Morgunblaðið - 02.08.1984, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. ÁGÚST 1984
47
sínum og akademiskri kennslu i
eðlisfræði og jarðvísindum, auk
þess sem honum voru falin mörg
trúnaðarstörf á vegum háskólans,
sem hann rækti með prýði. Kynnt-
ist ég bezt kennslu hans í jarð- og
geimvísindum fyrir raungreina-
nemendur, sem tekin var upp við
Verkfræði- og raunvísindadeild
árið 1972 og við áttum nokkra
samvinnu um. Lagði hann mjög
mikla vinnu í undirbúning hennar
og gaf m.a. út kennslubókina Eðl-
isþættir jarðarinnar og bókina
Jarðsaga íslands um það leyti.
Hafa margir nemendur úr þeim
námskeiðum haft á orði, hve
áhrifamikil og menntandi kennsla
dr. Trausta hafi verið.
Dr. Trausti átti á sínum tíma
þátt í að Raunvísindastofnun Há-
skólans var sett á fót 1966, og
studdi hann jafnan að eflingu og
sjálfstæði hennar. Honum var vel
ljóst, að tæknilegar framfarir og
velmegun á íslandi yrðu að vera
grunduð á visindalegri þekkingu,
bæði á undirstöðulögmálum eðl-
isvísinda sem og á því umhverfi er
þjóðin býr við. Eins og hann sagði
sjálfur í viðtali við Mbl. haustið
1952, er það „... nauðsynleg
krafa, að einstaklingurinn hér sé
að sama skapi menntaðri og fær-
ari öðrum í starfi, sem við erum
fámennari en aðrir". Mælikvarði á
árangur okkar hlýtur þar að verða
sá, hvort við getum sjálfir skapað
þá viðbótarþekkingu og tækni, er
öðrum þjóðum þyki fengur í að
sækja til íslands. f slíku sköpun-
arstarfi var dr. Trausti Einarsson
tvímælalaust einna fremstur allra
þeirra visindamanna og kennara,
sem starfað hafa við Háskóla ís-
lands.
Leó Kristjánsson
Sú kynslóð verkfræðinga og eðl-
isfræðinga sem stundaði nám við
verkfræðideild áratugina eftir
stríð mótaðist varanlega af þeim
merku mönnum, sem þar höfðu
valist til kennslu. Fremstir í þeim
hópi voru prófessorarnir Finnbogi
Rútur Þorvaldsson, Leifur Ás-
geirsson og Trausti Einarsson.
Trausti er okkur minnisstæður
sem afburðakennari, einkum i
þeim efnum sem voru honum hug-
leikin á sviði aflfræði og jarð-
fræði. Iðulega hafði hann sjálfur
bætt við fræðin eða hnotið um
kenningar, sem nutu almennrar
hylli en byggðu á veikum grunni,
sem honum sýndist við einfalda
fræðilega athugun að ekki gæti
staðist. Gegn þessum kenningum
réðst Trausti með skörpum rökum
og slíkum sannfæringareldi að
ekkert stóð fyrir.
En Trausti var ekki aðeins
áhrifamikill kennari heldur
ástriðufullur rannsakandi, sem lét
ekkert tóm ónotað til fræðistarfa,
svo lengi sem hann hafði þrek til.
Eftir hann liggur feiknmikið starf
á sviði jarðeðlisfræði og jarðfræði,
sem nánar verður lýst á öðrum
vettvangi. Hér mætti þó nefna
nokkur dæmi, sem hvert um sig
Birting
afmælis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort ljóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaósins.
llandrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
hefði nægt til að halda nafni hans
á lofti.
