Morgunblaðið - 11.08.1984, Blaðsíða 48
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTl. SlMI 11633
OPIÐ ALLA DAGA — ÖLL KVÖLD
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI. SIMI 11340
LAUGARDAGUR II. ÁGÚST 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Greiðsluafkoma A-hluta ríkissjóðs:
Neikvæð um 322
milljónir króna
Hagstæðari um 941 millj. kr. en á sama tíma 1983
GREIÐSLUAFKOMA A-hluta ríkis-
sjóAs var ncikvæð í júnflok um 322
milljónir króna, og er því betri en á
Ólögleg fjölfóldun
myndbandæ
Tveir úr-
skurðaðir
í gæslu-
varðhald
TVEIR forstöðumenn mynd-
bandaleiga í Reykjavík og ná-
grenni voru í gær úrskurðaðir í
gæsluvarðhald í sakadómi Kópa-
vogs.
Þeir eru grunaðir um að hafa
staðið að ólöglegri dreifingu og
fjöiföldun kvikmynda, sem
fyrirtækið Myndband hf.
(Regnboginn) hefur einkarétt á.
Annar maðurinn var úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald allt fram til
17. ágúst, hinn allt til 22. ágúst.
Mennirnir eru báðir á þrítugs-
aldri og eiga lögheimili í Kópa-
vogi.
sama tíma og í fyrra um 941 milljón
króna. Kekstrarhallinn nam 2,4% af
gjöldum A-hluta fyrstu sex mánuði
þessa árs, og hefur hlutfallið aðeins
verið einu sinni hagstæðara frá ár-
inu 1977. Árið 1982 var rekstraraf-
koman hagstæð um 1 % af gjöldum.
t fréttatilkynningu frá
fjármálaráðuneytinu af þessu til-
efni kemur fram að innheimtar
tekjur námu 9553 milljónum
króna og er hækkun 49% miðað
við sama tímabil 1983, þ.e. janúar
til júníloka. Beinir skattar voru
16,5% af heildartekjum og hækk-
uðu um 56%. Óbeinir skattar,
arðgreiðslur o.fl. nema 83,5% af
heildartekjum. Hækkun frá fyrra
ári nemur 48%.
Greidd gjöld námu 9785 milljón-
um króna og til heilbrigðis- og
tryggingamála runnu 37%, til
fræðslu-, menningar- og kirkju-
mála gengu 16%.
Fjármálaráðherra kynnti þetta
fyrir fulltrúum stjómarandstöð-
unnar á fundi í gær.
Sjá nánar fréttatilkynningu frá
fjármálaráðuneytinu á bls. 4:
Afkoma A-hluta.
Allt á floti í Laugardal
Ljósm. Mbl. Júlíus.
Síðasta sólarhring varð mesta úrkoma sem mælst hef-
ur frá því mælingar hófust og báru tjaldstæðin í Laug-
ardalnum þess meðal annars merki. Þar var allt á floti
í bókstaflegri merkingu þess orðs og á meðfylgjandi
mynd sést Hollendingurinn Robart HUzer, sem varð
að yfirgefa tjald sitt og fá gistingu í varðskýlinu á
staðnum. Robart, sem var hinn hressasti þegar
Morgunblaðsmenn bar að garði, ætti að vera vanur
íslenskri veðráttu því hann hefur verið tíður gestur
hér síðan 1974. „Mér finnst þetta allt í lagi. Eg get
sagt þér það að mér var svo heitt í skýlinu, að ég varð
að taka hitann af til að geta sofið,“ segir Robart
meðal annars í viðtali við Mbl., en nánari frásögn og
viðtöl eru á bls. 3 í blaðinu í dag.
