Morgunblaðið - 02.08.1984, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
35
Sænsk glysrokksveit
á ferðalagi um ísland
SÆNSKA glysrokksveitin Candy Roxx
er komin til landsins og mun á næstu
vikum ferðast vítt og breitt um ísland
og efna til tónleika. Candy Roxx til-
beyrir þeim hópi hljómsveita, sem
leika það sem kallað er á ensku
„glamrock". Á meðal frægra manna,
sem leikið hafa þessa tónlist, má nefna
Gary Glitter, Kiss, finnsku sveitina
Hanoi Rocks og fleiri. Candy Roxx hef-
ur m.a. komið fram á tónleikum með
Kiss og Whitesnake, kunnri breskri
þungarokksveit.
Candy Roxx er skipuð sex
mönnum, sem allir eru á aldrinum
18 til 23 ára: Magnus Brunzell, Tord
Peterson, Ulf Waldecrantz, Johan
Malmgren, Johan Boding og Mats
Johannson. Fyrstu tónleikar Candy
Roxx hérlendis verða á morgun,
fimmtudag, í Safari. Á föstudag mun
hljómsveitin leika að Logalandi í
Borgarfirði ásamt Upplyftingu og
síðan á útihátíðinni í Viðey á laug-
ardag. Á sunnudag og mánudag
verður hún svo í skemmtistaðnum
H-100 á Akureyri.
Candy Roxx hefur þegar vakið
nokkra athygli í Svíþjóð og víðar.
Fyrsta plata sveitarinnar er í bígerð
og tónleikahaldið hér á íslandi er
liður í umfangsmikilli tónleikaferð
um Norðurlöndin. Leikur sveitin á 80
tónleikum áður en hún tekur sér
hvíld.
Ágústfriður
Sænska glysrokksveitin Candy Roxx verður á ferðinni víðs vegar um land um
helgina.
Friðarhreyfing Þingeyinga gengst
fyrir fundum og skemmtunum um
land allt frá og með deginum í dag til
12. ágúst, undir heitinu Ágústfriður.
Ágústfriður er skipulagður f
samráði við aðrar friðarhreyfingar
á landinu, sem og heimamenn á
einstökum stöðum. Ágústfriðurinn
verður boðaður með sérstakri
menningar- og fræðsludagskrá,
sem lýkur síðan með dansleik við
undirleik hljómsveitarinnar Kam-
arorghesta.
Friðaraðgerðir þessar hefjast á
Höfn í Hornafirði í dag og fara
síðan andsælis um landið: Sauð-
árkrókur 6. ágúst, Akureyri 7., ísa-
fjörður 9., Akranes 10., Keflavík
11. og Selfoss 12. ágúst.
Dagskráin á Höfn hefst kl. 21 í
kvöld í Sindrabæ. Þar koma fram
dr. Gunnar Kristjánsson, Arnþór
Helgason og Guðrún Hólmgeirs-
dóttir, tónlistarmenn, Sigurður
Hannesson, úr Leikfélagi Horna-
fjarðar, Þorsteinn Vilhjálmsson
eðlisfræðingur og Bergljót Ingva-
dóttir frá Samtökum um friðar-
uppeldi.
Hljómsveitin Kamarorghestar
er skipuð 5 Islendingum, sem bú-
settir eru í Kaupmannahöfn. Þau
spila nær eingöngu frumsamið efni
og hafa gefið út hljómplötuna Bís-
ar f banastuði. Meðfylgjandi mynd
er af meðlimum Kamarorghesta.
(Úr frétUtilkynninKu)
Gos í Geysi
Ákveðið hefur verið að setja
sápu í Geysi laugardaginn 4.
ágúst næstkomandi kl. 15.00 og
má þá gera ráð fyrir gosi
nokkru síðar, ef veðurskilyrði
eru hagstæð.
(Frétutilkynníng)
Höfðar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
— Fæst i byggingavöruverskjnum
má/ning’f
vöruverslunum um land allt
Skip Sambandsins munu ferma til íslands
á næstunni sem hór
segir: HULL/GOOLE:
Dísarfell 6/8
Dísarfell 20/8
Dísarfell 3/9
Dísarfell 17/9
ROTTERDAM:
Dísarfell 9/8
Dísarfell 21/8
Dísarfell 5/9
Dísarfell 18/9
ANTWERPEN:
Dísarfell 10/8
Disarfell 22/8
Dísarfell 6/9
Dísarfell 19/9
HAMBORG:
Dísarfell 8/8
Dísarfell 24/8
Dísarfell 7/9
Dísarfell 21/9
HELSINKI/TURKU
Hvassafell 2/8
Hvassafell 25/8
LARVIK:
Jan 30/7
Jan 13/8
Jan 27/8
Jan 10/9
GAUTABORG:
Jan 14/8
Jan 28/8
Jan 11/9
KAUPMANNAHÖFN:
Jan 15/8
Jan 29/8
Jan 12/9
SVENDBORG:
Jan 2/8
Jan 16/8
Jan 30/8
Jan 13/9
ÁRHUS:
Jan 2/8
Jan 17/8
Jan 31/8
Jan 17/9
LENINGRAD:
Hvassafell 3/8
'l GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell 22/8
HALIFAX, KANADA:
Jökulfell 2/8
1 Skaftafell FALKENBERG: 23/8
Arnarfell 7/8
1 SKIPADEILD SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101