Morgunblaðið - 09.02.1985, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
33. tbl. 72. áre
LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kim fékk óblíðar viðtök-
ur við komuna til S-Kóreu
Kim Dae-Jung leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar í Suður-Kóreu á
blaðamannafundi á heimili sínu í
Seoul skömmu eftir heimkomuna.
Kim Dae-Jung er nú í stofufangelsi
á heimili sínu. Á myndinni eru auk
Kims Robert White fyrrum sendi-
herra Bandaríkjanna í El Salvador
og Thomas Foglietta fulltrúadeild-
armaður demókrata frá Pennsyl-
vaníu. AP/Símamynd
Washington, 8. febrúmr. AP.
BANDARÍSKA utanríkisráðuneytið sendi ríkisstjórn Suður-Kóreu formleg
mótmæli í dag vegna þess að útlaginn Kim Dae-Jung og 37 manna bandarísk
sendinefnd, sem tveir bandarískir þingmenn eiga sæti í, fengu óblíöar
viðtökur í Seoul í dag.
Bandarískur þingmaður,
Edward Feighan, sagði að kóresk-
ir öryggisverðir hefðu hegðað sér
eins og fantar, ýtt nefndar-
mönnum, hrint þeim og jafnvel
slegið þá með krepptum hnefa.
Kim, sem hefur dvalizt í útlegð í
Bandaríkjunum, var strax settur í
stofufangelsi.
Friðarsinni
yfirgefur
Sovétríkin
Vínmrborg, 8. febrúar. AP.
SOVÉZKI friðarsinninn Mark I.
Reitman, kona hans, dóttir, sonur og
tengdamóðir, komu til Vínarborgar í
dag frá Moskvu og vonast þau til að
fá að setjast aö í Bandaríkjunum.
Reitman, sem er 48 ára verk-
fræðingur, var atkvæðamikill í
samtökum, sem vildu efla traust
milli Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna, og börðust fyrir gagn-
kvæmri afvopnun stórveldanna.
Samtökin voru stofnuð í júní
1982. Hefur opinská gagnrýni
samtakanna á hernaðarstefnu
Sovétríkjanna haft í för með sér
ofsóknir af hálfu leynilögreglunn-
ar KGB.
Reitman kvaðst margsinnis
hafa verið settur í stofufangelsi og
ítrekað verið skipað að segja skilið
við samtökin. Ellegar yrði honum
stefnt fyrir rétt fyrir að bera út
óhróður um Sovétríkin.
Hin opinberu friðarsamtök Sov-
étríkjanna, sem fjarstýrt er af yf-
irvöldum, takmarka friðarbaráttu
sína með gagnrýni á hendur
Bandarikjunum og bandamönnum
þeirra.
Talsmaður utanríkisráðuneytis-
ins sagði að fulltrúum bandaríska
sendiráðsins í Seoul hefði verið
meinað að taka á móti Kim og
nefndarfulltrúunum, þótt leyfi
hefði áður verið veitt.
En hann sagði að þrátt fyrir
þetta mál færi Chun Doo-Hwan
Suður-Kóreuforseti í fyrirhugaða
heimsókn til Bandaríkjanna í apr-
íl.
Kim sagði á blaðamannafundi
að hann hefði verið beittur ofbeldi
og sakaði lögregluna um barsmíð-
ar. Hann vill ræða við stjórn
Chuns, sem eitt sinn dæmdi hann
til dauða fyrir undirróður.
Hinir bandarísku stuðnings-
menn Kims, sem komu með hon-
um, vildu tryggja öryggi hans og
koma því til leiðar að hann gæti
hafið stjórnmálaafskipti að nýju.
Nefndarmennirnir gagnrýndu
bæði Suður-Kóreustjórn og sendi-
ráð Bandaríkjanna harðlega fyrir
að veita þeim ekki nægilega vernd.
„Þetta var ástæðulaust ofbeldi,"
sagði Robert White, fyrrverandi
sendiherra Bandaríkjanna í E1
Salvador.
Samkvæmt sumum fréttum
varð að flytja tvo Bandaríkja-
menn af kóreskum ættum í
sjúkrahús.
Sendiráð Suður-Kóreu í Wash-
ington sagði í yfirlýsingu að ör-
yggisráðstafanirnar á flugvellin-
um hefðu verið gerðar til að
tryggja öryggi Kims.
Lögreglan í Seoul neitar því að
Kim hafi verið barinn og segir að
aðeins hafi verið reynt að skilja
Kim frá fylgdarliði hans.
