lýstu
ábyrgðinni á hendur sér, en ræn-
ingjarnir sjálfir staðfestu ekkert
slíkt. írönsk stjórnvöld sögðust
ekki myndu hefja samningavið-
ræður að fyrra bragði. „Við ætluð-
um ekki einu sinni að leyfa þeim
að lenda í Teheran, en létum und-
an er þeir hótuðu að sprengja þot-
una í loft upp að öðrum kosti,"
sagði ónafngreindur talsmaður
stjórnvalda.
Ein kvennanna sem sleppt var,
sagði ræningjana mjög rólega og
yfirvegaða í aðgerðum sínum. Þeir
væru allir vopnaðir handsprengj-
um. Hin sagði það hafa verið
fyrsta verk þeirra, að safna saman
öllum vegabréfum farþega.
tti i • * i * aimamyna Ar.
Hlutskipti soveskra borgara
Á meðfylgjandi mynd má sjá hlutskipti sovéskra borgara hvað varðar Ólympíuleikana í Los Angeles. Að skoða
litmyndir í glugga sendiráðs Bandaríkjanna í rigningunni í Moskvu.
Loftárás ísraela
á PLO-stöðvar
Tel Atív, I. ágúst AP.
ÍSRAELSKAR herþyrlur gerðu í dag
árásir á stöðvar PalestinuskKruliða í
líbönsku hafnarborginni Trfpólí. Er
þetta í fyrsta skipti sem ísraelar nota
þyrlur, oft áður herþotur. Talsmenn
ísraelska hersins sögðu að árásin
hefði „heppnast vel“ og allar þyrlurn-
ar hefðu skilað sér heim á ný eftir að
hafa „h*ft skotmörk sín“.
Ekkert var greint frá mannfalli í
röðum Palestínumannanna, sem
eru í sveitum Abu Moussa, þeim er
reyndi hvað ákafast með hjálp Sýr-
lendinga að ryðja Yasser Arafat
leiðtoga PLO úr vegi. Israelsmenn
sögðu árásina hafa verið lið í stefnu
þeirra að ráðast á skæruliða hvar
sem er og hvenær sem er til að
spilla skipulagi þeirra og hernað-
arstyrk. Sögðu þeir að fjöldi skæru-
liða PLO hefðu hafst við þarna með
bæði vélbáta og vopn, en stöðina,
sem er við sjávarsíðuna, hafi þeir
notað sem heimahöfn tii árása á
ísrael af sjó.
Forseti íslands, frú Vigdfs Finnbogadóttir, flytur ávarp við embættistökuna f Alþingishúsinu í gsr.
Ljósm. Mbl. Arai Sjpberg.
Vigdís Finnbogadóttir sett
í embætti forseta öðru sinni
Vigdís Finnbogadóttir, í samtali
við blaðamann Mbl. að lokinni at-
höfninni í gær. Hún sagði að það
hefði ekki verið erfitt að taka
ákvörðun um að gefa kost á sér á
ný í embættið. „Það er erfitt að
skorast undan að halda slíku
starfi áfram þegar maður finnur
svo sterkt að þess er óskað," sagði
hún.
Viðstaddir athöfnina voru
helstu ráðamenn þjóðarinnar,
ráðherrar, alþingismenn, dómarar
Hæstaréttar, embættismenn, er-
lendir gestir og fleiri.
Sjá nánar ávarp forseta Íslands,
frú Vigdísar Finnbogadóttur, og
ræðu séra Ólafs Skúlasonar,
vígslubiskups, í miðopnu.
FORSETI ÍSLANDS, frú Vigdís Finnbogadóttir, var sett í embstti öðru sinni
í g*r. Athöfnin hófst klukkan 15.25 er forsetinn gekk úr Alþingishúsinu yfir
í Dómkirkjuna ásamt handhöfum forsetavalds, Þór Vilhjálmssyni, forseta
Hsstaréttar, Halldóri Ásgrímssyni, sjávarútvegsráðherra, sem gegnir emb-
stti forsætisráðherra f fjarveru Steingríms Hermannssonar, og Þorvaldi
Garðari Kristjánssyni, forseta sameinaðs þings.
Guðsþjónustan i Dómkirkjunni
hófst með því að Marteinn H.
Friðriksson, dómorganisti, lék
Ostinato et fughetta eftir Pál ís-
ólfsson. Séra Ólafur Skúlason,
vígslubiskup, flutti ræðu og bland-
aður kór söng undir stjórn Mar-
teins H. Friðrikssonar.
Að lokinni guðsþjónustu var
gengið úr Dómkirkjunni yfir í Al-
þingishúsið þar sem Dómkórinn
söng Land mins föður landið mitt
eftir Jóhannes úr Kötlum og Þór-
arin Guðmundsson. Þór Vil-
hjálmsson, forseti Hæstaréttar,
lýsti síðan forsetakjöri og útgáfu
kjörþréfs. Þá mælti hann fram
eiðstafinn sem frú Vigdís Finn-
bogadóttir, forseti fslands, undir-
ritaði. Að því loknu gekk hún fyrir
forseta Hæstaréttar, sem afhenti
henni kjörbréf. Þá gekk forsetinn
fram á svalir Alþingishússins og
minntist ættjarðarinnar. Forset-
inn flutti síðan ávarp, en athöfn-
inni lauk með því að Dómkórinn
söng þjóðsönginn.
„Það sem mér er efst í huga að
loknum þessum fjórum árum í
embætti forseta íslands er að
fyrst og síðast finn ég til enn
dýpri vináttu til þjóðarinnar en
áður. Mér mæta hlý andsvör og
hlýtt viðmót hvar sem ég fer og
fólk sýnir mér allt það bésta sem
það á,“ sagði forseti íslands, frú