Morgunblaðið - 02.08.1984, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 02.08.1984, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984 25 Jóhannes Páll II páfi brosti sínu góðlega brosi... Jón Karl Helgason skrifar frá Róm: Á Péturstorgi Meðal jarðarbúa þykja sumir staðir merkilegri en aðrir vegna sérstöðu sinnar eða fágætis. Státi staður af efstastigs lýsingarorði; sé eitthvað í nágrenni hans til að mynda stærst, lengst eða hæst má telja líklegt að ferðamenn sæki að honum eins og mý að mykjuskán. Oft er það tilviljunum undirorpið hvað villist inn á þennan alþjóð- lega vinsældalista „túrhestanna", hefði turninn í Písa ekki sigið öðr- um megin má líklegt telja að borg- in væri eins og hver annar Gaul- verjabær á landakortinu. Vegna sögulegs aðalhlutverks síns á liðn- um öldum er Róm einn þeirra staða sem ofarlega eru á fyrr- nefndum vinsældalista. Þar eru varðveittar fágætar fornminjar, hringleikahúsið Colosseo og ein stórfenglegasta kirkja heims, Pét- urskirkjan. Það sem eykur þó enn meira sérstöðu borgarinnar er að í henni miðri er staðsett ríki í rfk- inu, Vatíkanið, lifandi miðstöð hins rómversk-kaþólska trúarlífs. Þar hafa páfarnir 264, að Pétri postula fyrst töldum, kunngert boðskap sinn nær óslitið í yfir 19. aldir. Árla morguns, 11. júlí síðastlið- inn, var Péturstorgið í Róm setið stólum. Dúfnahópur vappaði um. Torgið hafði verið stúkað af með trégrindum, um nokkra innganga var áheyrendum hleypt inn á svæðið. Neðan við tröppur kirkj- unnar stóð yfirbyggður pallur með þremur stólum, hljóðnemum hafði verið stillt framan við þann þeirra sem stóð fyrir miðju og var stærri en hinir. Hans heilagleika Jó- hannesar Páls páfa var vænst til almennrar móttöku. Stuttu fyrir klukkan tíu tók sálmasöngur að berast úr öflugum hátölurum, dúfurnar flögruðu upp, en settust fljótt rólegar aftur. Ætla má að áheyrendur losuðu tug þúsunda. Nokkur stund leið, kórinn söng og einhverjir klöpp- uðu milli laga. Loks kom hvítur opinn jeppi akandi frá páfagarði, hans heilagleiki stóð á palli öku- tækisins og veifaði til mannfjöld- ans. Þannig ók bíllinn tvo hringi um torgið, Jóhannes Páll II brosti sínu hlýlega, góðlega brosi sem vott bar um innri ró. Sjálf athöfnin hófst. Fyrst var lesinn á sex tungumálum kafli úr fyrstu bók Genesis um sköpun mannsins. Páfi sat hvítklæddur í forsæti á pallinum, en honum til sitt hvorrar handar sátu dökk- klæddir þjónar kirkjunnar honum til aðstoðar. Meðan á athöfninni stóð hvarflaði hugurinn til ís- lenskra höfðingja sem héldu á fund páfa frá blóðugum orustu- velli Sturlungaaldar og leituðu fyrirgefningar synda sinna. Margt hefur breyst síðan og vegna varanleika síns er páfastóll góður mælikvarði síbreytilegs heims. Lífvörður Vatíkansins er að vísu sem fyrr til staður í litríkum bún- ingi sínum, en að mestu til skrauts. Nú leituðu háþróuð raf- eindatæki vopna á gestum. Lög- reglumenn vopnaðir skotvopnum fylgdust grannt með öllu og hinir eiginlegu lífverðir klæddir dökk- um jakkafötum fylgdu páfa sem skuggar. í miðri ræðu hans flaug breiðþota yfir, svona eins og til að undirstrika nútíðina. Til að koma boðskap sínum á framfæri mælti páfi á einum sex þjóðtungum; it- ölsku, frönsku, ensku, þýsku, spænsku og pólsku, en latinan fékk að hvíla ósnert. Rödd hans var hljómþýð og raddblærinn ekki ósvipaður og hjá gömlum mönnum er þeir segja barnabörnunum sin- um ævintýri. Meðal áheyrenda voru saman komnir hópar víðs- vegar að sem færðu páfa kveðjur sinar, hann þakkaði og bað þeim blessunar og var fagnað með lófa- taki og stuttum söng. Það var ekki fyrr en um hádegi að móttökunni lauk. Slikar at- hafnir eru þó aðeins lítill hluti alls þess sem Jóhannes Páll II þarf að inna af hendi í viku hverri. Til hans leita biskupar, erkibiskupar, klerkar og kardinálar. Hann ræðir við fréttamenn, stjórnmálamenn, ráðherra, forseta og konunga, auk þess að sækja þjóðlönd heim. Þannig hefur Jóhannes Páll páfi ekki einungis verið leiðtogi rómversk-kaþólsku kirkjunnar undanfarin