Morgunblaðið - 02.08.1984, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
Sérstök dagskrá
ætluð ferðamönnum
íslandsmót og
hestamót
Skagfirðinga
UM verslunarmannahelgina halda
Skagfirðingar sitt árlega hestamót með
gæðingakeppni og kappreiðum. Einnig
standa íþróttadeildir { Skagafirði og
íþróttadeild Þyts í Vestur-Húnavatns-
sýslu fyrir fslandsmóti í hestaíþróttum.
íslandsmótið hefst á föstudag
klukkan 9 með forkeppni i gangteg-
undakeppnum. Gæðingar verða
dæmdir á laugardag og seinnipart-
inn verða undanrásir kappreiða. Á
laugardag verður fram haldið keppni
fslandsmótsins og á sunnudag verða
úrslit { öllum greinum og lýkur þvi
um 15.30. Þá hefjast úrslit f gæð-
ingakeppni og að því loknu hefjast
úrslit kappreiða. Aætlað er að mót-
inu ljúki klukkan 19 á sunnudag.
Að sögn Sveins Guðmundssonar er
eþátttaka bæði i kappreiðum og
mdsmóti og sagði hann að margir
kæmu að sunnan til þátttöku i báð-
um mótunum. V.K.
í SUMAR verður sérstök
dagskrá hjá Listamiðstöðinni hf.
í nýja húsinu á Lækjartorgi, 2.
hæð, sem einkum er ætluð
ferðamönnum og þeim sem hafa
skemmtun af þjóðlaga- og vísna-
tónlist. Þar verður boðið upp á
þjóðlagadagskrá minnst tvisvar í
viku þ.e. á fimmtudögum og
sunnudögum kl. 20.30.
Þau sem sjá um dagskrána eru
Bergþóra Árnadóttir, Gísli Helga-
son, Ingi Gunnar Jóhannsson,
Steingrimur Guðmundsson og
Örvar Aðalsteinsson. Þau flytja
þjóðlög frá ýmsum tímum og tölu-
vert af nýlegu efni sem telst til
vísnatónlistar.
Þessar skemmtanir fara fram í
húsnæði Listamiðstöðvarinnar við
Lækjartorg í sýningarsal fyrir-
tækisins. Þar gefst ferðamönnum
og öðrum einnig tækifæri til að
sjá myndir eftir íslenska lista-
menn. Myndirnar eru bæði til sölu
og leigu. f sumar verða einnig sér-
staklega til sýnis 12 myndir eftir
Hauk Halldórsson, en allar mynd-
irnar tengjast tröllasögum úr is-
lenskum þjóðsögum.
Sýningarsalurinn er opinn alla
daga frá kl. 14.00-18.00 og til
viðbótar þegar þjóðlagadagskráin
er.
(Úr fréttatilkynningu)
Rolf Wirtén forstjóri Ansvars — tryggingakeðju fyrir bindindismenn:
Sérstakur bónus fyrir
„heilbrigða hópinn“
ROLF Wirtén, forstjóri Ansvars,
tryggingafyrirtækja fyrir bindind-
ismenn, var staddur hér á landi
vegna aðalfundar Ábyrgðar, tryeg-
ingafélags bindindismanna á Is-
landi, en fundurinn var haldinn i
Reykjavík í maí síðastliðnum.
Fyrsta Ansvar-tryggingafyrirtækið
hóf starfssemi sína í Svfþjóð árið
1932. Var það fyrsta fyrirtæki sinn-
ar tegundar og bauð bindindis-
mönnum lægri iðgjöld en áður
þekktust. Rolf Wirtén, sem var
fjármálaráðherra í Svíþjóð
1977—1982 hóf störf sem forstjóri
Ansvar-keðjunnar í upphafi ársins
1983, en Ansvars—fyrirtækin eru
starfrækt í 13 löndum í fjórum
heimsálfum. Svo skemratilega vill
til að þegar Rolf Wirtén starfaði
sem fjármálaráðherra, veitti hann
Ansvar í Svíþjóð leyfi til að selja
bindindismönnum líftryggingar á
séretökum kjörum og með sér-
stöku bónuskerfi. „Þá grunaði mig
ekki að ég ætti sjálfur eftir að
verða forstjóri Ansvar," segir Rolf
Wirtén meðal annars í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins sem
ræddi við hann meðan hann var
staddur hér á landi.
