Morgunblaðið - 02.08.1984, Page 4

Morgunblaðið - 02.08.1984, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984 Með auknu frelsi er stefnt að jafnvægi í peningamálum - segir Matthías Á. Mathiesen, viðskiptaráðherra „ÞAÐ HEFUR frá upphafi verið eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnar- innar að koma á jafnvægi í peninga- og lánamálum. Þessar aðgerðir þjóna öðru fremur þeim tilgangi að draga úr ofþenslunni og varðveita þann efnahagsárangur, sem unnist hefur á fyrsta starfsári ríkisstjórnarinnar,“ sagði Matthías Á. Mathiesen við- skiptaráðherra í samtali við Morgun- blaðið í gær. Hann var spurður um markmiðin með aðgerðum ríkis- stjórnarinnar í peninga- og lánamál- um, sem kynntar voru ásamt aðgerð- um í sjávarútvegi og ríkisfjármálum í fyrradag. Matthias sagði að ýms teikn hefðu verið á lofti að undanförnu er valdið hefðu mönnum áhyggjum yfir fram- vindu efnahagsmála. Innflutningur hefði þannig aukist verulega og horfur því verið á meiri viðskipta- halla en vonir stóðu til. Þá hefði borið á mikilli eftirspurn eftir lánsfjármagni og bankarnir freist- ast til að fjármagna lánveitingar sínar með erlendum lántökum. Þetta, ásamt vanda sjávarútvegsins, hefðu verið brýnustu úrlausnarefn- in nú um stundir í íslenskum þjóð- arbúskap. „Með hinu aukna svigrúmi til vaxtaákvarðana er í raun verið að færa innlánsstofnanir til aukinnar ábyrgðar á framvindu peningamála. Vextir munu nú i fyrsta sinn ráðast af framboði og eftirspurn f stað opinberrar vaxtaákvörðunar. Það er skoðun mfn, að þetta muni skjótt leiða til stöðugleika i peninga- og lánamálum," sagði Matthías. Hann bætti því við, að fyrsta skrefið hefði verið stigið inn á þessa braut á sfð- astliðnum vetri. Þá fengu innláns- stofnanir, svo sem kunnugt er, i kjölfar rýmkaðrar heimildar til gjaldeyrisverslunar takmarkaða heimild til vaxtaákvörðunar. „Það leiddi til mikilla hagsbóta fyrir sparifjáreigendur," sagði Matthías A. Mathiesen. En aðgerðirnar i peninga- og lánamálum fela f sér fleira heldur en aukið frelsi innlánsstofnana i vaxtamálum: „Það verður hert á eft- irliti með erlendum lántökum við- skiptabankanna. Jafnframt verða settar ákveðnari reglur um viðskipti innlánsstofnana við Seðlabankann er miða að þvi að koma í veg fyrir skuldasöfnun og veita aukið aðhald í útlánum," sagði Matthias ennfrem- ur. Þá vék hann að innlánsbindingu og breyttu fyrirkomulagi afurða- lána: „Það er skýrt tekið fram í yfir- lýsingu ríkisstjórnarinnar að heim- ildin til aukinnar innlánsbindingar i Seðlabankanum verði ekki notuð til að skapa grundvöll nýrra lána úr bankanum. Ætlunin er að nota þessa heimild ( áföngum til að greiða fyrir þróun millibankamark- aðs og til þess að innlánsstofnanir geti veitt sjávarútveginum nauð- synlega fyrirgreiðslu við núverandi aðstæður, án þess að valda þenslu." Loks sagði Matthias Á. Mathiesen viðskiptaráðherra: „Að undanförnu hef ég látið vinna að endurskoðun afurðalánakerfisins. Þessi vinna hefur farið fram i Seðlabankanum. Frá upphafi hefur verið að því stefnt, af hálfu þessarar ríkisstjórn- ar, að afurðalánin verði færð úr Seðlabankanum og til viðskipta- bankanna. Þessi kerfisbreyting er nú að komast á lokastig. Eg vona að þessar ráðstafanir verði til þess að auka stöðugleika efnahagslífsins og bæta stöðu sjáv- arútvegsins. Þessi undirstöðuat- vinnugrein hefur orðið að glfma við rekstrarerfiðleika, sem ekki sfst stafa af þeim slæmu skilyrðum, sem henni hafa verið búin á undanförn- um árum. Segja má, að með hinum nýja efnahagsaðgerðum sé verið, með auknu frelsi, að stuðla að jafn- vægi í peningamálum og bæta stöðu sjávarútvegsins." Á þessari mynd sést