Morgunblaðið - 02.08.1984, Side 19
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
19
Ingibjörg
Eggerz sýnir
Myndlist
Valtýr Pétursson
Ingibjörg Eggerz hefur verið
búsett erlendis um árabil og því
hefur hún ekki komið því í verk
að halda sýningu á verkum sín-
um, fyrr en nú i Gallerí Borg. Sú
sýning sem nú hefur verið opnuð
á verkum hennar, er önnur
einkasýning sem þetta nýja gall-
erí hefur efnt til og um leið
þriðja sýning frá upphafi rekstr-
ar þar í sveit. Ingibjörg hefur
verið sendiherrafrú undanfarin
ár og notfært sér þann tíma er
hún hefur haft aflögu frá
skyldustörfum sinum, til að þróa
með sér myndlist og notið til-
sagnar ágætra manna á þeim
stöðum sem hún hefur dvalið á.
Hún mun einnig hafa sýnt verk
sin erlendis, en ekki komið fram
á sjónarsviðið hér heima áður.
Flest þau verk sem eru á þessari
sýningu eru gerð á árunum 1955
til 1970 og eru því ekki alveg ný
af nálinni, ef svo mætti segja.
Megnið af þeim verkum sem
þarna eru sýnd eiga sér kveikju i
fyrirmyndum, en sum þeirra eru
þannig úr garði gerð, að aðeins
mótar fyrir því, er upprunalega
hefur komið verkinu af stað. Það
er með öðrum orðum oft á tíðum
farið frjálslega með hlutina og á
sumum stöðum jaðrar við að
abstraktblær nái yfirhöndinni
hjá listakonunni. Það eru yfir-
leitt nokkuð þungir litir i þess-
um verkum og ekki glaðlegur
blær yfir þessari sýningu. Form-
ið er oft nokkuð laust og tæpast
nægilega sannfærandi. Þessi
verk vöktu ekki hrifningu mina,
en það er bót í máli, að margur
hefur fundið í þessum verkum,
það sem hann vill eiga og not-
fært sér tækifærið til að eignast
málverk eftir Ingibjörgu.
Það voru uppstillingar Ingi-
bjargar nr. 4 og 5 sem vöktu
mesta athygli mína. f þessum
verkum er óvenjulegur tónn, sem
maður sér ekki oft i íslensku
málverki, og sama er að segja
um mynd nr. 16, „Týndir draum-
ar“. f þeim myndum held ég, að
maður sjái, hverjar ástríður
sækja einna fastast á listakon-
una, og þar nær hún bestum
árangri að minu mati.
Á sýningu Ingibjargar Eggerz
eru 19 oliumálverk og ætti það
að nægja til að gefa hugmynd
um hvar hún er á vegi stödd i
málverki sinu. Hún hefur auð-
sjáanlega lagt mismunandi mik-
ið kapp á listgrein sina, og af-
raksturinn er eftir þvi. Þetta er
nokkuð misjöfn sýning eins og
hún kemur mér fyrir sjónir, en
auðvitað er hér eingöngu farið
eftir minu persónulega mati, og
hver veit nema ég hafi verið
glámskyggn á hlutina. Um það
verður komandi timi að dæma og
hafi mér yfirsést, kemur það i
ljós seinna meir.
Metsölubhd á hverjum degi!
I LOFTTÆMDUM
UMBÚÐUM
AD ÞÍNU VALI
t'.V> •
:
SODIN SVID SODID HANGIKJÖT STEIKTAR KÓTILETTUR SMURT BRAUD í ÚRVALI 3 TEGUNDIR ÁLEGGS í PAKKA Á TILBOÐSVERDI
25 STK. PLASTGLÖS Á 36 kr. PLASTFILMA 30 M 26 kr.
40 PAPPADISKAR Á 77 kr. PLASTHNÍFAPÓR
| ÁLFILMA 20 M 69 kr. VATNSKUTAR 2'/2 OG 5 GALLON
NIDURSUDUVÓRUR 1 SNACK-VÖRUR INSTANT-SUPUR INST ANT-DRYKKIR SÆLGÆTI GOSÍDÓSUM
tv,- ' , ' ' ■> ' „
KR. 119pr. 3
VÖR
ARMULA- EIÐISTORGI
KRYDDLEGIÐ I
LAMBAKJÖT I
LÆRISSNEIÐAR
KÓTILETTUR
FRAMHRYGGUR
GRILL-KÓTILETTUR
LAMBAKJÓT Á TEINI
—I NAUTAKJÖT |—
INNRALÆRI 499kr/kg KRYDDL. FRAMHR. 130kr/kg
MJAÐMASTYKKI 499kr/kg NAUTA OSSO-BUCO HOkr/kg
KLUMPUR 389 kr/kg NAUT AH AMBORGARAR 17kr/stk