Morgunblaðið - 11.08.1984, Page 37

Morgunblaðið - 11.08.1984, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1984 37 Geimfarar Sovézku geimfararnir Vladimir Dzhaibekov, Svetlana Saviskaya og Igor Volk við komuna til Moskvu frá geimvísindastöðinni Baikonur. Geimfararnir eru ásamt ættingjum fyrir framan minnismerki fyrsta geimfarans, Yuri Gagarins. Hafði rangt við og reykti + Christie Brinkley, fyrirsæta og unnusta söngvarans Billy Joels, er mikil áhugamanneskja um heilbrigt líferni og hefur meira að segja skrifað bók um útilíf og eilífan æskublóma. Nú nýlega var hún á söngskemmtun hjá Billy og vakti þá mikla at- hygli fréttamanna og ljósmynd- ara, ekki þó fyrir það hvað hún er hraustleg og hefur gott útlit, heldur fyrir það, að hún reykti eins og strompur hljómleikana út í gegn. Það þykir nefnilega ekkert fínt lengur að reykja og víða erlendis er farið að líta á reykingafólk sem hverja aðra pestarsjúklinga. Sem dæmi um það má nefna, að á nýafstöðnu flokksþingi demókrata í Banda- ríkjunum var bannað að reykja í aðalfundarsalnum. Þeir, sem ekki gátu verið án sigarettunnar, voru skikkaðir til að svæla hana í smáskonsu þar sem enginn hætta var á, að reykurinn angr- aði aðra fundargesti. COSPER Mig vantaði innblástur, þegar ég málaði þessa mynd. Eitthvað í þessa átt vilja fram- leiðendur Dallas-þáttanna að Lucy líti út. „Lucy“ í Dallas: Annaðhvort létt- klædd og lauslát eða látin fara + Framleiðendur Dallas-þátt- anna hafa nú krafist þess af Charlene Tilton eða Lucy, að hún leiki framvegis léttlynda og lausláta drós i þáttunum eða hætti ella. Charlene, sem tekur sína kristnu trú alvarlega, er hins vegar ekki til viðtals um það. Framleiðendunum var farið að leiðast hve Lucy var orðin siðsöm og fannst tími til kom- inn að áhorfendur fengju að sjá dálítið meira af henni sjálfri. Þess vegna var ákveð- ið, að hún ætti sér tvo elsk- huga samtímis, einn á hennar aldri og annan eldri, og að rúmið yrði hennar aðalvett- vangur. Þegar Charlene voru settir þessir kostir brást hún reið við og sagði, að svona lifði engin kristin manneskja. „Ég hef engan áhuga á rúmsenum eða þess háttar," sagði hún. Framleiðendurnir bentu þá Charlene á, að henni væri ekki borguð nærri ein milljón ísl. kr. fyrir þáttinn til þess eins að stjórna sér sjálf. Samning- urinn við Charlene rennur brátt út og er fullyrt, að ef hún taki ekki enn einum sinna- skiptunum muni hún verða látin fara. Kristján Kristjánsson leikur á orgelið í kvöld Velkomin á Skála fell #HOTEL« Opiö í kvöld frá kl. 18.00—03.00 Söng- og dansmærin Leoncie Martin skemmtir. kófiurmM GULLNI HANINN BISTRO A BESTA STAÐÍEÆNUM Veitingasalurinn er ekki stór í sniðum, hann er mátulega stór til að skapa rétta stemmningu, góð persónuleg tengsl á milli gesta og þeirra sem þjóna þeim til borðs. Svo eru fáir, sem slá Gullna hananum við í matargerð. Mjög fáir. LAUGAVEGI 178, SÍMI 34780 I ... . ' ^ Bladburöarfólk óskast! Austurbær Sjafnargata Grettisgata 2—35 Grettisgata 37—98 Bergstaðastræti Kópavogur Álfhólsvegur 65—137 Víðihvammur Birkihvammur Vesturbær Tjarnargata I

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.