Morgunblaðið - 11.08.1984, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1984
45
Brisco-Hooks al-
veg við heimsmetið
Los Angeles, 10. ágúst. Frá Þórarni Ragnarssyni, blaðamanni Morgunblaðsins.
Þaö hefur ekki komiö neinum á óvart að Carl Lewis skuli vera búinn
aö vinna þrenn gullverölaun hér á Ólympíuleikunum og þaö kom
heldur ekki á óvart aö Bretinn Daley Thompson sigraöi í tugþrautar-
keppninni. En í 400 metra hlaupi kvenna uröu úrslitin óvænt, er ung
blökkustúlka frá Los Angeles sigraöi meö miklum glæsibrag. Valerie
Brisco-Hooks lét ekki þar viö sitja heldur sigraöi hún einnig í 200
metra hlaupinu sem fram fór síöustu nótt. Setti þá nýtt bandarískt met
og um leið Ólympíumet, hljóp á 21,81 sek.
Morgunblaölð/Símamynd AP
• SÖGULEG STUNDII Bandaríska stúlkan Valerie Brisco-Hooks fagn-
ar sigri sínum í 200 metra hlaupinu á leikunum í fyrrinótt. Hún varö þar
með fyrsti keppandinn á Ólympíuleikum fyrr og síöar til aö sigra bæöi
í 200 og 400 metra hlaupi.
Silfurverölaunin í 200 metra
hlaupinu hlaut landi hennar, Flor-
ence Griffith, á tímanum 22,04
sek. og Merlene Otte-Page frá
Jamaica varö þriöja á 22,09 sek.
Gamla Ólympíumetiö átti austur-
þýska stúlkan Barbell Wockel,
22,03 sek. sett 1980 í Moskvu.
Brisco-Hooks sigraöi sem kunnugt
er í 400 metra hlaupinu á mánu-
daginn og nú eru menn farnir aö
spyrja sig aö því hvort hún muni
vinna ein gullveröiaun til viöbótar.
Hún er talin eiga góöa möguleika á
því í 1600 metra boðhlaupinu,
4x400 metrunum.
„Þetta er stórkostlegt," sagöi
þessi vingjarnlega stúlka á blaöa-
mannafundinum eftir hlaupiö, en
þar hélt hún á syni sínum tveggja
ára gömlum, Alvin Hooks jr. „Ég
geri mér eflaust ekki enn grein fyrir
mikilvægi þess aö vinna aftur. Ég
er bara glöö yfir þvi aö hlaup tvö
Ovett í úrslitin í 1500 m
Steve Ovett sigraöi í sínum
riöli í undankeppni 1500 metra
hlaupsins á Ólympíuleikunum,
einum degi eftir aö hann útskrif-
aöist af sjúkrahúsi vestra — en
hann veiktist sem kunnugt er af
lungnasjúkdómi.
Ovett, sem á heimsmetiö í
greininni, hljóp á 3:49,3 mín., sem
er langt frá hans besta tíma.
Heimsmet hans er 3:30,77 mín.
Þeir sem komust í úrslitahlaupiö
voru m.a. Jose Abascal, Brasilíu-
maöurinn Joaquim Cruz og Steve
Scott, Bandaríkjunum.
skuli vera aö baki og aö ég
boriö sigur úr býtum.“
hafi
Hún er þó ekki alveg búin á leik-
unum. Eins og áöur sagöi keppir
hún í 4x400 metra boöhlaupinu.
Aöeins einu sinni hefur bandarísk-
um keppanda tekist aö vinna þrjú
gullverölaun á Ótympíuleikum í
hlaupagreinum. Wilma Rudolph
náöi því á leikunum í Róm 1960.
Hún sigraöi þá í 100, 200 og 4x400
metra hlaupum.
Langstökk kvenna:
Öruggur sigur
heimsmeistarans
HEIMSMETHAFINN í langstökki
kvenna, Anisoara Stanciu frá
Rúmeníu, sigraöi í langstökks-
keppninni á Ólympíuieikunum
meö stökki sem mældist 6,96
metrar, önnur varö stalla hennar
frá Rúmeníu, Vali lonescu sem
stökk 6,81 metra.
i þriöja sæti varö Susan Hearn-
shaw frá Bretlandi meö 6,80 metra
stökk og í fjóröa sæti varö Angela
Thacker frá Bandaríkjunum en hún
stökk 6,78 metra og Jackie Joyn-
er, einnig frá Bandaríkjunum, varö
í fimmta sæti, stökk einum senti-
metra styttra.
Carol Lewis, systir hins fræga
Carl Lewis, olli Bandaríkjamönnum
miklum vonbrigöum í langstökks-
keppninni. Búist var viö því aö hún
yröi framarlega og sumir vonuöust
eftir henni á verölaunapall, en sú
stutta var ekki alveg upp á sitt
besta í keppninni því hún stökk
aðeins 6,43 metra og hafnaöi í ní-
unda sæti.
Allen til
Tottenham
Tottenham Hotspur keypti (
gær Clive Allen, enska landsliös-
framherjann frá QPR, fyrir
750.000. Þar fékk Spurs loks
mann í staöinn fyrir Steve Archi-
bald sem seldur var til Barcelona.
Allen er 23 ára gamall, mjög
marksækinn og skemmtilegur
leikmaöur.
umbro
FC-Liverpool besta
félagslid heims leikur í
Merki
meistaranna
umbro
Við bjóðum meistarana frá Liverpool velkomna til íslands
og óskum KR-ingum til hamingju með 85 ára afmælið
Góða skemmtun
© flSTUflD ©
SPORTVÖRUVERSLUN
Háaleitisbraut 68
Sími 8-42-40
Austurver
■rrr. .mS&ÞM