ár heldur óþreytandi boðberi friðar og mannréttinda. Manila: Mótmæli við heimili Agrava Manilla, FilippHeyjum, 30. júlí. AP. HÓPUR kvenna safnaðist saman um helgina að heimili Corazon Agr- ava, formanns rannsóknarnefndar þeirrar sem kannar morðið á stjórn- arandstöðuforningjanum Beinigno Aquino á Filippseyjaflugvelli I fyrra. Konurnar höfðu uppi hróp og báru spjöld þar sem þær kröfðust þess að þjóðin fengi að vita allan sannleikann um málið og hrak- yrtu Agrava fyrir að halda hlífi- skildi yfir þeim sem raunverulega ábyrgð bæru á morðinu. Corazon Agrava, sem er 68 ára og fyrrverandi dómari, tók á móti fulltrúum kvennanna við heimili sitt, bar fram ávaxtasafa handa þeim að drekka og kexkökur og sagði þeim með tárin í augunum, að hún fullvissaði þær að sann- leikurinn ætti að koma í ljós. „Við erum ekki erum ekki hrædd við heitt," bætti hún við. Almenningi þykir störfum rannsóknarnefndarinnar miða seint en hún hefur nú starfað í nær átta mánuði. VARMO SNJÓBRÆÐSLJJKERR VARMO snjóbræðslukerfið nýtir affallsvatnið til að halda bílaplönum, götum, gangstéttum og heimkeyrslum auðum og þurrum á veturna. Við jarðvegsskipti og þess háttar framkvæmdir er lagn- ing VARMO snjóbræðslukerfisins lítill viðbótar- kostnaður og ódýr þegar til lengri tíma er litið. VARMO snjóbræðslukerfið er einföld og snjöll lausn til að bræða klaka og snjó á veturna. VARMO = íslensk framleiðsla fyrir íslenskt hitaveituvatn. VARMO = Þolir hita, þrýsting og jarðþunga. VARMO = Má treysta í a.m.k. 50 ár. VARMO = Heildarkerfi við allar aðstæður. BYGGINGAVÖRUR HE SUÐURLANDSBRAUT 4. SlMI 33331. Sjö„smá"atriði sem stundum eleymast VÍðlÆU á nýrri þvottavél IÞvottavél sem á að nægja venju- legu heimili, þarf að taka a.m.k. 5 kíló af burrum þvotti. því það ér ótrúlega fljótt að koma í hvert kíló af handklæðum, rúmfötum og bux- um. Það er líka nauðsynlegt að hafa sérstakt þvottakerfi fyrir lítið magn af taui, s.s. þegar þarf að þvo við- kvæman þvott. 2Pað er ekki nóg að hægt sé að troða 5 kílóum af þvotti inní vélina. Þvottavélin þarf að hafa mjög stóran þvottabelg og þvo í miklu vatni, til þess að þvotturinn verði skínandi hreinn. Stærstu heimilis- vélar hafa 45 Ktra bvottahdo 3Vinduhraði er mjög mikilvægur. Sumar vélar vinda aðeins með 400-500 snúninga hraða á mlnútu, aðrar með allt að 800 snúninga hraða. Góð þeytivinda þýðir ekki aðeins að þvotturinn sé Ójótur að þoma á snúrunni (sum efni er revnd- ar hægt að strauja beint úr vélinni), heldur sparar hún mikla orku ef notaður er þurrkari. 4Qrkuspamaður er mikilvægur. Auk verulegs sparnaðar af góðri þeyttvindu, minnkar raforkunotkun- in við þvottinn um ca. 45% ef þvottavélin tekur inn á sig bæði heitt og kalt vatn. 5Verðið hefur sitt að segja. Það má aldrei gleymast að það er verðmætið sem skiptir öllu. Auð- vitað er lítil þvottavél sem þvær Ktinn þvott í litlum þvottabelg, tekur aðeins inn á sig kalt vatn og þeyti- vindur illa, ódýrari en stór vél sem er afkastamikil, þvær og vindur vel og sparar orku. A móti kemur að sú litla er miklu dýrarí og óhentugrí ( rekstri og viðhaldsfrekari. ÓÞjónustan er atriði sem enginn má gleyma. Sennilega þurfa eng- in heimilistæki að þola jafn mikið álag og þvottavélar og auðvitað bregðast þær helst þegar mest reynir á þær. Þær bestu geta líka brugðist. Þess vegna er traust og fljótvirk viðhaldsþjónusta og vel birgur vara- hlutalager algjör forsenda þegar ný þvottavél er valin. 7Philco er samt aðalatriðið. Ef þú sérð Philco merkið framan á þvottavélinni geturðu hætt að hugsa um hin „smáatriðin" sem reyndar eru ekki svo lítil þegar allt kemur til alls. Framleiðendur Philco og biónustudeild Heimilistækja hafa séð fyrir þeim öllum: 5 kíló af þurrþvotti, 45 lítra belgur, 800 snúningar á mfnútu, heitt og kalt vatn, sanngjamt verð og ömgg þjónusta. Við erum sveigjanlegir í samningum! yertu oruesur yeldurhilco heimilistæki hf. HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 -15655
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.