Morgunblaðið - 02.08.1984, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
17
Vegna bréfs sem
NT neitaði að birta
— eftir Jón Rafn
Guðmundsson
lUfn»rfírði, 31. júlí 1984.
Til ritstjóra Morgunblaðsins.
1 blaðinu NT, þann 16. júlí sl., er
viðtal við Hallgrim Sigurðsson,
framkvæmdastjóra, framreitt
fyrir lesendur þess blaðs sem
„frétt“ í tilefni af því, sem haft var
eftir mér í Morgunblaðinu 15. júli.
Af þessu tilefni skrifaði ég
Magnúsi ólafssyni, ritstjóra, bréf,
sem ég óskaði að fá birt i NT, og
hafði hann góð orð um, að það
myndi birtast í því blaði sl. laug-
ardag eða mánudag. Nú er hins
vegar komið i daginn, að mér er
meinað að bera hönd fyrir höfuð
mér í því blaði, sem auglýsir sig sem
málsvara frjálslyndis, samvinnu og
félgshyggju, því Magnús Ólafsson
hefur endanlega hafnað birtingu
bréfsins.
Þess vegna bið ég yður að birta
þetta bréf i Morgunblaðinu.
Það er rangt, sem NT sagði
sjálft 16. júli, að ég hafi „hótað
málssókn vegna afskipta Hall-
gríms af Endurtryggingunni“.
Það, sem ég sagði við blaðamann
Morgunblaðsins, var allt öðruvísi
orðað. Eg skildi þá ekki, hvers
vegna „frétta“-maður NT gat ekki
haft hlutina rétt eftir, og taldi, að
hann hefði átt að vanda sig betur.
Þetta sagði ég í bréfi minu til
Magnúsar ólafssonar, og enn-
fremur, að ég ætlaði ekki að erfa
þetta við NT, þar sem ég liti á
þetta sem hvert annað slys i
blaðamennsku. Eftir að mér er
ekki veitt rúm á siðum „málsvara
frjálslyndis", hlýtur að hvarfla að
mér, að ekki hafi verið um slys að
ræða, heldur ásetning.
í viðtalinu i NT var haft eftir
Hallgrími:
„Þetta er nú ekki í fyrsta skipti,
sem hann hefur hótað að fara i
mál við mig. Ég væri manna fegn-
astur, ef hann hefði kjark til þess
að kæra mig. En ef hann heldur
áfram þessum persónulegu svi-
virðingum, eins og fram kom í
þessari grein, þá neyðist ég nátt-
Jón Rafn Guðmundsson
úrlega til þess að fara i meiðyrða-
mál við hann.“
Ég held nú, að það þurfi engan
kjark til að kæra menn yfirleitt,
og kannski sízt Hallgrim Sigurðs-
son, en e.t.v. kærir hann sig sjálf-
ur með þeim gapuryrðum, sem
hann missir út úr sér, en maður-
inn er m.a. þekktur að því að hafa
það sem grundvallaratriði i hegð-
an sinni að „framkvæma fyrst og
ræða svo málin á eftir“. Hann
hugsar þá ógjarnan út i það,
hvaða aðila hann gæti meitt,
fremur en fyrri daginn, t.d. stjórn-
armenn Samvinnutryggingafélag-
anna.
Eftir þessum tilvitnuðu orðum
hans hér að framan að dæma,
virðist hann telja það persónu-
legar svívirðingar, ef skýrt er frá
staðreyndum um gerðir hans og
maður lætur í ljósi álit það, sem
maður hlýtur að fá á honum við
margra ára kynningu í samstarfi
við hann innan Samvinnuhreyf-
ingarinnar.
Ég mun ekki láta af að segja
sannleikann um hann og gerðir
hans, og til þess að hann geti
„neyðzt til að fara í meiðyrðamál"
við mig, vil ég ítreka allt það, sem
Sveinn Guðjónsson, blaðamaður
Morgunblaðsins, hafði eftir mér
um Hallgrím Sigurðsson 15. júlí
sl. og birtist í Morgunblaðinu.
Með þðkk fyrir birtinguna.
Jón Rnfn Guðmundsaon er trygg-
ingnriðgjnli lýrir Snmbnndið og
Snmrinnubreyfingunn.
Úlfaþytur á
Grænlandi
ÚLFAR eru i Grænlandi á ný. Eftir
nær hálfa öld, sem liðin er án þess
sést hafi til úlfa, er nú vissa fengin
fyrir tilvist þessara grimmu dýra í
norðausturhluta landsins. Líffræð-
ingar halda því fram, að úlfarnir séu
þangað komnir frá Kanada.
Starfsmenn i veðurathugun-
arstöðinni i Danmarkshavn á
austurströndinni hafa orðið varir
við þá og einnig hefur þeirra orðið
vart i grennd við Thule á vestur-
ströndinni.
Síðan í júníbyrjun hafa dýrin
komið reglulega til veðurathugun-
arstöðvarinnar í Danmarkshavn.
„Það eru ekki nema þrír dagar
síðan við urðum varir við úlf á
Hérafjalli, nokkra kílómetra frá
stöðinni," segir Knud Fischer,
stöðvarstjóri stuttbylgjuútvarps-
ins í Danmarkshavn, í viðtali við
Berlingske Tidende.
VJterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
i*lér£xmX>Iaftift
1 oZ~t?aTopplö° a
Se'öutáundanförnumárM^
allogmeö Bubba Monhens
m°nnum, Mezzotorte ’
®lörgvmi Gislasyni
ia,::,3os«»s
HLH — l rokkbuxum
og strigaskóm
□ plata □ kassetta 359 kr.
