Morgunblaðið - 13.11.1984, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984
Kröfur kennara í sérkjarasamningum:
Fela í sér 10 launa-
flokka tilfærslur
— segir formaður Kennarasambands íslands
„ÞAÐ ER enginn vafi á, aö þetta
verður þungur róður,“ sagði Valgeir
Gestsson, fonnaður Kennarasam-
bands íslands, í samtali við blaða-
mann Mbl. um kröfugerð fyrir kenn-
ara og skólastjóra i grunnskólum,
sem lögð verður fram í viðreðum
um sérkjarasamninga þessara hópa
á ncstunni. Meginatriöi kröfugerð-
arinnar, sem samþykkt var á fundi
fulltrúaráðs og samninganefndar
Kennarasambandsins um helgina,
er að byrjuaarlaun hækki úr 18.682
krónum í 26.000 krónur og að haestu
laun hækki úr 23.800 krónum eftir
23 ára starf í 33.000 krónur eftir 18
ára starf.
„Það segir sitt um hversu fjar-
stæðukennt launakerfi ríkisins er,
að þessi krafa jafngildir tiu launa-
flokka haekkun," sagði Valgeir
Gestsson, „og er þó augljóst að
enginn verður ofsæll af þeim laun-
um, sem við erum að gera kröfu
um.“
Takist ekki sérkjarasamningar
á næstu sex vikum, þ.e. fyrir jól,
fer deilan sjálfkrafa fyrir kjara-
dóm, sem hefur aðrar sex vikur til
að komast að niðurstöðu.
Frá fundi fulltrúaráðs og samninganefndar Kennarasambands íslands um
belgina.
Verdens Gang um atvikið yfír Qsló:
Vafi á að SAS-
þotan hafi verið
á réttri stefnu
Einar Benediktsson sendiberra Islands í Bretlandi ásamt liðsmönnum Mezzoforte í London í gær. AP.
Tvær plötur frá Mezzo-
forte kynntar í London
ÍMaáoK, 12. nÓTrwber. Pri SkapU HiHfrfmasrni, bhtenunni Morzunblabsins.
MEÐLIMIR hljómsveitarinnar Mezzoforte og framkvæmdastjóri Steina
hf., Steinar Berg, héldu hér í dag blaðamannafund til kynningar á
tveimur hljómplötum Mezzoforte, sem nú eru að koma á markaðinn. Var
fundurinn haldinn í diskótekinu Stringfellows að viðstöddum ýmsum
tónlistarmönnum og útvarpsmönnum, en auk þess voru Einar Bene-
diktsson, sendiherra í London og Jóhann Sigurösson, yfirmaður Flugleiða
bér viðstaddir.
Er hér um að ræða litla fjög-
urra laga plötu, „Take off“, sem
kemur á markaðinn næstkom-
andi föstudag og stóra plötu,
„Rising", sem kemur á markað-
inn þann 23. þessa mánaðar.
f kynningu með stóru plötunni
segir meðal annars, að hún sé
árangur reynslunnar af lífinu í
Bretlandi, bjórdrykkju, hljóm-
leikahalds vfða um heim, fækk-
unar í hljómsveitinni og tveggja
mánaða innilokunar i stúdíói.
Vakti kynning þessi nokkra
athygli og meðal frægra manna
viðstaddra var trymbill hljóm-
sveitarinnar Pink Floyd, Nick
Mason.
Hljómsveitin Mezzoforte hef-
ur nýlega lokið hljómleikaferð
um Skandinavíu og kom hingað
til London gagngert til að kynna
plötur sínar. Þá er nú í undir-
búningi hljómleikaferð um Evr-
ópu sem hefst eftir áramót.
Hljómsveitina skipa nú Eyþór
Gunnarsson, Jóhann Ásmunds-
son, Friðrik Karlsson og Gunn-
laugur Briem.