Vaxtafrelsið í framkvæmd:
Vextír á ávísana-
reikningnm 5 tíl 15%
forvextir á víxillánum 20,5 til 23%
Rannsóknarlögregla ríkisins,
sem setti fram gæsluvarð-
haldskröfuna, hefur lagt hald á
talsvart magn myndsnælda, sem
talið er að hafi verið fjölfaldað-
ar á ólöglegan hátt. Grunur leik-
ur á, að mennirnir hafi fjölfald-
að margar kvikmyndir. Rann-
sókn málsins er á byrjunarstigi.
Þetta eru fyrstu málin af
þessu tagi, sem Rannsóknar-
lögregia ríkisins fær til með-
ferðar eftir breytingu, sem gerð
var á höfundarlögum í þinglok í
vor. Með þeirri breytingu urðu
brot á höfundarlögum opinber
mál og þar með rannsóknarefni
fyrir Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins.
Vaxtafrelsi innlánsstofnana leiðir
til þess að á mánudag geta viðskipta-
vinir þeirra bæði valið um nýja lán-
aflokka og ávaxtað fé sitt með mis-
munandi hætti á sambærilegum
reikningum í bankastofnunum. Til
marks um mun á vöxtum eftir bönk-
um má nefna að í Alþýðubankanum
vcrða vextir á ávísanareikningum
15% en 7% á hlaupareikningum, í
Verslunarbankanum og Iðnaðar-
bankanum verða vextir á ávísana- og
hlaupareikningum 12% í Útvegs-
bankanum og Samvinnubankanum
7% en áfram óbreyttir eða 5% í Bún-
aðarbankanum.
Sé litið til útlána verða tíl dæmis
forvextir á víxlum sem hafa verið
18,5% frá og með mánudeginum
20,5% í Útvegsbankanum, 22% í
Alþýðubankanum, 22,5% í Iðnað-
arbankanum og Samvinnubankan-
um, 23% í Verslunarbankanum og
22% á almennum víxlum og 23% á
viðskiptavíxlum í Búnaðarbankan-
um.
Ríkisstjórnin ákvað 30. júlí síð-
astliðinn að veita innlánsstofnun-
um frelsi til að ákveða innláns- og
útlánsvexti innan þeirra marka
sem Seðlabankinn samþykkti. Síð-
an hafa bankarnir unnið að tillög-
um um nýja vexti og kynnt þær
fyrir Seðlabankanum. Síðdegis í
gær rann frestur Seðlabankans til
að kanna þessar tillögur út og eftir
það tóku upplýsingar um hina nýju
vexti að berast. Að sögn Jónasar
Haralz, bankastjóra Landsbank-
ans, mun bankinn tilkynna ákvarð-
anir sínar f vaxtamálum á mánu-
daginn. Þá er unnið að vaxta-
ákvörðunum hjá Sambandi spari-
sjóða.
Verslunarbankinn hefur stofnað
svonefnda Kaskó-reikninga, sem
hann segir að eigi að verja sparifé
við tíðar vaxtabreytingar, Búnað-
arbankinn hefur tekið upp spari-
reikninga með 18 mánaða uppsögn
er bera 25,4% ársávöxtun og f Ut-
vegsbankanum geta menn nýtt sér
nýja sparireikninga er bera misháa
vexti eftir lengd uppsagnartíma.
Sé litið á þær upplýsingar sem
Morgunblaðið hafði undir höndum
í gær og kannað hvaða spariform
beri hæsta ársvexti samkvæmt til-
kynningum bankanna þá segir Iðn-
aðarbankinn að sparisjóðsreikn-
ingur með 6 mánaða uppsögn og
1,5% bónus beri 26% ársvexti hjá
sér, Verslunarbankinn segir að
sparireikningur með 12 mánaða
uppsögn þar sem vextir reiknast
tvisvar á ári beri 25,4% ársvexti,
áður eru nefndir 25,4% ársvextir i
Búnaðarbanka en hjá öðrum eru
hæstu vextir lægri.