annar hljómsveitarpallurinn af tveimur sem verið er að reisa úti f Viðey. „Viðeyjarhátíðin vel skipulögð“ — segja forsvarsmenn hátíðarinnar „ÞAÐ gekk seint að fá leyfi en við erum búnir að yfirstíga alla erfið- leika og fullnægja öllum þeim skil- yrðum sem okkur hafa verið sett, og við höfum fengið mjög góða af- greiðslu hjá stofnunum," sagði Magnús Kjartansson, þegar blm. hitti hann og Hafstein Sveinsson og Eggert Sveinbjörnsson, en þeir eru forsvarsmenn Viðeyjarhátíðar- innar sem verið er að undirbúa af fullum krafti. Töluvert hefur verið gagnrýnt að halda hátíð úti í Viðey um verslunarmannahelgina og hefur gagnrýnin aðallega beinst að ör- yggismálum og einnig að þvi að Viðey er sögustaður, sem vert er að varðveita vel. „Hátíðin er langt frá Viðeyj- arstofu og það ætti ekki að vera nein hætta á ferðum, austurhluti eyjarinnar þar sem hátíðin er haldin var mjög sóðalegur áður og nánast eins og ruslahaugur, núna hefur verið tekið til hendi og er ánægjulegt að sjá hve sá hluti eyjarinnar hefur breytt um svip. Þetta hefði auðvitað átt að gera miklu fyrr. Ég óttast ekki að vandræði verði með flutninga á fólki til og frá eyjunni, ég hef fengið stóra báta til þess og margt fólk, og skipulagið verður gott,“ sagði Hafsteinn, en hann hefur séð um ferðir út í eyju undanfarin ár. En hvað um öryggi út i Viðey? „Hjálparsveit skáta verður með sjúkratjald á svæðinu og 4 læknar verða á vöktum þar, þeir hafa líka báta til taks ef eitthvað kemur fyrir. Við verðum einnig með báta sem fylgjast með fjör- unni. Við höfum sem sagt reynt að skipuleggja hátíðina eins vel og kostur er,“ svaraði Magnús, þegar hann sýndi blm. aðstöðuna úti i eynni. Flugeldasýning verður í Viðey í kvöld og annað kvöld kl. 12 á miðnætti, en hátfðin byrjar á föstudag. Á laugardaginn verður brenna, en í hana hefur verið safnað því drasli sem var á svæðinu áður. Dregið úr lánum til íbúðakaupa — segir Magnús Axelsson, formaður Félags fasteignasala „ÞAÐ SEM mestu skiptir fyrir fasteignamarkaðinn er að sett er fram ákveöin stefna í útlánum innlánsstofnana, það er að draga úr lánum til neyslu og almennra fjárfestinga og þannig draga úr lánum til þeirra sem eru að kaupa íbúðarhúsnæði," sagði Magnús Axelsson, formaður Félags fasteignasala er blaðamaður Morgunblaðsins innti hann eftir hugsanlegum áhrifum aðgerða í peninga- og vaxtamálum, á fasteignamarkaðinn, sem ákveðin voru fyrir tveim dögum. „Það gefur auga leið að það að draga úr lánum til einstaklinga, hefur áhrif á þennan markað því geta manna til fjárfestinga minnk- ar. Hins vegar á það eftir að koma f ljós á hvern hátt bankarnir beita því frjálsræði er þeir hafa fengið til vaxtaákvarðana og þess vegna of snemmt að segja til um hvaða áhrif það kann að hafa. En burtséð frá þessu, þá er mikil samkeppni um sparifé landsmanna nú þegar, t.d. ríkisskuldabréf og rfkisvíxlar er keppa við bankana. f aðgerðunum í peninga- og lána- málum er gert ráð fyrir að tryggja með samningum nauðsynleg verð- bréfakaup lífeyrissjóðanna til að fullnægja íbúðalánakerfinu, ég get aftur á móti ekki séð, við fyrstu kynni, hvernig þetta á að ganga upp. Margir lffeyrissjóðir hafa ekki einu sinni getað staðið við að verja ákveðnu hlutfalli af sínum fjár- munum til kaupa á skuldabréfum hjá Húsnæðisstofnun ríkisins. Eins og þetta er sett fram get ég ekki séð annað en verið sé að draga úr íbúðarlánum," sagði Magnús Ax- elsson að lokum. Svíar viðurkenna ekki íslenzkar nafnvenjur: Verður barnið að heita Einar Vilhjálmsdóttir? íslenzk hjón í deilum við sænsk yfirvöld Lundi, Nvíþjóð, frá Pétri Péturssyni frétUritara MorjfunblaÖHÍnH. TVÆR íslenskar fjölskyldur hér í