Morgunblaðið - 13.11.1984, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 13. NÓVEMBER 1984 17
inu 17. febrúar síðastliðinn þegar
leitað var álits hans á þingsálykt-
unartillögunni um friðarfræðslu að
sér sýndist að í tiilögunni væri i
raun verið að fara fram á að
grundvallaratriði alþjóðastjórn-
mála verði kennd í skólum.
í grein í blaði félags uppeldis-
fræðinema sem út kom í apríl 1984
mótmælti Finnbogi Gunnlaugsson,
einn höfunda ritgerðarinnar sem
hér hefur verið vitnað til, þessari
fullyrðingu Gunnars Gunnarsson-
ar með þeim orðum að friðar-
fræðsla sé ekki „bara kennsla í al-
þjóðastjórnmálum ... heldur
fræðsla um nauðsyn þess að menn-
irnir leysi viðfangsefni sín og deil-
ur á friðsamlegan hátt og upplýs-
ingar um leiðir að því marki“.
Þá sagði Finnbogi Gunnlaugs-
son: „Það er skoðun min að friðar-
fræðsla geti hafist án sérstakra
kennslugagna. Ef friðarfræðsla er
grunntónn í allri menntun er hægt
að byggja á persónulegum
áhyggjuefnum, skoðunum og við-
horfum nemenda." Væri þessari
skoðun Finnboga fylgt eftir og tek-
ið mið af atburðum sem standa
nemendum og kennurum nærri
væri unnt að leggja þær aðgerðir
kennara i grunnskólum að sinna
ekki störfum sínum vegna deilna
um túlkun á lögum við fjármála-
ráðherra og verkfall félaga í BSRB
til grundvallar f friðarfræðslu í
skólum.
En af ritgerð uppeldisfræðinem-
anna og þremur meginþáttum frið-
arfræðslunnar I fjölbrautaskólan-
um á Akranesi er ljóst að þar er
ætíð verið að ræða um alþjóða-
stjórnmál. Vekur það aðeins grun-
semdir um að lauma eigi þessari
fræðslu inn í skólakerfið á fölskum
forsendum að lesa og heyra van-
gaveltur forvígismannanna um að
alþjóðastjórnmál og friðarfræðsla
séu tvennt ólíkt.
1 grein eins og alþjóðastjórnmál-
um er unnt að benda á kennslu-
gögn. Skort á kennslugögnum i
friðarfræðslu vilja uppeldisfræði-
nemar afgreiða með því einu að
þeirra sé ekki þörf. 1 háskólarit-
gerðinni láta uppeldisfræðingarnir
það álit í ljós, að friðarfræðsla geti
hafist án kennslugagna. Best væri
ef friðarfræðslan þróaðist áfram
enda stæðu kennari og nemandi
jafnt að vígi í upphafi. Spyrja má:
Ef þessi „kennsluaðferð" hentar
um málefni sem að mati tillögu-
manna snertir framtfð jarðarbúa,
hvers vegna eru kennslugögn þá
nauðsynleg í öðrum greinum?
Reynsla úr MH
Alþjóðastjórnmál er námsgrein
þar sem unnt er að festa hendur á
viðfangsefninu, til dæmis er það
gert með þessum hætti í mennta-
skólanum viö Hamrahlíð (MH) en
þar segir í Námsvísi um alþjóða-
stjórnmál: „Pólitísk samskipti á al-
þjóðavettvangi — alþjóðlegar
stofnanir — vigbúnaðarkapphlaup
og kjarnorkuvopn — heimsvald-
akenningar (t.d. kenningar um
„höfuðból og hjáleigur") — hvað
mótar utanríkisstefnu þjóðríkja?
— fullveldi þjóðríkja gagnvart al-
þjóðlegum stofnunum — milli-
ríkjaviðskipti."
Hér er um valgrein að ræða og í
MH þurfa 15 til 20 nemendur að
skrá sig til að hafist sé handa við
að kenna greinina, það var gert á
síðasta skólaári og var sá sem
þetta ritar boðinn í kennslustund,
það er tvær samfelldar stundir.
