Morgunblaðið - 02.08.1984, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGtJST 1984
Gagneld-
flaugakerfi
Eftir Arne Œav
Brundtland
Til eru þeir, sem ekki geta slapp-
að af í segiskútu. Þeir hafa ekki
Uugar til að sitja kyrrir og fylgjast
með því að seglin séu mátulega
þanin, og blakti ekki. Þeir geU
ekki legið kyrrir á dekkinu. Þeir
geU ekki verið aðgerðarlausir.
Við getum verið aðgerðarlaus.
Við getum legið á bakinu og glápt
upp í loftið. Við getum horft á
máva fljúga hægt og gargandi. Við
getum séð farþegaþotu í fjarska,
og F-16 herþotu, eða hvað það nú
er beint fyrir ofan með langan út-
blástursstrók á eftir sér. Við getum
beint huganum að krabbaveiðum.
En strókurinn þarna uppi
beinir raunar huganum að því
athyglisverða tækniafreki, sem
bandaríski herinn vann í fyrra
mánuði. Eldflaug skaut niður
aðra eldflaug úti í geimnum. Við
það tækifæri var notuð venjuleg
sprengihleðsla, ekki kjarnorku-
hleðsla. Þetta var í fyrsta skipti
sem manninum tókst á skipuleg-
an hátt að láta kúlu skjóta aðra
kúlu niður. Tæknin byggist með-
al annars á yfirburða næmri
hitaleit. Augljóst er að hér er um
tæknibyltingu að ræða. Enn sem
komið er, hefur þetta aðeins
gerzt einu sinni. Hvaða hag-
kvæmnisþýðingu þetta getur
haft, er ekki alveg ljóst. I því
sambandi velta menn því fyrir
sér hvort unnt verði að koma
upp gagneldflaugavörnum, það
er að segja virkri vörn gegn
árásareldflaugum, helzt áður en
þær ná inn i andrúmsloftið með
banvænan kjarnorkufarm sinn.
Þeir varnarmöguleikar, sem
hingað til hafa komið til greina,
byggjast á kjarnorkubúnum
eldflaugum. Vegna þess hve erf-
itt hefur verið að hitta skot-
mörkin, hefur verið nauðsynlegt
að reikna með mikilli sprengi-
orku í sprengjuoddum varnar-
flauganna. Það hefur út af fyrir
sig verið vandamál. En mest um
vert er að ekki hefur verið nein
gild ástæða til að ætla að þess-
konar gagneldflaugavarnir væru
færar um að stöðva árás, sem
gerð væri ekki aðeins með einni
eldflaug, heldur mörgum eld-
flaugum í senn, hverri hryðjunni
á fætur annarri.
í lok sjöunda áratugarins
komu Rússar upp gagneldflauga-
kerfinu Galosj og Bandaríkja-
menn skipulögðu gagnaðgerðir
með uppsetningu sinna kerfa,
Sentinel og Sprint. Vitað var á
báða bóga að þessi kerfi voru
ekki sérlega örugg. Þeim var
sennilega fært að granda eld-
flaugum, sem voru einar á ferð,
til dæmis fyrir mistök, eins og
sagt var. En það tókst að ná
samkomulagi um takmörkun,
sem nefnt hefur verið ABM-
samningurinn, þannig að dreif-
ingu kerfanna var haldið I lág-
marki. Samkvæmt samningnum
er heimilt að hafa gagneldflaug
við höfuðborgir, og svo tilteknar
stjórnstöðvar herafla landanna.
Vígbúnaðareftirlit
Helzta ástæðan fyrir því að
vígbúnaðareftirlit varð ofan á í
stað vígbúnaðarkapphlaups var
sú, að ljóst var að eldflaugakerf-
in væru ekki nógu raunhæf. Að
þau kostuðu óhemju fjármuni,
og að erfitt yrði að sjá fyrir
hvaða mat gagnaðilinn legði á
varnargetu beggja.* Talin var
hætta á að rangt mat gæti þar
komið til.
Nei, þá var betra að halda sig
við ógnarjafnvægið í því, sem við
getum nefnt klassíska formi frá
sjöunda áratugnum. Lögð var
áherzla á að þróa örugga gagn-
árásargetu, það er að segja getu
til að gera gagnárás á land, sem
þegar hefði skotið sínum eld-
flaugum á loft. Forsendan var
meðal annars sú að engin af-
vopnunarárás biti á eldflaugun-
um. Á móti þessu öryggi árás-
arvopnanna kom hins vegar
hættan, sem steðjaði að íbúun-
um og öðrum verðmætum. Þar
sem ganga mátti út frá því sem
létust í kjarnorkuárás, væri
hugsanlegt að þeim fækkaði
niður í 20 milljónir. Og þá var
spurningin: Gæti bandarískur
forseti verið reiðubúinn til að
taka meiri áhættu ef hann
stefndi 20 milljónum mannslífa I
voða, heldur en ef þau væru 100
milljónir? Flestir svöruðu nei,
hann yrði engu fúsari til að taka
áhættuna. En það verður einnig
að spyrja hvort ætla mætti að
sovézkur leiðtogi, sem vildi ná
forskoti, yrði ekki heldur fúsari
til að taka áhættu. Og þá ber að
spyrja sjálfan sig hvort hann
kæmist að sömu niðurstöðu og
leiðtogi hins risaveldisins.