Kim sagði í viðtali á heimleið-
inni: „Draumur minn er að Kórea
verði undir lýðræðislegri stjórn,
sem tryggir þjóð okkar frelsi,
réttlæti og sjálfsvirðingu."
Walesa um niðurstöður réttarhalda vegna morðs á Popieluszko:
Ótti Pólverja við
óréttlæti sá sami
Yarsjá, 8. febrúmr. AP.
LECH Walesa, leiðtogi Samstöðu, óháðu verkalýðsfélaganna, hvatti stjórn-
völd í dag til að láta af kúgunum og „hræðsluáróðri“ í kjölfar dómanna yfir
fjórum leynilögreglumönnum vegna morðsins á prestinum Jerzy Popiel-
uszko, sem var stuðningsmaður Samstöðu.
Walesa gagnrýndi málsferð alla
og sagði yfirvöldum hafa mistek-
ist að draga úr ótta almennings
við óréttlæti í Póllandi. Kvartaði
hann undan því að Popieluszko
var lagður að jöfnu við banamenn
sína og að fjölmiðlarnir hafi verið
ÓLÁNSAMUR ÖKUÞÓR
AP/Simamynd
Bandaríski ökuþórinn Francis Affleck fórst við æfingar á Daytona-kappakstursbrautinni á Daytona
Beach í gær. Affleck hugðist taka þátt í 200 mílna kappakstri á brautinni á laugardag. Missti hann stjórn
á bifreið sinni á æfingu er hann kom út úr einni beygjunni með fyrrgreindum afleiðingum.
„fullir af lygaáróðri“ meðan á
réttarhöldunum stóð.
„Réttarhöldin afhjúpuðu hinn
hryllilega sannleika um starfsemi
leyniþjónustunnar og hugarfar
þeirra, sem þar starfa. Við skulum
ekki gleyma því að pólskur prestur
var myrtur af undirtyllum yfir-
valda,“ sagði Walesa.
Walesa sagði Samstöðumenn
hafa viljað líta réttarhöldin sem
áfanga að sáttum, um kraft lag-
anna gegn ofbeldi, „en ýmislegt
hefur orðið til þess að við efumst
um sáttfýsi yfirvalda," sagði Wal-
esa.
Tilgreindi hann þá ákvörðun yf-
irvalda að meina Seweryn Blums-
ztajn að koma til Póllands í vik-
unni. Blumsztajn var mjög virkur
í starfi Samstöðu, en hefur dvalist
í París í þrjú ár. „Af þessu má sjá
að það eru til Pólverjar, sem beitt-
ir eru órétti vegna annarra skoð-
ana en yfirvöldum eru þóknanieg-
ar,“ sagði Walesa.
Pólsk blöð slógu upp fregninni
um dómana yfir morðingjum
Popieluszko í dag, en viðbrögð
voru engin af hálfu stjórnvalda og
taismenn yfirvalda og kirkjunnar
neituðu að segja álit sitt á niður-
stöðunum.
Vestrænir sendifulltrúar sögðu
að líklega myndu sakborningarnir
áfrýja til hæstaréttar, sem kynni
að milda refsingu þeirra. Þeir
sögðu að dómurinn yfir Adam Pi-
etruszka höfuðsmanni væri „póli-
tískur“.
Walesa vildi ekki tjá sig um
refsingu fjórmenninganna. „Það
er þörf fyrir fyrirgefningu en við
þurfum einnig að sjá árangur af
baráttunni við hið illa,“ sagði
hann, „ef það gerist ekki hefur
tækifærið, sem við fengum með
þessum réttarhöldum, farið for-
görðum."
Rússar
semja um
tölvukaup
New York, 8. febrúor. AP.
RÚSSAR eru að semja um kaup á
fjölmörgum vestrænum einkatölv-
um, m.a. af gerðunum Apple og
IBM, að því er virðist til nota í
skólum og vísindastofnunum, að
sögn New York Times.
En blaðið hefur eftir fram-
kvæmdastjóra tölvufyrirtækis:
„Við látum ekki blekkja okk-
ur. Nokkrar þeirra eru ætlaðar
hernum.“
Viðskiptaráðuneyti Banda-
ríkjanna dró úr hömlum á sölu
hátæknibúnaðar til kommún-
istaríkja fyrir fimm vikum.
Þótt ljóst þyki að Rússar hafi
veitt fé til kaupa á einkatölvum
er ekki ljóst hve margar þeir
ætli að komast yfir. Heimildar-
maður New York Times segir að
verið geti að samningar takist
ekki fyrr en eftir marga mán-
uði.