Morgunblaðið - 11.08.1984, Síða 46

Morgunblaðið - 11.08.1984, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 1984 • Hamingjusöm fjölskylda „á heimavalli“. Eiginkona Bjarna, Anna Guöný Ásgeirsdóttir, ásamt sonum þeirra, Guögeiri Daöa og Tryggva Sveini, á heimili þeirra á gnrkvöldi viö verölaun þau og viöurkenn- ingar sem Bjarna hafa hlotnast á glæsilegum ferli. Og nú bætist sá „stærsti“ viöl Morgunblaöiö/Árni Sæberg. ísland í sjötta sæti — tapaði naumlega fyrir Svíum í gær Lo* Angalea, 10. igúal. Frá Svaini Svainasyni, „LIDIÐ LÉK varla handbolta í fyrri hálfleik og virtuat menn ánægöir meö sjötta sætið og einbeiting var því nánast engin,“ sagði Bogdan þjálfari íslenska lands- Hákon Halldórsson formaöur Júdósambandsins: „Júdómenn höfðu óbil- andi trú á Bjarna“ „JÁ, ÞETTA er glæsilegt. Þaö má segja aö þetta hafi verið punkturinn yfir i-ið á löngum ferli hjá Bjarna," sagöi Hákon Halldórsson, formaöur Júdó- sambands fslands, er Mbl. spjallaöi viö hann í gær. .Undir niöri bjóst óg nú alltaf viö þvt aö Bjarni stæöi sig vel þannig aö ég segi aö þessi árangur hans hafi ekki komiö mér á óvart. A.m.k. ekki mjög mikiö! Þaö leyndist alltaf meö manni sú trú á Bjarna aö hann myndi gera vel.“ Hákon sagöi aö þeir heföu kannski ekki veriö margir hér á landi sem reiknuöu meö þessum árangri Bjarna — „ekki nema þá júdómenn. Þeir höföu óbilandi trú á honum. Bjarni hefur keppt mikiö undanfarin ár og er kominn meö mikia reynslu, og hefur sýnt aö hann getur staöiö síg vel. Bjarni er sterkur og snöggur og hefur gott jafnvægi. Hann hefur líka ákafiega næmt auga fyrir möguleikum sínum og er laginn viö aö vinna úr þeim." Hákon sagöi aö árangur Bjarna væri mikill heiöur og upp- örvun fyrir íslenska júdómenn. , fréllamanni Morgunblaðtin*. liðsins í handknattleík eftir leík íslands og Svíþjóöar um fimmta sætiö á Ólympíuleikunum. is- lendingar töpuöu þeim leik meö tveggja marka mun, 24:26, eftir aö hafa verið 9:14 undir I hálfleik. Þaö var rétt undir lok síöari hálf- leiks sem íslenska liöiö tók viö sér fyrir alvöru, en þaö var of seint og þar með er Ijóst aó viö urðum í sjötta sæti á leikunum. Góöur árangur hjá íslenska liöinu sem hefur lagt hart aö sér undan- farna mánuói, en eins og menn muna þá kom þaö skyndilega uppé aö viö tækjum þétt I hand- knattleiknum á Ólympíuleikun- um. Liöin byrjuöu á þvi aö skora til skiptis fyrstu tíu mínúturnar, upp i 3:3, en eftir það virtist allur vlndur úr íslensku leikmönnunum. Vörnin var galopin og sóknir klúöruöust á undraveröan hátt. Svíar léku held- ur ekki neinn sýningarbolta og þvi var munurinn ekki meiri en raun bar vitni þegar flautaö var til leik- hlés. Staöan í hálfleik var 9:14. Síöari hálfleikur var mun betur leikinn, þó svo aldrei næöu þeir aö leika meira en í meöallagi. Á 18. mínútu varö vendipunktur i leikn- um þegar Einar varöi vitakast frá Svíum og var þaö i raun fyrsta skiptiö sem markvarsla sást í leiknum. Viö þetta vaknaöi liöiö af værum blundi og breytti stööunni snögg- lega úr 16:23 í 20:23. Samt sem áöur áttu þeir aldrei möguleika á aö ná Svíunum og reyndar sasgöi Bogdan eftir leikinn aö dómararn- ir, sem voru frá Júgóslavíu, heföu tekiö af þeim sigurinn á síöustu tíu mínútunum. Síöasta mark leiksins geröi Alfreð af eigin vallarhelmingi yfir markvörö Svíanna sem kominn var út úr markinu aö fagna sigri. Mörk islands skoruöu: Krlstján 5/2, Alfreö 5, Siguröur Gunnarsson 4, Þorgils Óttar 4, Jakob, Atll og Guömundur tvö mörk hver. Aö þessu sinni hvíldu þeir Bjarnl. Brynjar og Steinar Mörk Svía: Jilsen 8, Sjögren 7, Carlen 3, Pör Jilsen 2, Olason 2, Lindau, Magnusson. Aug- ustson og Öberg skoruöu eitt mark hver Svíar fengu aö hvíla slg í Atta mínútur og islendingar einnig. • Bjarni moö bronziól Bjami Friöriksson maö bronzvarölaun sín fyrrinótt. Myndin var takin fyrir utan Ólympíuþorpió í gær. hann hlaut í 95 kg flokknum í júdó i Morgunblaöiö/Símamynd Þörarlnn Ragnarsson Glímur Bjarna Loa Angelea, 10. ágúst. Frá Sveini Sveinsayni, BJARNI Friöriksson, júdómaöur, néöi þaim Irábæra árangri hár á Ólympíu- leikunum aö ná bronsverölaununum f 95 kg flokki. Hann