Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.08.1984, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984 Pólland: Verðstöðvun framlengd Varsjá, 1. ágúst. AP. PÓLSKA stjórnin framlengdi i dag tímabundna verðstöðvun iðnaðarvöru fram til loka þessa árs. Talsmaður stjórnarinnar sagði að þessi ráðstöfun hefði verið gerð til að koma í veg fyrir ótímabærar verðhækkan- ir, sem mundu reynast þjóðfé- laginu hættulegar. Verðstððvuninni var komið á í apríl sl., en samkvæmt áætl- un stjórnarinnar er stefnt að því að verðlag hækki um 15—16% á þessu ári miðað við 21% á síðasta ári. Verðstöðvunin nær til fatn- aðar og búsáhalda, en ekki til neysluvöru. Ennfremur var skýrt frá þvi, að sum pólsk fyrirtæki fengju að hækka verð á vörum sínum til að bæta fyrir þann auka- kostnað, sem hlotist hefði af hækkuðu verði á hráefni. Þá var fyrirtækjum, sem fram- leiða munaðarvörur, leyft að hækka verð á þeim af sömu ástæðu. Eldur laus í flugvél Manama, Bahrain, 1. ágúst AP. UM EITT hundrað manns slös- uðust lítillega þegar eldur varð laus í farangursrými í farþega- flugvél á flugvellinum í Dubai. Um borð í þotunni voru 322 farþegar og var vélin á leið i loftið, en hún átti að halda til Kuwait. Slökkviliðsmenn náðu að ráða niðurlögum eldsins áð- ur en hann breiddist út til ann- arra hluta vélarinnar. Verið er að rannsaka eldsupptök. Cyklamat ekki krabbavaldandi? Washington, 1. ígnst. AP. NÝJAR rannsóknir á sykurlík- inu cyklamati, sýna að senni- lega er það ekki krabbameins- valdandi, en niðurstöður rann- sóknanna verða yfirfarnar á ný, til frekari vissu. Rannsóknarnefndin ætlar að fara aftur yfir niðurstöður sín- ar og færa þær síðan banda- ríska matvæla- og lyfjaeftirlit- inu. Það gæti leitt til þess að 15 ára gömlu banni á notkun cyklamats verði aflétt innan árs. Bankarán í Nevada Nevsdm, 1. igúst. AP. Bankastarfsmaður sagði að grímuklæddir vopnaðir menn hefðu ráðist inn á heimili sitt i gærkvöldi, bundið sprengju við sig og neytt sig til að horfa á sjónvarpið með þeim alla nótt- ina. í býtið hefðu þeir síðan farið með fulltrúann í þann banka sem hann vinnur við, og beðið eftir öðrum starfsmönnum til að þeir gætu komist inn í fjár- hvelfingu bankans. Allt hefði siðan gengið sam- kvæmt áætlun ræningjanna og höfðu þeir á brott með sér 92 þúsund dollara i bifreið banka- fulltrúans. Allan tímann hafði hann verið með sprengjuna bundna við sig, og það var ekki fyrr en lögreglan kom á vett- vang laust eftir kl. 8 í morgun að hún var gerð óvirk. Enn hefur ekkert spurst til bankaræningjanna. Afganistan: Orðrómur á kreiki um að Karmal sé sjúkur BABRAK Karmal, leiðtogi komm- únista í Afganistan, kann að vera alvarlega sjúkur eða jafnvel dauð- ur. Er þetta haft eftir áreiðanlegum heimildum í Moskvu, enda þótt frétt þessi hafi hvergi verið staðfest opinberlega. Karmal kom til Moskvu 9. júni sl. í stutta heimsókn, að þvi er sagt var í því skyni að njóta þar læknismeðferðar. En eftir meira en þrjár vikur hefur engin til- kynning verið gefin út um það, að hann sé farinn frá Moskvu. Sú tilgáta, að Karmal sé al- varlega veikur hlaut byr undir báða vængi er Perez de Cuellar, aðalframkvæmdastjóri Samein- uðu þjóðanna, kom í opinbera heimsókn til Moskvu fyrir nokkru. Eitt mikilvægasta málið, sem til umræðu var á meðan heim- sókn hans þar stóð yfir, var Afg- anistan, en ekkert þykir hins vegar benda til þess, að Karmal hafi tekið þátt í þeim umræðum. Sendiráðsmenn frá Pakistan telja sig að undanförnu hafa orð- ið vara við vinsamlegri afstöðu Sovétstjórnarinnar. Þetta gæti verið fyrirboði þess, að Sovét- stjórnin undirbúi nú stefnu- breytingu varðandi Afganistan og þá einmitt í tengslum við nýja valdhafa i landinu. Fyrir þremur vikum var það haft eftir áreiðanlegum heimild- um í Kabúl, höfuðborg Afganist- ans, að komið hefði til uppgjörs Karmal milli ráðherra innan kommún- istastjórnarinnar í landinu. Lauk því með því, að