Morgunblaðið - 11.08.1984, Side 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1984
43
9\ M 5
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
ny öjsu i ám if
111 meðferð á köttum
Dýr eiga meira skilið en að vera meðhöndhið eins og lífvana leikföng.
Steina Dóra skrifar:
Kæri Velvakandi.
Mikil er nú mannvonskan í
þessum heimi. Eins og flestir vita,
eru þeir til, hér sem annars stað-
ar, sem ánægju hafa af því að
kvelja sakiaus og varnarlaus dýr.
Ein helsta íþrótt slíkra ill-
menna hér í borg er að limlesta
ketti á ýmsan hátt. „Vinsælust"
virðist sú aðferð vera að bera eld-
fimt efni að vesalings dýrunum og
kveikja síðan í þeim. Má ætla að
óþokkarnir skemmti sér konung-
lega við þessa ómannúðlegu iðju.
Ég veit af eigin raun að þetta
eru engar getgátur eða rógburður
því bæði þekki ég þess ótal mörg
dæmi auk þess sem hurð skall afar
nærri hælum mér í þessum efnum
um daginn. Þannig var að eina
nóttina vakna ég við það að kött-
urinn minn stendur yfir mér, illa
útlitandi og óttasleginn á svipinn.
Ég sá strax að ekki var allt með
felldu því kötturinn var allur löðr-
andi í einhverri olíu um feldinn.
Virtist sem ráðabrugg ódæð-
ismannanna hafi misheppnast, þó
að hluti af feldinum hafi verið ör-
lítið sviðinn.
Ekki þarf að lýsa örvæntingu
minni og ofsareiði við þessa sjón
og mátti ég á engan hátt vera fyrir
bræði. Ég skrúbbaði köttinn hátt
og lágt lengi vel og samt sem áður
gekk erfiðlega að ná oliunni úr
feldinum auk þess sem hann sveið
greinilega mikið.
Nú skora ég á alla þá sem ein-
hvern pata hafa af því að verið sé
að pynta dýr, að láta hendur
standa fram úr ermum og koma
upp um illvirkjana sem hlut eiga
að máli. Það er staðföst trú min að
þorri ibúa landsins sé góðhjartað
fólk og dýravinir og geri þvi allt
sem i þeirra valdi stendur til þess
að koma í veg fyrir að slíkar pynt-
ingar geti átt sér stað.
Dýr eiga miklu meira og betra
skilið af okkur mönnunum en að
vera meðhöndluð eins og lifvana
leikföng.
Eitthvað upplífg-
andi í morgunsárið
9999-9950 hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
„Við erum hópur starfsfólks á
fjölmennum vinnustað á aldrinum
frá tvítugt til sjötugs, þar sem
flestir hlusta á morgunþáttinn „1
bítið“, áður en haldið er til vinnu.
Er almenn óánægja ríkjandi
meðal okkar, með stjórnendur
þáttarins, vegna þeirrar neikvæðu
afstöðu sem einkennir þá og sér-
staklega gagnvart veðurfarinu hér
á suðvesturhorni landsins. Við er-
um öll á einu máli um það, að fólk
vill heyra eitthvað hressilegt og
upplífgandi í morgunsárið, þegar
langur vinnudagur er fyrir hönd-
um.
Við vonum að stjórnendur þátt-
arins taki ábendingunni vel og
hætti eða að minnsta kosti dragi
úr þessu niðurdrepandi tali um
veðrið, og reyni að hljóma aðeins
lífsglaðari í framtíðinni, öllum til
heilla."
Limra að
norðan
Noröanvindur hringdi f Velvak-
anda og kom i framfæri þessari
limru:
í Morgunblaði fékk ég fréttir litið:
Á fjöllum nyrðra væri of mikið bitið,
en sumir rexa þó
og segja að gras sé nóg,
það gengur úr sér Guðlaugsstaðavitið.
Burkni
Til góðs
eða ills?
Bfleigandi hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
„í allri umræðu um bensínverð
hér á landi, hefur sem kunnugt er,
komið fram að ekki virðist vera
möguleiki á því að lækka það.
Hins vegar bjóða tvö olíufélög nú
upp á „betra bensín" á sama verði
með einhverjum aukaefnum í og á
það að minnka bensíneyðslu,
hreinsa úrfellingu og sót í blönd-
ungi og sogkerfi og auk þess á það
að innihalda ryðvarnar- og tær-
ingarvarnarefni, sem vernda eiga
vélina.
Mönnum ber hins vegar ekki
saman um, hvort umrædd auka-
efni sé til góðs eða ills. Því langar
mig til að fá skýringu á þvf, hvers
vegna þeir gátu ekki lækkað bens-
ínið, en látið f staðinn eigendum
það eftir, að ákveða hvort þeir
vilji aukaefni út f bensfnið eður
ei? Til eru alls kyns aukaefni sem
hægt er að setja í bensín s.s. redex
og gera bíleigendur það að öllu
jöfnu sjálfir.
Ég veit um ótal marga sem ekki
kæra sig um þessi nýju efni út í
bensínið og þætti mér nú fróðlegt
að vita hverjir það eru sem
tryggja gæði nýju aukaefnanna?
Bréfritara fýsir að vita hvort hin nýju aukaefni í bensíni séu til góós eða ills.
ALLTAF Á SUNNUDÖGUM
StöÍRA
OG EFNISMEIRA BLAÐ!
ÞAÐ ER EKKI REIMT
Á KILI
Blaðamaöur Morgunblaðsins yfir há-
lendiö á hestum meö erlendum feröa-
mönnum.
RICHARD BURTON
ÁÐUR VAR MÉR
GATAN GREIÐ
Rætt viö Hinrik í Merkinesi 85 ára.
ÞAÐ BYGGIST ALLT
ÁÚTGERÐ
Litiö viö á Seyöisfiröi.
MYRTUR BISKUP
Sagt frá moröi Jóns Gerrekssonar,
biskups, 1433.
BRÆÐURNIR ESPHOLIN
FORFALLNIR FÁLKA-
ÁHUGAMENN
JAMES MASON
1909—1984
ÞEGAR KOKTEILAR
KOMUST YFIR HAFIÐ
FANNSTTAKA ÞVÍ AÐ
GERA EITTHVAÐ FYRIR
LANDIÐ í LEIÐINNI
Rætt viö laxveiöimanninn Robert A.
Maes.
SVIPMYND Á SUNNU-
DEGI: MAÐURINN Á BAK
VIÐ KONUNA
UM GUDBRAND BISKUP
OG BIBLÍU HANS
LITID INN í SUMARBÚÐIR
í ÞINGHLÉI
Sunnudagurinn byrjar á sídum Moggans