Morgunblaðið - 11.08.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1984
21
Sprenging á flugvelli
Brak fjarlægt á Madras-flugvelli eftir hina miklu sprengingu á dögunum þegar 32 létu lífið.
Nú skal blásið í
hugsjónaglæðurnar
Moskvu, 10. ágúst. AP.
HÁTTSETTUR íélagi í miðstjórn
Komsomol, æskulýðssamtaka
kommúnistaflokksins, lagði í dag
fram álitsgerð þar sem hvatt er til
þess, að kynt verði betur undir hug-
sjónaeldi ungra stúlkna og kvenna
og aukin áhersla lögð á starf þeirra
fyrir flokkinn.
Viktor Mishin, aðaðlritari
Komsomol, lagði skýrsluna fram á
miðstjórnarfundi samtakanna í
dag og er þar lögð megináhersla á
stóraukna hugsjónafræðslu meðal
ungs fólks, einkum þó ungra
stúlkna og kvenna. Segir, að nauð-
synlegt sé að auka kommúníska
fræðslu, efla þjóðerniskennd og
koma í veg fyrir óæskileg áhrif
kristinnar trúar og vestrænna
viðhorfa.
Kommúnistaflokkurinn og
frammámenn hans hafa að undan-
förnu borið sig illa vegna fallandi
gengi hinnar kommúnísku trúar
meðal æskunnar og virðist skýrsla
Mishins miðstjórnarmanns vera
tilraun til að klóra eitthvað í
bakkann í þessum efnum.
Kínverjar á mannfjölgunarráðstefnunni:
Mótmæla afstöðu
Bandaríkjamanna
Peking, 10. á|(Ú8t AP.
FULLTRÚAR Kína á mannfjölgun- hvertja til né fjármagna fóstur- börn en eitt. Þeir sögðu að á næstu
arráðstefnunni í Mexíkó sögðu í dag
að afstaða Bandaríkjanna til fólks-
fjölgunarvandamálsins í heiminum
væri tilraun til að troða skoðunum
sínum upp á aðra.
Fulltrúi Bandaríkjanna, James
Buckley, sagði á ráðstefnunni að
vandamálið mætti rekja til fjár-
hagsáætlana þróunarríkjanna og
sagði að framlag Bandaríkjanna
til lausnar málinu mætti ekki
eyðingar.
Kínverjar voru ekki alls kostar
ánægðir með þessi orð bandarfska
fulltrúans, og sögðu að Bandaríkin
vildu ráða fjárhagsaðgerðum ann-
arra þjóða. Þeir sögðu að Kína
hefði alla tíð verið fylgjandi getn-
aðarvörnum, fóstureyðingum og
ófrjósemisaðgerðum sem ráðum
við of hraðri mannfjölgun og hvet-
ur ungt fólk til að eiga ekki fleiri
árum væri búist við „barna-
sprengingu" í Kína, þar sem um 11
milljónir ungra para væru að
komast á giftingar- og barneigna-
aldur og því yrði þjóðin að vera
samhent við að halda mannfjöld-
anum í skefjum, svo þjóðin verði
ekki gjaldþrota ög hægt sé að sjá
öllum fyrir nauðþurftum.
Sveifyfir landamœrin
Tékkneskur verkfræðinemi flúði nýlega til Austurríkis í þessari litlu
flugvél. Hann er af ætt kunnra vfsindamanna og flugvélin þykir
mikil völundarsmíði. Hann vann að undirbúningi flóttans í eitt ár.
f j-a: ’
„Þátttakan sýnir
sjálfstæði okkar“
— segir rúmenskur embættismaður í viðtali við Los Angeles Times
Skæruliði í El Salvador fyrir framan tvo brennandi flutningabfla sem ráðist
var á á strandvegi tæpa 100 km suðaustur af höfuðborginni San Salvador,
skammt frá Ceiba Gacha.
Ekkert samkomu-
lag um aukaaðstoð
til E1 Salvador
Los Angeles, 10. ágúst AP.
„RÚMENSKA ólympíuliðinu hefur
vegnað vel á sumarleikunum, en við,
sem erum Austur-Evrópuþjóð, tók-
um ekki þá ákvörðun að fara til Los
Angeles til þess að sækja þangað
gull. Þátttakan sýnir sjálfstæði
okkar gagnvart Sovétmönnum," er
haft eftir háttsettum rúmenskum
cmbættismanni.