Lundi eiga nú I streði við sænsk yfirvöld út af skrásetningu barna sinna nýfæddra. Foreldrarnir vilja að sjálfsögðu samkvæmt íslenskri venju- og fornri norrænni að auki — láta börnin fá nafn föðurins sem eftirnafn. Þetta hefur hingað til þótt sjálfsagt mál hér og það er ekki fyrr en nú á þessu ári að skrásetningaryfirvöld setja stólinn fyrír dyrnar að þessu leyti og vitna í lög frá 1982, sem kveða á um það að Norðurlandabúar, nýfæddir og búsettir í Svíþjóð skuli fá sama eftirnafn og annað foreldrið. Það þykir nú mikið frelsi í lög leitt að fá að taka upp eftirnafn móður sinnar. Það sem furðulegast er, er það að íslenska dómsmálaráðuneytið virðist hafa fengið drög að þessu frumvarpi til umfjöllunar, en ekki gert neinar athugasemdir. Fyrsta barn þeirra Hafdísar Vilhjálmsdóttur og Gríms Kjartanssonar fæddist 2. mars sl. og stuttu seinna fengu þau, eins og aðrir, eyðublað með póst- inum, þar sem þeim bar að rita á nafn barnsins, fornafn og eftir- nafn. Eftir nokkra daga kom svo bréf aftur frá skráningarskrif- stofunni í þeirri sókn sem þau tilheyra, þar sem það var sagt stutt og laggott, að nafnið sem þau höfðu valið barninu, Einar Grímsson, væri ólöglegt, en boð- ið upp á tvo valkosti. Einar Vilhjálmsdóttir eða Einar Kjartansson. Tekið var fram í bréfinu að foreldrarnir gætu innan þriggja vikna kært þenn- an úrskurð til næsta dómsstigs i málinu sem er stiftskrifstofan i Lundarstifti (domkapitlet). For- eldrunum varð að sjálfsögðu bilt við, sérstaklega hinni ungu móð- ur, en ekki var um annað að ræða en áfrýja þessum dómi. Líður nú og bíður og ekki kemst Einar litli á skrá, en nú fyrir nokkrum dögum kom bréf frá stiftsskrifstofunni sem var á sömu bókina lært, Grimsson var enn ólöglegt. Vitnað var í lögin sem tækju af allan vafa í þessu efni. í bréfinu var ennfremur ábending um það að foreldrarnir gætu áfrýjað þessum úrskurði til, næsta aðila, yfirréttarins í Gautaborg. I stuttu samtali við fréttarit- ara Morgunblaðsins sagði Haf- dís að ekki kæmi annað til greina en að kæra þetta mál áfram því að á meðan kæra er í gangi verður ekkert fast í kerf- inu um nafn drengsins. Ekki væri heldur að vita hvort nafn drengsins fengist rétt skráð eftir að þau flyttust heim til Islands ef það væri einu sinni komið vit- laust inn í þjóðskrána hér í Svi- þjóð. Það er einnig einkennilegt við þetta mál að lögin gilda aðeins um Norðurlandabúa með lög- heimili í Svíþjóð. Aðrir innflytj- endur geta ráðið eftirnöfnum barna sinna eftir sem áður þó Hafdís Vilhjálmsdóttir með soninn Einar sem ekki fær að bera nafn föður síns, Gríms, sem eftirnafn. Til hægri á myndinni er annar ungur íslendingur búsettur í Lundi sem á við svipað vandamál að etja. þau falli ekki alveg að sænska nafnakerfinu. Þar sem Norð- menn, Danir og Finnar hafa svipað nafnakerfi og Svfar eru íslendingar að þessu leyti settir hjá og í raun órétti beittir. Nafngiftir eru hluti af sjálfsvit- und einstaklingsins og menning- ararfleifð hans. Þessar aðferðir sænskra yfirvalda eru í algjörri mótsögn við þær yfirlýsingar sem fram eru settar í sænsku innflytjendalögunum. Þar segir að innfíytjendur eigi sjálfir að fá að velja um það hvort þeir taki upp sænskar siðvenjur eða haldi fast við siði heimalands síns. Það er verðugt verkefni fyrir stjórnmálamenn og embættis- menn á samnorrænum fundum að kippa þessu i lag. Á meðan er vissara fyrir ís- lenskar mæður að láta skrá börn sín heima. Hafi þær bréf upp á það eru engin vandkvæði að koma réttu nafni í skrár hér. Því má bæta við, að ef nýfætt barn á eldra systkini af sama kyni fæst það skráð á sama hátt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.