Nýja HLH-platan er nú sú mest selda á
Islandl. enda er hér um stórgóða plðtu
að rasöa sem inniheldur hvorkl meira né
minna en 15 lög, þar á meöal hlð vin-
sæla lag .Vertu ekki að plata mlg".
Kýldu á plðtu eöa kassettu með HLH
strax i dag. Þaö er sko i góöu lagl.
*rtiN*K**«y
Sumargleöin — Af einskærri
Sumargleði
□ plata □ kassetta 359 kr.
Þaó er sannarlega ástæöa til aó kætast
af etnskærrl sumargleöi þessa dagana
meö hinni etdfjðrugu Sumargleöl. Þessa
dagana kyrja landsmenn i grfó og erg
lögin .1 þá gömlu, góöu daga', .Viö get-
um rokkaó því tll" og .Júlla Jó'. Hvernlg
væri nú aö lá sér plðtu eöa kassettu
meö Sumargleölnni og kynnast hinum 9
lögunum sem er aö finna á þessum
spretlfjðruga grip?
Spandau Ballet — Parade
□ plata □ kassetta 359 kr.
Meölimir Spandau Ballet þurfa ekkl aö
kvarta yfir mottökunum sem platan
Parade og lagiö „Onty When You
Leave” hafa hlotiö bæöi hér heima og í
Bretlandi Parade er nú í hópl mest
seldu platnanna og er full astæöa til aö
mæla meö þessari ágætu plötu.
Ymsir — Sumarstud
□ plata □ kassetta 359 kr.
Sumarstuö hefur veriö langvinsælasta
safnplatan í sumar, enda inniheldur hún
14 af vinsælustu stuölögum sumarsins.
Þar á meöal „Wake Me Up Before You
Go“ meö Wham, „I Feel Like Buddy
Holly” meö Alvln Stardust, „Searchin'”
meö Hazell Dean, „Dancing With Tears
in My Eyes" meö Ultravox, „Locomo-
tion" meö C.M.D., „High Energy" meö
Evelyn Thomas og 8 önnur pottþétt lög.
MW.E OLOrttLD
Mike Oldfield — Discovery
□ plata □ kassetta 359 kr.
Mike Oldfield hefur notlö sérstðöu sinn-
ar sem afburóa músíkant i rúman ára-
tug og fyrir margt Iðngu safnaó um sig
dyggum aödáendahópi. Þessir aódá-
endur Oldlields gleöjast nú meö honum
yflr velgengni plötunnar Dlscovery. Haf-
ir þú ekki ennþá tryggt þér eintak af
Discovery, ættir þú aö láta hendur
standa fram úr ermum i dag og tryggja
þér eintak sem fyrst.
Bruce Springsteen —
Born in the USA
□ plata □ kassetta 359 kr.
Born in the USA hefur nú verlð mest
selda stóra platan í Bandarikjunum um
nokkurra vikna skeið og laglö .Dancing
in the Dark* notiö ómældra vinsælda
um vióa veröld. Springsteen hetur
gjarnan verið nefndur rokkari rokkar-
anna, eóa Bossinn, þvi hann rokkar
eins og sá sem valdió hefur eins og
kemur best í Ijós á plötunni Born In the
USA.
Við minnum einnig á hinar stórgóöu TDK-kassettur sem
viö eigum í úrvali. Póstkröfusími 11620.
^KARNABÆR
^f HLJÓMPLÖTUDEILD
Jacksons — Victory
□ plata □ kassetta 359 kr.
Jæja, þé er gullkálfurlnn Michaei Jack-
son komlnn meó nýja plðtu sem hann
hefur gert i fólagi vlð brsður sina. AHt
sem þessi drengur snertlr á, vtrðist
veröa að gulli og kæmi þaö ekkl á óvart
aö svo veröl nú sem endranær. Platan
Victory inniheldur m.a. lögln .State
of Schock", sem Mlchaei syngur með
Mick Jagger, og .Torture', sem spáö er
miklum vinsældum.
Aðrar nýjar og vinsælar
plötur og kassettur
Ýmsir — Footloose
Flying Pickets — Lost Boys
Ýmsir — Let the muslc scratch
Guys and Dolls — (Gæjar og piur)
Cyndi Lauper — She's So Unusual
Human League — Hysterla
Ultravox — Lament
Go Go's — Talk Show
Psychedelic Furs — Mirror Moves
M.S.G. — Rock Will Never Dle
.Weird Al" Yankovlc — In 3-D
Joe Jackson — Body and Soul
Oavid Sytvian — Brllllant Trees
P.I.L. — This Is What You Want
Malcolm McLaren — Scratchin’
Rock Steady Crew — Ready tor Battle
Ýmsir — Breska bytgjan
Stevie Ray Vaughan —
Could’t Stand the Weather
Sergio Mendes — Carnival
Austurstræti 22, Rauðarárstig 16, Glæsibæ.
Mars, Hafnarfirði. Póstkröfusimi 11620.
Ódýrari
plötur og kassettur
Nú þegar mesta feröahelgi ársins er senn aö ganga í garö,
viljum viö minna þig á aö hljómplötudeildir Karnabæjar
bjóöa þér aö kaupa vinsælustu plöturnar og kassetturnar
á afsláttarverði.
Allan júlímánuö höfum viö veitt 10 prósent afslátt af vin-
sælustu plötunum og kassettunum og þar sem þetta hefur
mælst sérlega vel fyrir, höfum viö nú ákveðið aö fram-
lengja þetta afsláttartilboö út ágústmánuö.
Líttu því inn í einhverja af verslunum okkar, eöa hringdu,
og pantaöu í póstkröfu. Þú getur fengið vinsælustu plöt-
urnar og kassetturnar fyrir minna verö en þekkst hefur í
langan tíma. Verslaðu ódýrt um leið og þú færð þér nýja
og vinsæla plötu eöa kassettu.