„Við höfum gert ýmislegt til
þess að vekja athygli á þessu á
undanförnum árum, en enginn
virðist hafa tekið eftir því. Nú ef-
ast enginn um það lengur," hefur
Los Angeles Times eftir embætt-
ismanninum, sem ekki vildi láta
nafns síns getið.
Hann sagði við blaðið, að sú
ákvörðun Sovétmanna að hunsa
leikana væri „algjörlega pólitísk".
Viðtalið fór fram á miðvikudag,
daginn eftir blaðamannafund sem
rúmenska ólympíuliðið og farar-
stjórar þess tóku þátt í í ólympíu-
þorpinu, þar sem vikist var undan
að svara spurningum sem voru
stjórnmálalegs eðlis.
Náðanir í Rúmeníu
Búkarent, 10. ágúst. AP.
RÚMKNSKA rfltisstjórnin hefur skýrt frá
því, að ýmsum fóngum, sem dtemdir
höfðu verið í allt að flmm ára fangelsi.
Los Angeles:
Waxhinglon. 10. ágúst. AP.
NEFND skipuð fulltrúum úr báð-
um deildum bandaríska þingsins,
sem finna átti lausn á deilum
þingdeildanna um aukna hernað-
araðstoð við El Salvador, komst
ekki að samkomulagi um málið.
Afleiðingin verður sú að deila
þingdeildanna verður tekin fyrir
á sameiginlegum fundi beggja
deilda.
Þingmennirnir í nefndinni
höfðu áður samþykkt að standa
fast við upphaflega ákvörðun
fulltrúadeildarinnar um að
hafna málamiðlunartilboði öld-
ungadeildarinnar.
Tilboð öldungadeildarinnar
var á þá leið að fjárupphæðin
yrði lækkuð úr 117 milljónum
dala í 90 milljónir. Búist er við
hörðum deilum.
Málið var sent nefndinni þar
sem tillagan var felld í fulltrúa-
deildinni þar sem demókratar
hafa meirihluta, en samþykkt í
öldungadeildinni, þar sem repú-
blíkanar hafa meirihluta.
Dró í hálfan mánuð
að tilkynna 46 þús.
dollara þjófnað
Loh Angeles.
SAUDI-ARABÍSKUR embættismað-
ur, sem tilkynnti lögreglunni, að
stolið hefði verið frá honum 46.000
dollurum f reiðufé á flugvellinum
hér í Los Angeles, viðurkenndi jafn-
framt, að það hefði dregist hjá hon-
heföu verið gefnar upp sakir í tilefni af
því, a* 40 ár eru liðin síðan kommúnistar
komust til valda í landinu.
Af tilkynningu Agerpres, hinnar
opinberu fréttastofu, mátti ekkert ráða
um það hvort pólitískir fangar væru
hér á meðal eða hve margir yrðu látnir
lausir.
Var sagt, að rfkisráðið og Nicolae Ce-
ausescu, forseti, hefðu haft frumkvæði
að sakaruppgjöfinni til að minnast
„byltingarinnar gegn fasistum og
heimsvaldasinnum" árið 1944.
Nær hún ekki til þeirra, sem hafa
framið alvarlega glæpi, eins og t.d.
manndráp eða skemmdarverk á eignum
ríkisins, en sumir þeirra, sem höfðu
verið dæmdir til skammrar vistar f
vinnubúðum eða til „endurhæfingar",
fengju að fljóta með.
um í hálfan mánuð að kæra verknað-
inn, vegna þess hve upptekinn hann
hefði verið.
William Booth, lögregluforingi í
Los Angeles, sagði'að þjófnaður-
inn hefði verið framinn 21. ágúst
sl. þegar A1 Abdullatis, en svo
heitir Saudi-Arabinn, hefði beðið
komu saudi-arabísku ólympíu-
sveitarinnar á flugvellinum, í því
skyni að heilsa upp á íþrótta-
mennina.
Hann sagði lögreglunni, að síð-
an hefði hann verið svo önnum
kafinn við að fylgjast með leikun-
um, að honum hefði ekki gefist
tóm til að tilkynna um þjófnaðinn.
Nicolae Causescu