ar annar fslending- urinn sam nær þeim árangri aö kom- ast á verölaunapall á Ólympiuleikum. Vilhjálmur Einarsson náöi ööru sæti i þristökki áriö 1956 í Melbourne, an þaö er sama áriö og Bjarni fæddist. Fyrsta glíman sem Bjarni átti var viö Carsten Jensen frá Danmörku en Bjarni sat hjá í fyrstu umferö. Þeir Bjarni hafa oft glímt saman og gjörþekkja hvor annan. Þetta var lykilvlöureignin sem allt valt á og sigurinn var engan veginn öruggur fyrirfram. Þeir eru meö áþekk- an stil og Jensen byrjaöi meö miklum látum en þjálfari hans öskraöl á hann og baö hann fara gætilega, hann mætti ekki sprengja sig. Viöureignln var mjög skemmtileg á aö horfa og lauk meö því aö Bjarni lagöi Jensen á Ippon, fullnaö- arsigri, með „O-Goyi" eftir aöeins 3,06 minútur. Næsta glíma var viö Bandaríkja- meistarann Leo Withe en sá haföi unnlö fyrrverandi Ólympíumeistara öllum á óvart og bjuggust flestir viö auöveldum sigri hans yfir Bjarna. Bjarni varö aö breyta sínum tökum til aö geta unniö á honum. Þaö tókst honum eftir aö leikur- inn haföi staöiö í járnum, þá gaf Bjarni honum tækifæri til aö sópa undan sér fótunum. Bjarni var eldsnöggur þegar Leo tók þessu boöi hans og kippti fæt- inum aö sér aftur og felldi hann síöan á eigin bragöi. Annar dómarinn dæmdi strax Ippon og Bjarni fagnaöi en hinn dómarinn ákvaö aö svo væri ekki og dæmdi Waza-Ari og gaf þaö honum sjö stig og dugöi þaö Bjarna til sigurs. Þriöja glíma hans var viö Douglas Vi- era frá Brasilíu. Bjarni vissi lítiö um þennan mann áöur en glíman hófst. Andstæöingurinn var talsvert minnl en Bjarnl og átti Bjarni i stökustu erfiöleik- um meö hann. Endirlnn varö sá aö Brasilíumaöurinn sigraöi en áöur haföi aöeins munaö einum sentlmetra aö Bjarni inni fullnaöarsigur þegar hann komst ofan á andstæöing sinn, en þeir voru komnir rétt út fyrlr völllnn og þurftu aö byrja aö nýju. Ef Bjarni heföi unniö þessa glímu heföi hann glímt um gulliö á leikunum en þaö munaöi einum Bjarni þarf til tannlæknis! Los Angalaa, 10. ágúst. Frá Þórarni Ragnarssyni, blaOamanni Morgun- Maúsins. BJARNI Friöriksson þarf aö fara strax til tannlæknis er hann kemur heím til fslands. í glímunni viö ítalann um bronziö sló ítalinn svo harka- lega í andlit Bjarna aö þaö brotnaói illa upp úr tönn. „Hann gerói þetta alveg óvart, ég var í þann mund aö ná á honum armlásnum þegar hann sló til mín og þaö var ekkert þægilegt aö fá þetta högg í andlitið í sama mund og ég var aö ná sigurbragóinu í glímunni,“ sagói Bjarni. , fréttamanni MorgunMaðsin*. sentimetra og þaö var nóg. Síöasta gliman var viö italann Yurl Fazi. Hann er feikilega teknískur og snöggur, eins og Bjarni. Fazl náöi strax aö skora Koka og var loftiö rafmagnaö í salnum. Viöurelgnin var hörö, báöir sóttu hart en undir lokln náöi Bjarni honum í gólfiö í armlás í „Jui-Gatame" og þar meö var sigurinn í höfn og bronsverölaunin hans. Afrek Bjarna BJARNI Friörikssort hefur staöið sig mjög vel í þeim júdómótum sem hann hefur tekiö þátt í erlendis, auk þess sem hann hefur margsinnis orðið íslandsmeistari í sínum flokki. Hér á eftir má sjá helstu afrek hans á erlendri grund undanfarin ár og af þessari upptalningu má sjá aö þaö hefur veriö réttur stígandi í velgengni Bjarna. 1980: Ólympíuleikar í Moskvu: 7. sætiö. Opna skandinavíska mótiö: Gullverölaun í +86 kg flokki. 1981: Heimsmeistaramótiö í Maast- richt: Þar vann Bjarni eina glímu og varö fyrir ofan miöju. 1982: Noröurlandamótiö: Gullverö- laun í +95 kg flokki. Silfurverölaun í opna flokknum. 1983: Opna hollenska mótiö: Glímdi um bronsverölaunin viö Neu- reuther en tapaöl á „kantei". (Neureuther þessi varð í þriöja sæti ásamt Bjarna núna.) Opna breska mótiö: Brons- verðlaun. Opna sænska mótiö: Gullverö- laun. Opna skandinavíska mótiö: Bronsverölaun. 1984: Opna skoska mótiö: Silfurverö- laun eftir úrslitaglímu viö Jen- sen frá Danmörku. Opna breska mótiö: Brons- verölaun. Noröurlandameistaramótiö: Gullverölaun í opnum flokki. Silfurverölaun í 95 kg flokki eft- ir úrslitaglímu viö Jensen. ÓLYMPIULEIKAR í LOS ANG- ELES: BRONSVERÐLAUN.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.