Aflatryggingasjóður:
SÁRALITLU munaði að Boeing 727
þota Flugleiða og DC 9 þota skand-
inavíska flugfélagsins SAS rækjust
saman yfir Osló þann 25. október síð-
astliðinn. Norska loftferðaeftírlitið
rannsakar nú atvikið. Fhigstjóri SAS
þotunnar befur gefið skýrslu um málið
svo og norsk fhigmálayfirvöld og hafa
Norðmenn beðið Braga Norðdal, fhig-
stjóra Boeing-þotunnar, að gefa
skýrslu um málið næst þegar hann
verður í Osló.
Norsk blöð skýrðu frá atvikinu i
gær. Boeing-þota Flugleiða hóf sig
til lofts frá Fornebu klukkan 13.28
þann 25. október síðastliðinn. Norsk
blöð segja, að þotan hafi verið
drekkhlaðin og þess vegna tekið
stærri sveig frá flugvellinum en
eðlilegt gæti talist og hafi flugstjór-
inn — að þvl er virðist, ekki skýrt
flugturninum frá því.
Aðeins 500 metrar
milli þotanna
Aðeins tveimur mínútum síðar
hóf SAS-þotan sig til lofts. Hún
flaug krappari beygju en islenzka
þotan. I um þúsund feta hæð yfir
Nesodden, úthverfi Osló hinum
megin við fjörðinn, munaði litlu að
þoturnar rækjust saman — þá var
fjarlægðin milli þeirra aðeins um
500 metrar. Báðar þoturnar flugu þá
með um 500 kílómetra hraða svo það
var aðeins spurning um sekúndur
hvort þær rækjust saman. Norska
blaðið Verdens Gang, sem fyrst
skýrði frá atvikinu, sagði að vafi
léki á að flugstjóri norsku vélarinn-
ar hefði fylgt þeirri leið, sem honum
var fyrirlagt að gera.
Samkvæmt heimildum Mbl. þá
telja flugmenn íslenzku vélarinnar
að flugumferðarstjórar í flugturnin-
um á Fornebu hafi gert mistök með
því að heimila SAS-þotunni flugtak
svo skömmu eftir fiugtak íslenzku
þotunnar.
„Fráleitt að Flugleiðaþotan
hafi verið ofhlaðin“
Anders Löhne, yfirmaður flug-
umsjónar á Fornebu, staðfesti í
samtali við blm. Mbl. að rannsókn
stæði yfir en hann vildi ekkert tjá
sig um efnisatriði. Sagði aðeins að
gögn málsins lægju væntanlega
fyrir eftir helgi. Yfirmaður I flug-
turninum á Fornebu vildi I samtali
við blm. Mbl. ekkert tjá sig um
hvort flugumferðarstjórar hefðu
gert sig seka um mistök.
„Rannsókn málsins stendur yfir
og því er lítið hægt um málsatvik að
segja,“ sagði Sæmundur Guðvins-
son, blaðafulltrúi Flugleiða I sam-
tali við blm. Mbl. „En það er fráleitt
að þota Flugleiða hafi verið ofhlað-
in, eins og fram er haldið og ekkert
hefur komið fram sem bendir til
þess að þota Flugleiða hafi verið
annars staðar en hún átti að vera,“
sagði Sæmundur Guðvinsson.
blm.Mbl. reyndi að ná samtali við
Braga Norðdal, flugstjóra, í gær-
kvöldi, en án árangurs. Hann var þá
staddur i New York.
270 millj. umfram
tekjur eytt á árinu
Verðjöfnunardeild sjóðsins neikvæð um 109 milljónir um næstu áramót
f LOK þessa árs stefnir í það, að
Verðjöfnunardeild Aflatrygginga-
sjóðs verði neikvæð um 109 milljónir
króna og sjóðurinn í heild neikvæð-
ur um 30 milljónir króna. Miðað við
sömu forsendur varðandi greiðslur
Morgunblaðið/ Júlíus
Gullinbrú vígð í dag
GULLINBRÚ, sem tengir byggðina í Grafarvogi við samgönguæðar
til Reykjavíkur verður tekin i notkun í dag og mun Davíð Oddsson,
borgarstjóri taka brúna formlega i notkun klukkan 15.30.