Ansvar-tryggingafyrirtækin
bjóða eingöngu þeim er ekki
neyta áfengis að tryggja hjá sér.
En hvers vegna?
„Það er sannað mál að þeir
sem aldrei neyta áfengis eru
miklu minni áhættuhópur en
þeir sem neyta áfengis, þó þeir
neyti þess í litlum mæli,“ segir
Rolf Wirtén. „Þegar Ansvar var
upphaflega stofnað, var hug-
myndin sú að gefa bindindis-
mönnum kost á því að greiða
lægri iðgjöld fyrir bifreiðatrygg-
ingar, þar sem útgjöld vegna
umferðaróhappa bindind-
ismanna voru mun minni en
þeirra sem neyttu áfengis. Þetta
var árið 1932, en siðan hefur
fyrirtækið fært út kvíarnar og
Rolf Wirtén forstjóri Ansvars-
tryggingakeðjunnar og fyrrverandi
fjármálaráðherra Svíþjóðar.
býður nú upp á alhliða trygg-
ingar, heimilistryggingar, ferða-
tryggingar og nú síðast liftrygg-
ingar með sérstöku bónuskerfi.
Þá tók Ansvar að selja trygg-
ingar utan Svíþjóðar fyrir
nokkrum árum og nú vinna fé-
lögin saman í samvinnukeðju í
13 löndum."
Þú talar um sérstakt bónus-
kerfi í líftryggingunum. Hvað
felst í því?
„í fyrsta lagi eru það eingöngu
bindindismenn á áfengi sem fá
að tryggja hjá okkur. Það verður
að vera vottfest af tveimur aðil-
um að viðkomandi bragði ekki
áfengi. Strax við það að tryggja
hjá Ansvar greiðir hann lægri
iðgjöld en annars staðar, sem er
fyrsti bónusinn. Ef hann reykir
ekki fær hann aukinn bónus og
neyti hann hollrar fæðu og lifi
heilsusamiegu lífi fær hann enn
meiri bónus. Þar að auki fær
hann hluta iðgjaldsins greiddan
til baka þegar hann fer á elli-
laun.“
Hversu mikið fær hann þá
greitt til baka?
„Enn sem komið er vitum við
það ekki. En það er augljóst að
sá sem ekki neytir áfengis eða
tóbaks og borðar hollan mat og
stundar einhvers konar heilsu-
rækt er ekki i sama áhættuhópi
og annar aðili sem drekkur,
reykir, og hugsar ekki um
heilsusamlegt líferni. Mismun-
urinn á útgjöldum tryggingafyr-
irtækisins vegna „heilbrigða
hópsins" annars vegar og
„áhættuhópsins" hins vegar er
sá mismunur sem „heilbrigða
hópnum“ verður greiddur til
baka, en þar sem þetta er nýtil-
komið er enn ekki hægt að sjá
hve mikill mismunurinn er.“
Hvaða tryggingar geta þessir
„heilbrigðu aðilar" þá keypt?
„Allar almennar tryggingar og
þar með talda líftryggingu."
Að lokum ein persónuleg sam-
viskuspurning. Tilheyrir þú
sjálfur þessum „heilbrigða
hópi?“
„Já, það tel ég. Ég hef aldrei
drukkið áfengi og hef aldrei
reykt. Ég reyni að borða hollt
fæði, mikið af grænmeti og lítið
feitmeti og svo stunda ég íþrótt-
ir þegar ég hef tök á því. Það er
ánægjulegt að sjá hve mikið af
unga fólkinu neytir ekki áfengis.