Þar kynntist ég því liklega hvernig
friðarfræðsla án kennslugagna
með aðstoð gestafyrirlesara fer
fram. Þeir sem voru andvigir skoð-
unum minum um aðild lslands að
Atlantshafsbandalaginu og varn-
arsamstarfið við Bandarikin höfðu
sig mest i frammi og leituðust við
að gera mig sem tortryggilegastan
sem kjarnorkuvopnasinna, stuðn-
ingsmann herforingjastjórnarinn-
ar í Chile, talsmann bandarískra
hagsmuna i Mið-Ameriku og þar
fram eftir götunum. Samanburðar-
kenningar af margvislegum toga,
það er kenningar um að Bandarikin
og Sovétríkin séu jafn slæm risa-
veldi og þó Bandaríkin ívið verra,
ekki sist vegna hernaðarhyggju
Ronalds Reagan, voru hafðar f
frammi sem algildar staðreyndir. í
stuttu máli minntu þessar
„kennslustundir" mig einungis á
stjórnmálafund.
Þannig held ég að friðarfræðslan
verði. Engin ástæða er til að taka
hér upp friðarfræðslu sem nýja
námsgrein. Hún yrði aðeins til að
vekja ófrið og valda tortryggni.
Reynslan frá Bretlandi er sú að
friðarfræðsla hefur leitt til ákafra
deilna, þar sem nemendur hafa
snúist gegn kennurum, foreldrar
hafa tekið að vantreysta skólum og
stjórnmálamenn ráöast á kennara
fyrir pólitíska innrætingu. Komist
menn að þeirri niðurstöðu að
óhjákvæmilegt sé að bjóða íslensk-
um skólanemendum friðarfræðslu
er ekki unnt að standa öðru vfsi að
því verki en í Noregi, þar sem sam-
in hefur verið námsskrá og gerð er
krafa um að viðurkenndum lág-
marksreglum um skólastarf sé
fyigt.
Þeir sem sömdu friðar-ritgerðina
i uppeldisfræði i Háskóla Islands
og boðuðu stofnun Samtaka um
friðaruppeldi og þeir sem í nafni
þeirra samtaka hvetja til þess að
stofnað verði trúnaðaramannakerfi
kennara um málstaðinn og vilja að
myndmenntakennarar noti skóla-
stundir til að láta nemendur teikna
merki fyrir sig eru í hópi þeirra
sem líta á þann boðskap friðar-
hreyfinganna að lýðræðisríkin
haldi að sér höndum andspænis
kommúnistarikjunum, uppgjaf-
arstefnuna, sem bestu leið til frið-
ar. Þessari stefnu hefur verið hafn-
að af meirihluta í lýðræðisríkjun-
um, hún á ekki upp á pallborðið á
almennum skoðanamarkaði, al-
menningsálitið er henni andsnúið,
grasrótarhreyfingar verða ekki
lengur til um hana, þá er fundin sú
leiö að best sé að koma henni á
ríkisframfæri fyrir tilstuðlan
skólakerfisins án þess þó að samin
séu kennslugögn eða menn geri sér
fyllilega grein fyrir utan veggja
kennslustofunnar hvað um er að
vera.
Miðaðu við
IBMPC
Skjár án auka-
endurkasts.
Söluumboð fyrir IBM PC einkatölvuna:
Ef þú ert að hugleiða kaup á
tölvu, hagaðu þér þá eins og þeir
sem reynsluna hafa.
Flestir tölvuframleiðendur og
nær allir framleiðendur hugbún-
aðar miða við IBM PC.tölvuna,
sem tók beint strik á toppinn hér-
lendis eins og hvarvetna í heimin-
um. Betri meðmæli eru vandfund-
in.
IBM PC er ekkert frekar tölva
fyrir byrjendur þó að hún henti
þeim mjög vel. Þú þarft heldur
ekki eingöngu að ætla henni byrj-
unarhlutverk. Verkefnasvið IBM
PC er afar víðfeðmt hvort sem
hún er sjálfstæð eða í tengslum
við aðrar tölvur.
Við að kynnast kostum IBM PC
kemstu fljótt að raun um hve dýr-
mæt hún er. Pantaðu kynningu á
IBM PC strax hjá næsta söluum-
boði.
Gisli J. Johnsen
Skrifstofubúnaður sf., Smiðjuvegi 8,
Kópavogi, sími 73111
Skrifstofuvélar hf.
Ottó A. Michelsen, Hverfisgötu 33,
Reykjavík, sími 20560
Örtölvutækni sf., Ármúla38.
Reykjavík, simi 687220