Vextir á skuldabréfalánum sem
voru 21% verða 23% í Útvegsbank-
anum, 24,5% í Alþýðubankanum,
25% í Iðnaðarbankanum og Versl-
unarbankanum, 26% í Samvinnu-
bankanum, 25% á almennum
skuldabréfum og 28% á viðskipta-
skuldabréfum í Búnaðarbankanum.
Togarar vestra
veiða mjög vel
MIKIL og góð veiði hefur verið hjá
togurum á Vestfjarðamiðum. Eftir
viku útilegu hafa stærri togarar ís-
firðinga komið með á þriðja hundrað
tonn að landi, og er langmestur hluti
aflans þorskur. Að sögn Hans W.
Haraldssonar, skrifstofustjóra
hraðfrystihússins Norðurtanga á ísa-
firði, hafa borist um 800 tonn á land
frá síðustu helgi.
Sömu sögu hafði Haraldur Guð-
finnsson, útgerðarstjóri hjá Ein-
ari Guðfinnssyni hf. á Bolungar-
vík, að segja. Dagrún og Heiðrún,
togarar þeirra Bolvíkinga, komu
inn um verslunarmannahelgina,
báðar með fullfermi — Dagrún
með 170 tonn og Heiðrún með 130
tonn, allt þorskur og gengur mjög
hratt á þorskveiðikvótann.
MisheppnuÖ „bankaránstilraun“ í Landsbankanum:
„Stjarfur og starandi
ií
„ÞETTA var heldur lánleysisleg
bankaránstilraun og pilturinn ekki
sannfærandi. Þegar ég hringdi á
lögregluna sleppti hann taki á
byssunni og gekk í burtu,“ sagði
Sigrún Hermannsdóttir, gjaldkeri f
sparisjóðsdeild aðalbanka Lands-
bankans, í samtali við blaðamann
Mbl. í gærkvöldi. Hún varð fyrir
því laust fyrir kl. 16 í gær, að ung-
ur piltur otaði að henni skamm-
byssu, þar sem hún sat í gjaldkera-
stúkunni, og krafðist þess að hún
afhenti sér peninga. Lögreglan leit-
aði hans enn í gærkvöld.
„Hann var greinilega eitthvað
ruglaður — hann var alveg
stjarfur og tómur til augnanna,"
sagði Sigrún. „Ég var að bóka í
kassann þegar hann gekk að
stúkunni og rak höndina inn
fyrir glerið. Þegar mér varð litið
upp horfði ég beint í hlaupið á
byssunni og verð að viðurkenna,
að ég fékk svolítið í magann. Ég
sá þó fljótlega, að þetta var ekki
raunveruleg byssa og þá varð ég
reið. „Vertu ekki að þessu!" sagði
ég við hann. „Jú,“ svaraði hann,
„láttu mig hafa peningana, alla
peningana." Hann virtist alveg
rólegur og mér fannst ekki að
mér stafaði nokkur hætta af
honum, svo ég sagði aftur:
„Vertu ekki að þessu!"
„Komdu með peningana,"
sagði hann þá aftur og svona
körpuðum við nokkrum sinnum.
„Við hliðina á piltinum stóð ung-
ur maður. Ég bað hann að halda
stráknum á meðan ég tæki af
honum byssuna og hefði sam-
band við lögreglu. Hann tók í
strákinn og ég einnig og í sam-
einingu reyndum við að sveigja
hendina á honum undir glerið á
afgreiðsluborðinu.
Ungi maðurinn var búinn að
ná taki á byssunni og var að tog-
ast á um hana þegar ég hringdi á
lögregluna. Þá sleppti pilturinn
loks takinu og kom sér í burtu."
Sigrún sagði að pilturinn hefði
verið á að giska 16—17 ára,
fremur grannur, með stutt,
dökkt hár, klæddur í dökkbláa
dúnúlpu. „Mér fannst hann held-
ur þunglyndislegur og starandi í
framan en ég fann enga vínlykt
af honum,“ sagði hún. „Skömmu
síðar kom lögreglan, en þá
fannst hann hvergi."