Trausti lét fyrst að sér kveða á
sviði jarðhita og varð landskunnur
fyrir hlut sinn til að vekja gos í
Geysi. Skýringar hans á uppruna
og eðli jarðhita eru enn sá grund-
völlur sem meginhluti jarðhita-
rannsókna byggist á. Hann gerði
merkar athuganir á eðliseiginleik-
um hrauns og á gosmekki Heklu
1947—48. Reikningar hans um
hegðun gosmakkarins hafa fram á
síðustu ár vakið óskipta athygli
eldfjallafræðinga. Trausti gerði
ítarlegar mælingar á þyngdarsviði
landsins og uppgötvaði þá þyngd-
arlægð sem einkennir berggrunn-
inn undir landinu. Hann lagði með
Þorbirni Sigurgeirssyni grundvöll
að bergsegulmælingum og beitti
mælingum á segulstefnu í hraun-
um til að flokka bergið í syrpur
eftir segulsviðsskeiðum. Þessar
mælingar urðu honum lykill að
gerð og sögu basaltstaflans sem
hann kortlagði i flestum lands-
hlutum. Hann gerði kort af berg-
lagahalla landsins og fyrstu
drætti af brotlínukerfi sem ræður
lögun þess. Hann skýrði fyrstur
skjálftasprungur á Suðurlandi og
spennusvið sem þar ríkir. Trausti
gerði merkar athuganir á sjávar-
stöðu og myndunarsögu land-
grunns og tengdi þær reikningum
um jökulfarg og seigju berggrunns
undir landinu.
í mörgum þessara starfa var
Trausti langt á undan sínum sam-
tíma og verk hans voru ekki metin
að verðleikum fyrr en áratugum
seinna. Hann var einyrki í rann-
sóknum, borið saman við þá hóp-
vinnu sem nú tfðkast á stofnunum.
Hann birti verk sín að mestu f
íslenskum fræðiritum og hirti lftið
um þá frægð sem þau hefðu getað
aflað honum á alþjóðavettvangi.
Erlendir fræðimenn sem hingað
komu til sumarstarfa voru hins
vegar fljótir að átta sig á því
hvern mann Trausti hafði að
geyma.
Á seinni árum var Trausti best
þekktur meðal yngri manna fyrir
gagnrýni sina á landrekskenning-
una og beitingu hennar i túlkun
jarðfræði landsins. Reyndar hafði
hann sjálfur lagt stóran skerf til
hennar í byrjun með bergsegul-
mælingum og skrifum sfnum um
vesturfærslu Grænlands. Hann
hefði allt eins getað orðið einn af
höfuðpostulum þessarar kenning-
ar, hefði hann látið öðrum frjálst
að túlka verk sin i þá átt. En slikt
var honum ekki að skapi. Honum
þótti landreksmenn fara léttúð-
lega með gögn og horfa fram hjá
ýmsum þáttum sem í hans huga
voru grundvallaratriði. Hann taldi
það fræðilega skyldu sina að
benda á veilur í forsendum kenn-
ingarinnar og var þar fundvís á
ýmsa bresti. Mörg skeyti hans
gerðu slíkan usla í herbúðum and-
stæðinganna að langan tima tók
að fylkja liði að nýju. Þegar á leið
og heilsu Trausta fór hrakandi,
átti hann erfiðara með að fylgjast
með þróun rannsókna sem marg-
földuðust á þessu sviði. Skeyti
hans hittu þá sjaldnar i mark en
aldrei taldi hann sér orustuna tap-
aða.
Ég naut þeirra forréttinda að
leita ráða hjá Trausta sem kenn-
ara á námsárum mínum og síðar í
rannsóknarstörfum. Oftast voru
þeir fundir á vinnustað Trausta í
stofunni heima, umvafðir þeirri
hlýju og umhyggju sem Nfna
veitti í sínu umhverfi. Hún sá
jafnan fyrir nægu kaffi, kökum og
konfekti en gætti þess jafnframt
að trufla ekki þær áköfu umræður,
sem þar fóru fram. Þó kom það
fyrir, að hún taldi sér vissara að
huga að gestunum, ef henni heyrð-
ist sannfæringareldurinn vera
fara að brenna um of hjá bóndan-
um. En þess gerðist ekki þörf, þvi
að þetta voru hápunktar fundanna
og ógleymanlegustu kennslu-
stundir okkar félaganna.