Eins og fram kemur í meðfylgjandi grein er höfundur hennar á sumar-
siglingum í norska skerjagarðinum þegar hann ritar hana. Hér sést Árne
Olav Brundtland á fjölskyldubátnum með dóttur sinni Kaju, eiginkonu
Gro Harlem og syninum Ivari.
ABM-samningurinn hefur
verið tekinn til endurskoðunar
eftir því sem marksækni lang-
drægu eldflauganna jókst. Ýms-
ar hugsanlegar aðgerðir hafa
verið ræddar til að koma í veg
fyrir að aukin marksækni geti
gert að engu möguleikana á
hefndarárás. Meðal aðgerðanna
má nefna auknar varnir neðan-
Gagnflaugin
opnar
álhlífina
11:28 Arekstur
Landratsjá stýrir gagnflaug á móts viö
eldflaugina; infrarauöir nemar
tryggja rétta stefnu .»\
Meck
l-eyja
.»iÁ
I *
K Vandenberg-
flugherstöö
Eldflaug skotiö
Eldflaugin sést á ratsjá,
aqnflauq send af staö
Nú f júní gerðu Bandaríkjamenn þá tilraun sem lýst er á þessari mynd. Langdrægri eldflaug var skotið frá
Vandenberg-flugherstöðinni og fáeinum mínútum eftir að hún er komin á loft sést hún á ratsjá sem er á
Meck-eyju í 7.600 km fjarlægð. Þaðan er gagneldflaug skotið á loft og tfu mínútum síðar rekast eldflaugarnar
hvor á aðra með þeim afleiðingum að langdræga eldflaugin, sem getur borið kjarnorkusprengjur, eyðileggst.
Þessi tilraun er talin sýna hvernig framkvæma megi „stjörnustríðs“-hugmynd sem Ronald Reagan hreyfði fyrir
rúmu ári en þrátt fyrir hana mun það kosta milljarða dollara og taka allt að 15 ár að hrinda henni í framkvæmd.
vísu að andstæðingurinn gæti
gert hefndarárás, jafnvel þótt
samfélag hans væri i rúst, mátti
einnig reikna með þvi að and-
stæðingurinn teldi sig nokkuð
öruggan um að ekki kæmi til
neinna kjarnorkuárása án til-
efnis. Þetta var traust form af
ógnarjafnvægi, og var sá kostur
tekinn að hefja ekki neitt víg-
búnaðarkapphlaup með varnar-
flaugar gegn eldflaugum.
Forskot
Fengi annar aðilinn verulegt
forskot í eldflaugavörnum, gat
hinn aðilinn haft af þvi áhyggjur
að sá, er forystuna hefði, reyndi
einnig að hagnýta sér hana póli-
tískt með því að beita þann
minni máttar þvingunum. Þess-
ar þvinganir gætu komið til
greina af því að sá, sem foryst-
una hefði í gagnflaugavörnum,
hefði einnig ráð á að taka meiri
áhættu. Þar sem áður þótti
hætta á að 100 milljónir manna
Sóun fjármuna
Við þetta bætist íhugun um
hvað gerðist ef báðum aðilum
tækist á tilteknum tíma að þróa
einskonar jafnvægi í gagn-
flaugavörnum. Gæti annar
þeirra haft hag af því á einhvern
hátt, eða mætti frekar segja að
báðir aðilar hefðu sóað fjármun-
um sínum án þess á nokkurn
hátt að hafa tryggt öryggi sitt?
Sá kostur að aðeins annar aðil-
inn gæti þróað virkt varnarkerfi
meðan hinn sæti hjá aðgerðar-
laus, var ekki til alvarlegrar um-
ræðu.
En niðurstaðan varð sem sé sú
að skynsemin og sanngirnin
fengu nú einu sinni að ráða.