varnar- málaráðherrann, Abdul Qadar hershöfðingi, dró skammbyssu sína úr slíðrum og skaut á sam- göngumálaráðherrann, Aslam Watanjar, svo að hann særðist alvarlega. Jafnframt á Barbrak Karmal að hafa særzt. Á það að hafa verið skýringin á skyndi- legri för hans til Moskvu. Þeir Qadar og Watanjar til- heyra hvor sínum armi kommún- istaflokksins f Afganistan og eiga deilur innan flokksins milli þessara fylkinga að hafa verið ástæðan fyrir uppgjörinu milli þeirra tveggja. Sá fyrrnefndi er talinn vera skipuleggjandinn að baki stjórnkerfi kommúnista í Afganistan. Þá hefur sá orðrómur enn- fremur komizt á kreik, að enn einn ráðherra í stjórn Afganist- ans hafi verið myrtur. Er það Abdul Wakeel fjármálaráðherra og mun morðið á honum standa í sambandi við uppgjörið milli tveggja framangreindra ráð- herra. Felldu tillögu Mitterrands París, 1. igúst. AP. Stjórnarandstaöan í Frakklandi samþykkti á þriöjudag aö taka ekki til umfjöllunar tillögu Francois Mitt- errands, forseta, um þjóöarat- kvæðagreiöslu og felldi þar meö til- löguna, þar sem stjórnarandstaðan hefur meirihluta á þingi. Mitterrand stakk upp á stjórn- arskrárbreytingu í byrjun júlí um þjóðaratkvæðagreiðslu í ýmsum grundvallarmálum. Eftir nokkurra daga viðræður, ákváðu íhaldsflokkarnir að hindra umfjöllun tillögunnar, þegar hún verður tekin fyrir 7. og 8. ágúst nk. Stjórnarandstaðan heldur því fram að þjóðaratkvæði dragi úr völdum þingsins og vilja ekki heimila að málum sé skotið til þjóðarinnar í ríkari mæli en gert er ráð fyrir í stjórnarskránni. Reknir úr bridgekeppni fyrir svindl Boston, 1. ágúst. AP. FIMM bridgespilarar, sem sakaðir hafa verið um ólögleg handamerki í landsmóti Bandaríkjanna, hafa veriö reknir frá keppni og þeim bannaö að spila. Þeir fá ekki heldur aö taka þátt í heimsmóti, sem fram á aö fara í Nýju Delhí á næsta ári. „Þetta er dapurleg saga,“ var haft eftir Fadi Farah, einum af hinu brottræku bridgespilurum í dag. Hann neitaði því afdráttar- laust, að þeir félagar hefðu haft rangt við og sagði: „Við munum áfrýja þessum úrskurði." Bridgespilararnir voru gerðir brottr^ekir í kjölfar ásakana frá andstæðingum þeirra um meint svindl. Var þvi haldið fram, að þeir notuðu ákveðnar merkjasend- ingar við sagnir. Upptökutækjum fyrir myndbönd var komið fyrir með leynd til þess að fylgjast með spilamennsku þeirra og verða myndböndin notuð sem sönnun- argögn, er málið verður tekið fyrir. Indland: 41 beið bana í umferðarslysi Nýju Delhf, 1. igúst AP. 41 LÉT lífið þegar ökumaður yfir- fulls langferðabils missti stjórn á honum með þeim afleiðingum að hann lenti í skurði á Austur- Indlandi. Atvikið varð með þeim hætti að sprakk á langferðabílnum og fór hann þvi út af veginum. Er jafnvel óttast að fleiri kunni að látast af völdum slyssins. Bretland: Uppnám á fundi í Neðri málstofunni London, 1. ájfúst. AP. MIKIÐ uppnám varð í Neöri mál- stofu breska þingsins, rétt áður en þingi var slitið fyrir sumarleyfi, er stjórnarandstaöan réöst harkalega á ríkisstjórn Margrétar Thatcher fyrir stefnu bennar í efnahags- og iðnað- armálum. Gifurleg læti urðu þegar fjár- málaráðherra Breta, Nigel Law- son, sagði að sá gróði sem fengist hefði við að starfrækja ekki kola- námurnar meðan á verkfalli námumanna stendur, væri fjár- festing i þjóðarhag. Þá stóðu frammámenn Verkamannaflokks- ins upp með hrópum og köllum og vildu mótmæla þessum ummæl- um. Lawson virtist nokkuð hissa á viðbrögðunum til að byrja með, en áttaði sig svo á misskilningum og sagðist að sjálfsögðu ekki hafa átt við að verkfall námumanna væri góð fjárfesting. Leiðtogi Verkamannaflokksins, Neil Kinnock, fór fram á aukafund á miðvikudag til að ræða ummæli Lawsons, en frú Thatcher og fylg- ismenn hennar neituðu að verða við þeirri kröfu. Þetta var síðasta mál á dagskrá þingsins áður en þingmenn fóru í sumarleyfi, en þingið kemur sam- an á ný 22. október.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.