Hafist var handa um byggingu brúarinnar i janúar síðastliðnum.
Kostnaður við byggingu Gullinbrúar er um 20 milljónir króna. Brúin
er 58 metra löng. Þó brúin verði ekki tekin í notkun fyrr en í dag
hefur umferð verið hleypt á hana. Gullbrú tengir Grafarvog við
Höfðabakka.
úr sjóðnum og á þessu ári stefnir í
neikvæða stöðu hans um 458 millj-
ónir i lok næsta árs.
Samkvæmt skýrslu fiskimála-
stjóra, Þorsteins Gislasonar, sem
lögð var fram á nýafstöðnu Fiski-
þingi, voru eignir Aflatrygg-
ingasjóðs um siðustu áramót 214,8
milljónir i almennu deildinni, 49,1
milljón i áhafnadeildinni, en verð-
jöfnunardeildin var neikvæð um
24 milljónir króna. Samtals eignir
sjóðins voru þvi 239,9 milljónir
króna. Miðað við 30 milljóna skuld
sjóðsins í heild i árslok verða þvi
greiddar úr honum 270 milljónir
króna umfram tekjur á þessu ári. í
skýrslunni kemur fram, að aðal-
tekjur sjóðsins séu af útflutn-
ingsgjaldi sjávarafurða. Einnig sé
i lögum sjóðsins ákvæði þess efnis,
að ríkissjóður skuli árlega greiða
til almennu deildarinnar upphæð,
sem nemi 40% af þeirri fjárhæð,
sem deildin fær af útflutnings-
gjaldi. Siðastliðin fimm ár, 1980
til 1984, hefði rikissjóður því átt
að greiða deildinni 131,5 milljónir
króna, en þess í stað aðeins greitt
58,3 miiljónir eða 73,2 milljónum
minna en skylda hans væri. Mis-
munurinn væri hins vegar að mati
löggiltra endurskoðenda um 122
milljónir króna, væri miðað við
byggingavísitölu þessara ára.
Þá segir í skýrslu fiskimála-
stjóra, að í framhaldi af fjár-
hagsstöðu sjóðsins, hafi sjávar-
útvegsráðuneytinu og LÍÚ verið
tilkynnt, að verðjöfnunardeild geti
ekki greitt út bætur fyrr en tekjur
af útflutningsgjöldum fari að ber-
ast sjóðnum. Samkvæmt ákvörð-
unum Verðlagsráðs sjávarútvegs-
ins hefur verðjöfnunar deild sjóðs-
ins verið gert að greiða síauknar
bætur á fiskverð, en deildin á að
greiða uppbætur á verð þeirra teg-
unda, sem Verðlagsráðið telur
vannýttar hverju sinni, en þar á
móti hafa ekki komið nægilegar
tekjur og því er staða Aflatrygg-
ingasjóðs jafnslæm og raun ber
vitni, að sögn fiskimálastjóra,
Þorsteins Gíslasonar.
18 ára stúlku
nauðgað
NÍTJÁN ára gamall pUtur hefur víður-
kennt að hafa nauðgað 18 ára gamalli
stúlku bak við vehingahúsið Klúbbinn
aðfaranótt sunnudagsins. PUturinn
hitti stúlkuna á dansleik { KMbbnum
á laugardagskvöldið og varð þeim vel
tU vina. Þau yfirgáfu dansleikinn og
fóru bak við húsið. Þar vildi pUturinn
hafa samræði við stúlkuna, en hún
neitaði. Pilturinn hafði í bótunum við
stúlkuna og kom tU stympinga. Hann
reif fót af stúlkunni og þvingaði hana
til samræðis við sig.
Pilturinn hafði sig á brott eftir
verknaðinn en stúlkan kærði at-
burðinn til lögreglunnar. Hún gat
gefið greinagóða lýsingu á árásar-
manninum og var hann handtekinn
á sunnudagsmorguninn og hefur
hann viðurkennt brot sitt.