Sveinbjörn Björnsson
Hugurinn leitar nær hálfa öld
aftur f timann til ársins 1935 þeg-
ar ég var i fimmta bekk Mennta-
skólans á Akureyri. Þá kom til
skólans nýr kennari, dr. Trausti
Einarsson, sem nýkominn var
heim frá stjörnufræðinámi í
Þýskalandi. Hann kenndi stærð-
fræði og eðlisfræði og varð aðal-
kennari okkar í stærðfræðideild-
inni, sem þá var aðeins tveggja
ára gömul. Hinn nýi kennari þótti
strangur, en enginn efi lék á þvi,
að hann lagði sig allan fram við að
útskýra hin torskildu fræði og alla
þá leyndardóma, sem okkur var
ætlað að kynnast. Hann benti
okkur á þann styrk, sem þekking á
undirstöðulögmálum náttúrunnar
veitir, útskýrði nýjar uppgötvanir
um eðli hluta og uppbyggingu efn-
isins og vakti áhuga okkar á for-
vitnilegum, óskýrðum fyrirbær-
um. Áhugi kennarans á efninu var
augljós og smitaði út frá sér. Hvað
mig snerti var kennsla þessi
áhrifameiri en nokkur önnur, sem
ég hefi hlotið, enda var ég i engum
vafa þegar líða tók að stúdents-
prófi, að ég mundi velja eðlisfræði
ef um framhaldsnám yrði að ræða.
Þrátt fyrir þá miklu alúð, sem
Trausti lagði við kennsluna voru
rannsóknir alla tíð aðaláhugamál
hans. Viðfangsefnin voru marg-
vísleg. Eftir heimkomuna gat
hann ekki haldið áfram rannsókn-
um i sérgrein sinni, en sneri sér
þvi meira að jarðvísindum. Brátt
varð hann landskunnur fyrir að
endurvekja Geysi i Haukadal og
síðan fylgdu almennar rannsóknir
á jarðhita landsins, sem opnuðu
augu manna fyrir eðli jarðhitans
og sýndu að heitar uppsprettur
voru í eðli sínu svipaðar þeim
köldu, en vatnið fór lengra niður
og komst í snertingu við heit jarð-
Heklugosinu 1947—48 gafst
sérstakt tækifæri til að fylgjast
með einum þætti í myndunarsögu
landsins og það var líka óspart
notað. Trausti var þá orðinn pró-
fessor við háskólann og hafði sína
kennsluskyldu, en eldgosið rann-
sakaði hann um helgar og hvenær
sem færi gafst ásamt öðrum
jarðfræðingum. Þrátt fyrir erfiðar
aðstæður var fylgst með gosi og
hraunrennsli af mikilli nákvæmni,
en þar kom allt, sem flokka má
undir jarðeðlisfræðilegar mæl-
ingar, í hlut prófessors Trausta,
sem smíðaði sin eigin tæki til
hitamælinga og seigjumælinga í
hrauninu. Þetta er í fyrsta skipti,
sem nákvæm athugun er gerð á
eldgosi hér á landi, en hið mikla
Heklurit þeirra Trausta Einars-
sonar, Sigurðar Þórarinssonar og
Guðmundar Kjartanssonar ber
þessu starfi ljósast vitni.
Af öðrum rannsóknum prófess-
ors Trausta skal hér aðeins nefna
þyngdarmælingar og bergsegul-
mælingar. Þyngdarkraft jarðar
mældi hann á fjölda staða um allt
land, gerði á fáum árum þyngdar-
kort af öllu landinu og dró álykt-
anir um gerð jarðskorpunnar und-
ir Islandi og flotjafnvægi lands-
ins.
Næsta meginverkefnið við berg-
segulmælingar, en þar átti ég því
láni að fagna að kynnast vinnu-
brögðum Trausta sérstaklega vel.
Þar sat vandvirknin jafnan í
fyrirrúmi og engin fyrirhöfn var
talin eftir ef auka mátti öryggi at-
hugananna. Við ferðuðumst mikið
saman í nokkur ár á meðan
Trausti kortlagði útbreiðslu rétt
og öfugt segulmagnaðs bergs, en
ég safnaði sýnum til mælinga í
rannsóknastofu. Á þessum ferða-
lögum hélt minn gamli lærifaðir
áfram að fræða mig, en nú var
viðfangsefnið myndun landsins og
hvað gerðist á liðnum skeiðum
jarðsögunnar.