Mér virðist sem þeim fari fjölg-
andi unglingunum, sem þora að
segja „nei takk“ þegar þeim er
boðið í glas og það er afskaplega
ánægjuleg þróun. Eins er aukið
tillit tekið til þeirra, sem ekki
vilja neyta áfengis nú en áður.
Sem dæmi get ég nefnt aukning-
una á óáfengum drykkjum sem
nú er boðið upp á svo að segja
hvar sem er.“
Eins og áður segir, var Rolf
Wirtén staddur hér á landi
vegna aðalfundar Ábyrgðar, en
hann hyggst heimsækja öll að-
ildarlönd Ansvar fyrir sumarlok.
Btom
Frá Gauknum ’83.
Þjórsárdalur:
Gaukurinn ’84
Um verslunarmannahelgina
verður útisamkoma { Þjóreárdal á
vegum Héraðssambandsins
Skarphéðins og Ungmennasam-
bands Kjalarnesþings. Ber þessi
samkoma heitið Gaukurinn ’84 og
er þetta annað árið í röð sem þessi
héraðssambönd halda útisam-
komu í Þjórsárdalnum.
Líkt og síðasta ár verður
skemmtidagskrá á samkomunni.
HLH-flokkurinn kemur fram,
sýndur verður skrykk-dans,
Kiza-flokkurinn sýnir bardaga-
list, haldnir verða hljómleikar,
keppni í forníþróttum og flutt
verður hátíðarræða. Hljómsveit-
in Bara-flokkurinn og Lotus
leika fyrir dansi öll kvöldin á
tveimur pöllum frá kl. 21—3.
Auk þess verður leikið af plöt-
um.
Aðgönguverð á mótssvæðið er
900 kr. og verða sætaferðir alla
helgina, 200 kr. aðra leið, þ.e. frá
Reykjavík og einnig til.
(Fréttatilkynning)
Útivist um helgina
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist fer f níu
ferðir um verslunarmannahelgina.
Á morgun er lagt af stað í
Þórsmörkina kl. 20 og verður
gist í skála Útivistar í Básum.
Ferðin stendur fram á mánudag
en á laugardag kl. 8 verður 3ja
daga Þórsmerkurferð hafin. Þá
verður einnig boðið upp á eins-
dagsferð. Á morgun kl. 20 er
einnig farið í 4 daga ferð í
Skaftafell og 4 daga ferð að
Lakagígum. Sama dag er haldið
til Purkeyjar, á Kjöl og Kerl-
ingarfjöll, til Hornstranda, að
Lómagnúpi og loks á sunnudag
kl. 13 er haldið í dagsferð á Esj-
una. Á verslunarmannafrídag-
inn, mánudag, verður farið í sér-
staka ferð í tilefni dagsins. Þá
verður gengið frá Höfnum að
amla kaupstaðnum Básendum.
þá ferð verður lagt af stað kl.
13. (fr frétUtilkynniogu.)
Borgarfjörður:
Dansað að Logalandi
HLJÓMSVEITIN Upplyfting verða við Logaland og verða
leikur á þremur dansleikjum að varðeldar kyntir á kvöldin.
Logalandi í Borgarfirði um Sætaferðir verða frá BSÍ,
verslunarmannahelgina. UMSB Akranesi, Borgarnesi og Húsa-
heldur dansleikina, en auk felli. Aðgangseyrir inn á tjald-
þeirra verða útihljómleikar og stæðið verður 250—300 krónur.
óvæntar uppákomur. Tjaldstæði (Frétutiikynning)
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær
Sjafnargata
Bólstaöarhlíö 40—56
Bólstaöarhlíö 58—68
Grettisgata 37—98
Flókagata 1—51
Úthverfi
Fannarfell
Hlaöbær o.fl.
Stórageröi stakatala
Vesturbær
Fornhagi
Gnitanes
Flyörugrandi 2—16