Samkomulag náðist um virkan
afvopnunarsáttmála, og ógnar-
jafnvægið var enn eflt með því
að um leið var samið um SALT 1
— sem felur í sér takmarkanir á
langdrægum eldflaugum beggja
aðila.
jarðarskotpalla eldflauganna, og
breytingar á stjórn eldflauganna
þannig að þær fari af stað um
leið og aðvörun berst um árás, en
einnig er þróun nýrra og ná-
kvæmari eldflauga með í mynd-
inni. MX nefnast umdeildustu
eldflaugarnar f Bandaríkjunum,
SS-18 og SS-19 eru þær eldflaug-
ar Sovétríkjanna, sem mestan
ugg vekja.
Sumir töldu það frekar stuðla
að auknu jafnvægi ef ABM-
samningnum yrði sagt upp, og
komið yrði upp virkari kerfum
varnarflauga umhverfis neðan-
jarðarskotpalla langdrægu eld-
flauganna í stað vígbúnaðar-
kapphlaups með sífellt mark-
sæknari árásarflaugum.
Aðrir álitu rangt að eyðileggja
afvopnunarsamning, sem fyrir
hendi er og hefur borið árangur.
Áherzla var lögð á táknrænt
gildi samningsins. Afleiðingar af
uppsögn hans gætu frá pólitísku
sjónarmiði verið neikvæðar.
Nýtt Ijós
Birtist þetta í nýju ljósi nú,
þegar tæknin hefur enn slegið i
gegn með því að láta kúlu skjóta
niður aðra kúlu án þess að beita
kj arnor kuvopnum ?
Þessi tækniþróun kemur á
sama tíma og mikið er rætt um
að flytja hernaðarátökin út í
geiminn. Star Wars, stjörnu-
stríð, eins og það gjarnan er
nefnt. Þar er um að ræða gervi-
tungl og ýmsar gerðir eldflauga,
lasergeisla og fleiri nýjungar.
Svo virðist sem Reagan forseti
álíti í raun að tæknilega sé unnt
að beina vopnum gegn vopnum
úti í geimnum, í stað þess að
beina vopnunum gegn samfélög-
um hver annars. Það yrði þá til
að umturna ógnarjafnvæginu.
Siðferðislega séð gæti þetta
komið betur út. Nú er milljónum
saklausra manna haldið í gísl-
ingu. Þeir eru gislar fram-
kvæmda utanrikisstefnu rikis-
stjórna sinna. Á þessa fram-
kvæmd hefur til dæmis allur
mannfjöldinn í Sovétrikjunum
engin áhrif. Þetta er vandamál,
sem verður sífellt erfiðara. Væri
þá ekki skárra að færa þetta allt
slaman aftur i tímann i þá
gömlu stöðu að vopni sé brugðið
gegn vopni, en því ekki beitt
gegn saklausum borgurum?
Ekki er útlit fyrir að sú leið
verði valin, að minnsta kosti
ekki á næstunni.
Bandariska þingið er all tor-
tryggið á ýmsa kosti hernaðar-
tækninnar. í heild má segja að
breytt afstaða riki í bandarísk-
um stjórnmálum varðandi vig-
búnaðarkapphlaupið. Stöðvun-
arhreyfingin sem mælir með
frystingu er öflug. Reagan hefur
orðið að taka upp fækkunar-
stefnu, sem þýðir að fyrir hverja
nýja eldflaug verði að taka tvær
gamlar úr umferð. Hugmyndirn-
ar um að vopn úti í geimnum
muni ekki auka öryggi Banda-
ríkjanna, heldur frekar leiða til
vígbúnaðarkapphlaups eru áber-
andi.
óhætt er að segja að sú þjóð,
sem áður hafði minnstar at-
hugasemdir fram að færa gegn
nýsköpun hernaðartækninnar,
gefi nú til kynna að nóg sé kom-
ið, og að fyrst og fremst verði að
finna leiðir til fækkunar vopna,
ekki vígbúnaðarkapphlaups.
Þess vegna er það engan veginn
víst að tækniafrekið varðandi
gagnflaugar frá því fyrr í sumar
verði nýtt til framleiðslu nýrra
vopna. Málinu er öllu heldur
þannig varið að menn gera sér
nú öllu meiri grein en áður fyrir
göllunum á nýjum vopnakerfum.
Þoturnar fyrir ofan mig eru
löngu orðnar smáir dílar. (It-
blástursstrókarnir breiða úr sér
í skýmyndaða hvíta pylsu. Síð-
degiskulið kemur. Ef til vill ætt-
um við að draga upp segl til að
nýta það. Ekkert er jafn mikil
hvíld og að beina athyglinni að
seglunum. Allt annað hverfur.
Það er bara frí.
Arne Olav Brundtland er aérfræðing-
ur í öryggis- og afvopnunarmílum
rið norsku utanrfkismilastofnunina.