Niðurstöður rannsóknanna urðu
í fyrsta lagi staðfesting á uppgötv-
un, sem hollenskur jarðfræðistúd-
ent hafði gert hér nokkrum árum
áður, að berginu mætti skipta i
tvo hópa. Rétt segulmögnuð berg-
lög, sem segulmögnuð voru í sam-
ræmi við segulsvið jarðar, og
öfugt segulmögnuð lög, þar sem
segulmögnunin stefndi á móti
jarðsviðinu. I öðru lagi var dregin
sú ályktun að hvert segullag hlyti
að stafa frá ákveðnu jarðsögu-
skeiði og að stefna segulmögnun-
arinnar réðist af stefnu jarðsvið-
sins á þeim tíma. Allt benti til
þess að áður hefði segulsvið jarðar
eins oft haft þveröfuga stefnu við
þá, sem það hefur nú. Með kort-
lagningu segullaganna var enn-
fremur innleidd ný tækni til jarð-
fræðirannsókna og er hún nú al-
mennt notuð af jarðfræðingum,
sem rannsaka basaltsvæði, þar
sem hún gefur glögga mynd af
aldri bergsins.
Prófessor Trausti Einarsson
hefur verið mér ímynd hins sanna
visindamanns, sem hlýðir köllun
sinni á hverju sem gengur. Lengst
af voru fæturnir aðal farartækið
og rannsóknatíminn takmarkaður
af miklum kennslustörfum, en
þrátt fyrir það var prófessor
Trausti einn af okkar afkasta-
mestu vísindamönnum bæði hvað
snertir athuganir og ritsmíðar.
Starf hans ber með sér öll merki
frumherjans, sem vinnur sjálf-
stætt og fer sínar eigin brautir.
Um leið og ég kveð læriföður
minn og starfsfélaga vil ég þakka
góðar leiðbeiningar á liðnum ár-
um og langt samstarf við kennslu
og rannsóknir.
Frú Ninu, Kristínu og öðrum
ástvinum sendum við hjónin inni-
legar samúðarkveðjur.
Þorbjörn Sigurgeirsson
NORÐDEKK
heílsóluð radtal dekh,
íslensk framletdsía.
Framleiðandi Gúmmívinnustofan hf,
Réttarhálsi 2, R.
Við tökum fulla ábyrgð
á okkar framleiðslu
Umboðsmenn um allt land
Reykjavík
Gúmmivinnustofan hf, SWPHOLTI 35. s. 31055 & 30360
Gúmmívinnustofan hf, RÉTTARHÁLSI 2. s.84008 & 84009
Höfðadekk hf, TANGARHÖFÐA 15. s.85810
Hjólbarðastnðin sf, SKEIFAN 5. s. 33804
Hjólbarðahöllin, FELLSMÚLA 24. s.81093
Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns, HÁTÚNI 2a. s. 15508
Hjólbarðaverkstæði Jóns Olafssonar, ÆGISSÍÐU. s.23470
Holtadekk sf, BJARKARHOLTL s.66401
Landið
Hjólbarðaverkstæði Björns, LYNGÁS 5, RANG. s.99-5960
Kaupfélag Árnesinga, SELFOSSI, s.99-2000
Vélaverkstæði Björns og Kristjáns, REYÐARFIRÐL s.97-4271
Ásbjörn Guðjónsson,STRANDGÖTU 15a, ESKIF'IRÐL s.97-6337
Hjólbarðaverkstæði Jónasar, ÍSAFIRÐL s.94-3501
Hjólbarðaþjónustan, HVANNAVÖLLUM 14b, AKUREYRL s 96-22840
Smurstöð SheU -01is,FJÖLNISGÖTU 4a, AKUREYRl. s.96-21325
Bifreiðaverkstæði Ragnars Guðmundssonar, SIGLUFIRÐL s. 96-71860
Dagsverk, VALLAVEGL EGILSSTÖÐUM. s.97-1118
Hjólbarðaviðgerðin hf, SUÐURGÖTU 41, AKRANESL s.93-1379
Hjólbarðaþjónustan, DALBRAUT 13, AKRANESL s.93-1777
Bifreiðaþjónustan hf, ÞORLÁKSHÖFN. s.99-3911
Hjólbarðaþjónustan, BORGARBRAUT 55, BORGARNESLs.93-7858
Bifreiðaverkstæði Bjama, AUSTURMORK 11, HVERAGERÐL s.99-4535
Aðalstöðin hf, HAFNARGÖTU 86, KEFLAVÍK. s 92-1516
Hjólbarðaverkstæði Hallbjöms, HNJÚKABYGGÐ 31, Bl.ÖNDUOSI, s.95-4400